Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992 33 Atvinnuráðgjöf Vestur- lands kynnt á fundi Borg í Miklaholtshreppi. NÝLEGA boðaði atvinnumála- nefnd Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi og atvinnuráðgjöf Vesturlands í dreifbýli til fundar í Breiðabliki. Þar var kynnt starfsemi atvinnu- ráðgjafar Vesturlands og fjallað um möguleika svæðanna í atvinnumál- um. Stefán Jóhann Sigurðsson stjórn- aði fundinum og skýrði frá ástæðu þessa fundar og vakti athygli á þarfri Fundur andstæðinga Sogns: Hreppsnefndin brýnd til andstöðu Selfossi. ÞORRI fundarmanna á um 60 manna fundi í Ölfusi, sem andstæðing- ar réttargeðdeildar boðuðu til, samþykkti áskorun til hreppsnefndar að koma með öllum ráðum í veg fyrir að réttargeðdeild verði sett á stofn á Sogni. Hreppsnefnd Ölfushrepps tekur málið til afgreiðslu f dag, fimmtudag en hún frestaði afgreiðslu fundar- gerðar bygginga- og skipulagsnefnd- ar á fundi sínum 7. febrúar. Nefndin hefur fallist á tillögur um breytingar en bendir á að þær séu á ábyrgð, heilbrigðis- og umhverfisráðuneytis, sem lagt hafa áherslu á framgang málsins. Þó fundurinn væri boðaður sem fundur andstæðinga sóttu hann margir sem ekki hafa lýst andstöðu við réttargeðdeild á Sogni. Framsög- umenn á fundinum lögðu áherslu á að andstaðan byggðist á því að rétt- argeðdeildin félli ekki að skipulagi svæðisins. Ennfremur að samkvæmt nýjustu teikningum þá væri ljóst að á Sogni yrði rammgert fangelsi, mun öruggara en Litla Hraun. Þá lögðu menn áherslu á að réttargeðdeildin ætti frekar heima í nánari tengslum við stofnanir af svipuðum toga og þá í þéttbýli. Á fundinum var varpað fram þeirri spumingu hvers vegna hættulegra þætti og óheppilegra að setja upp réttargeðdeild að Sogni en í þétt- býli, hvort sem það væri í tengslum við Sjúkrahús Suðurlands eða Kleppsspítala. Þessari spumingu var ekki svarað. Auk þess að skora á hreppsnefnd- ina segir í áðumefndri ályktun frá fundinum að starfsemin sé í ósam- ræmi við framtíðarskipulag svæðis- ins og að málið sé afdrifaríkt fyrir framtíð sveitarfélagsins og eining- una innan þess. Einar Sigurðsson oddviti varaði menn alvarlega við að stilla erfiðum málum upp á þann veg sem gert væri í lok ályktunarinnar. Sig. Jóns. umræðu í málefnum sveitanna í at- vinnulegu tilliti. Jón Pálsson iðn- ráðgjafi rakti í framsögu uppbygg- ingu atvinnutækifæra á þessu svæði. Hlutverk atvinnuráðgjafa Vestur- lands er að stuðla að jákvæðri þróun atvinnulífs í Vesturlandskjördæmi. Guðjón Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri sveitarfélaga á Vest- urlandi, ræddi um hlutverk sveitar- félaga í atvinnumálum. Atvinnumál eru í dag sá málaflokkur sem hvað mest áhersla er lögð á af hálfu sveit- arstjómarmanna og á síðasta aðal- fundi SSV var ákveðið að efla skyldi starfsemi iðnráðgjafa. Ingibjörg Hallbjörnsdóttir, ferðamálafulltrúi Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, ræddi um ferðamál og ferðamála- þjónustu. Það er staðreynd að Snæ- fellsnes er gott ferðamannaumhverfi frá náttúrunnar hendi. Það er margt sem gleður auga ferðamannsins sem á leið um þetta sögufræga hérað. Jökullinn, konungur héraðsins, hefur mikið aðdráttarafl og mætti á marg- an hátt nýta þá möguleika mun meira en gert hefur verið. Sigurður Már Einarsson fiskiræktarráðunaut- ur ræddi um bleikjueldi. í hans máli kom skýrt fram að hér á sunnan- verðu Snæfellsnesi eru ein bestu skil- yrði til bleikjueldis. Lindarvatn er hér ákjósanlegt bæði magn og hita- stig. Hann sýndi með línuriti góðan árangur í vexti bleikjueldis hjá Magnúsi Guðjónssyni, bónda í Hrúts- holti í Eyjahreppi, sem hóf bleikju- eldi síðastliðið vor og hefur vöxtur bleikjunnar þar verið með ágætum. Margar fyrirspurnir frá fundar- mönnum bárust til framsögumanna og ágætur og gagnlegur fundur um þessi mál var því kærkomin. - Páll. Steinunn Jónsdóttir sýnir fatnað í Naustkj allaranum STEINUNN Jónsdóttir fatahönnuður sýnir fatnað, sem hún hefur hannað og saumað, í Naustkjallaranum í kvöld, fimmtudag, kl. 21.30. Steinunn lauk prófi frá Koben- havns Mode og Designskole 1988. Eftir heimkomuna sýndi Steinunn lokaverkefni sitt á Skálafelli. Lokaverkefni hennar frá skólanum var herrafatnaður, jakkaföt og skyrtur, allt saumað úr silki, frá grófri tweed-áferð í þynnsta og fínasta silki. Utan yfir saumaði hún mokkajakka. Steinunn hlaut viðurkenningu frá Vöku-Helgafelli á síðasta ári fyrir hönnun á bamafatnaði. í Naustkjallaranum sýnir hún kvenfatnað, nærföt, dagklæðnað, kvöldklæðnað og yfirhafnir, bæði sumar- og vetrarlínuna. Einnig verður barnafatnaður sýndur. Sjálf hefur hún saumað allan fatnaðinn og leggur mikið upp úr góðum frágangi. Fötin verða til sölu á staðnum og einn- ig í galleríi hönnuðar eftir sýn- ingu. Módelsamtökin sýna fötin og hárgreiðslustofan Ella, Dunhaga, 23, sér um greiðslu fyrirsætanna. Salurinn verður skreyttur með silkiblómum frá heildverslun- inni Bergís hf. Steinunn Jónsdóttir ARIMAÐ HEILLA LJósm. Sigr. Bachmann. HJÓNABAND. 4. janúar voru gef- in saman í hjónaband í Víðistaða- kirkju af séra Sigurði Helga Guð- mundssyni, brúðhjónin Guðrún Björk Þrastardóttir og Birgir Rafn Þráinsson. Heimili þeirra er á Öldu- túni 10, Hafnarfirði. Ljósm. Sigr. Bachmann. HJÓNABAND. 21. september voru gefin saman í hjónaband í Fella- hólasókn af séra Guðmundi Karli Ágústssyni, brúðhjónin Agnes Ey- þórsdóttir og Páll Höskuldsson. Heimili þeirra er á Hrafnakletti 6, Borgranesi. Ljósm. Sigr. Bachmann. HJÓNABAND. 21. september voru gefin saman í hjónaband í Bústaða- kirkju af séra Pálma Matthíassyni, brúðhjónin Kristjana Helga Jónas- dóttir og Gunnar Árnason. Heimili þeirra er á Brunngötu 10, ísafirði. Kevin Costner í hlutverki sínu í myndinni JFK. Bíóborgin sýnir myndina „JFK“ BÍÓBORGIN hefur tekið til sýningar myndina „JFK“. Með aðalhlut- verk fara Kevin Costner, Donald Sutherland og Jack Lemmon. Lei^ stjóri er Oliver Stone. Myndin segir frá rannsókn Jim Garrison saksóknara í New Orleans á morði John F. Kennedy. Fáar myndir hafa valdið eins miklu fjaðra- foki í Bandaríkjunum og þessi mynd. Umræðan eftir frumsýningu mynd- arinnar hefur verið slík að rætt hef- ur verið um að Bandaríkjastjórn birti nú þegar almenningi skjöl varðandi rannsókn málsins. Þessi skjöl eru trúnaðarskjöl og í læstum hirslum Bandaríkjastjórnar til ársins 2029. ■ LIONSKLÚBBURINN EIR gengst fyrir árlegri kvikmyndasýn- ingu. Að þessu sinni verður sýnd gamanmyndin Stepping out“ með leikurunum Liza Minelli, Shelley Winters og Julie Walters. Sýningin verður í Háskólabíói laugardaginn 22. febrúar kl. 17.00. Persónusköpun í myndinni er mjög góð og ekki við hæfi að spilla fyrir áhorfendum þeirri ánægju að kynnast þeim fuglum sem þar koma við sögu. Formaður klúbbs- ins Stella Maria Vilbergs setur sýninguna og áður en sýningin hefst syngur hin efnilega söngkona Ingi- björg Marteinsdóttir nokkur iög við undirleik Guðna Þ. Guðmundsson- ar. Kvikmyndasýningin Stepping Out“ er haldið fyrir styrktaraðila og velunnara Lionsklúbbsins Eir sem undanfarin ár hefur unnið undir merkjum alþjóðahreyfingarinnar mannúðarmálum. Forvamastarf í þágu vímuefnavama hefur jafnan verið efst á baugi hjá klúbbnum og hafa samtök eins og Fíkniefnalög- reglan, Krýsuvíkursamtökin, Vímu- laus æska o.fl. notið góðs af. Lions- klúbburinn Eir hefur auk þess stutt og aðstoðað stofnanir og einstakl- inga sem um sárt eiga að binda. (Frcttatilkynning) I.O.O.F. 11 = 17302208Á = I.O.O.F. 5 = 1732208Vz = XX. Ársfundur Hins íslenska Biblíufélags verður haldinn í safnaðarheimili Dómkirkjunnar við Vonarstræti, sunnudaginn 23. febrúar kl. 15.30. Auk venjulegra aöalfundarstarfa verða flutt tvö stutt erindi. Dr. Sigurður Örn Steingrimsson ræðir um þýðingu Gamla testa- mentisins og séra Árni Bergur Sigurbjörnsson ræðir um Apokrýfar bækur Gamla testa- mentisins. Stjórn HÍB. FREEPORT KLÚBBURINN Fundur í kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20.30 i safnaðarheimili Bústaðakirkju. Ræðumaður kvöldsins verður Magnús Kjart- ansson, tónlistarmaður. Stjórnin. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. fcimhjólp Samkoma verður í kapellunni í Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30. Umsjón: Gunnbjörg Óladóttir. Samhjálp. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Kvöldvaka í kvöld kl. 20.30. Happdrætti. Veitingar. Umsjá: Hjálparflokk- urinn. Allir velkomnir. Vx--7 / KFUM AD KFUM Fundur í kvöld kl. 20.30 á Holta- vegi. Island er land þitt. Jón Böðvarsson, ritstjóri segir frá. Hugleiðing: Gunnar J. Gunnarss. Kaffi eftir fund. Allir velkomnir. Skipholti 50b, 2. hæð. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvistin í kvöld, fimmtu- dagskvöldið 20. febrúar. Byrjum að spila kl. 20.30 (stundvíslega). Verið öll velkomin og fjölmennið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.