Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 9 r \ “feru blússur v J Ný sending Svartar og dökkbláar buxnadragtir Guðrún rtrul Rauðarárstíg l sett J Góð ávöxtun Raunávöxtun m.v. 3 s.l. mánuði: Kjarabréf..8.2% Tekjubréf..8,1% « Markbréf..8,7% Skyndibréf. ...7,0% VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI.S. (96) 11100 Snyrtisérfrœðingur kynnir vorlitina frá Dior frá kl. 13-17 í dag. TOPPTÍSKAN Laugavegi 15. „Áætlanir ríkisins naumast pappírsins virði!“ „Reynslan sýnir, að áætlanir, sem gerðar hafa verið um rekstur ríkissjóðs síðustu árin eru naumast pappírsins virði,“ segir í forystu- grein Dags á Akureyri fyrir nokkru. Stakstein- ar staldra við þessa fullyrðingu í dag. „Glórulaus eyðslustefna“ Dagur segir í forystu- grein: „Samkvæmt bráða- birgðatölum um afkomu ríkissjóðs var rekstrar- hallinn á árinu 1991, 12,6 milljarðar króna. Gjöld ríkissjóðs á nýliðnu ári voru með öðrum orðum tólf þúsund og sex hundr- uð milljónum króna meiri en lekjurnar. Þetta sam- svarar þvi, að mánaðar- lega hafi ríkisvaldið eytt einum milljarði og fimm- tiu milljónum króna um- fram tekjur'. Vart þarf að taka það fram að hér er um að ræða mesta lialla sem oríð hefur á ríkissjóði síðustu fjörutíu árin. Það er ekkert nýtt hin siðari árin að ríkissjóður sé rekinn með halla. Slíkt er regla fremur en und- antekning. Engu virðist breyta hvemig árar í þjóðarbúskapnum. Þegar vel árar er eyðslan aukin i stað þess að nýta tekj- uraar til að lækka skuld- ir og „safna í sarpinn“ til mögru áranna. Þegar illa árar er hins vegar talið sjálfsagt að reka ríkissjóð með halla. Af- leiðingar þessarar glóra- iausu eyðslustefnu eru m.a. þær að íslenzka þjóðin sekkur stöðugt dýpra í skuldafenið." „Með öllu marklaus fjár- lög“ Það er fróðlegt að sjá hvem veg Dagur skrifar um áreiðanleika opin- berrar áætlunargerðar (þar á meðal fjárlaga Olafs Ragnars Grímsson- ar síðustu árín). Orðrétt úr Degi: „Reynslan sýnir, að áætlanir sem gerðar hafa verið um rekstur rikis- sjóðs síðustu árin eru naumast pappirsins virði. Þær hafa reynst með öllu marklausar. í fjárlögum fyrir árið 1991 var t.d. gert ráð fyrir að hallinn á rikissjóði yrði rúmir fjórir milljarðar króna. Síðastliðið vor var þessi áætlun endurskoðuð svo um munaði og gert ráð fyrir að hallinn yrði fimm milljöröum króna meiri, eða tæpar 9.100 miHjónir króna. Eftir að ríkis- stjóra Davíðs Oddssonar settist að völdum i maí- inánuði var hallinn áætl- aður í þriðja sinn. í þeim útreikningum var gert ráð fyrir, að efnahagsað- gerðir nýju rikisstjóraar- innar minnkuðu ríkis- sjóðshallaim um tvo millj- arða. Niðurstaðan var því rekstrarhalli upp á sjö milljarða. Nú hefur komið í ljós, að þessar áætlanir voru allar út í bláinn. Hallinn var ekki fjórir milljarðar, ekki sjö miHjarðar og ekki níu milljarðar. Hann varð þrisvar sinnum fjórir milljarðar króna!“ „Jafnvitlausar og hinar“ Síðan víkur Dagur að áætlunum um opinbera lánsfjárþörf og segir: „Þær áætlanir sfjóm- valda er lutu að lánsfjái'- þörf rikissjóðs á síðasta ári reyndust _ jafnvit- lausar og liinar. í fjárlög- um siðasta árs var gert ráð fyrir, að ríkissjóður þyrfti að taka 5,9 milfj- arða króna að láni og var áformað að taka allt það fé að láni hér heima. I fjárlögmn var meira að segja gert ráð fyrir að greiða niður lán ríkis- sjóös, bæði í Seðlabanka og erlendis. Þau göfugu áform runnu út í sandinn. lánsfjárþörfin reyndist 14,8 milljarðar króna en ekki 5,9. Af þeirri upp- hæð tókst ríkissjóði ein- ungis að ná inn þremur miHjörðum króna á inn- Icndunt lánamarkaði. Til að brúa bilið varð að taka um 6 milljarða króna að láni erlendis og fá 6 miHj- arða króna yfírdrátt í Seðlabankanum. Stjórnvöld láta sig augljóslega litlu skipta þótt skuldir þjóðarinnar vaxi með hveiju árinu sem líður. Hér á landi tiðkast ekki, að stjóra- málamenn séu ábyrgir gerða sinna. Þess vegna er enginn dregimi til ábyrgðar, þótt áætlanir hins opinbera standist ekki. Jafnvel ekki, þótt útgjöld fari mörg hundr- uð prósent fram úr áætl- un. Þjóðin má því búa sig undir, að ríkissjóður verði rekinn með halla um ókonuia tíð. Hún verður að læra það, að áætlanir er lúta að ríkis- rekstri eru nákvæmlega einskis virði.“ Fjárlög 1992 Gagnrýni Dags á stjórnmálamenn er hörð. Einkum á ríkisstjóniir síðustu ára. En ekkert síður á sérfræðingalið í opinberri áætlunargerð. Opinberar áætlanir eru sum sé „með öllu mark- lausar". Fjárlög 1991 voru síð- ustu fjárlög ríkisstjóraar Steingríms Hermanns- sonar og Ólafs Ragnars Grímssonar sem íjár- málaráðherra. Ríkisstjóra Davíðs Oddssonar hefur snúizt gegn þeirri „glórulausu eyðslustefnu", sem Dag- ur nefnir svo. Sumum finnst jafnvel nóg um atganginn, aðhaldið og niðurskurðinn! Ekki sizt fyrrverandi ráðherrum: ábyrgðarmönnum eyðslustefnunnar, skuldasöfnunarinnar og áætlana (fjárlaga), sem reyndust „nákvæmlega einskis virði". Airnað mál er, hvem veg reynslan dæmir fjár- lög 1992 og framkvæmd þeirra. Sá dómur bíður næstu áramóta. omRon LIÐAR OG SÖKKLAR FYRIRLIGGJANDI Á LAGER 6-220VAC OG 6-110VDC ^TÆKNIVAL Skeifan 17-128 Reykjavík - Sími 91-681665 - Fax 91-680664 ptnrpwMtóiiti Metsölublað á hverjum degi! TEG. STGfí. AFB0RG.V. A.C. Kitty Cat, uppsetdur 193.559,- 203.747,- A.C. Jag Special 577.269,- 607.651,- A.C. Jag AFS Long track 2 sp. (H/L drif) 672.243,- 707.626,- A.C. Cheetah Touring 2 sp. (H/L drif) 779.423,- 820.445,- A.C. Cougar Two-Up 613.355,- 645.636,- A.C. Prowler Two-Up, uppseldur 687.177,- 723.344,- A.C. EX/T Speciai 699.949,- 736.258,- A.C. Ei Tigre EXT, uppseidur 673.682,- 709.139,- A.C. El Tigre EXTMC 694.069,- 730.599,- A.C. WHd Cat 700, uppsetdur 769.649,- 810.153,- A.C. WiidCat 700EFi, uppse/dur 831.258,- 875.008,- NýjuARCTíC CAT véísíeðarnir árgerð 1992, eru til sýnis og söiu i Ármúia 13. Sieðarnireru tiibúnir tií afhendingar strax. Eigum mikið úrvaiaf notuðum vélsleðum. Einnig fatnað á vélsleðafólk, svo sem hjáima, samfestinga og úipur. Verið veikomin. UMBOÐSAÐILAR FYfí/R ARCT/CCAT: F/ugfé/agið Emir, Ísafirði, Mú/atindur, Ó/afsfirði, Höldursf., Akureyri. iwwji <i mm&lmmmMm m öfts Ármú/a 13 108 Reykjavík Símar 68 12 00 & 3 12 36

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.