Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
t
Fósturmóðir mín og tengdamóðir,
ÁSLAUG SÍVERTSEN,
Hávallagötu 46,
Reykjavik,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi 18. febrúar.
Júlíus Vffill Ingvarsson,
Svanhildur Blöndal.
t
Ástkær eiginkona mín,
ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR,
Kóngsbakka 14,
Reykjavík,
andaðist í Landspítalanum þriðjudaginn 18. febrúar sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Haraldur Kristinsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
Faxastfg 22,
Vestmannaeyjum,
lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 18. febrúar.
Guðmundur Ásbjörnsson,
Garðar Ásbjörnsson, Ásta Sigurðardóttir,
Fjölnir Ásbjörnsson, Kristbjörg Lóa Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
JAKOBÍNA JÓNSDÓTTIR,
Laugarbrekku 14,
Húsavik,
lést í sjúkrahúsinu á Húsavík þriðjudaginn 18. febrúár.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ásgeir Bjarnason, Jóna Guðjónsdóttir,
Guðmundur Bjarnason, Vigdís Gunnarsdóttir,
Stefán Jón Bjarnason, Þórdis Arngrímsdóttir.
t
Móðir og tengdamóðir okkar,
RAGNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja,
Fremri-Brekku,
Dalasýslu,
er látin.
Ástvaldur Magnússon,
Guðbjörg Helga Þórðardóttir,
Erna Kolbeins.
t
Etskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN SIGTRYGGSSON
tannlæknir, læknir
og fyrrum prófessor,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 21. febrúar
kl. 15.00.
Jón Örn Jónsson, Guðrún Guðbergsdóttir,
Ingvi Hrafn Jónsson, Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir,
Óli Tynes Jónsson, Vilborg Halldórsdóttir,
Sigtryggur Jónsson, Margrét Jónsdóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
VILBORP KOLBEINSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 22. febrúar
kl. 11.00 árdegis. Jarðsett verður að Úlfljótsvatni.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er vinsamlega bent á Menn-
ingar- og minningarsjóð kvenna.
Unnur Gréta Úlfsdóttir,
Edda Úlfsdóttir
Sverrir Úlfsson,
Áslaug Herdis Úlfsdóttir,
Kolbrún Úlfsdóttir,
Geirlaug Halla Mears,
Magnús Jónsson,
Nanna Úlfsdóttir,
Hallbjörg Bergmann,
Svandis Hallsdóttir,
Þorvarður Sigurðsson,
Jóhannes Haraldsson,
Peter Mears,
Hrönn Þorgteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Jón Kr. ísfeld
Fæddur 5. september 1908
Dáinn 1. desember 1991
Hann var fæddur 5. september
1908 í Haga í Mjóafirði. Foreldrar
hans voru Kristján ísfeld Guð-
mundsson bóndi í Mjóafirði, síðan
útgerðarmaður í Neskaupstað og
bóndi á Seyðisfirði. Kona Kristjáns
var Júlía Sigríður Steinsdóttir kenn-
ari. Jón ísfeld hafði hneigð til sjó-
mennsku og stundaði sjómennsku
þegar hann hafði aldur til. Hann
var einn af þeim Austfirðingum er
þurfti að leggja hart að sér til að
komast til mennta, því stundaði
hann sjómennsku til að afla sér
tekna til skólagöngu.
Hann fór ungur til mennta á
Eiðaskóla og var það honum til
góðs og frama og var hann hneigð-
ur til að semja og skrifa. Hann
þótti góður til að semja fundargerð-
ir, ritgerðir um ýmis efni sem var
honum kærkomið. Að loknu námi
á Eiðaskóla settist hann í Mennta-
skólann á Akureyri og undi sér þar
vel og útskrifaðist þaðan 1932.
Þá varð Jón ísfeld skólastjóri
unglingaskólans á Seyðisfírði. Síð-
an settist hann í Kennaraskólann í
Reykjavík 1933, og lauk þaj prófi
og sat samhliða í Háskóla íslands
og lauk þar prófi í heimspeki. Síðan
fór hann til Loðmundarfjarðar og
stundaði þar kennslu 1934-37. Þá
tók hann að lesa guðfræði við Há-
skólann sem hann hafði lengi lang-
að til. Hann lauk guðfræðiprófí
1942. Var það í sama mund á þess-
um tímamótum ævi hans að hann
fastnaði sér konu er reyndist honum
vel og var honum til mikillar gæfu.
En það var Auður Halldórsdóttir,
dóttir Halldórs bónda Pálssonar' í
Loðmundarfirði, ættuð frá Tungu í
Fáskrúðsfirði. Var hún góð kona,
búkona og gæfa Jóns. Voru þau
gefin saman 1942, eignuðust þau
einn son, Hauk að nafni, og tóku,
að sér stúlkubarn er Auður heitir.
Þau hjón sr. Jón Isfeld og Auður
Halldórsdóttir héldu nú saman í
vesturátt. Jón ísfeld vígðist til Hraf-
neyrarprestakalls á Vestfjörðum
1942 og var síðan veitt brauðið
Bíldudalur við Arnarfjörð sem var
gott brauð. Sr. Jón ísfeld og kona
hans undu þar hag sínum lengi
vel, þau hjón tóku vel á móti gestum
og kona hans var góð húsmóðir,
því hún hugsaði vel um heimilið.
Sr. Jón var alla tíð bindindismaður,
hann stofnaði stúku fyrir unglinga
er þau höfðu gott af.
Hann var vel hugsandi um ferm-
ingarbörn sín, er voru velhugsandi
til hans alla daga.
Þá gerðist hann prófastur í
Barðastrandarsýslu 1955-61.
Þetta var mikið svæði, þá var hann
í stjórn Prestafélags Vestijarða. Sr.
Jón var alla tíð mikið-gefinn fyrir
bækur. Er Árbækur Barðastrandar-
sýslu 1948 voru gefnar út á vegum
Jóns Skaftasonar sýslumanns, Jóni
Magnússyni og Sæmundi Olafssyni
forstjóra; var ritstjóri bókanna sr.
Jón ísfeld frá 1948 til 1955. Var
sr. Jón góður í starfi þessu og fórst
það vel úr hendi. Lindon var rit
Prestafélags Vestfjarða er sr. Jón
skrifaði í. En þá var þar komið að
sr. Jón sagði skilið við Arnarfjörð
og Bíldudal eftir gott starf, predik-
anir og störfín við börnin og eldra
fólkið og hið stóra landslag með
grónum grundum og búendum og
sjóinn sem var fískisæll við Bíldu-
dal. Hann hélt nú til Húnaþings.
Sr. Jón ísfeld hlaut þar Æsustaða-
prestakall með 5 kirkjum. Þar var
nú eigi prestsetur, en Jón bjó hjá
bónda einum á Brandstöðum uns
þar var byggt prestsetur á Bólstað
í Botnastaðalandi er var hjáleiga
hjá Bólstaðarhlíð. Jón ísfeld bjó þar
með konu sinni í 10 ár og undi þar
lengi vei. Hann var vel látinn og
glaður í sinni. En nú tók hann sig
upp og varð sóknarprestur í Hjarð-
arholtsprestakalli í Dölum og settist
að í Búðardal 1970. Þá varð hann
að nýju prófastur í Snæfelisness-
og Dalaprófastsdæmi 1973. Hann
fékk lausn frá embætti 1975. Þau
t
Elskuleg móðir mín,
HRAFNHILDUR ÞORBERGSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30.
Hörður Garðarsson.
t
Jarðarför
SIGRÍÐAR LOFTSDÓTTUR
iðjuþjálfa
frá Sandlæk,
ferfram frá Stóra-Núpskirkju laugardaginn 22. febrúar kl. 14.00.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.30 með viðkomu í
Fossnesti, Selfossi.
Sigurður Arngrimsson,
Elinborg Loftsdóttir, Birgir Baldursson,
Loftur S. Loftsson, Kristjana Bjarnadóttir,
Erlingur Loftsson, Guðrún Helgadóttir,
Baldur Loftsson, Alda Johansen.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma
HÓLMFRÍÐUR SIGÞÓRA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Strandgötu 6,
Ólafsfirði,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsi Akur-
eyrar sunnudaginn 9. febrúar, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 21. febrúar kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á
Krabbameinsfélag Akureyrar.
Björn Þorvaldsson,
Þórunn Agnarsdóttir,
Þorvaidur Björnsson, Erna Haraldsdóttir,
Guðmundur Björnsson, Elín Halldórsdóttir,
Elín A.Þ. Björnsdóttir, Árni Sveinbjörnsson
og barnabörn.
hjón undu sér vel í Búðardal og
kynntust fólkinu vel á þessum fáu
árum. Er hann hætti prestskap
fluttu þau í Kópavog.
Sr. Jón ísfeld var kominn á efri
ár og prestskapnum mátti segja
lokið, þá tók hann að rita ævisögu
sína. Frá barnæsku, lærdómsámm
og prestskapnum með helgidómn-
um. Sat hann nú að þessu ritverki
og færði í letur um sína hagi, um
liðna tíð og það sem gerðist í sam-
tíð sinni. Þá má geta þess að kona
hans Auður Halldórsdóttir var bók-
hneigð, og hafði gáfur til þess að
færa í letur sem var merkilegt, og
gerðist um hennar daga. Hún hafði
sína bók er hún færði í letur það
sem henni fannst merkilegt um sína
daga, enda var hún vel gefin kona.
Sr. Jón ísfeld sagði mér þetta því
hann studdist við skrif heiinar.
Þá var gefín út bók Aldarminning
Sigurbjörns Gíslasonar, sr. Jón ís-
feld var fenginn til að skrifa þá
ævisögu er var fróðleg lesning, saga
þessa merka manns. Hann fór vest-
ur um haf og það hafði mikil áhrif
á hann þar að sjá elliheimili Vestur-
íslendinga þar.
Það varð til þess að hann stofn-
aði með hjálp góðra manna elliheim-
ilið Grund á Melunum fyrir framan
Hof og Ás er var vígt 1930.
Við eldri prestar í Reykjavík fór-
um síðan, er Sigurbjörn Gíslason
og Gísli Sigurbjörnsson buðu okkur
til að starfa á Grund. Við sem erum
í Félagi fyrrverandi sóknarpresta
höfum notið góðs af þessu, í okkar
tíð hefur Gísli Sigurbjörnsson og
kona hans Helga Björnsdóttir kom-
ið miklum framkvæmdum til góðs
fyrir gamla fólkið og eldri presta.
Við höfum messað í kirkjunni á
Grund okkur prestunum til blessun-
ar að boða guðsorð. Þá hefur að
lokinni messu verið haldinn fundur
okkur til fróðleiks. Gísli Sigur-
björnsson hefur séð um ferðir okkar
til Elliheimilisins er þess var þörf.
Á árinu 1987 er Elliheimilið
Grund varð 65 ára og dvalarheimil-
ið Ásborg í Hveragerði 35 ára, þá
ákvað stjórnin á Grund að stofn-
endasjóður Grundar gæfí Félagi
fyrrverandi sóknarpresta í stofnsjóð
þess á Grund góða gjöf.
Félag vort hefur notið góðs af
Elliheimilinu Grund og forstjóra
þess Gísla Sigurbjörnssyni. Margir
okkar presta sem þjónað hafa úti
á landi koma nú til Reykjavíkur og
njóta góðs af félagi okkar. Einn
þeirra var sr. Jón Isfeld er var 12
ár í félaginu og í stjórn þess í 6
ár, ritari með hinni góðu skrift.
Hann steig oft í stólinn og þegar
prestsefnin komu til að predika, þá
fór sr. Jón ísfeld fyrir altari. Þá
má geta þess að sr. Jón ísfeld fékk
Hina íslensku fálkaorðu. Ég held
að sr. Jón ísfeld og Auður ísfeld
hafí haft mest kynni um dagana á
Bíldudalsprestakalli, en þar þjónaði
sr. Jón Isfeld lengst af. Sr. Jón
skrifaði líka góða greinariýsingu á
Bíldudalskirkju er hún var 40 ára.
Og víst er um það að þeim hjónum
var boðið þangað á merkisdögum.
Ég vissi að sr. Jón ísfeld bar góðan
hug til sr. Jakobs Hjálmarssonar
er var orðinn prestur við Dómkirkj-
una í Reykjavík. En sr. Jakob var
fæddur 1947 á Bíldudal og lifði þar
sín æskuár. Hann flutti líkræðuna
í Dómkirkjunni yfir sr. Jóni Isfeld.
Pétur Ingjaldsson.