Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Fjölskyldugæfa þín færir þér mikla hamingju í dag. Sjálfsagi kemur þér vel í starfinu. Ræddu við þá sem ráða ferð- inni og viðraðu hugmyndir þín- Naut (20. apríl - 20. maí) trfö Nú er tilvalið að fást við hvers konar lagaleg álitaefni og samningamál. Maki þinn færir þér góðar fréttir. Þú tekur ákvörðun um námskeið eða ferðalag. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þú færð ærlegt tækifæri til að bæta stöðu þína núna. Tekjur þínar ættu að verða góðar á næstu vikum. Hyggðu að ákjósanlegum fjárfestingar- tækifærum og viðhafðu ýtrustu sparsemi. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >"10 Þetta verður hinn skemmtileg- asti dagur hjá þér í mörgu tilr liti. Þér verður boðið til íburðar- mikils kvöldverðar og róman- tíkin setur svip sinn á tilveruna. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú færð innblástur og verkefni sem þú vinnur að rokgengur. Þú átt góðar stundir á stefnu- móti og tilfinningar þínar eru endurgoldnar. Meyja (23. ágúst - 22. septemberl Njóttu þess að kaupa inn fyrir heimilið í dag. Þér gengur vel við skapandi verkefni sem þú hefur með höndum. Vog (23. sept. - 22. október) Þú vinnur að því að prýða heim- ili þitt og kaupir eitthvað óvenjulegt sem setur svip sinn á umhverfið. Persónutöfrar og frumkvæði draga þig langt. Sporddreki (23. okt. - 21. nóvember) ®KjB Þetta er ákjósanlegur dagur til innkaupa. Þú gerir áætlun um ferðalag til fjariægs staðar. Nýttu sköpunarhæfileika þína og byijaðu á einhveiju listrænu viðfangsefni. Bogmaöur (22. nóv. — 21. desember) Þú hjálpar einhveijum sem er illa staddur. Kauptu eitthvað sem þig langar mikið í. Þú ert aðlaðandi í dag og hittir vini þína á glaðri stund í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) & Þú ert sérstaklega töfrandi í dag hefur umtalsverð áhrif á fundi sem þú tekur þátt í. Þig langar til að eiga næðisstundir með ástvinum þínum. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) dk Það sem gerist á bak við tjöld- in á vinnustað þínum kemur sér vel fyrir þig. Þiggðu heim- boð sem þér berst í dag. Vin- sældir þínar eru óumdeilanleg- ar um þessar mundir og fólk laðast að þér. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú stofnar til vináttusambands í dag. Blandaðu ekki saman leik og starfi, en berðu þig eft- ir því sem hugur þinn stendur til í lífinu. Stjórnusþána á að lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vtsindalegra staóreynda. DÝRAGLENS GRETTIR LJÓSKA fMNN £JS FXLLEGUQELU, £71/ V/Ve HAUNH&EÐ/-, L£GA DVR.? BS ÆTLA eua AP BLÐA h*UG. HBVLéGBE. ORBtMN fiW 06 HRDKKÖTTUK Af> Li&At- E& VÍL 6ERA MÐ NUNA■■ ■ M /fteÐAH EGkk. EHN. UþJGOR 06 HROtacGTTV^ LVkbr■■■■■■ c 1 t-' ' O \-l-*s=s=f=^ ... ÆHtr SMÁFÓLK MUCH 5TRE55 5HE'5 BEEN UNPER LATELY, AND THEN 5HE JU5T FELL A5LEEP... 7------ Hvar er hún, kalli? Hún er hér í Hún var að segja okkur hvað hún Vesalings Hún þarf sennileg Hvar er Magga? fastasvefni. hefur verið undir miklu álagi und- Magga. Hún að fá sér hund. anfarið, og svo sofnaði hún bara. er of hörð við sjálfa sig. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Svínaðu, svínaðu! Ég hélt við værum að ná öðru sætinu. Fyrra spilið var nánast toppur og ef suður færi niður á 3 gröndum fengjum við stóran plús.“ Dan- inn Lars Blakset var að lýsa fyrir dálkahöfundi hugarangist sinni í vörninni í síðasta spili tvímenningskeppni Bridshátíð- ar: Norður ♦ K65 ♦ D752 ♦ 7 + D7432 Vestur Austur ♦ 108432 „„„ ♦ÁDG V K86 ■ ¥G104 ♦ K2 ♦ 86543 ♦ 1098 4 05 Suður ♦ 97 y Á93 ♦ ÁDG109 ♦ ÁK6 Á ótrúlega mörgum borðum varð suður sagnhafi í 3 grönd- um. Sem er spennandi spil með spaða út. Þar sem Blakset og Steen Möller voru í vöminni hélt Bernódus Kristinsson um stjórnvölinn. Hann lét lítinn spaða úr blindum í byijun og Möller fékk á gosann. Og skipti yfir í lítið hjarta, sem Bernódus hleypti yfir á kóng vesturs. Aft- ur kom spaði í gegnum kónginn og Möller tók þar tvo slagi og spilaði litlum tígli. Nú lagðist Bernódus undir feld og Blakset setti hugarorkuna af stað: „Svínaðu, svínaðu!" En Bernódus ákvað á endan- um að hafna svíningunni og spila upp á að laufið og hjartað skil- uðu 9 slögum. Sem reyndist rétt vera. Danirnir urðu því að sætta sig við 3. sætið, aðeins 2 stigum á eftir Þorláki Jónssyni og Guð- mundi Páli Arnarsyni. Það er fróðlegt að skoða hvernig 3 grönd fara ef austur spilar strax í upphafi spaðaás og meiri spaða. Sú vöm kostar slag á spaða en dugir til að hnekkja samningnum ef sagn- hafi svínar í tígli. Hins vegar má vinna spilið með því að taka laufslagina og þvinga vestur í lokin. En það verður að lesa rétt í afköstin. Umsjón Margeir Pétursson Á Skákþingi Reykjavíkur sem lauk í síðustu viku hafði Dan Hansson (2.250) hvítt og átti leik í þessíiri stöðu gegn Magnúsi Erni Úlfarssyni (2.260) 24. Rf5+! - exf5, 25. Df6+ - Kd8, 26. Had4 - hd8, 27. Hxd7! — Hxd7, 28. Dc6 og svartur gafst upp. Um helgina: Skákkeppni fram- haldsskólanna fer fram í félags- heimili TR., Faxafeni 12, dagana 21.-23. febrúar. Febrúarhrað- skákmót Taflfélags Reykjavíkur verður háð sunnudaginn 23. febr- úar kl. 20.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.