Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 44
'“44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 Sími 16500 Laugavegi 94 Leikendur: Sólveig Amarsdóttir, Haraldur Hallgrímsson, Ingvar Sigurðsson, Þorlákur Kristins- son, Eggert Þorleifsson, Björn Karlsson, Magnús Ólafsson. Leikstjórn og handrit: Ásdís Thoroddsen. Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. - Miðaverð kr. 700. * BILUNÍBEINNI UTSENDINGU ★ ★★ Pressan ★ ★★★ Bíólinan ★ ★ ★'/! HK DV ★ ★ ★ ★ S.V. Mbl. Sýnd kl. 6.40 og 9. Bönnuði. 14ára. Nýtt fyrirtæki í fræsölu FYRIR nokkru tók til starfa nýtt fyrirtæki sem ber nafn- ið Fijó hf. og er til húsa að Fosshálsi 13-15 í Reykjavík. Stofnendur og aðaJeigendur eru þrír fyrrum starfsmenn Sölufélags garðyrkjumanna, Hjalti G. Lúðvíksson, Jón Magnússon og Kristján Benediktsson. Auk þeirra eru tæp- ir 40 hluthafar, garðyrkjubændur og eigendur garðplöntu- stöðva. Hér er um að ræða heild- verslun sem fyrst og fremst er ætlað að sjá íslenskri garð- Laugavtgi 45 - *. 21 255 í kvöld: Tónleikar RUT + Slefkvefburger Paul Laura Vallile Súrbók Þessu má enginn missa af Föstudagskvöld: Deep Jimi andthe Zep Creams Laugardagskvöld: Sálin hans Jóns míns yrkju fyrir rektrarvörum hverskonar, bæði innlendum og erlendum. Einnig mun Ftjó hf. kappkosta að þjónusta bæði landbúnað og skógrækt á sama hátt. Lögð verður mikil áhersla á lágt verðlag bæði með stórinnkaupum og eins með því að halda öllum rekstrarkostnaði í lágmarki. Engu að síður er reynt að verða við öllum óskum við- skiptavina. Þannig hafa vöru- sendingar til fyrirtækisins verið allt frá '/» úr grammi upp i 40 feta gáma. Þá mun Fijó hf. bjóða versl- unum um land allt allskonar vörur tengdar heimilisgarð- yrkju. Einnig munu starfs- menn fyrirtækisins kappkosta að veita viðskiptavinum fag- lega ráðgjöf og afla upplýs- inga um hvaðeina er viðkemur áðumefndum starfsgreinum. Starfsmenn Fijós eru þrír, þ.e.a.s. áðumefndir aðaleig- endur fyrirtækisins. (Fréttatilkynning) ------» ♦ ♦ Leiðrétting: Símanúmer misritaðist Símanúmer símsvara fíkniefnadeildar lögregl- unnar misritaðist í dálkin- um „Abendingár frá lög- reglunni" í Morgunblaðinu í gær. Rétt símanúmer er 69-90-90. Fólki sem hringir í símsvarann er heitið nafn- leynd og með allar upplýsing- ar er farið sem trúnaðarmál. SPEIMNU-TRYLLIRINN LIKAMSHLUTAR ÞegarBob fékk ógræddan nýjan handlegg... Sýnd kl. 5.10, 9.10og 11.10. Bönnuð innan 12 ára. REG-ARDING HENRY Sýndkl. 11.10. Bönnuð i. 12 ára. Sýnd 5.10. Fáarsýningareflir. TVOFALTUF VERÓNIKU AI. MBL. Það er stórkostlegt hvað læknavísindin geta. En hvað gerist þegar hönd at morðóðum manni er grædd á ósköp venjulegan mann og fer síðan að ráðskast með hann? Ihel DOUBLE LIFE of veronika ATH.: SUM ATRIÐII MYNDINNI ERU EKKI FYRIR VIÐKVÆMT FÓLK Leikstjóri: Erik Red. Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Brad Dourif. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7.05 og 11.05. Fáar sýningar eftir. Sýndkl. 7.10. Fáar sýningar eftir. Tveir íllskeyttir; Bruce Willis og Damon Wayans i Síðasti skátinn. Beljakar snúa bökum saman Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóhöllin: Síðasti skátinn - „The Last Boy Scout“. Leikstjóri Tony Scott. Handrit Shane Black. Tónlist Michael Kamen. Kvikmyndataka Ward Russell. Aðalleikendur Bruce Willis, Damon Way- ans, Chelsea Fields, Noble Willingham, Taylor Ne- gron, Halle Berry. Banda- rísk. Wamer Bros 1991. Þó ferill beggja sé í mol- um þá er greinilega ekki tímabært að afskrifa þá einkaspæjarann Willis né slæpingjann Wayans. Willis var áður leyniþjónustumað- ur, þjóðhetja sem bjargaði lífi forsetans en lenti í úti- stöðum við spilltan stjórn- málamann sem enduðu með því að hann var settur útí ystu myrkur spæjarastarfs- ins og lagði heimilislífið í rúst. Wayans var hinsvegar leikstjómandi fótboltaliðs- ins L.A. Stallions, lenti í persónulegum harmleik, missti stöðuna og hefur ánetjast eiturlyfjum og sokkið í sjálfsmeðaumkvun. Willis, sem fær heldur vesæl verkefni, er beðinn um að vernda dansmærina Berry og kemur í ljós að hún er ástkona Wayans. Stúlkan er myrt og kemur í ljós að hún hefur komist á snoðir um pólitískt hneykslis- og mútumál. Eftir nokkra pústra snúa þeir Willis og Wayans bökum saman í að fletta ofanaf ódæðismönn- unum. Það leynir sér ekki að sá sem stendur á bak við Síð- asta skátann er vanur mað- ur, enda enginn annar en Joel Silver, einn kunnasti framleiðandi spennumynda samtímans. Á að baki ófáar myndir sem hafa slégið í gegn í þeim geira, einsog Die Harcl I & II og Lethal Weapon I & II. Má segja að Síðasti skátinn sé byggð- ur á Lethal Weapon-formúl- unni - tveir, ólíkir beljakar gerast fóstbræður, annar svartur, hinn hvítur. Og saman stenst þeim enginn snúning. Og hér er talsvert ívaf úr sögur Chandlers og Hammetts, þaðan er Willis greinilega ættaður. Sögu- þráðurinn er ekki merkileg- ur en kryddið er tveir óvenju harðsoðnir naglar sem eiga í höggi við spillta pólitíkusa og fjármálamenn sem nota óvenju hrikaleg meðöl. Þá lífgar einstaklega kjaftfor unglingskrakki, dóttir Will- is, uppá myndina og harla nýstárleg persóna á hvíta tjaldinu. Það er þríeykið Scott, Willis og Wayans sem gerir Síðasta skátann að úrvals afþreyingu. Scott hefur náð fótfestunni aftur í hörku keyrslu og afbragðs átaka- atriðum eftir Revenge og Days of Thunder, hálfgerð dauðyfli í samanburði við fyrri myndir leikstjórans, Top Gun og Beverly Hills Cop II. Áhorfendur fá engan frið allt frá líflegu upphafs- atriðinu með söngvaranum Bill Medley, sem gefur svo sannarlega tóninn, til skytt- erísins í lokin. Willis á þó mest lofið skilið, hann er fæddur í hlutverk slíkra ódrepandi, ískaldra harð- hausa sem einkaspæjarinn hans er og hér var ferill hans aukinheldur í húfi. Ef Skátinn hefði brugðist eins- og hinar afleitu myndir hans á undan, The Bonfire of The Vanities og Hudson Hawk, hefði leikarinn átt erfitt uppdráttar í kvikmynda- borginni. Wayans gefur honum lítið eftir, einn af mörgum galvöskum, þel- dökkum leikurum á uppleið. Munnsöfnuðurinn er hressi- legur en ekki fyrir viðkvæm eyru. Síðasti skátinn er vissu- lega formúlumynd en gædd þeim nauðsynlegu gnind- vallarvítamínum sem halda áhorfandanum vel vakandi yfir hasarmyndum: Hraða, spennu, köldum körlum og kímnum kjafthætti. Laugarás- bíó sýnir myndina „Lifað háttu LAUGARÁSBÍÓ hefur tek- ið til sýningar myndina- „„Lifað hátt“. Með aðalhlut- verk fara Terrence Carson og Lisa Arrindell. Leik- stjóri er Michael Schultz. Dexter Jackson er sendill sem fær tækifæri sem sjón- varpsfréttamaður þegar hann tekur hljóðnema af myrtum fréttamanni og heldur áfram þar sem hann hætti. Sjón- varpsstöðin lýkur upp vin- sældalistann hjá sjónvarps- áhorfendum svo að Dexter er dubbaður upp í fréttamann. Dexter varar sig ekki á skrumi og gjálífi þeirra sem eru í sviðsljósinu, en þegar hann sér sjálfan sig smám saman breytast úr glaðlynd- um blökkustrák í hvítan fréttahauk, fer honum ekki að lítast á feril sinn, og þegar stefnir að því að piltur giftist hvítu gellunni sem sér um veðurfregningar fer fyrst að hvessa. Tveir af aðalleikurum myndarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.