Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
19
Ottast að skæð tölvu-
veira láti til skar-
ar skríða 6. mars
Forrit fundið upp til að hreinsa tölvur
FRIÐRIK Skúlason, tölvusérfræðingur og höfundur „Lykla-Péturs“,
sem er forrit til þess að hreinsa tölvur af smiti af völdum tölvuvírusa,
segir að tölvuveiran Michaelangelo, sem fundist hefur hérlendis, geti
hinn 6. mars næstkomandi farið að eyða kerfisbundið öllum þeim gögn-
um, sem finnast á hörðum diskum tölva, hafi tölvurnar orðið fyrir
smiti. Þessi tölvuveira gerir ekki vart við sig fyrr en í fyrsta lagi 6.
mars og því er útilokað að vita, hvort tölva sé smituð eða ekki, nema
með sérstöku forriti.
í október 1989 olli veiran Data-
Crimo tölvuverðu fjölmiðlafári hér-
lendis og víðar, en þá var því hald-
ið fram að tölvur yrðu óstarfhæfar
ákveðinn dag. Sá ótti var þó með
öllu ástæðulaus hérlendis, þar sem
ekkert smit kom fram hérlendis.
Friðrik segir: „Mich'elangelo-veiran
er öllu meira vandamál þar sem
engin augljós einkenni fylgja smiti
með þessari veiru, og má gera ráð
fyrir að allnokkur fjöldi tölva sé
smitaður hér á landi, án þess að
nokkur viti af því. Eigendur þeirra
myndu fyrst verða varir við veir-
una, þegar kveikt er á tölvunum
6. mars, en þá eyðir hún kerfisbund-
ið öllum þeim gögnum sem finnast
á harða disknum. Fleiri veirur
fínnast hérlendis, sem geta legið í
leyni á þennan hátt og má þar m.a.
nefna spænsku símaveiruna og
franska veiru, sem nefnist Fichv.“
Síðan segir Friðrik Skúlason:
„Til þess að reyna að koma í veg
fyrir að Michelangelo-veiran valdi
einhveiju tjóni hérlendis, hefur ver-
ið útbúin sérstök útgáfa af veiru-
varnarforritinu Lykla-Pétri, sem er
dreift á kostnaðarverði - um 200
krónur, fram til 6. mars. Með því
er unnt að leita að þessari veiru
og öðrum þeim sem gætu hijáð ís-
lenskar tölvur. Forrit geta menn
orðið sér úti um hjá Einari J. Skúla-
syni hf. að Grensásvegi 10.“
Þess er getið að lokum, að þessi
veira heijar eingöngu á IBM-PC
samhæfðar vélar, en eigendur Mac-
intosh og annarra tölvugerða þurfa
ekki að:; hafa áhyggjur af þessari
veiru. '*• '
Skáldjass í Norræna húsinu
I KVOLD, fimmtudagskvöldið 20. febrúar, verður haldin skemmt-
un í Norræna húsinu þar sem fram koma Einar Kárason rithöfund-
ur, skáldið Sjón og djasskvartett, skipaður þeim Tómasi R. Einars-
syni, Sigurði Flosasyni, Eyþóri Gunnarssyni og Einari V. Sche-
ving. Þessi hópur hefur unnið saman efni i dagskrá sem flutt
verður í ýmsum framhaldsskólum landsins á vikum og mánuðum
og býður nú Reykvíkingum utan skóla að koma og hlusta.
Einar Kárason les upp kafla úr
óbirtri skáldsögu, Sjón man ekki
eitthvað um skýin og djasskvart-
ettinn leikur úrval íslenskra, og
erlendra laga, ásamt ýmsum
áhrifshljóðum. Óvíst er að skál-
djasshópurinn komi fram aftur
utan framhaldsskólanna á Reykja-
víkursvæðinu og er fólk hvatt til
að missa ekki af einstæðu tæki-
færi.
Tónleikarnir/upplesturinn hefj-
ast klukkan 21.
(Fréttatilkynnmg)
Menntamálaráðherra svarar Kennarasambandi íslands:
Merkjasala Slysavarna-
deilda kvenna í Reykjavík
ÁRLEG merkjasala Slysavarnadeilda kvenna í Reykjavík verður
dagana 20.-23. febrúar og eins og áður verður leitað til skóla-
barna um sölu á merkjunum.
Ágóði af merkjasölu hefur verið þess að Reykvíkingar styðji okkur
notaður til viðhalds á slysavar- eins og sv0 oft aður og kaupj
naútbúnaði fyrir björgunarsveitir merki af sölubörnum. Hvert merki
og til styrktar starfsemi Slysa- kostar 300 kr.
varnafélags íslands. Við væntum
Nemendum sagt að ekki yrði hart
tekið á fjarvistum vegna útifundar
ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra, hefur sent Kennara-
sambandi íslands bréf, þar sem fram kemur að hann hafi haft örugg-
ar upplýsingar um að í ákveðnum skólum hafi þeim boðum verið
komið til nemenda að ekki yrði tekið á fjaryistum eftir hádegi þann
dag sem mótmælafundur grunnskólanemenda fór fram á Lækjar-
torgi. Honum hafi einnig verið kunnugt um dæmi þess að nemendum
hafi verið tilkynnt að frí fengist bærist um það skrifleg ósk frá
foreldri.
Þá segir í bréfi ráðherra, að
vegna þessarar vitneskju hafi hann
leyft sér að segja aðspurður í sjón-
varpsviðtali að kennarar hlytu „að
hafa staðið á bak við þetta vegna
þess að þeir gáfu börnunum frí“. Á
þeirri stundu var honum ókunnugt
um skólastjórnendur sem höfðu
neitað að gefa nemendum frí til að
sækja fundinn. „Mér þykir afar
slæmt ef orð mín eru skilin þannig
að allir hafi hér átt jafnan hlut.“
Þá hafi hann ákveðin dæmi um
að kennarar hafi notað kennslu-
stundir til að ófrægja aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar og hann persónulega.
Ekki mætti skilja orð hans svo að
þar sé öll kennarastéttin að verki
enda hafi hann ekki gefið tilefni til
að orð hans væru túlkuð á þann
veg. „Það má hins vegar ljóst vera
að af tilliti til barna og unglinga,
sem á slikan lestur hafa hlýtt og
sagt frá, mun ég ekki sanna þessi
orð mín með því að nefna nöfn,
hvorki viðkomandi kennarar eða
nemenda. Þeir taki þetta til sín, sem
eiga. Aðrir ekki.“
Ráðherra segist ekki hafa látið
að því liggja að Kennarasamband
íslands hafi á á nokkurn hátt stað-
ið að undirbúningi útifundarins og
að ásakanir um vinnusvik kennara
hafa ekki verið settar fram af að-
stoðarmanni hans. Jafnframt segir
hann að samanburður á kennslu-
tíma milli ára í grunnskólum sé
varhugaverður ef ekki er farið rétt
með og sambærilegar tölur bornar
saman. Sjálfsagt sé að leiðrétta
missagnir. Það sem skiptir mestu
máli sé sú staðreynd að aldrei hafi
vikulegar kennslustundir verið fleiri
en á yfirstandandi skólaári. Miðað
við umrædda skerðingu á næsta
skólaári verða þær næst flestar þá.
„Með öðrum orðum, þeir nemendur,
sem ljúka grunnskólanámi 1992
hafa að baki fleiri kennslustundir
en nokkru sinni fyrr. Þeir nemend-
ur, sem ljúka námi 1993 munu
hafa þær næstflestar."
Ný verslun í Borgarkringlunni
Verslunin Gallery Carol var kvenfatnaði ásamt töskum, slæð-
opnuð í Borgarkringlunni laugar- um og skartgripum. Eigandi er
daginn 1. febrúar sl. í Gallery Vigdís Stefánsdóttir.
Carol er úrval af snyrtivörum og
Meistarakokkar með
nýjan 02 spennandi
matseðil
Einn besti veitingastaðurinn í Reykjavík er SETRIÐ, musteri
franskrar matargerðarlistar og eðalvína.
Meistarakokkarnir okkar unnu til verðlauna í alþjóðlegri keppni
í Bandaríkjunum sl. vor, og undirbúa sig nú fyrir Olympíuleika
matreiðslumanna sem verða í Frankfurt í október n.k.
Þeir hafa nú sett saman nýjan og spennandi matseðil.
Sýnishorn af matseðli:
Reyktur nautavöðvi með sesamosti. Laxapýramídi á vorlaub- og sjávarsósu
Grísameyrur með kryddj urtaosti
og portvínsgrunni
Fylltar kalkúnabringur al pesto
á kampavínssósu
t
Sigtúni 38, sími: 689000.
Opið alla daga og öll kvöld