Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992
21
Afnám hámarksverðs á farmgjöldum skipafélaga:
Leiðir vonandi til aukinnar sam-
keppni og lækkunar farmgjalda
- segir Birgir Rafn Jónsson, formaður íslenskrar verslunar
BIRGIR Rafn Jónsson, formaður íslenskrar verslunar, seg-ist vonast
til þess að sú ákvörðun verðlagsráðs að fella niður hámarksverðlagn-
ingu á farmgjöldum með skipum frá og með 1. apríl næstkomandi
muni leiða til lækkunar farmgjalda í kjölfar aukinnar samkeppni
skipafélaganna. „Allt samráð er bannað þegar verðlag er fijálst, og
þeim aðilum sem stunda sjóflutninga er þá óheimilt að hafa samráð
um verð eða skilmála. Við vonum að með þessu muni samkeppnin
skerpast, og það muni leiða til þess að skipafélögin verði að leita
ítrustu hagkvæmni og þar með lækka farmgjöldin,“ sagði Birgir Rafn
í samtali við Morgunblaðið.
Birgir Rafn sagði fijálsa verð-
lagningu farmgjalda skipafélag-
anna minnka hættuna á einokun,
þar sem skipafélögin yrðu nú sjálf
að standa frammi fyrir kaupendum
og almenningi og taka ábyrgð á
verðtöxtum sínum. Hann sagði verð-
hækkun í sjóflutningum hafa verið
um 5% á síðasta ári á meðan marg-
ar innfluttar nauðsynjavörur hefðu
lækkað í verði, og þannig hafi þró-
unin í verðlagningu á frakt verið í
öfugu hlutfalli við margt annað.
„Við höfum líst óánægju með
taxtauppbyggingu skipafélaganna,
og þá sérstaklega afsláttarkerfið,
en við viljum að taxtarnir séu nær
raunveruleikanum. Það hafa heyrst
tölur um allt að 80% afslætti frá
útgefnum töxtum, og það teljum við
að sé of mikið. Það þarf að færa
verðlagninguna nær því sem raun-
verulega er verið að taka, og það
held ég að eigi að vera hægt með
góðu aðhaldi frá þeim sem kaupa
fraktina og einnig frá almenningi,“
sagði hann.
Ómar Hl. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samskipa, sagði að
þeir hámarkstaxtar sem verið hafa
í gildi hefðu í fæstum tilfellum ver-
ið nærri gildandi flutningsgjöldum,
og samkeppnin hefði tryggt það að
ekki hefði þurft á verðlagseftirlitinu
að halda. Hann sagðist ekki hafa
trú á að frelsi í verðlagningunni
hefði áhrif til lækkunar á næst-
unni, enda hefði reyndin verið sú í
öllum almennum flutningum að
taxtarnir hafi verið mun Iægri en
hámarksverðlagningin.
„Frjáls verðlagning er af hinu
góða ef treystandi er á það að einn
aðili nái ekki einokunaraðstöðu til
dæmis á einhverri vissri .leið og
geti á þann veg misnotað frelsið.
Fijáls og eðlileg samkeppni hlýtur
að vera það sem menn leita að, en
allt frelsi er nokkuð vandmeðfarið
og hægt að misnota það. Almennt
séð höfum við þó verið fylgjandi
þessu," sagði hann.
Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskips, sagði
að frá 1986 hefðu meðalflutnings-
gjöld hjá Eimskip lækkað um 30%,
þrátt fyrir að skipafélögin hefðu
einstöku sinnum óskað eftir hækkun
á formlegri gjaldskrá sinni. Gjald-
skráin væri notuð sem viðmiðun í
samningum, og þar sem hún væri
í erlendri mynt hefðu orðið breyting-
ar á henni meðal annars til að aðlaga
hana að verðlagsþróun erlendis.
Umboðsmaður Alþingis;
Lyfjamálastjóri vanhæfur
til setu í lyfj aver ðlagsnefnd
GAUKUR Jörundsson, umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri
niðurstöðu að lyfjamálastjóri, sem er starfsmaður heilbrigðis - og
tryggingamálaráðuneytisins, sé vanhæfur til setu í lyfjaverðlags-
nefnd og fjalla þar um sömu mál sem nefndarmaður og siðan sem
lyfjamálastjóri í ráðuneytinu. Eru það tilmæli Gauks Jörundssonar
að heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið komi skipan nefndarinn-
ar að þessu leyti í lögmætt horf.
Umboðsmanni Alþingis barst í
byijun október síðastliðins kvörtun
frá Apótekarafélagi Islands yfir því
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra hefði skipað lyfjamálastjóra
sem fulltrúa í lyfjaverðlagsnefnd
15. janúar 1991. í kvörtuninni er
því haldið fram að það samrýmist
ekki gildandi lagareglum um verk-
efni og starfssvið lyfjaverðlags-
nefndar að ráðherra skipi sem full-
trúa í nefndina þann starfsmann
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins, sem samkvæmt lögum
um lyfjadreifíngu gegnir stöðu lyfj-
amálastjóra er annast framkvæmd
lyfjamála innan ráðuneytisins fyrir
hönd ráðherra. Augljóst sé að í
starfi sínu sem fulltrúi í lyfja-
verðlagsnefnd geti þessi einstakl-
ingur ekki greint milli starfa hjá
ráðuneytinu og nefndarstarfanna.
í áliti Gauks Jörundssonar um
málið kemur fram að ganga verði
út frá þvi að sú grundvallarregla
gildi um almennt hæfi nefndar-
manna í opinberum nefndum, að
ekki skuli skipa þá menn til nefnd-
arsetu, sem annað hvort er fyrirsjá-
anlegt að verði oft vanhæfir til
meðferðar einstakra mála, eða
gegna stöðu sem vegna ákveðinna
tengsla við nefndina veldur sjálf-
krafa að þeir geta ekki talist hæfír
til að fjalla um sömu mál í báðum
störfunum. Þó að lyfjamálastjóri
fari ekki með vald til að ákveða
verð lyfja í ráðuneytinu, þegar ekki
næst samkomulag í lyfjaverðlags-
nefnd, sé ljóst að undirbúningur og
meðferð slíks máls heyri undir þá
deild sem hann veitir forstöðu. Lyfj-
amálastjóri sé sá starfsmaður ráðu-
neytisins sem best þekki til lyfja-
verðlagsmála, og því sé augljóst að
það komi í hans hlut að undirbúa
eða stjórna undirbúningi slíkra
mála og leggja þau fyrir ráðherra
til ákvörðunar. Við þá ákvörðun
verði ráðherra meðal annars að taka
afstöðu til þeirra sjónarmiða sem
um var deilt í lyfjaverðlagsnefnd,
og lyfjamálstjóri hefur áður tekið
afstöðu til. Áréttar Gaukur í þessu
sambandi að hæfísreglur stjórn-
sýsluréttarrins taki ekki aðeins til
þeirra sem taka ákvörðun í máli,
heldur einnig til þeirra sem taka
þátt í undirbúningi og meðferð
máls og geti með því haft áhrif á
úrlausn þess. Þá bendir hann á að
samkvæmt lögskýringargögnum
eigi oddamaður í lyíjaverðlagsnefnd
að vera hlutlaus frá sjónarmiði
bæði kaupenda og seljenda lyfja.
Ráðherra kunni að taka afstöðu í
verðlagsmálum, sem verði að teljast
hagstæðari öðrum hvorum þessara
aðila, og þá sé vandséð hvemig lyfj-
amálastjóri, sem í starfí sínu í ráðu-
neytinu er háður fyrirmælum ráð-
herra, geti gegnt hlutverki hlut-
lauss oddamanns að þessu leyti.
Niðurstaða Gauks Jörundssonar
er sú að lyfjamálastjóri sé vanhæfur
til að fjalla um sömu mál sem nefnd-
armaður í lyfjaverðlagsnefnd og
síðan sem lyfjamálastjóri í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu. Með tilliti til þess að ekkert sé
fram komið í máli þessu um að það
hafi verið verulegum vandkvæðum
bundið að fá annan hæfan mann
sérfróðan um lyfsölumál til að
gegna umræddu nefndarstarfí í
lyfjaverðlagsnefnd, þá beri að telja
lyfjamálastjóra vanhæfan til setu í
nefndinni vegna þess hvernig
tengslum milli heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins og lyfja-
verðlagsnefndar sé háttað sam-
kvæmt ákvæðum lyfjalaga.
Ólafsvík:
Heilsugæslumii
gefín blóðrann-
sóknartæki
.NÝLEGA færðu forráðamenn Li-
onsklúbbs Nesþings, Lionsklúbbur
Ólafsvíkur, Heilsugæslustöðinni í
Ólafsvík vandað blóðrannsóknar-
tæki að gjöf. Tæki þetta er af
gerðinni Reflotron, þurrkemiu-
tæki frá Boehringer Mannheim.
Rannsóknatæki þetta flýtir mjög og
auðveldar blóðrannsóknir þær sem
gera þarf á heilsugæslustöðinni. Þá
er tækið mjög fjölhæft og möguleik-
amir að rannsaka blóð með því marg-
ir. - Ilelgi.
Morgunblaðið/Alfons
Frá afhendingu tækisins f.v. Ágúst Sigurðsson gjaldkeri Lionsklúbbs
Ólafsvíkur, Hallmar Thomsen formaður Lionsklúbbs Ólafsvíkur, Sig-
urður Baldursson heilsugæslulæknir, Böðvar Jónsson formaður Li-
onsklúbbs Nesþinga, Óttar Sveinbjörnsson gjaldkeri Lionsklúbbs
Nesþinga og Kristján Guðmundsson framkvæmdastjóri Heilsugæslu-
stöðvarinnar í Ólafsvík.
TILBOÐ
VIKUNNAR
0 fiskibollur
Aðciiis
89,- **•1/1 dös
SPÆNSKAR
jypPELSÍNUR
Aðcin*
59,- to-hg-
FROSIN
smábralb
frá Myllunm
iYðeins
129,- kr-ph-
áv axtasafi
nektar
Aðei»s
59,- utrinB
■
HAGKAUP
- altt í einni ferd