Morgunblaðið - 20.02.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992
31
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Iðunn sýnir í blómaskálanum Vín
Iðunn Agústsdóttir, myndlistarkona á Akureyri, opnar sýningu á verk-
um sínum í blómaskálanum Vín í Eyjafjarðarsveit á laugardag, 22.
febrúar, kl. 14. Á sýningunni verða 45 myndverk, unnin á þessu og
síðasta ári, en um er að ræða pastelverk og verk unnin með bland-
aðri tækni, pastel og penna. Meginuppistaða verkanna á þessari sýn-
ingu Iðunnar er sótt í þjóðsögur, ævintýri og ljóð, en með því er hún
að róa á ný mið hvað viðfangsefni varðar. Sýningin verður opin á
sama tíma og blómaskálinn og stendur fram til sunnudagsins 8. mars.
Fjárhagsáætlun Siglufjarðar 1992:
Framkvæmt og fjár-
fest fyrir 70 milljónir
Sipflufirði.
FJARHAGSÁÆTLUN bæjar-
sjóðs Siglufjarðar var lögð fram
til fyrri umræðu á bæjarstjórnar-
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Ólafsfjarðar:
Gert ráð fyrir lántökum
til byggingar íþróttahúss
Ólafsfirði.
FJÁRHAGSAÆTLUN bæjarsjóðs Ólafsfjarðar var lögð fram til fyrri
umræðu á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag. Sameiginlegar tekjur
bæjarsjóðs nema tæplega 181 milljón króna og er tekjuafgangur
áætlaður rúmlega 29 miHjónir króna. Að auki nema framlög eigin
fyrirtækja í bæjarsjóð um 11,5 milljónum króna þannig að samtals
eru til ráðstöfunar rumlega 40 milljónir króna.
Nú er gert ráð fyrir nokkurri
lántöku vegna byggingar nýs
íþróttahúss sem hafin verður á
þessu ári. Bæjarsjóður hefur ekki
tekið ný Ián nokkur undanfarin ár,
en megin áhersla verið lögð á að
lækka skuldir bæjarsjóðs og hefur
það verið liður í undirbúningi að
byggingu íþróttahússins. Þrátt fyrir
lántökur nú verða skuldir bæjar-
sjóðs innan skynsamlegra marka.
Helstu útgjöld eru sem hér segir:
Til æskulýðs- og íþróttamála fara
rúmlega 61 milljón króna, til
fræðslumála fara 24,5 milljónir
króna, yfirstjórn bæjarins kostar
17,5 milljónir króna og til félags-
mála fara 17,3 milljónir króna og
brunamál og almannavarnir taka
til sín 7 milljónir króna.
Fram kom á bæjarstjórnarfund-
inum að mjög góð samstaða hefur
verið í bæjarráði og bæjarstjórn um
gerð þessarar fjárhagsáætlunar en
hún verður tekin til síðari umræðu
á fundi bæjarstjórnar í byijun mars.
SB
fundi 13. þ.m. og verður tekin
til síðari umræðu á reglulegum
bæjarstjórnarfundi I mars. Til
grundvallar rekstraráætlun lágu
tillögur frá forstöðumönnum
stofnana og deilda en við fram-
kvæmdaáætlun var að mestu
leyti stuðst við þriggja ára áætl-
un bæjarins frá síðasta ári. Fjár-
hagsáætlunin hefur um nokkurt
skeið verið til ítarlegrar umfjöll-
unar í bæjarráði og var góð sam-
staða um vinnu við liana þar.
Hreinar skuldir bæjarsjóðs
Siglufjarðar um sl. áramót voru
um 40 millj. kr. sem er rúmlega
20% af árstekjum.
Áætlaðar tekjur bæjarsjóðs á
árinu eru tæplega 187 millj. kr. og
rekstrarkostnaður stofnana og
deilda er áætlaður 128 millj. kr. eða
um 69% af tekjum. Fjármagns-
kostnaður verður skv. áætluninni
500 þúsund kr. á árinu. Útsvars-
tekjur nema um 112 millj. kr., að-
stöðugjöld skila um 37 millj. kr. og
fasteignagjöld 24 millj. kr. Helstu
útgjaldaliðir eru fræðslumál sem
kosta um 24 millj. kr., stjórnunar-
kostnaður er 19 millj. kr., félags-
mál taka til sín 15 millj. kr., æsku-
lýðs- og íþróttamál kosta 13 millj.
kr., til rekstur gatnakerfís og hol-
ræsa verður varið um 11 millj. kr._
og hreinlætismála 9 millj. kr. Tekj-"
ur hafnarinnar eru áætlaðar 13,4
millj. kr. en rekstrargjöld 13 millj.
kr., þannig að rekstrarafgangur
hafnarsjóðs er um 400 þúsund kr.
Alls er áformað að framkvæma
og fjárfesta fyrir tæplega 70 millj.
kr. á þessu ári. Bygging leikskóla
er fyrirferðarmest á framkvæmda-
áætlun ársins en til þess verkefnis
verður varið um 25 millj. kr., fram-
kvæmt verður í dvalarheimili aldr-
aðra fyrir 15 millj. kr. og nemur
framlag bæjarejóðs þar af um 12
millj. kr., nýlagnir gangstétta
bílastæða kostar 7,5 millj. kr., end-
urbætur á liolræsum í suðurbæ 7
millj. kr., til byggingar bóknáms-
húss við fjölbrautaskólann verður
varið um 4,5 millj. kr. og til við-
gerða og endurbóta á ráðhúsi verð-
ur varið 4-5 millj. kr. Unnið verður
að viðhaldi á ýmsum fasteignum
bæjarins og stefnt er að því áð
auka frekar átak í umhverfismálum
í bænum. - M.J.
Roar Kvam stjómar
nýrri blásarasveit
STOFNFUNDUR nýrrar blás-
arasveitar var haldinn í Hvammi
nýlega og var þá jafnframt stofn-
að styrktarfélag sveitarinnar,
sem sjá mun um rekstur hennar.
Stofnfélagar í sveitinni eru um
Síðustu sýn-
ingar á Tjútti
og trega
SÍÐUSTU sýningar á hinum vin-
sæla söngleik Valgeirs Skagfjörð,
Tjútti og trega verða um mánaða-
mótin. Þrjár sýningar verða um
helgina á föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld. Á sýningunni
á sunnudagskvöld mun Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra
heiðra Leikfélag Akureyrar með
komu sinni.
Tjútt og tregi verður að víkja af
fjölunum végna hinnar umfangs-
miklu sýningar á íslandsklukkunni,
sem frumsýnd verður um miðjan
mars í leikstjóm Sunnu Borg.
Söngleikurinn gerist árið 1955 á
landsbyggðinni og í Reykjavík og
er í verkinu ljöldi sönglaga og dans-
atriða í anda sjötta áratugarins.
Margar fjölskrúðugar persónur
koma við sögu í verkinu, sem í
stuttu máli fjallar um sveitastúlku
er fellur fyrir dægurlagasöngvara
og berst leikurinn eftir margar
óvæntar uppákomur úr sveit í borg
þar sem sveitastúlkan þroskast og
breytist.
30 hljóðfæraleikarar og eru
þetta sömu einstaklingarnir og
áður voru í D-sveit Tónlistarskól-
ans á Akureyri.
„D-sveitin var algjörlega rekin
af foreldrafélaginu ijárhagslega.
Stjórnandi sveitarinnar frá byijun
eða, frá árinu 1971, hefur verið
Roar Kvam og hefur aldrei neinn
skugga borið á samstarf foreldrafé-
lagsins, sveitarinnar og stjórnand-
ans allan þennan tíma. í tilefni af
20 ára starfi var gefinn út geisla-
diskur og snælda með sveitinni fyr-
ir síðustu jól. Einnig vann sveitin
til gullverðlauna á alþjóðlegu lúðra-
sveitamóti í Hollandi árið 1989. Það
var óskað eftir því með undirritun
yfírgnæfandi meirihluta hljóðfæra-
leikara D- sveitar og foreldra þeirra
að fá að halda þessu starfí áfram
undir stjórn Roars Kvams í tengsl-
um við tónlistarskólann. Þessari ósk
var hafnað af skólanefnd. Þess
vegna var brugðið á það ráð að
stofna formlega nýja sjálfstæða
hljómsveit með Roar Kvam sem
stjórnanda,“ segir í fréttatilkynn-
ingu um þetta mál.
Nýja hljómsveitin mun að líkind-
um halda sína fyrstu tónléika í
mars og taka síðan þátt i lands-
móti lúðrasveita í júní og á móti í
Zúric í júlí. í stjórn sveitarinnar og
styrktarfélagsins voru kjörin Lovísa
Bjömsdóttir, Anna María Kristins-
dóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir, Ólaf-
ur Tr. Kjartansson og Kristján
Baldursson og til vara Gísli Magn-
ússon og Sigurður Kristófer Péturs-
son.
Stórhætta hefði getað skapast
- segir Gísli Kristinn Lórenzson slökkviliðsstjóri
ALLT bendir til þess að kveikt
hafi verið í bakhúsi við Glerár-
götu 3 á Akureyri í fyrrinótt.
Ekkert rafmagn var í húsinu.
Um er að ræða geymsluhús eða
bílskúr, sem fullt var af mun-
um. Tjón hefur ekki verið met-
ið, en talið er að hluti munanna
hafi verið verðmæti.
Gísli Kristinn Lórenzson
slökkviliðsstjóri sagði að maður
er leið átti framhjá hefði komið á
slökkvistöðina og tilkynnt um eld-
inn, en stöðin er skammt frá
brunastað. Tilkynnt var um eldinn
laust fyrir kl. 2 í fyrrinótt.
Er að var komið stóðu eldtung-
ur út um glugga á vestanverðu
.húsinu. Það tók um klukkustund
að slökkva eldinn, en vakt var við
húsið fram á morgun. Slökkviliðs-
stjóri sagði að stór hætta hefði
getað skapast í kjölfar íkveikjunn-
ar, þar sem fleiri hús eru mjög
nálægt því húsi sem kveikt var í.
Stór hluti þaksins er ónýtur og
útveggir eru einnig illa farnir auk
þess sem verðmætir munir er inni
voru skemmdust.
Rannsóknarlögregla skoðaði
verksummerki í gær og sagði
Daníel Snorrason lögreglufulltrúi
að allt benti til þess að kveikt
hefði verið í húsinu. Málið er í
rannsókn og þeir sem orðið hafa
varir mannaferða á þessum slóð-
um er um þetta leyti eru beðnir
að iáta rannsóknarlögreglu vita.
Morgunblaðið/Rúnar Þór 's> '
Talið er fullvíst að kveikt hafi verið
í bakhúsinu við Glerárgötu í fyrri-
nótt. Á minni myndinni sjást
slökkviliðsmenn að störfum á þaki
hússins.
Kveikt í bakhúsi við Glerárgötu: