Morgunblaðið - 20.02.1992, Page 37

Morgunblaðið - 20.02.1992, Page 37
38 ~~37 "MORGUNBLSÐIÐ ' FIMMTUDAGUR' 2örFEBRÚAR' 1992 ÞJÓÐMÁL STEFÁN FRIÐBJARNARSON Jafnrétti við kjörborðið Ójafn atkvæðisréttur Kjósendur f Reykjavík og á Reykjanesi sem eru 64% kjósenda f landinu kusu 29 þingmenn 1991. Kosningarétturinn er mikil- vægur mannréttindaþáttur. I þessum greinarstúf verður gluggað í niðurstöður úr tvenn- um kosningum, sem sextíu ár skilja að, kosningar til Alþingis 1931 og 1991, með hliðsjón af mikilvægi jafnréttis fólks við kjörborðið. Slíkt jafnrétti er enn sem komið er framtíðar- músík hér á landi. í alþingiskosningum árið 1931 fékk Framsóknarflokkur- inn 35,9% atkvæða og 21 þing- mann kjörinn af 36, sem þá vóru kjördæmakjörnir. Fyrir hafði flokkurinn tvo lands- kjörna þingmenn (af sex), sam- kvæmt þeirrar tíðar reglum. Minnihluti atkvæða dugði Framsóknarflokknum til meiri- hluta á Alþingi fyrir rúmum 60 árum. Síðan hefur sitt hvað breytzt. Enn er þó brekka eftir að jafnrétti landsmanna við kjörborðið. I Minnihluti kjósenda - meirihluti þingmanna Á öndverðum áratug kreppunn- ar miklu, eða nánar tiltekið 12. júní 1931, gengu íslendingar að kjörborði til að velja 36 kjördæma- kosna þingmenn. Fyrir vóru 6 landskjörnir þingmenn, sam- kvæmt þágildandi reglum. Þessar kosningar eru fyrst og fremst frásagnarverðar vegna þess að Framsóknarflokkurinn fékk hreinan meirihluta kjörinna þingmanna. Þetta var ekki naum- ur meirihluti. Flokkurinn fékk hvorki meira né minna en 21 þing- mann af 36 sem kjömir vóru! Það hefur fiskast vel á atkvæð- amiðum Framsóknarflokksins fyrir sextíu ámm. Eða svo skyldi maður ætla. Að vísu var þar eng- in ördeyða. En kjörfylgið, 35,9%, var verulegur eftirbátur þing- styrksins. Hér var einfaldlega á ferð gróft dæmi um misvægi at- kvæða. Jón og séra Jón höfðu víðs fjarri einn og sama réttinn við kjörborðið. 59,9% atkvæða skiluðu aðeins 15 mönnum inn á þing (Alþýðuflokkur og Sjálfstæð- isflokkur) en 35,9% atkvæða (Framsóknarflokkur) 21 þing- manni. Sjálfstæðisflokkurinn, sem fékk 43,8% atkvæða, fékk 12 þingmenn kjörna, en hefði átt að fá 16, ef þingmenn hefðu skipzt á flokkana í réttu hlutfalli við atkvæðatölu hvers flokks. Al- þýðuflokkurinn fékk 16,1% at- kvæða og 3 þingmenn, en hefði átt að fá 6 ef atkvæðahlutfall hefði ráðið ferð. Kommúnista- flokkurinn fékk 3% atkvæða og engan kjörinn en atkvæðahlutfall hans stóð til eins þingmanns. II Flakkarinn og fjórfaldur atkvæðaþungi Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar síðan Framsóknarflokkurinn fékk meirihluta á Alþingi með minnihluta atkvæða. Við höfum þó aðeins farið fetið áleiðis að jafnrétti kjósenda. Umtalsvert skref var þó stigið til réttrar áttar með kjördæmabreytingunni 1959. Annað slíkt var stigið með núgild- andi kosningalögum. En þó er brekka eftir. Og hún er brött. Á þingi því er nú situr komst Sigríður A. Þórðardóttir (S-Rn) svo að orði: „í vor var kosið eftir nýju lög- unum öðru sinni. Þá vóru 4.072 kjósendur að baki hvetjum þing- manni Reykjavíkur og 4.033 kjós- endur að baki þingmanna Reykja- ness. Að þessu sinni féll flakkar- inn Vestfirðingum í skaut og þá eru 1.094 kjósendur að baki hveij- um þingnianni þar eða nærri fjór- falt vægi miðað við Reykjavík og Rey kj aneskj ördæmi. í Reykjavík og á Reykjanesi vóru á kjörskrá 117.659 manns eða rúmlega 64%. Þessi 64% at- kvæðisbærra íslendinga kusu 29 af 63 þingmönnum þjóðarinnar. Hin 36% kusu 34 þingmenn." Af orðum Sigríðar má sjá að enn er langt í land jafnréttis kjós- enda í skipan Alþingis, þ.e. í mót- un samfélagsins. Það hefur að vísu tekizt að ná dágóðum ár- angri í jöfnuði milli flokka á þing- inu. En jöfnuðurinn í vægi at- kvæða, burtséð frá búsetu, á enn langt í land. Staðreynd er að það hallar á landsbyggðarfólk í samanburði við þéttbýlið á marga grein, eins og fólksstreymið til höfuðborgar- svæðisins sýnir bezt. En efna- hagslegt misrétti verður ekki leið- rétt með skertum mannréttinum (vægi atkvæða). I þeim efnum þarf önnur úrræði. III - Við kjósum ekki um ríkisstjórnir Einstaklingurinn, sem gengur að kjörborðinu, hefur takmörkuð áhrif á það hvers konar ríkisstjórn sezt að völdum eftir kosningar. Það eru ekki úrslit í kosningum, heldur samningamakk milli flokka eftir kosningar, sem mestu ræður um stjórnarmyndun. Kannski er meginástæðan — og meginástæða þess, hve ríkisstjórnir hér á landi hafa verið veikar og ómarkvissar í störfum lengst af — sú, að stjórn- málaflokkar hér hafa verið of margir gegn um tíðina, of smáir og of veikir. Þetta hefur leitt til þess að „miðjuflokkur", eins og Fram- sóknarflokkurinn, sem byggir þingstyrk sinn að hluta á misvægi atkvæða, hefur setið oftar og lengur í Stjórnarráðinu en kjör- fýlgi hans hefur staðið til. Jafnvel þegar kjósendur léku Framsókn- arflokkinn hvað verst, árið 1956 (en þá féll kjörfylgi flokksins úr 21,9% í 15,6%), stóð flokkurinn fyrir stjórnarmyndun og fór með stjórnarforystu næstu árin. Svip- uð saga endurtók sig 1978. Þrásetur Framsóknarflokksins í ríkisstjóm eru þtjár talsins: 1927-1942, 1947-1958 og 1971- 1991. Framsóknarflokkurinn sat síðast samfellt tuttugu ár í ríkis- stjóm með um fimmtung atkvæða á bak við sig að meðaltali. Þróun byggðar í landinu á þessu tíma- bili er saga út af fyrir sig. Er ekki kominn tími til að stfga eitt skefið enn að jafnræði með landsmönnum við kjörborðið? Og er það ekki kórrétt hjá Sig- ríði Þórðardóttur (S-Rn) að „kosn- ingalög eiga að vera svo einföld að hver maður geti skilið þau reiknilögmál sem liggja til grund- vallar. Nú er það aðeins á færi sérfræðinga að reikna út úrslit kosninga". Sigurbjörg Björns- dóttir - Minning Fædd 3. desember 1902 Dáin 11. febrúar 1992 Okkur systkinin langar að minn- ast elskulegrar ömmu okkar, Sigur- bjargar Bjömsdóttur, eða ömmu Siggu eins og við kölluðum hana alltaf. Þegar við komum í heimsókn til hennar var hún ætíð hress og kát og vildi allt fyrir okkur gera. Hún amma var alltaf mjög gestrisin og vildi alltaf gefa öllum eitthvað og gjaman nesti með heim, eins og epli og appelsínur. Á vetuma pijón- aði hún ávallt vettlinga og sokka á okkur krakkana og hafa þeir verið margir gegnum árin. Amma var mjög félagslynd og þótti gaman að umgangast fólk. Hún fór alltaf ef eitthvað var að gerast á elliheimilinu, í bingó og handavinnu og hún fór reglulega í kirkju, því hún var mjög trúuð. Það var mjög gott að umgangast hana því hún gaf svo mikið og vildi öllum hjálpa. Gegnum árin fórum við oft með henni á sumrin í ýmsar ferðir, gjarnan í sumarbústað sem var skemmtilegt og var hún alltaf tilbú- in að fara meðan hún var hress, þó hún væri komin á efri ár. Við minnumst einnig allra kaffi- ferðanna sem við fórum með henni með hvítu ullarhúfuna og stafínn og alveg ótrúlega brött. Við munum aldrei gleyma öllum þeim stundum sem við áttum með henni. Hún var alltaf svo góð og hlý við okkur og þakklát ef við hjálpuðum henni eitthvað. Við erum þakklát fyrir tímann sem hún hefur með okkur og fyrir allt það sem hún gaf okkur og kenndi. Við munum alltaf minnast henn- ar og biðjum Guð að geyma hana á nýjum stað. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund, fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson) Guð blessi ömmu. Gulla, Kolla og Jón. t Einlægar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og jaröarför föður okkar, tengdaföður og afa, INGIMUNDAR EINARSSONAR, Borgarnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilis aldraðra, Borgarnesi. Guðmundur Ingimundarson, Einar Ingimundarson, Steinar Ingimundarson, Grétar Ingimundarson, Ingi Ingimundarson, Jóhann Ingimundarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ingibjörg Eiðsdóttir, Gisella Ingimundarson, Sigrún Guðbjarnardóttir, Ingigerður Jónsdóttir, Jónfna Ingólfsdóttir, t Elskulegur bróðir okkar, ÓLAFUR DAÐI ÓLAFSSON frá Bolungarvík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 21. febrúar kl. 10.30. Systkinin. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, BENTÍNU KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR frá Bíldudal. Sérstakar þakkir til Gyðu, stofusystur hennar á Grund, Steinunn- ar, hjúkrunarfræðings, og Sigriðar, sjúkraliða, og annars starfs- fólks. Guð blessi ykkur öll. Börnin. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSDÍSAR ERLU ÁSGRÍMSDÓTTUR, Fannarfelli 12, Reykjavfk. Sigurður Ámundason, Louisa Aradóttir, Guðjón L. Sigurðsson, Ásgrímur Guðmundsson, Þórdís Heiða Einarsdóttir, Stefán Flego, Helga Skúladóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.