Morgunblaðið - 20.02.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
47
Slæm
frammi-
staða
Flugleiða
Frá Magnúsi Óskarssyni:
Ég ætlaði ekki að ergja mig á
því að riíj'a upp ömurlega frammi-
stöðu Flugleiða í upphafi orlofs-
ferðir hátt á annað hundrað manns
til Kanaríeyja 2. janúar sl., en lof-
grein Velvakanda um góða þjón-
ustu félagsins stangast svo illa á
við reynslu okkar sem fyrir þessu
urðum og reyndar almannaróm um
slaka frammistöðu Flugleiða yfir-
leitt, að ég get ekki orða bundizt.
í þessari ferð var í fyrsta lagi
upp á það boðið að tveimur sólar-
landaferðum í sitt hvora áttina var
skipað í sömu vél. Fyrst var flogið
með fámennan hóp til austur-
strandar Spánar og eftir þennan
risakrók og viðdvöl var haldið í
suðvesturátt til Kanaríeyja. Þetta
þýddi tæplega 9 klst. flug jafnvel
þótt áætlun hefði verið haldin. Það
er léleg þjónusta að skipuleggja
skemmtiferð með þessum hætti.
Vera má að þetta hafi verið aug-
lýst fyrirfram en einhvern veginn
komst vitneskjan um það ekki bet-
ur til skila en svo að flestum far-
þega kom þetta á óvart.
Næst er þess að geta að farþeg-
ar voru kallaðir út í vél á Keflavík-
urflugvelli aðeins seinna en áætlað
var og éiðan látnir dúsa í vélinni í
2 klukkustundir og 10 mínútur
áður en hún fór frá landganginum
(rananum) sem tengdi hana við
flugstöðina. Allan þennan tíma
(meðan beðið var eftir því að leggja
af stað í 9 klst. flug) var engin
önnur skýring gefin en sú að afísa
þyrfti vélina. Ekki var það skyndi-
leg uppákoma því veður var óbreytt
frá því nóttina áður. Óskiljanlegt
er með öllu hvers vegna farþegar
máttu ekki a.m.k. taka þessum
miklu óþægindum í upphafi ferðar
inni í hinni glæsilegu og þægilegu
flugstöð frekar en að kúldrast í
(þröngum) sætum í vélinni, sem
þó var föst við landganginn.
Hér verður minni atriðum sleppt
og þess eins getið til viðbótar að í
þessu flugi, sem tók um 11 klst.,
voru farþegar látnir svelta. Um það
bil 3 tímum eftir að fólkið kom inn
í vélina var boðið upp á morgun-
verð af léttari gerðinni. Annan mat
fengu farþegar ekki í þessu 11
klukkutíma flugi, ef undan er skil-
ið dverg-rúnnstykki sem boðið var
upp á síðdegis. Farþegar á Saga
Class (ekki mjög góð íslenzka það)
munu reyndar hafa fengið 5 vínber
með rúnnstykkinu, en þeir voru líka
látnir borga 8 þúsund krónum
meira fyrir lúxusinn.
Ömurlegast af öllu er e.t.v. það
að enginn frá Flugleiðum hefur
stunið því upp að þeim þætti þetta
miður, eða beðizt afsökunar, svo
ekki sé talað um þá rausn að bjóða
þessu fólki, sem allt var á vísum
stað, í mat daginn eftir. Flugfreyj-
urnar, sem enga sök áttu á þessu
en urðu að veita gestum sínum
þennan beina, áttu auðvitað bágt,
en þær reyndu að bæta þetta með
elskulegri framkomu sem ber að
þakka. Mér skilst að sumar þeirra
hafi m.a.s. gefið svöngum börnum
sinn eigin mat.
Þessi frammistaða Flugleiða var
vitaskuld umræðuefni ferðafélag-
anna næstu daga. Sá galli var hins-
vegar á því að nefna lélega þjón-
ustu félagsins, að þá kunnu allir
viðstaddir sína eigin sögu af sam-
bærilegri reynslu eða verri og gat
það tal enzt svo lengi að flestir
kusu að hefja það ekki. Vera má
að Velvakandi hafi rétt fyrir sér í
því að Eyjólfur sé að hressast en
óhress var hann fyrsta flugdag
ársins 1992.
MAGNÚS ÓSKARSSON
Klapparstíg 3
Reykjavík
VELVAKANDI
HEIMILIS-
SORPEYÐIR
Jón Björnsson:
SPURT var eftir heimilissorp-
eyði í Velvakanda fyrir nokkru
og get ég_ upplýst að slíkt tæki
fæst hjá Álform hf. í Kópavogi.
LEIKFIMIBÚN-
INGUR
FÖSTUDAGINN 7. febrúar
tapaði Eyrún, 9 ára, ljósum lér-
eftspoka með hliðaról, sem
prentað er á með rauðu „Marc
0 Polo“. í pokanum er teygjan-
legur svartur samfestingur
ásamt svörtum bol með hvítu
og blómamynstruðu lausu beru-
stykki, einnig handklæði. Ann-
að hvort varð þetta eftir á bið-
stöð SVR við Miklu-
braut/Lönguhlíð eða í vagni
númer 112 milli kl. 12 og 13
áðurnefndan dag. Því miður var
þetta ómerkt og yrði Eyrún
mjög þakklát ef finnandi vin-
samlegast hefði samband í síma
74536 eftir hádegi eða kæmi
þessu til einhvers vagnstjóra
SVR sem fyrst.
VESKI
DÖMUVESKI tapaðist í Mið:
bænum á Iaugardagskvöld. í
því var seðlaveski með skilríkj-
um og Visakorti. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja
í Evu í síma 72054.
TAPAÐ
SVART leðurbelti með sylgju
tapaðist á Hótel íslandi laugar-
dagskvöldið 15. febrúar.
Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 687098.
Fundarlaun.
TRÚSKAPUR
Pétur Pétursson:
ORÐIÐ „trúskapur" hefur verið
til umræðu og draga sumir í
efa að það sé góð íslenska.
Þetta orð kemur fyrir í erindi
í kvæðinu Hrafninn flýgur um
aftaninn eftir Hannes Hafstein.
Erindið er svona:
Hvað ertu að tala um trúskap-
inn, / taktu þér ei svo lítið
nærri. / Súptu á heldur séra
minn. / Hæ, Hæ , hrafn flaug
af bæ.
ÚR
Úr af gerðinni Q&Q fannst í
Pósthússtræti laugardags-
kvöldið 15. febrúar. Upplýs-
ingar gefur Viðar í síma
686597 eða 680999.
JAKKAR
TVEIR jakkar voru teknir í
búningsklefa í Stapanum í
Njarðvík fyrir nokkru. Annar
er rauður Boss-jakki og í vasa
hans var veski og skilríki. Hinn
svartur leðurjakki og í vasa
hans var veski með Visakorti,
ávísanahefti og símboði. Þeir
sem gefið gætu upplýsingar um
hvar jakkarnir eru niður komn-
ir eru vinsamlega beðnir að
hringja í Ingvar í síma 679101
eða 36850-eða Gunnar í síma
78735.
LOÐFÓÐRAÐUR SAMFESTINGUR:
ÞURROGHLÝR
ÞOMOTIBLÁSI
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
Til að þú getir notið þín utan dyra, jafnt í starfi sem leik,
þarftu réttan klæðnað. Hann verður að vera hlýr, sterkur
og endingargóður, en jafnframt léttur og þægilegur, - -
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
Skulagötu 51 - Beykjavlk - Slmar 1-15-20 og 1-22-00
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Nýkomin sending
Fætur okkar eru grunnur að vellíðan okkar,
ara| Fítness heilsuskórnir stuðla að því.
LóftbólstraSur sóli
fró hæl að tóbergi.
Laut fyrir hæl sem
veitir stuðning.
Ekta korkblanda
(einangrar).
Tógrip sem
örvar
blóðrósina.
llstuSningur
sem hvílir.
FJOLBREYTT URVAL TEGUNDA
Stamur innsóli.
Microcellu sóli, sem dregur úr þreytu,
virkar dempandi.
erndið fæturna
andiÖ skóvaliS
v
Metsölubloð á hverjum degi!