Morgunblaðið - 20.02.1992, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992
Reuter
Pernilla Wiberg var fyrst sænskra kvenna til að vinna gullverðlaun í alpa--
greinum á ólympíuleikum. Hér fagnar hún sigrinum eftir stórsvigskeppnina í
gær.
■ WIBERG
frá Svíþjóð var
ekki talin sigur-
strangleg í stórs-
viginu í gær en
aftur var henni
spáð velgengni í
sviginu í dag.
Austurríski sjón-
varpsþulurinn
gaf þá skýringu
eftir stórsvigið í
gær að Svíinn
sem lagði braut-
ina hefði raðað
stöngunum svo þétt að beygjurnar
urðu mjög krappar - eins og svig.
■ ÍSLENSKA ólympíulandsliðið í
alpagreinum tók bílaleigubíl í Lúx-
emborg og er með hann í Frakk-
landi. Liðið hefur ekki getað notað
bílinn síðustu fjóra dag vegna þess
að bíllyklarnir týndust. Nú er beðið
eftir aukalyklum í hraðpósti frá
Lúxemborg, en þeir voru ekki
komnir til Albertville í gær.
■ TVÖ hundruð þúsund fleiri
áhorfendur hafa keypt sig inn á
Ólympíuleikana en stjórnendur
reiknuðu með í upphafi. Milljón
aðgöngumiðar
Anna munu hafa verið
Bjarnadóttir seldir þegar leikun-
skrifar um [ýhur um helg-
ina.
■ MARC Girardelli gekk ekki
alltof vel í heimsbikarnum fyrr í
vetur og fór illa af stað á Ólympíu-
leikunum. Hann var farinn að tala
um að hætta áður en hann vann
tvpnn silfurverðlaun. Nú segist
hann ætla að halda áfram „í nokk-
ur ár í viðbót.“
■ SERGEJ Ponoinarenko,
skautadansari, sagði að systkini
gætu ekki dansað eins stórkostlega
og Marina Klimova og hann. „Við
erum ástfangin," sagði hann.j,Þess
vegna dönsum við svona vel.“ Þau
unnu gullverðlaun og frönsku
systkinin Isabelle og Paul Duche-
sney gátu ekkert við því gert..
Systkinaástin nægði ekki til. Mar-
ina.var bara þrettán ára 1980 þeg-
ar Sergej sá hana fyrst í skauta-
höll í Moskvu. Hún var nýkomin
til borgarinnar frá Sverdlovsk og
ætlaði að verða balletdansmær. En
Sergej var að leita sér að mótdans-
ara og hún varð ísdansmærin og
eiginkonan hans.
Róuter
Asta Halldórsdóttir í stórsvigsbrautinni á Ólympíuleikunum í gær.
Ánægð með sætið
- en ekki tímann, sagði Ásta Halldórs-
dóttirsem hafnaði í 30. sæti
„ÉG hefði viljað gera betur, en
er þokklega ánægð með sætið
en'ekki tímann. Það er mikið
að vera rúmlega 17 sekúndum
á eftri fyrsta keppanda," sagði
Ásta Halldórsdóttir, sem hafn-
- aði í 30. sæti af 69 keppendum
sem hófu keppni.
Asta sagði að það hafi komið
sér á óvart hversu tauga-
óstyrk hún var áður en hún renndi
sér niður. „Ég var búin að bíða
eftir þessu le.ngi og því kannski
engin furða. Ég hafði legið meira
:ög minna í rúminu í viku vegna
bronkídis og átti því í nokkrum erf-
iðleikum með öndunina í brautinni,"
sagði Asta.
Hún tók ekki mikla áhættu enda
erfiðar brautir og margir keppendur
fóru flatt í þeim. Hún fékk saman-
lagðan tíma, 2:30.03 mín. og var
rúmlega 17 sekúndum á eftir sigur-
vegaranum, Pernillu Wiberg. 69
keppendur tóku þátt í stórsvginu,
en .25 komust ekk í mark. Ásta
hlaut 104,20 FlS-stig sem er tölu-
vert frá hennar besta árangri.
Ásta sagði að svigið legðist vel
sig. „Vonandi er skrekkurinn farinn
úr mér. Ég reyni. að gera betur í
sviginu," sagði Ásta, sem hefur
rásnúmer 44 í dag.
Wiberg kom
Svíum á blað
PERNILLA Wiberg varð í gær
fyrst sænskra kvenna til að
fagna ólympíutitli í alpagrein-
um er hún sigraði í stórsvigi í
Meribel. Hún vann jafnframt
fyrstu gullverðlaun Svía á leik-
unum. Diann Roffe, Bandaríkj-
jinum og Anita Wachterfrá
^Austurríki deildu með sér silf-
urverðlaununum.
Það hefur einhverntíma þótt
saga til næsta bæjar að Svíar
næðu ekki að komast á efsta þrep-
ið á verðlaunapalli á Ólympíuleikum
fyrstu 11 keppnisdagana. En loks
kom að því í gær. Pernilla Wiberg,
sem er 21 árs, hefur átt slæmt tíma-
bil í heimsbikarnum eftir að hún
vann heimsmeistaratitilinn í stór-
svigi í fyrra og áttu fáir von á því
að hún stæði sem sigurvegari í
stórsviginu. „Mér hefur gengið
frekar illa í vetur en þessi sigur
færir mér gleði og ánægju,“ sagði
Wiberg.
Roffe, sem náði besta tímanum
í síðari umferð, og Anita Wachter
eru fyrstar til að deilda með sér
silfurverðlaunum á Ólympíuleikum
síðan 1964. Ekki voru afhent brons-
verðlaun. Ulrike Maier náði besta
tímanum í síðari umferð, en náði
sér ekki upp í síðari umferð og
varð að sætta sig við 4. sætið, 0,06
sek. á eftri silfurverðlaunahöfunum.
Stjörnuhrap varð í fyrri umferð-
inni er fyrrum ólympíumeistari,
Vreni Schneider frá Sviss, fór út
úr brautinni eftir að hafa brotið
annan skíðastafinn. Deborah
Compagnoni, ólympíumeistari í
risasvigi, féll illa og var talið að
hún hefði slitið liðbönd og Petra
Kronberger, sem er efst í heimsbik-
arnum, féll einnig úr keppni í fyrri
umferð.
Wiberg var með næst besta tím-
ann eftir fyrri umferð, en sýndi
mikla keppnishörku í síðari umferð
og skaut öllum keppinautunum ref
fyrir rass. Hún var þar með annar
Svíinn til að vinna gullverðlaun í
alpagreinum á ólympíuleikum. In-
gemar Stenmark var fyrstur er
hann vann tvenn gullverðlaun á
leikunum 1980.
Svfakonungur hvalti
Wiberg til dáða
Pernilla Wiberg, ólympíumeistari í stórsvigi, hitti Gustav Svíakon-
ung milli ferða í stórsviginu í gær. „Ég hitti hann milli umferða
í dag. Hann sló á bakið á mér og hældi mér fyrir góða fyrri umferð
og sagði mér að reyna að gera eins vel í síðari umferðinni," sagði
Wiberg.
Misersky hitti vel
Antje Misersky frá Þýskalandi
sigraði í 15 km skíðaskotfimi
kvenna í gær og vann þar með
þriðju verðlaun sín á leikunum. Það
má segja að hún hafi hitt í mark
því hún missti marks aðeins einu
sinni í 40 skotum. Svetlana Pec-
herskaía frá Samveldi sjálfstæðra
lýðvelda varð önnur og Myriam
Bedard frá Kanada í þriðja sæti.
Misersky keppti áður í skíða-
göngu fyrir Austur-Þýskaland, en
snéri sér að skíðaskotfimi eftir að
hún átti í útistöðum við gönguþjálf-
arann. Hún sýndi mikið öryggi á
skotstöðvunum fjórum og hitti úr
öllum skotum nema einu réði það
úrslitum. Hún kom í mark á 51.47,2
mínútu og var 11,3 sekúndum á
Compag-
noni úr leik
^\lympíumeistarinn í risasvigi
kvenna, Deborah
Compagnoni frá Ítalíu, meiddist
illa í stórsvigskeppninni í gær,
aðeins 24 klukkustundum eftir
að hún fagnaði sigri í risasvg-
inu. Talið var að hún hefði siitið
liðbönd í vinstra hnéi. Reiknað
er með að hún verði að gangast
undir uppskurð og verði ekki
meira með á skíðamótum í vetur.
Fleiri góðar skíðakonur féllu
í fyrri umferð stórsvigsins í gær
eins og þær Vreni Schneider frá
Sviss, sem varð ólympíumeistari
í þessari grein fyrir fjórum árum
og Petra Kronberger, nýkrýndur
ólympíumeistari í alpatvíkeppni.
En þær voru báðar sigurstrang-
legar.
Bannað að
fara fram úr!
Sá einstæði atburður gerðist í
stórsvigi karla á þriðjudag að
keppandi númer 130 fór fram úr
keppanda númer 129. Þeir sem sáu
til þeirra í sjónvarpi héldu að um
skemmtiatriði væri að ræða.
Hassan E1 Mahta frá Marokkó
með rásnúmerið 129 fór í plóg nið-
ur stórsvigsbrautina. Hann fór sér
svo hægt að Reymond Kayrouz frá
Líbanon, sem var ræstur af stað
40 sekúndum á eftir honum með
númerið 130, fór fram úr. E1 Ma-
hta lét ekki bjóða sér það - gaf í,
fór fram úr, en Kayrouz var á uncf-
an í mark, en sleppti hliði í flýtinum
og dómnefnd dæmdi báða úr leik.
undan Svetlönu Petsjerskaíu, sem
var heimsmeistari í sömu vegalengd
fyrir tveimur árum. Myriam Bedard
vann bronsverðlaunin og var þar
með fyrstur Norður-Ameríkubúa til
að komast á verðlaunapall á ólymp-
íuleikum í skíðaskotfimi.
Rússneska stúlkan, Anfissa
Restzova, sem varð ólympíumeistari
i 7,5 km göngunni í síðustu viku,
hitti mjög illa og fékk að gjalda
fyrir það. Hún hitti ekki úr níu
skotum og hafnaði í 26. sæti.
ÚRSLIT
Listhlaup kvenna
Staðan eftir skylduæfingarnar í gær:
stig
1. Kristi Yamaguchi (Bandar.)........0.5
2. Nancy Kerrigan (Bandaríkjunum).... 1.0
3. Surya Bonaly (Frakklandi).........1.5
4. Midori Ito (Japan).................2.0
5. Laetitia Hubert (Frakklandi)......2.5
6. Tonya Harding (Bandaríkjunum)......3.0
7. Yuka Sato (Japan)..................3.5
8. Anisette Torp-Lind (Danmörku)......4.0
Stórsvig kvenna:
1. Pernilla Wiberg (Svíþjóð).....2:12.74
(1:06.36/1:06.38)
2. Diann Roffe (Bandaríkj.)......2:13.71
(1:07.21/1:06.50)
2. Anita Wachter (Austurríki)....2:13.71
(1:06.43/1:07.28)
4. Ulrike Maier (Austurríki)......2:13.77
(1:06.16/1:07.61)
5. Julie M.J. Parisien (Bandaríkj.)...2:14.10
(1:06.90/1:07.20)
6. Carole Merie (Frakklandi)......2:14.24
(1:06.67/1:07.57)
7. Eva Twardokens (Bandarikj.)...2:14.47
(1:07.03/1:07.44)
8. Katja Seizinger (Þýskalandi)...2:14.96
(1:07.40/1:07.56)
9. Sylvia Eder (Austurríki).......2:15.05
(1:07.20/1:07.85)
10. Kristina Andersson (Svíþjóð)..2:15.23
(1:07.53/1:07.70)
11. Christina Meier (Þýskalandi)..2:15.33
(1:08.07/1:07.26)
30. Ásta Halldórsdóttir...........2:30.03
(1:14.55/1:15.48)
15 km skíðaskotfimi kvenna:
1. Antje Misersky, Þýskalandi....51:47.2
2. Svetlana Pecherskaia, SSL.....51:58.5
3. Myriam Bedard, Kanada.........52:15.0
4. Veronique Claudel, Frakklandi.. 52:21.2
5. Nadezda Alexieva, Búlgariu...52:30.2
ídag
Dagskrá Vetrarólympíuleik-
anna í Albertville í dag:
09.00 - 20 km skíðaskotfimi karla
09.00 - Fyrri umferð í svigi kvenna
13.00 - Síðari umferð f svigi kvenna
11.00 - 10.000 m skautahlaup karla
18.30 - 1.000 m skautahlaup karla
18.30 - 3.000 m skautahlaup kvenna
Íshokkí
12.00 - Spilað um 11/12. sæti
16.00 - Undanúrslit
20.00 - Undanúrslit
Veðurspá: Sólskin fram yfir hádegi,
en fer að þykkna upp þegar líður á
daginn.
OLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI