Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 49

Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 49 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA Knattspyrna innanhúss: Otrúleg velgengni Blika í fjórða flokkí KNATTSPYRNUMENN úr Breiðabliki voru sigursælir á íslands- mótinu t innanhússknattspyrnu. Fjórir flokkar félagsins unnu til meistaratitla og einn flokkurtil silfurverðlauna. Enn er ólokið keppni í þriðja flokki kvenna og eru Kópavogsbúar vongóðir um að fá enn eitt gullið í safnið. Það kemur ekki í Ijós fyrr en á laug- ardag en þá reyna stúlkurnar með sér á Akranesi. Frosti Eiðsson skrífar Sá árangur sem Blikar eru stolt- astir af er án efa sigur fjórða flokks karla, en sá aldurshópur hefur átt einstakri velgengni að fagna á íslandsmótum síð- ustu ár. Titill félags- ins í þeim flokki var sá fimmti ájafnmörgum árum. Sig- urgangan hófst árið 1988, en þeir piltar, sem þá léku í flokknum, eru nú gengnir upp í 2. flokk. Þeir ár- gangar sem síðan hafa tekið við hafa haldið-uppi merki UBK í 4. flokki. UBK hefur unnið mikið að ungl- ingamálum á síðustu árum, 2 til 3 umsjónarmenn úr hópi foreldra eru í hveijum flokki sem mæta á allar æfíngar. Hlutverk þeirra er allt frá því að ráða þjálfara fyrir flokkinn og sjá um þvott á búningum. Sveinn Ingvason er í unglinga- nefnd 4. flokks ásamt Þórði Guð- mundssyni. „Það er mikill metnaður í kringum unglingastarfíð. Tveir til þrír menn starfa í kringum hvem flokk og þeir sjá til að mynda um að ráða þjálfara,“ sagði Sveinn. „Við höfum lagt mikið kapp á að ráða menntaða og reynslumikla þjálfara og það er nánast skilyrði að þeir séu með íþróttakennara- menntun. Við teljum að það sé ein skýringin á því hve vel okkur hefur gengið." Fjórði flokkur hefur reyndar sér- stöðu að einu leyti hjá Breiðablik því hann hefur undanfarin ár farið í æfíngaferðir til útlanda. Á síðasta ári fóru 38 drengir úr flokknum til Spánar. Einar Sveinn Árnason hefur starfað sem þjálfari 4. flokks sl. tvö ár. „Ég er með ágætan hóp í hönd- unum sem er reiðubúinn að gera það sem fyrir hann er lagt. Strák- arnir eru tilbúnir til að beita sér og það skiptir meginmáli til þess að árangur náist,“ segir Sveinn. „Ég legg mikið upp úr einföldum grunnatriðum og er með fáar æf- ingar. Þessi flokkur keppir í fyrsta sinni í ellefu manna liðum og ég reyni því að kynna fyrir leikmönn- unum stöðumar á vellinum. Síðan legg ég mikið upp úr samheldni og að hópurinn nái upp góðri stemmn- ingu.“ Guðjón Gústafsson er einn ný- krýndra íslandsmeistara UBK. „Við æfðum vel fyrir mótið en þetta voru allt erfíðir leikir. Leikurinn við FH var erfíðasti leikurinn," sagði Guð- jón sem var á því máli að utanhúss- knattspyman væri þó mun skemmtilegri. „Það er mikið meiri hreyfíng á vellinum og maður fær því mun meira út úr því að leika úti. Ég þori þó engu að spá um sumarið öðru en því að við ætlum að vinna okkur sæti í úrslitakeppn- inni.“ Morgunblaðið/Frosli Fjóröi flokkur Breiðabliks sem sigraði á íslandsmótinu í innanhússknattspymu. Neðri röð frá vinstri; Jón Steindór Sveinsson, Gísli Heijólfsson, Höskuldur Þorsteinsson. Efri röð frá v. ívar Gestsson, Guðni Þór Þórðarson, Guðjón GiJC stafsson, Atli Kristjánsson. Hjörtur Harðarson og Einar Sveinn Ámason, þjálfari. Fjarverandi vom þegar myndin var tekin; Grímur Garðarsson, Ólafur Snæbjömsson, Jón G. Margeirsson, Hjalti Kristjánsson, fyrirliða og Gunnar Jónsson. Körfuknattleikur: Mikiöflörí minniboltanum ÞAÐ var mikið um að vera í íþróttahúsi Seljaskólans þegar ellefu og tólf ára stúlkur reyndu með sér í körfuknattleik fyrir skömmu. Fimm lið léku inn- byrðis í annarri umferð, 2. deildar íslandsmótins í minni- bolta. Mikill getumunur var á liðunum að þessu sinni. KR og Tind- arstóll börðust um toppsætið en bæði liðin unnu Frosti keppinauta sína Eiösson auðveldlega. KR skrífar sigraði í innbyrðis viðureign liðanna 18:17 og lenti því í efsta sæti en bæði liðin færast upp í 1. deild í næstu umferð. Þær Heiður M. Björnsdóttir og Berglind Jóhannesdóttir voru í sig- urliði KR á mótinu en þær byijuðu báðar að æfa körfuknattleik í haust. „Ég leik með Fram í handbolta en ákvað að byija með KR þegar leikfímikennarinn minn í Laugar- nesskólanum og þjálfari KR, María Guðmundsdóttir, bað okkur um að mæta á æfíngar hjá sér,“ sagði Heiður sem lék í stöðu miðheija og var mjög atkvæðmikil í leiknum gegn IR. Hún skoraði 28 stig, eða helming stiga liðsins í 56:6 sigri. Berglind sneri sér að körfubolt- anum eftir að hafa stundað fímléika um nokkurt skeið. „Það er rosalega mikill áhugi á körfubolta í Borgarnesi og sem dæmi um það þá eru um 25 strákar á æfingum en við stelpurnar eru um tíu,“ sögðu þær Jóhanna, Helga og Sigrún sem léku með liði Skalla- gríms á mótinu. Morgunblaðið/Frosti Heiöur Margrét Björnsdóttir og Berglind Jóhannesdóttir. Morgunblaðið/Frosti Jóhanna Ragnarsdóttir, Helga Kristín Auðunsdóttir og Sigrún Halla Gísladóttir léku með Skallagrími. URSLIT Knattspyrna innanhúss Karlar 2. flokkur Fram-ÍA....................13:1 3. flokkur UBK-KR.......................7:1 4. flokkur UBK-Fylkir...................2:0 5. flokkur Konur 2. flokkur UBK-ÍA.......................3:2 3. flokkur Leikið nk. laugardag á Akranesi. 4. flokkur Þriggja liða úrslit: Valur-Stjaman................2:0 Víðir-Valur..................2:5 Víðir-Stjaman................1:1 Minnibolt! stúlkna UMFG-UMFT...................4:74 KR - Skallagrímur...........40:3 UMFG-ÍR....................20:24 UMFT-KR....................17:18 UMFG - Skallagrímur........11:18 UMFT-tR....................47:10 UMFT - Skallagrímur.........51:8 KR-ÍR.......................56:6 Skallagrfmur - ÍR..........14:25 UMFG-KR....................14:24 KR - GRINDAVIK leika í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi kl. 20.00 íkvöld. Hú mæta allir KR-ingar. Adalfundur borðtennisdeildar KR verður í Frostaskjóli fimmtudaginn 27. febrúarkl. 19.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. HANDKNATTLEIKUR MR sigraði með glæsibrag HANDKNATTLEIKSLIÐ úr Menntaskólanum í Reykjavík stóðu uppi sem sigurvegarar í Bessamótinu í handknattleik bæði í karla og kvennaf lokki. Mótið fór f ram í Haf narf irði fyrir skömmu. Tólf framhaldsskólar sendu lið til leiks í karlaflokki. MR og Flensborgarskóli tryggðu sér rétt til að leika í úrslitum og þar sigr- aði MR 15:14 í spennandi leik. Fimm lið kepptu í kvenna- flokki. MR og Verslunarskólinn lékú til úrslita og lauk leiknum með öruggum sigri MR, 14:11.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.