Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 20.02.1992, Qupperneq 52
MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆH 6, 101 REYKJAVÍK SÍMl 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR 1992 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Morgunblaðið/KGA Fjölmennasta kvennaskákmótið Skákklúbbur Menntaskólans í Reykjavík hélt í gær- kvöldi fjölmennasta kvennaskákmót sem fram hefur farið á íslandi. Nær 100 stúlkur mættu til leiks. Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, setti mótið, en hún hefur bæði verið nemandi og kennari í MR. "ifírlýsing eistneska utanríkisráðuneytisins: Miðstjórn Alþýðusambands Islands: Yiðræður við stjórn- völd um atvinnumál Samningafundur boðaður eftir helgi MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands samþykkti á fundi sínum seinnipartinn í gær að óska þegar eftir viðræðum við ríkisstjórn- ina um stöðuna í atvinnumálum. Þá hefur ríkissáttasemjari boðað til samningafundar Alþýðusambandsins með fulltrúum vinnuveit- enda á mánudaginn kemur klukkan 16. Þetta er fyrsti fundur aðila sem ríkissáttasemjari boðar til frá því ASÍ vísaði kjaradeil- unni til hans. Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði hafa verið lausir frá 15. september á síðasta ári. „Ástandið í atvinnumálum er mjög alvarlegt og það sem veldur áhyggjum er að atvinnuleysið nær yfir breitt svið. Það er ekki á ein- hveiju einu svæði eða í einni at- vinnugrein, heldur er mjög ein- kennandi fyrir þær tölur sem mað- ur hefur séð að undanförnu að atvinnuleysið er mjög víðtækt, nánast um allt land og í öllum greinum,“ sagði Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. „Það að hafa atvinnu er náttúr- lega forsenda þess að menn hafi mikið gagn af sínum kjarasamn- ingi, þannig að það verður að fjalla sérstaklega um þessi mál. Við höfum verið með tvískipta at- vinnumálanefnd í gangi með at- vinnurekendum og ég held að það sé óhjákvæmilegt ef viðræður eiga að skila árangri í sambandi við atvinnumálin að þær séu með að- ild okkar, atvinnurekenda og ríkis- stjórnar,“ sagði hann ennfremur. Sjá ennfremur fréttir á bls. 4 Eðvald Hmriksson ekki sekur um neina glæpi Forstöðumaður Wiesenthal-stofnunarinnar kannast ekki við vitni að meintum stríðsglæpum upplýsingar um starfsemi þeirra í Eistlandi og í Skandinavíu. Því hefur verið haldið fram að minnisblöð um þessa yfirheyrslu séu enn í vörslu herra Miksons. Af þessum sökum hafa rússneskir embættismenn blásið upp hneyksli í kringum herra Mikson og krafist framsals hans bæði frá Svíþjóð og íslandi,“ segir m.a. í yfirlýsingu eist- neska utanríkisráðuneytisins. Þar kemur einnig fram að dóms- málaráðuneyti Eistlands hafi lýst því yfir að Eðvald geti farið þess á leit ef hann vill að eistneskur dómstóll skeri úr um hvort hann sé sekur. Efraim Zuroff sagði í gær að ásak- anir stofnunarinnar á hendur Eðvaldi hafi verið bornar fram meðan opin- ber heimsókn Davíðs Oddssonar til ísraels stóð yfír til að tryggja að málið fengi nægilega athygli. Hann sagðist aðspurður ekki hafa kynnt sér málsskjöl úr réttarhöldunum yfir Eðvald í Svíþjóð 1946 og ekki kynnt sér efni ævisögu hans. „í ljósi þess að hann er fæddur árið 1911, höfum við ekki svo mikinn tíma til að ná STJÓRNVÖLD í Eistlandi lýsa því . yfir að Eðvald Hinriksson sé ekki sekur um neina glæpi, síst af öllu gagnvart þjóð gyðinga. Þetta kemur fram í bréfi til Morgun- blaðsins frá Urmas Reitelman, talsmanni eistneska utanríkis- ráðuneytisins. Simon Wiesenthal, stofnandi Wiesenthal-stofnunar- innar sagði í fréttum Ríkissjón- varpsins í gær, að í Tel-Aviv væri Eistlendingur á lífi, sem hefði orð- ið vitni að stríðsglæpum Eðvalds Hinrikssonar í Tallin á stríðsárun- um. Hann væri tilbúinn til að bera um það vitni fyrir dómstólum. T*lboð Islands til Mannvirkjasjóðs NATO: salem, sagði í samtali við Morgun- Jdaðið í gærkvöldi að hann hefði jeRki vitað að vitni að meintum glæpum Eðvalds væri á lífi í Tel- Aviv. í yfirlýsingu talsmanns eistneska utanríkisráðuneytisins sem barst Morgunblaðinu í gær segir að, ekki hafi tekist að afla nákvæmra upplýs- inga um Eðvald Hinriksson. „Það hefur þó komið í ljós, að herra Mik- son er ekki sekur um neina glæpi, allra síst gagnvart þjóð gyðinga. Herra Mikson þjónaði í þýsku ör- yggislögreglunni í skamman tíma árið 1941. Við skyldustörf sín yfir- heyrði hann herra Karl Sare, fyrrum ■^•Éalritara Kommúnistaflokks Eist- kánds. Sovétmenn höfðu fyrirskipað herra Sare að halda kyrru fyrir í Eistlandi og halda áfram njósna- starfsemi eftir að Þjóðveijar her- námu landið árið 1941. Herra Sare hafði verið viðriðinn sovéskar njósnir frá því fyrir fyrri heimsstyijöldina þegar hann bjó í Svíþjóð. Yfirmenn tróvésku leyniþjónustunnar óttuðust að hann hefði við yfirheyrsluna gefið honum. Stundum verður að fara stystu leið til að tryggja að réttar- höld fari fram. Við erum því ætíð með annað augað á sönnunargögn- unum en hitt á klukkunni," sagði Zuroff. Ráðamenn Israels ræddu ekki ásakanir Wiesenthal-stofnunarinnar við Davíð Oddsson í gær í opinberri heimsókn hans til Israels, að sögn Hreins Loftssonar, aðstoðarmanns ráðherra. Sjá nánar um málið á miðopnu og bls. 29. Utanríkisráðherra: Heimboð ísraelsstjóm- ar afþakkað ÍSRAELSKUM sljórnvöld- um var síðdegis í gær til- kynnt af hálfu utanríkis- ráðuneytisins að boð um opinbera heimsókn utan- ríkisráðherra íslands til Israel á vori næstkomandi væri hér með afþakkað. Efnislega vildi Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra ekki ræða þessa ákvörð- un sína þegar Morgunblaðið náði sambandi við hann í gær- kveldi. Þegar utanríkisráðherra var spurður hveijar ástæður þess- arar ákvörðunar hans væru, sagði hann einungis: „Það þarfnast ekki nánari skýr- inga.“ 90% verðmæta óumsaminna verka í opna undirverktöku ÍSLAND gerði stjórn Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins nýtt tilboð þann 13. febrúar síðastliðinn, sem fól það í sér að 90% af verðmæti óumsaminna verka á Keflavíkurflugvelli yrðu boðin út á Islandi í opinni undirverktöku. Auk þess fól tilboðið það i sér að eigi síðar en 1. janúar 1996 rynni einkaleyfi íslenskra aðalverk- taka til framkvæmda fyrir varnarliðið út. Morgunblaðið hefur upplýsingar um það frá Brussel að það séu einkum Norðmenn og Bretar sem séu neikvæðir í garð þessa nýja tilboðs, en fulltrúar annarra Atlantshafsbandalagsríkja hafi talið tilboðið ásættanlegt í öllum meginatriðum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var auk þess gefið til kynna munnlega að stjórnvöld kynnu að vera reiðubúin til þess að stytta aðlögunartímann, þannig að möguleiki væri á því að einka- leyfíð yrði afnumið fyrr, næðust samningar um slíkt við meðeig- endur ríkisins í Aðalverktökum, sem og við samningsaðila íslands, bandarísk stjórnvöld. Samkvæmt þessu tilboði munu viðsemjendur íslands hafa talið að samkomulag ætti að geta tekist um fyrirkomulag verktöku mann- virkjaframkvæmda á varnarsvæð- •inu á Keflavíkurflugvelli, þegar í janúarlok, þ.e. að loknum óform- legum fundi stjórnar Mannvirkja- sjóðsins þar sem hið nýja tilboð íslands var kynnt. Strax þá mun þó hafa legið fyrir að andstaða Breta og Norðmanna væri mikil og voru tilgreindar ástæður eins og umræða á íslandi um skatta- mál Sameinaðra verktaka, einok- unaraðstaða Aðalverktaka og hár framkvæmdakostnaður. Á fundinum þann 13. febniar kom fram eindreginn stuðningur Bandaríkjamanna, Kanadamanna og Belga við framkvæmdirnar hér á landi og Þjóðveijar og Hollend- ingar lýstu sig einnig jákvæða í garð tilboðsins, án þess að veita endanlegt samþykki. Óvíst hvort málið verður tekið aftur á dagskrá á fundi hjá stjórn Mannvirkjasjóðs NATO fyrr en einhvern tímann fyrrihluta mars- mánaðar. Sjá nánar Af innlendum vett- vangji á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.