Morgunblaðið - 27.02.1992, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1992
Erlend fjárfesting í atvinnurekstri:
Óbein eignaraðild í sjö útgerð-
ar- og fiskvinnslufýrirtækjum
Ríkislögmanni falið að kanna hvort um brot á lögum sé að ræða
Sjávarútvegsráðherra hefur nýlega farið þess á leit við embætti
rikislögmanns að það láti i ljós skoðun sína á því hvort óbein erlend
eignaraðild í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum brjóti í bága við lög
um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, og til hvaða aðgerða
eigi að grípa reynist svo vera. Viðskiptaráðuneytinu hafa borist upp-
lýsingar um erlenda eignaraðild með óbeinum hætti í sjö útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækjum, og er þá miðað við eignaraðild sem tilkom-
in er eftir að ofangreind lög tóku gildi 25. mars í fyrra. Fyrirtækin
sem um ræðir eru Grandi hf., Útgerðarfélag Akureyringa hf., Skag-
strendingur hf., Þormóður rammi hf., Haraldur Böðvarsson hf., Hrað-
frystihús Eskifjarðar og Sildarvinnslan hf. í Neskaupstað.
Kristinn syng-
ur í Mattheus-
arpassíunni
KRISTINN Sigmundsson söngvari
kemur hingað til lands um pásk-
ana til að syngja Mattheusarpass-
íuna með Kór Lanjgholtskirkju.
Auk Kristins taka Olöf Kolbrún
Harðardóttir, Björk Jónsdóttir,
Michael Goldthorp og Bergþór
Pálsson þátt í flutningnum.
í frétt frá kórnum segir að það
hafi verið fyrir tilviljun að stjórnandi
hans hringdi í Kristin rétt eftir að
hann hafði fengið bréf um að tónleik-
um, sem hann átti að syngja á í
Hollandi á sama tíma, hafði verið
aflýst.
Samkvæmt upplýsingum viðskipt-
aráðuneytisins er hin óbeina erlenda
eignaraðild í Granda hf. og Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf. til komin
með þeim hætti að fyrirtækið Pictet
Gestion S.A. keypti nýlega hlut í
Hampiðjunni hf. og einnig í Hluta-
bréfasjóðnum hf., en bæði þessi fyr-
irtæki áttu fyrir eignarhluta í
Granda hf. og ÚA.
Hin óbeina eignaraðild í Skag-
strendingi hf. er til komin með þeim
hætti að Skeljungur hf., sem að
hluta til er í eigu erlendra aðila, eign-
aðist hlut í Skagstrendingi hf. eftir
25. mars síðastliðinn, og einnig hef-
ur Olíuverslun Islands hf., sem líka
er að hluta til í eigu erlendra aðila,
aukið hlut sinn í Skagstrendingi hf.
eftir 25. mars. Þá er Hlutabréfasjóð-
VEÐURHORFUR í DAG, 27. FEBRÚAR
YFIRLIT: Um 400 km vestur af Snæfellsnesi er 968 mb lægð sem hreyfist lítið
og grynnist en smálægð skammt út af Vestfjörðum þokast norður. Um 1.400
km suður í hafi er mjög vaxandi lægð sem fer allhratt norðnorðaustur og mun
fara norður meö Austfjörðum síðdegis á morgun. Frost verður áfram um
mestajlt land, viðast 1-5 stig.
SPA: I nótt litur út fyrir s- og sv-átt um mestallt landið með allhvössum éljum
sunnanlands og vestan en björtu veðri norðaustanlands. A morgun lægir dálít-
ið og dregur llklega úr éljum vestantil, um landið austanvert má buast við
mjög vaxandi n-átt með.snjókomu, gæti iafnvel orðiö ofsaveður um tíma síðdeg-
is austast á iandinu. A austanverðu N-landi lltur út fyrir hvassa nv-átt og
snjókomu með kvöldinu en annað kvöld léttir til með hvassri v-átt á A-landi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vaxandi suðaustanátt, víða hvöss með snjókomu
og síðan sJyddu eða rigningu sunnan- og vestanlands er líður á daginn, en
áfram úrkomulítiö norðaustanlands. Hlýnandi veður i bili.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestanátt og kólnandi veður. Él sunnan- og
vestanlands, en léttir til norðaustanlands.
Svarsimi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
O tfk ö
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
/ / / * / * ***
/ / * / * *
// / / * / ***
Rigning Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V 'v' V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrín sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐ A VEGUM:
Á Suður- og Vesturlandi hefur gengið á með mjög dímmum éljum í dag, og
Veðurstofan spáir áframhaldandi éljagangi í kvöld. Fært er með suöurströnd-
inni austur á Austfirði. Fært er um Snæfellsnes i Dali og þaðan til Reykhóla.
Þá er fært frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaöan til Bíldudals. Á Vestfjörö-
um er fært um Botns- og Breiðdalsheiðar og inn í ísafjarðardjúp. Fært er um
Holtavörðuheiði til Hólmavíkur, en Steingrímsfjarðarheiði er aðeins fær fyrír
jeppa og stærri bíla. Greiðfært er norður til Siglufjaröar og Akureyrar, og
þaöan um Þingeyjarsýslur með ströndinní til Vopnafjarðar. Fært er fyrir jeppa
og stærri bila um Mývatns- og Möörudalsöræfi, og vegir á Austurlandi er yfir-
leitt færir. Vegagerðin
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
tíltl veður
Akureyri 0 skýjað
Reykjavik 0 *o # !
Bergen 5 rígn. 6 síð. klst.
Helsinki 5 láttskýjað
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq vantar
Nuuk 4-23 léttskýjaö
Ósló 2 súld
Stokkhólmur 0 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve vantar
Amsterdam 8 þokumóða
Barcelona vantar
Berlín 7 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt 7 mistur
Glasgow 8 hálfskýjað
Hamborg 4 þokumóða
London 10 mistur
Los Angeles vantar
Lúxemborg 8 skýjað
Madríd 9 lágþokublettir
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal vantar
NewYork vantar
Ortando vantar
Parls 11 hálfskýjað
Madeira 17 léttskýfað
Róm 16 skýjað
Vín 8 skýjað
Washlngton vantar
Winnipeg vantar
urinn hf., sem Pictet Gestion S.A. á
hlut í, einnig hluthafí í Skagstrend-
ingi hf. Á sama hátt er hin óbeina
erlenda eignaraðild í Þormóði
ramma hf. og Haraldi Böðvarssyni
hf. komin til, en Hlutabréfasjóðurinn
hf. er hluthafi í báðum þessum fýrir-
tækjum.
Hvað Hraðfrystíhús Eskifjarðar
og Síldarvinnsluna hf. í Neskaupstað
varðar, þá er hin óbeina erlenda
eignaraðild komin til með þeim hætti
að Olíuverslun íslands hf., sem eins
og fyrr segir er að hluta til í eigu
erlendra aðila, hefur aukið hlut sinn
í þessum fyrirtækjum eftir 25. mars
síðastliðinn.
Að sögn Áma Kolbeinssonar,
ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, er ekki reiknað með
því að álit ríkislögmanns liggi fyrir
alveg á næstunni vegna anna í mál-
flutningi hjá embætti ríkislögmanns.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ:
Otækt að erlendir
aðilar eignist hlut
í útgerð hérlendis
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir ótækt að erlendir aðilar eignist hlut í íslenskum sjávar-
útvegsfyrirtækjum. Kristján sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að hann væri í meginatriðum sammála lögfræðilegri álitsgerð Gests
Jónssonar sem vitnað var til í blaðinu í gær og kveðst vera sáttur
við þá skilgreiningu lögmannsins að það sem hafði gerst í fjárfest-
ingu erlendra aðila fyrir 25. mars í fyrra geti staðið, en taka beri á
því sem gerst hefur eftir það, „enda lögin afdráttarlaus hvað það
varðar,“ sagði Kristján.
„Það er ótækt að mínu mati að
erlendir aðilar eignist hlut í íslensk-
um sjávarútvegsfyrirtækjum. Maður
getur sagt sem svo að það skipti litlu
máli að einhver lítill hlutur sé í eigu
útlendinga í gegnum eitthvert þriðja
fyrirtæki, sem væri svo eigandi að
hluta í öðru, en ég held að svo marg-
ir fyrirvarar kæmu upp í því sam-
bandi að mjög erfitt yrði um vik,“
sagði Kristján.
I því sambandi sagði hann að
spurt yrði hvert slíkt hlutfall ætti
að vera, hversu mörg þannig fyrir-
tæki mættu vera í einu fyrirtæki og
svo framvegis. „Eftir því sem ég hef
leitt hugann að þessu, hef ég komist
að þeirri niðurstöðu að eðlilegast og
æskilegast væri að framfylgja lög-
unum eins og þau eru og útiloka
frekari erlenda eignaraðild en þegar
er orðin,“ sagði Kristján.
Kristján kvaðst í sjálfu sér ekki
telja þá erlendu eignaraðild sem
þegar var fyrir hendi við gildistöku
laganna 25. mars í fyrra til skaða,
því hún væri svo óveruleg. „En það
er betra að byrgja brunninn áður
en bamið er dottið ofan í hann, ef
maður er þeirrar skoðunar sem ég
er, að erlendir aðilar eigi ekki að
geta eignast hlut í okkar mikilvæg-
ustu atvinnustarfsemi, sjávarútveg-
inum á Islandi," sagði Kristján.
„Lögin eru mjög afdráttarlaus í
þessum efnum og ef menn ætla ekki
að framfylgja því sem í þeim stend-
ur, þá held ég bara að menn verði
að breyta lögunum. Hins vegar hef
ég ekki trú á því að það sem hefur
gerst hvað varðar fjárfestingu er-
lendra aðila í sjávarútvegsfyrirtækj-
um, sé ásælni inn í íslenskan sjávar-
útveg, en það gæti alveg gerst að
útlendingar myndu hefja slíka sókn
ásælni, og hættan felst í því. Þess
vegna eigum við ekki að heimila
þetta," sagði Kristján.
Kristján kvaðst telja að sjávarút-
vegsráðuneytið gerði sér grein fyrir
að við svo búið gæti ekki staðið leng-
ur. „Það verður að ganga í að taka
afstöðu í þessu máli og fylgja lögun-
um eftir, því annars fer þetta út um
víðan völl,“ sagði Kristján Ragnars-
son, formaður LÍÚ.
------» ♦ ♦------
16 ára ölv-
aður á stol-
inni bifreið
LÖGREGLAN í Reykjavík stöðv-
aði ökuferð ungs pilts um götur
borgarinnar um kl. 3.30 í fyrri-
nótt, þar sem ýmislegt þótti at-
hugavert við aksturslagið.
I ljós koma að drengurinn, sem
er 16 ára, var undir áhrifum áfeng-
is. Bílinn hafði hann tekið í leyfís-
leysi hjá móðui' sinni.
Framkvæmdalán vegna félagslegra íbúða:
Akvörðun um lánveit-
ingar um miðjan mars
YNGVI Örn Kristinsson, formað-
ur húsnæðismálastjórnar, segir
minnkandi líkur á að takist að
afgreiða framkvæmdalán vegna
byggingar eða kaupa um 500
félagslegra íbúða í þessum mán-
uði en nú sé stefnt að því að
hægt verði að taka ákvörðun um
lánveitingar um miðjan mars.
Yngvi segir að ástæðan sé fyrst
og fremst sú, að enn hafí ekki tek-
ist að ganga frá samningum við
lífeyrissjóðina um fjármögnun út
árið en lánsfjárþörf Byggingarsjóðs
verkamanna til að mæta útgreiðsl-
um vegna félagslega íbúðakerfísins
á árinu er rösklega fimm milljarðar
kr.
Lífeyrissjóðirnir sömdu við Hús-
næðisstofnun í janúar um skulda-
bréfakaup fyrir um þrjá milljarða
vegna fyrsta ársfjórðungs, sem fór
í að að ljúka óafgreiddum lánslof-
orðum úr húsnæðiskerfínu frá
1986.