Morgunblaðið - 27.02.1992, Page 17

Morgunblaðið - 27.02.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1992 17 Borgarráð: Kvikk sf. fær 3,5 milljón- ir í styrk BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillög-u Atvinnumálanefndar Reykjavíkur um að veita fyrir- tækinu Kvikk sf. styrk að fjárhæð 3,5 milljónir króna til þróunar og prófunar á fiskaðgerðarvél, sem nefnd hefur verið Kvikk 220. Kostnaður vegna lokaáfanga verksins er talinn vera 7,6 millj- ónir en heildarkostnaður að minnsta kosti 34,5 milljónir áður en kemur að framleiðslu og markaðssetningu. í umsókn fyrirtækisins til atvinnu- málanefndar kemur fram, að fyrir- tækið hefur þróað og selt tvær gerð- ir aðgerðarvéla, meðal annars til þrettán landa við Norður-Atlantshaf og við Kyrrahaf. Auk þess hafi fyrir- tækið þróað hausavinnsluvél fyrir Kyrrahafslax og Alaska-ufsa. Hafa fimm slíkar vélar verið seldar til Alaska og nokkrar fyrirspurnir hafa borist frá^ austurströnd Rússlands og víða. Á skrifstofu fyrirtækisins starfa fjórir og við framleiðslu og þróun undanfarinna ára hafa starf- að tugir manna. Við hönnun og þróun Kvikk 220 aðgerðarvélarinnar hafa samstarfs- aðilar verið Hansavélar, Sigurður Kristinsson og Ásgeir Matthlasson. Samstarfsaðili við prófanir um borð I fiskiskipi er Grandi hf. og í fisk- verkun Fiskkaup hf. Vélin verður seld og markaðssett á íslandi og erlendis og heppnist hún fullkom- lega er mikill markaður fyrir vél sem þessa, segir i greinargerð með um- sókninni. „Raunhæft er að áætla að lágmarki 200 véla sölu næstu 5 árin. Ljóst er að gangi áætlanir eft- ir, samkvæmt framangreindu lág- marki, munu a.m.k. falla til 10 til 15 full störf við framleiðslu vélanna árlega, auk verulegrar verðmæta- aukningar þjóðarframleiðslu með tilkomu þess að aukið magn hágæða hrogna og lifrar berst að landi og nýtist til gæða-framleiðslu.“ -----» ♦ »---- Umræðukvöld í Bústaðakirkju HVER var Jesús frá Nasaret? er spurning, sem velt verður upp á umræðukvöldum í Bústaðakirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson mun flylja inngang og síðan verða al- mennar umræður út frá inngangi hans. Hann mun leggja til grund- vallar orðum sínum valda kafla úr Jóhannesarguðspjalli. Fjallað verður um hugmyndir manna í nútímanum um Jesú. Jesús sem einn af spámönnum gyðing- dómsins, fulltrúi mannúðarstefnu, fyrsta blómabarnið, byltingarmaður og Kristur trúarinnar. Þessar samverustundir eru öllum opnar og verða á fimmtudagskvöld- um milli klukkan 18 og 19. Dr. Siguijón Árni Eyjólfsson er doktor í guðfræði frá Christian Albrechts Universitat í Kiel. Hann hefur verið ráðinn til starfa við Bú- staðakirkju og verður á vordögum vígður til aðstoðarprests við kirkj- una. :;F - ..1 h MJÓLKURDAGSNEFND Tilboðsverð Góðan daginnl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.