Morgunblaðið - 27.02.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1992
Deilur um fóstureyðingar í Irlandi:
Konur á þingi
vilja rýnui lög
Dyflinni. Reuter.
KONUR á írska þinginu hafa hvatt til þess að lögum, sem banna
írskum konum að gangast undir fóstureyðingu, verði breytt þann
veg að eyðing fósturs verði heimil í undantekningartilvikum.
Hart er nú deilt á Irlandi um málefni 14 ára stúlku sem borgardóm-
ur Dyflinnar meinaði að leita eftir fóstureyðingu á Englandi en
hún er þunguð eftir að hafa verið nauðgað af föður bestu vin-
konu hennar. I gær breytti hæstiréttur Irlands úrskurði dómstóls-
ins.
Foreldrar stúlkunnar leituðu
ásjár hæstaréttar og óskuðu eftir
því að hann aflétti farbanni sem
borgardómur Dyflinnar setti
stúlkuna í og heimilaði henni að
leita eftir fóstureyðingu í Eng-
landi. Við þeirri beiðni varð réttur-
inn en dómarar ákváðu að bíða
með að birta lagarök sem lágu til
grundvallar þeirri ákvörðun.
Mary Harney, aðstoðar um-
hverfisráðherra og þingmaður
Framfarasinnaða lýðræðisflokks-
ins, sem aðild á að stjórn sagði
Færeyjar:
Vínbann-
inu aflétt
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jergen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
FÆREYSKA þingið hefur
samþykkt nýja áfengislög-
gjöf, þar sem hartnær aldar
gömlu banni við sölu áfengis
og vínveitingum er aflétt.
Ekki er Ijóst hvenær áfengis-
löggjöfin gengur í gildi en að
sögn Marita Peterson, sem á
sæti í landstjórninni, er stefnt
að því að það verði innan árs.
Afengislöggjöfin er í höfuð-
atriðum sniðin eftir þeirri
norsku. Stofnuð verður áfeng-
isverslun í eigu ríkisins, sem
fær einkarétt á innflutningi og
sölu á áfengi og kemur á fót
verslunum víða um landið. Þá
fá veitingahús vínveitingaleyfi.
Nýja löggjöfin hefur verið
mikið hitamál í Færeyjum.
Hreyfingar bindindismanna og
trúfélög hafa þar mikil áhrif
og lögðu fast að þingmönnum
að greiða atkvæði gegn frum-
varpinu. Aðeins munaði einu
atkvæði að andstæðingum lög-
gjafarinnar tækist að fella
hana.
að rétt væri að leyfa fóstureyðing-
ar í undantekningartilvikum.
Kvaðst hún í sjálfu sér andvíg
fóstureyðingum en menn yrðu að
horfast í augu við þetta vandamál
af hreinskilni og í vissum tilvikum
væri eyðing fósturs skárri kostur-
inn af tveimur vondum.
Nora Owens, talsmaður Fine
Gael, helsta stjórnarandstöðu-
flokksins, sagðist myndu greiða
breytingartillögu við fóstureyðing-
arlöggjöfina atkvæði sitt ef hún
kæmi fram. Þingkonurnar á írska
þinginu vinna að því að ná sam-
stöðu allra flokka um breytingar
á löggjöfinni og áttu þær m.a.
viðræður við Albert Reynolds for-
sætisráðherra um það mál í fyrra-
dag. Hann er andvígur því að efna
til þjóðaratkvæðis um málið.
Mary Robinson írlandsforseti
vék að máli táningsstúlkunnar í
ræðu í fyrrakvöld og hélt því fram
að írskar konur nytu ekki jafnrétt-
is. Meðan svo væri gætu þær ekki
talist frjálsar með öllu.
Reuter
Imelda Marcos fær vegabréf
Imelda Marcos, ekkja Ferdinands Marcos, fyrrverandi einræðisherra
Filippseyja, fékk í gær nýtt vegabréf en Corazon Aquino, forseti
landsins, hafði numið fyrra vegabréf hennar úr gildi fyrir sex árum.
Imelda hyggst sækja lík eiginmanns síns til Hawai og segir að það
verði grafíð á fjalli í heimahéraði hans, Ilocos Norte, þar sem sést
til tveggja hafa, Kyrrahafs og Suður-Kínahafs. Aquino sagði að
Ferdinand Marcos yrði sýnd virðing sem sæmdi fyrrverandi forseta
landsins en setti það skilyrði að Imelda tryggði að jarðarförin yrði
ekki tilefni óeirða og átaka.
Bush og
þingið
eru ósátt
um Kína
Washington. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings er á öndverðum meiði við
George Bush forseta um sam-
skiptin við Kínverja og hefur sent
honum frumvarp þar sem segir,
að bestu-kjara-samningar við þá
verði ekki endurnýjaðir nema að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Bush getur beitt neitunarvaldi
gegpi frumvarpinu þar sem nokk-
uð vantar á, að það njóti stuðn-
ings tveggja þriðju þingmanna.
Frumvarpið var samþykkt í öld-
ungadeildinni með 59 atkvæðum
gegn 39 og þar er þess krafist, að
Kínverjar sleppi úr haldi pólitískum
föngum og taki fullan þátt í að
hindra útbreiðslu kjarna-, efna- og
sýklavopna. Þá er einnig farið fram
á, að Kínveijar virði bandarísk eink-
aleyfi og höfundarrétt og láti af
óeðlilegum viðskiptaháttum. Kín-
veijar komust fyrst í hóp bestu-
kjara-þjóða árið 1980 og síðan hafa
samningarnir verið endurnýjaðir ár-
lega.
George Mitchell, leiðtogi demó-
krata í öldungadeild, sagði, að síðan
kínversk stjórnvöld hefðu brotið á
bak aftur lýðræðisbyltinguna á Tian-
anmen-torgi árið 1989 hefðu „engir
reynt meira að gefa kínverskum
stjórnvöldum virðulegan svip en
Bandaríkjamenn“ en sú stefna hefði
verið röng. Nú væri kominn tími til
að taka upp aðra og harðari stefnu.
Norski Verkamannaflokkurinn andvígur verslun með kvóta:
Reynsla Islendínga af sölu
aflakvóta víti til vamaðar
- segir talsmaður hagsmunasamtakanna Norges Fiskarlag
Ósló. Frá Guðmundi Löve, fréttaritara Morgunblaðsins.
VINNUHÓPUR á vegum norska samþykkt ályktun þess efnis að
sjávarútvegsráðuneytisins hefur
í vetur unnið að gerð tillagna
um breytt skipulag á fiskveiðum
er meðal annars fælu í sér heim-
ild til sölu eða leigu fiskveiðik-
vóta á milli skipa. A fundi lands-
stjórnar Verkamannaflokksins
fyrr í mánuðinum var hins vegar
sala eða leiga á fiskveiðikvóta
manna á millum samræmist ekki
þeirri hugmynd að auðlindin sé
sameign þjóðarinar. Réttur til
nýtingar hennar þyrfti því að
byggjast á afnotarétti en ekki
eignarrétti. í sama streng taka
hagsmunasamtök sjómanna og
Bandaríkin:
„Bjargrá,ð“ Bush inn-
antóm pólitísk aðgerð?
Florída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
EITT AF bjargráðum George Bush Bandaríkjaforseta til lausnar
þeirri efnahagskreppu, sem hefur ríkt í Bandaríkjunum, var að
lækka fyrirframgreiðslu skatta svo meira yrði eftir í umslögum
launafólks á útborgunardögum og það hefði meira úr að spila -
og þar með færu hjól efnahagslífsins að snúast hraðar. Forsetinn
lagði áherslu á þetta atriði í stefnuræðu sinni í janúar en banda-
rísk dagblöð hafa hins vegar eftir atvinnurekendum og skatt-
heimtumönnum að þetta sé „innantóm pólitísk aðgerð", sem leysi
ekki nokkurn vanda en valdi ríkinu og launagreiðendum miklum
aukakostnaði og erfiði, auk þess sem það komi ýmsum skattgreið-
endum illa þegar upp er staðið.
Lækkun fyrirframgreiðslu
skatta kemur til framkvæmda 1.
mars og launafólk fær að meðal-
tali 3,31-6,63 dollurum meira í
umslög sín á viku hverri. Eftir er
að sjá hver áhrif þessa lítilræð-
is verða á efnahagskreppuna,
en blöð eru mjög efins um að
þau verði greinanleg.
Hins vegar veldur þessi
breyting gífurlegri fyrirhöfn
og miklum kostnaðarauka hjá
öllum launagreiðendum því
breyta verður tölvuforritum
fyrir Iaunaútreikninga. Skatt-
heimtan hefur og orðið að 'láta
prenta og póstsenda 62 blað-
síðna leiðbeiningarbækling
varðandi skattamál launþega
til fimm milljóna atvinnurek-
enda. Sú útgáfa og dreifing
kostar milljónir dollara og til
viðbótar kemur aukakostnaður
launagreiðenda vegna breyt-
ingarinnar.
Þá mun það vera útbreiddur
misskilningur á meðál launafólks
að þessi breyting feli í sér lækkun
heildarskatta en svo er ekki í öll-
um tilvikum. „Bjargráð" forsetans
fól aðeins í sér íækkun fyrirfram-
greiðslu skatta en getur síðan leitt
til meiri skattskuldar á uppgjörs-
degi eða minni innistæðu skatt-
greiðenda hjá ríkinu.
útgerðarmanna, Norges Fiskar-
lag, sem telja reynslu íslendinga
af kvótasölu víti til varnaðar.
Pál Nordenborg, upplýsingafull-
trúi Verkamannaflokksins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að í
ályktun fundar landsstjórnarinnar
fælist hið eindregna álít flokksins
að auðlindir væru og yrðu sameign
þjóðarinnar og tók hann dæmi af
tilhögun leyfisveitinga til olíu-
vinnslu í Norðursjó. Að sögn Nord-
enborg segir ennfremur í ályktun
flokksins að verslun með kvóta
myndi torvelda stjórn fískveiða og
leita beri annarra leiða til að létta
undir með þeim sem verst séu
staddir.
Jan Birger Jorgensen, aðalráð-
gjafi í norska sjávarútvegsráðu-
neytinu, sagði að tillögurnar, sem
einnig fólu í sér heimild til samnýt-
ingar á kvóta, myndu nú koma til
endurskoðunar. Samnýting sem
fæli í sér að nokkrir útgerðarmenn
gætu sammælst um að skip eins
þeirra veiddi upp í samanlagðan
kvóta þeirra allra myndi í raun
þýða það sama og kvótasala. Þrátt
fyrir' þennan vanda standa vonir
til að unnt verði að leggja tillögurn-
ar fyrir Stórþingið innán skamms,
að sögn Jorgensens.
Jon Lauritzen, upplýsingafulltrúi
Norges Fiskarlag, hagsmunasam-
taka sjómanna og útgerðarmanna,
sagði að samtökin hefðu alla tíð
verið á móti framseljanlegum
kvóta. „Það er einungis Island auk
örfárra annarra landa sem reynt
hafa þetta kerfi,“ sagði hann. „Að
auki hefur sú reynsla sem okkur
sýnist af þessu á íslandi síður en
svo orðið til að hvetja okkur til að
styðja slíkar hugmyndir.“ Norges
Fiskarlag hafa lagt til að komið
verði á fót opinberri stofnun er sjái
um dreifingu á lausum kvóta. Að
sögn Lauritzen hefur ráðuneytið
enn sem komið er ekki svarað þeim
umleitunum.
------ 4-------
Spenna
magnast
í Bosníu
## Belgrad. Reuter.
OFLUG sprenging varð í bygg-
ingu Króata í Bosníu-Herzegov-
ínu í fyrrinótt með þeim afleið-
ingum að tólf manns særðust, þar
af fjórir alvarlega. Mikil spenna
er í lýðveldinu vegna þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar um sjálfstæði
þess sem fram fer á sunnudag.
Talið er að sprengju hafi verið
komið fyrir í byggingunni, sem er
í eigu menningarfélags Króata í
bænum Odzak í norðurhluta lýð-
veldisins. Tvö sprengjutilræði höfðu
áður verið framin gegn Króötum í
lýðveldinu á nokkrum vikum.
Serbar í héraðinu Banja Luka í
norðurhluta Bosníu hafa stofnað
eigið þing, sem lýsti því yfir í gær
að það myndi lýsa yfir sjálfstæði
ef meirihluti yrði fyrir sjálfstæði
Bosníu-Herzegovínu í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni á sunnudag.