Morgunblaðið - 27.02.1992, Síða 44
\%M
TVÖFALDUR1. vinningur
MORGUNBLADW, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 27. FEBRUAR 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Þrír sluppu
ómeiddir eft-
ir 5-6 veltur
JEPPI fór út af veginum í Mið-
dalsgili í Bröttubrekku í gær og
valt um 30 metra í 5-6 veltum.
Okumaður bílsins og tveir far-
þegar sluppu ómeiddir.
Fólkið var á leið til Reykjavíkur
er bifreiðin valt um kl. 17. Að sögn
ökumannsins var dimmt él og mjög
lélegt skyggni er óhappið varð. „Það
var mikið kóf þarna og ég keyrði á
5 kílómetra hraða og hafði stikurn-
ar við veginn til að glöggva mig á
hvar hann lá. Þarna vantar nokkrar
stikur og ég sá stikur sem voru
lengra í burtu. Á milli þeirra er
hlykkur í veginum inn að fjallinu
og það varð til þess að ég missti
•framhjólið útaf. Bíllinn rann af veg-
inum, fór 5 til 6 veltur og stöðvað-
ist um 30 metrum neðar,“ segir
ökumaðurinn.
Hann segir mikinn snjó hafa
bjargað því að ekki fór verr en raun
bar vitni auk þess sem allir farþeg-
ar voru í bílbeltum. „í raun er alveg
furðulegt hversu vel fór. Það tók
mig tíma að komast aftur upp á veg
vegna þess hversu bratt er þarna
og einnig var mikil hálka og snjór.“
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
-nesi er mikil hálka á vegum og
hvetur hún ökumenn að fara var-
lega.
♦ ♦ ♦
Viðamikil
rannsókn á
botndýralífí
Viðamiklu rannsóknarverkefni
á botndýralífi við ísland verður
hleypt af stokkunum á næstunni.
Áhersla verður lögð á grunn-
rannsóknir og umhverfistengdar
t rannsóknir. Rannsóknarverkefn-
L ið er samvinnuverkefni fjöl-
margra innlendra og erlendra
aðila.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins standa Náttúru-
fræðistofnun íslands, Líffræðistofn-
un Háskólans, Sjávarútvegsstofnun
Háskólans, Hafrannsóknastofnun
og umhverfismálaráðuneytið fyrir
verkefninu í samvinnu við norræna
aðila og fleiri Evrópuþjóðir. Litlar
rannsóknir hafa verið gerðar á botn-
dýralífi við ísland en slíkar rann-
sóknir þykja góður mælikvarði á
ýmsa aðra umhverfisþætti, s.s.
mengun. Lögð verður áhersla á
grunnrannsóknir og umhverfis-
pí-engdar rannsóknir.
Hingað til hefur aðeins fengist
loforð fyrir innlendu fé til verkefnis-
ins en ætlunin er að leita eftir nor-
rænu framlagi.
w ljC*—
ICELANDAIR
Morgunblaðið/Steingrímur Gunnarsson
Slökkviliðsmcnn aðstoða farþega er þeir fara frá borði eftir nauðlendinguna í gærmorgun.
Asdís aftur í loftið eftir tíu daga
FREMUR litlar skemmdir urðu á Ásdísi, hinni nýju Fokker 50
vél Flugleiða, þegar nauðlenda varð henni á Keflavíkurflugvelli
í gærmorgun. Bilun í grjóthlíf á nefhjóli vélarinnar er talin orsök
þess að hjólið náðist ekki niður í aðflugi að Akureyrarflugvelli,
en þaðan var vélinni flogið til Keflavíkur. Nauðlendingin tókst
vel og sakaði engan þeirra 43 farþega sem um borð voru. Talið
er að um 10 daga taki að gera við þær skemmdir sem urðu á
flugvélinni, en hún kom til landsins 15. febrúar síðastliðinn.
Flugstjóri í flugi Ásdísar í gær-
morgun var' Páll Stefánsson, en
Ottó Tynes var aðstoðarflugmað-
ur. Páll sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þakka megi hve nauð-
lendingin tókst vel góðri þjálfun
sem flugmennirnir hefðu notið hjá
Fokker-verksmiðjunúm, og einnig
frábærum flugeiginleikum vélar-
innar.
Grjóthlífin sem bilaði er auka-
búnaður á Ásdísi og er notuð af
vélum af þessari gerð til að varna
gijótkasti upp í vélarskrokkinn á
erfiðum malarflugbrautum. Þar
sem ekki er um öryggisbúnað að
ræða hafa Flugleiðir mælt svo
fyrir að gijóthlífar þessar verði
ekki á þeim Fokker 50 vélum sem
fyrirtækið fær afhentar á næstu
vikum.
Sjá ennfremur fréttir og við-
töl á miðopnu.
Stofnbraut um Fossvogsdal
verður ekki lögð ofan jarðar
Dalurinn verður eitt skipulagssvæði og gerður aðgengilegur almenningi
Umhverfisráðherra hefur staðfest nýtt aðalskipulag Reykjavíkur
fyrir 1990 til 2010. Þar er gert ráð fyrir stofnbrautartengingu eftir
Fossvogsdal milli austurs og vesturs. Sýna skipulagsuppdrættir tenging-
ar og gangamunna við Kringlumýrarbraut við Nesti og við Reykjanes-
braut til móts við Stekkjarbakka. Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson-
ar, formanns samstarfsnefndar Reykjavíkur og Kópavogs, eru nefndar-
mcnn sammála um að dalurinn verði gerður aðgengilegur fyrir almenn-
ing í þeirri mynd sem hann er nú og að stofnbraut verði ekki lögð
ofanjarðar í dalnum.
„Samstarfsnefnd Reykjavíkur og
Kópavogs hefur verið að ræða um á
hvem hátt mætti standa að nauðsyn-
legum umhverfisbótum í dalnum
þannig að almenningi gefíst kostur
á að njóta dalsins eins og hann er
nú að teknu tilliti til staðfestra aðal-
skipulaga," sagði Vilhjálmur. „Það
hefur enn ekki verið tekin afstaða
til þess á hvern hátt austur-vestur-
tengingin verði best tryggð. Aðallega
er rætt um tvær leiðir, stofnbraut
neðanjarðar eftir dalnum eða göng
undir byggð í Kópavogi. Við erum
sammála um að líta á dalinn sem
eitt skipulagssvæði án bæjarmarka
og að hraðbraut ofanjarðar í dalnum
er ekki til umræðu. Við gefum okkur
góðan tíma áður en endanleg ákvörð-
un verður tekin enda er væntanleg
tenging ekki á framkvæmdaáætlun
fyrr en um aldamót."
í Kópavogi hefur umhverfisráð
samþykkt tillögu um að Fossvogur
Samanburður á lyfjakostnaði í janúar í ár og í fyrra:
Ekki hefur dregið úr lyfjakostnaði
LYFJAKOSTNAÐUR Tryggingastofnunar ríkisins síðastliðinn jan-
úarmánuð er mjög svipaður lyfjakostnaði í sama mánuði í fyrra, að
sögn Kristjáns Guðjónssonar, yfirmanns sjúkratryggingadeildar
Tryggingastofnunar rikisins. Hann segir jafnframt að ef ekki hefði
verið gripið til aðgerða til að draga úr lyfjakostnaði væri þessi kostn-
aður nú væntanlega mun hærri en ella. Hann bendir á að óvei\ju
mikil veikindi í vetur hafi haft töluverð áhrif á þennan lyfjakostnað.
„Við eigum von á að febrúarmán-
uður verði eitthvað svipaður janúar.
Lækniskostnaður og lyfjakostnaður
hfyrir janúar og febrúar virðist ætla
að verða mjög rhikill," segir Krist-
ján.
Kristján bendir ennfremur á að
um síðustu áramót hafi reglugerð
um greiðslur almannatrygginga í
lyfjakostnaði verið breytt þannig
að hámarksskammtur, sem fæst út
á eitt fastagjald, var hækkaður úr
60 dögum í 100 daga. „Égtel þessa
breytingu úr 60 dögum í 100 daga
hafa verið villu. Þetta eru allt
ástæður þess að lyfjakostnaður er
nú svipaður og á síðasta ári þrátt
fyrir þessa reglugerðarbreytingu í
sumar. Auk þess er fjöldi lyfjakoila
orðinn töluverður og er í raun orð-
inn mun meiri en von var á,“ segir
hann.
Starfandi er nefnd sem hefur
eftirlit með lyfjakostnaði og á Krist-
ján sæti í henni: „Þar höfum við
verið að ræða um aðgerðir en ég
vil ekki gefa neitt upp um þær að
sinni. Það er hins vegar alveg ljóst
að eitthvað verður að gera til þess
að draga úr kostnaði við lyfjanotkun
jafnvel með frekari aðgerðum. Það
virðist einnig þurfa að vera með
stöðugan áróður í gangi svo að
læknar gefi t.d. ekki lengri
skammta en þörf er á og skrifi
ekki dýrari lyf en þörf er á. Ég
spáði því í haust að innan skamms
yrðu þessi mál aftur komin í sama
farið þar sem markaðurinn virðist
laga sig að aðstæðum hveiju sinni,“
segir Kristján Guðjónsson.
verði skipulagður sem ein heild af
fulltrúum beggja sveitarfélaga og að
núverandi bæjarmörk ráði ekki nýt-
ingu dalsins heldur það sem heppi-
legt er og hagkvæmt í skipulagi.
„Aðalskipulag Kópavogs og aðal-
skipulag Reykjavíkur verði haft að
leiðarljósi við skipulagsvinnuna.
Hraðbraut um Fossvogsdal kemur
ekki til álita,“ segir í tillögunni. Enn
fremur segir að: „Útivistarsvæðið í
Fossvogsdal tengi á sem eðlilegastan
hátt útivistarsvæðin í Öskjuhlíð og
Elliðaárdal og beri áþekkt svipmót."
Fram kemur, að dalurinn verði
útivistarsvæði opið öllum almenningi
til óskipulagðrar og tilfallandi úti-
veru. Lögð verði áhersla á göngu-
og skokkleiðir, áningar- og hvíldar-
staði og að stór svæði verði nær
óbreytt. Skipulag dalsins taki mið
af landslagi og þeim aðstæðum sem
fyrir eru og að gert verði ráð fyrir
verulegri tijárækt.
„Ekki verði gert ráð fyrir á útivist-
arsvæðinu mannvirkjum, afloknum
svæðum eða svæðum til tiltekinna
nota fyrir afmarkaða hópa umfram
það sem þegar hefur verið veitt heim-
ild fyrir. Áform þeirra sem formlega
hafa fengið heimild til aðstöðu í daln-
um verði endúrskoðuð með tilliti til
nýs skipulags. Aðgengi að útivistar-
svæðinu verði úr sem flestum áttum
og gert ráð fyrir bílastæðum í jöðrum
dalsins."