Morgunblaðið - 10.03.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1992
43
„Hauka“ og héldust þau til æviloka
hans. Hermann hafði öra skapgerð
en var ávallt tillitssamur og sann-
gjarn við þá sem hann átti skipti
við. Hann var skarpskyggn á kjarna
hvers máls og gerði sér ljósa grein
fyrir því hvenær annars gagnlegar
umræður gátu ekki gert meira
gagn. Á þann hátt sparaði hann
mörgum mikinn tíma þegar hann
var fundarstjóri á fundum íþrótta-
hreyfingarinnar en til þeirra starfa
var hann mjög eftirsóttur vegna
kunnáttu og röggsemi á því sviði
sem öðrum. Öll hálfvelgja og tregða
til ákvarðanatöku var honum lítt
að skapi en taldi að í mörgum tilvik-
um væri dýrmætum tíma betur
varið til framkvæmda, því að sam-
þykkt sem ekki leiddi til fram-
kvæmda var lítils virði í huga hans.
Hermann sá sitt uppáhalds-
íþróttafélag, „Hauka“, dafna frá
því að vera hópur unglinga, sem
vegna æsku, reynslu- og aðstöðu-
leysis varð að treysta á sjálfan sig
eða leggja upp laupana ella, í það
að verða stórveldi á í þróttasviðinu
með aðstöðu eins og best verður á
kosið. Sú tryggð, sem hann sýndi
þessu óskabarni sínu, kom best í
ljós er hann tók að sér formennsku
í ritnefnd sem var falið það viða-
mikla verkefni að láta skrá 60 ára
afmælissögu „Hauka“ sem kom út
á síðastliðnu ári. Er sú saga hin
merkasta. Síðar á síðastliðnu ári
hafði hann forgöngu um að stofna
til félagsskapar með fullorðnum
íþróttamönnum félagsins svo að
þeir mættu endurnýja gömul kynni
og gleðjast saman í góðum húsa-
kynnum félagsins. Forysta þessa
hóps lagði hann til að yrði kölluð
„Öldungaráð Hauka“ og var hann
sjálfkjörinn formaður þess þótt elst-
ur væri. Var það vegna eldlegs
áhuga og reynslu, enda bar hann
aldurinn fádæma vel.
Það er táknrænt að fyrstu kynni
mín af þessum ágæta manni voru
í félagsstarfi fyrir „Hauka“ og síð-
ustu samverustundir okkar voru
einnig í þágu sama félags. Að kvöldi
síðasta heila dagsins, sem hann
lifði, hafði verið haldin kvöldsam-
koma með fullorðnum íþróttamönn-
um „Hauka“ þar sem Hermann var
hrókur alls fagnaðar. Er samkom-
unni lauk og gengið hafði verið
tryggilega frá öllu innanhúss, hvarf
ég á braut og hafði ég kvatt hann
inni í húsinu. Er mér varð litið um
öxl sá ég að Hermann var kominn
til þess að kanna hvort ekki væri
allt eins og það átti að vera fyrir
framan „Haukahúsið“. Þetta var
síðasta mynd mín af Hermanni
Guðmundssyni. Að morgni dags var
hann allur. Þannig var Hermann til
hinstu stundar léttur í spori, ólatur
og samviskusamur. Ef ég ætti að
lýsa þessum ágæta félaga með einu
orði yrði ég neyddur til þess að
nota enska orðið „sportsman"
vegna þess að það merkir ekki ein-
ungis góður íþróttamaður heldur
einnig drengur góður. Mega
íþróttamenn vera stoltir af því að
þetta orð skuli hafa fengið þessa
tvíþættu merkingu. Að því hafa
menn eins og Hermann Guðmunds-
son stuðlað og ég hlakka til þess
dags þegar íslenska orðið íþrótta-
maður fær einnig þessa tvíþættu
merkingu. Ég veit ég mæli fyrir
munn allra félaga i „Haukum" og
ekki síst þeirra fullorðnu íþrótta-
manna, sem hann helgaði síðustu
krafta sína, er ég votta aðstandend-
um Hermanns Guðmundssonar
innilega samúð og blessa minningu
hans.
Vilhjálmur G. Skúlason.
Með Hermanni Guðmundssyni er
horfinn af sjónarsviðinu einn af lit-
ríkustu forystumönnum íslensks
verkafólks á þessari öld. í marga
áratugi var hann óumdeildur foringi
hafnfirskra verkamanna enda for-
maður féiags þeirra, Verkamanna-
félagsins Hlífar, í marga áratugi.
Hermann var einnig forseti ASÍ
árið eftir að skil urðu milli Alþýðu-
sambands og Alþýðuflokks. Hér
verða störf hans fyrir Vmf. Hlíf og
ASÍ ekki gerð að umtaisefni, enda
aðrir til þess færari.
Þegar sýnt þótti að hinar fram-
sýnu og róttæku tillögur milliþinga-
nefndar ASÍ frá 1959 um gerbreyt-
ingu skipulags þess ættu ekki nægi-
legan hljómgrunn, kom til alvar-
legrar umræðu um og upp úr 1960
að stofna landssamband verka-
manna- og verkakvennafélaganna.
Hér verður sú saga ekki rakin að
neinu marki, en það er söguleg stað-
reynd að samþykkt sem Vmf. Hlíf
gerði 10. desember 1962 að frum-
kvæði formanns félagsins, Her-
manns Guðmundssonar, reið
baggamuninn um að til fram-
kvæmda kom en í þessari samþykkt
er beinlínis skorað á ASÍ að beita
sér fyrir stofnun „Landssambands
verkamanna". Verkamannasam-
bandið var svo stofnað tveim árum
seinna, 9. maí 1964, og skrifuðu 3
formenn öflugustu verkamannafé-
laganna, þeir Hermann Guðmunds-
son, Eðvarð Sigurðsson og Björn
Jónsson, undir boðsbréfið.
Hermann var kosinn^ í fyrstu
framkvæmdastjórn VMSÍ sem rit-
ari. í framkvæmdastjórninni sat
hann til 1975, ritari til 1972 og
varaformaður frá 1972 til 1975.
Þá var Hermann _ þingforseti 8
fyrstu þinga VMSÍ nema stofn-
þingsins. Hann átti mjög mikinn
þátt í að móta stefnu sambandsins
fyrstu árin og beina því í þann far-
veg sem síðan hefur verið haldið.
Hermann lét sér alla tíð mjög annt
um VMSÍ og fylgdist af áhuga með
öllu því sem hjá sambandinu sem
og verkalýðshreyfingunni gerðist
og gladdist innilega þegar vel gekk
en lét sínar skoðanir umbúðalaust
í ljós þegar honum þótti ekki rétt
að málum staðið. Hann lifði það að
sjá verkalýðshreyfinguna vaxa frá
því að vera til þess að gera lítils
megandi í voldugt þjóðfélagsafl sem
allir aðilar, hvort heldur atvinnurek-
endur eða ríkisvald, urðu að taka
fullt tillit til og hann var einn af
þeim — og ekki sá áhrifaminnsti —
sem stýrði hreyfingunni til þessara
valda og áhrifa.
Frá samvinnunni með Hermanni
Guðmundssyni er mjög margs að
minnast, glaðlyndis hans, einlægs
og fölskvalauss áhuga á öllu því sem
snerti kjör_ verkafólks í víðtækri
merkingu. Ég minnist röggsamlegr-
ar og fumlausrar stjórnar hans á 7
þingum sambandsins, þingunum
þar sem sambandið var að slíta
barnsskónum og skapa sér sess í
þjóðfélaginu.
Þá eru ekki síður minnisstæðir
samningafundirnir við íslenska ál-
félagið, ísal, bæði undirbúningur
samninganna áður en verksmiðjan
tók til starfa og breyting þeirra á
síðari stigum. Fyrstu ísalssamning-
arnir, en Hermann var þá og lengi
síðan formaður samninganefndar
verkalýðsfélaganna, voru fyrir
margra hluta sakir tímamótasamn-
ingar. Verið var að semja við fyrir-
tæki sem var stærra í sniðum en
áður hafði þekkst hér á landi og
þá var í fyrsta sinn gerður einn
sameiginlegur samningur fyrir alla
starfsmenn fyrirtækisins þó að í
mörgum verkalýðsfélögum væru.
Hefur sú skipan haldist síðan og
orðið öðrum fyrirmynd. Það hvessti
oft hressilega í ísalssamningum en
ávallt skildu menn sáttir að lokum.
Margt fleira mætti nefna en það
verður ekki gert að þessu sinni
enda eiga þetta aðeins að vera örfá
kveðjuorð til vinar og samstarfs-
manns og þakkir fyrir ágæt kynni
og samstarf sem aldrei bar skugga
á. Verkamannasambandið minnist
með þakklæti og virðingu látins
forystumanns, nafn hans mun bera
hátt í sögu VMSÍ.
Eftirlifandi eiginkonu Hermanns,
Guðrúnu Ragnheiði Erlendsdóttur,
börnum þeirra og barnabörnum
færi ég mínar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Þórir Daníelsson.
Kveðja frá Knattspyrnufé-
laginu Haukum
„Og svo í lokin, þá hrópum við
ferfalt húrra fyrir félaginu okkar
Haukum." Á þennan kröftuga og
hvetjandi hátt lauk Hermann Guð-
mundsson flestum ræðum sínum,
er hann heiðraði félaga sína í Knatt-
spyrnufélaginu Haukum með nær-
veru sinni. Síðast fyrir aðeins
nokkrum vikum glumdu húrrahróp-
in undir stjórn Hermanns á aðal-
fundi félagsins og kvöldið áður en
öllu var lokið, stýrði hann af miklum
myndarskap spila- og skemmti-
kvöldi hjá Oldungaráði Hauka. Þar
var Hermann Guðmundsson hrókur
alls fagnaðar, því gamall draumur
hans um endurnýjaðar samveru-
stundir elstu félaganna var orðinn
að veruleika. Sjálfum auðnaðist
honum ekki að fylgja því lengur
eftir. Lífsferill hans, sem hefur ver-
ið svo fjölbreyttur og viðburðaríkur
var snögglega á enda.
Það er með miklum trega en um
leið þakklæti sem félagar í Knatt-
spyrnufélaginu Haukum í Hafnar-
firði minnast Hermanns Guðmunds-
sonar. Allt frá stofnun félagsins
fyrir rúmum 60 árum og fram á
síðasta dag, stóð Hermann í fylk-
ingarbijósti sinna félaga og sannari
Haukamaður og íþrótta- og félags-
málamaður var vandfundinn.
Þeir voru ekki háir í loftinu strák-
arnir í KFUM sem ákváðu á vordög-
um 1931 að stofna Knattspyrnufé-
lagið Hauka. Flestir innan við ferm-
ingu en vinnulag þeirra og starf
allt bar með sér að þar færi fullorð-
ið og þroskað félagsmálafólk. Þrátt
fyrir erfiða tíma og algert aðstöðu-
leysi, létu þeir ekki hugfallast,
ruddu sér völl, söfnuðu fyrir nauð-
synlegasta búnaði og unnu málstað
íþrótta, heilbrigði og hollustu fylgis
með ótrúlegri málafylgju. í þeirri
baráttu munaði ekki minnst um
Iiermann Guðmundsson sem var
leiðtoginn í hópnum fyrstu árin.
„Ég veit ekki um neitt íþróttafé-
lag í kaupstað sem starfaði á svip-
uðum nótum og við í Haukum á
þessum árum. Þetta var kannski
meira í líkingu við starf ungmenna-
félaganna úti á landi, nema hvað
þar var það mest fullorðið fólk sem
hélt utan um félagsstarfið. í Hauk-
um voru það bara við strákarnir.
Þetta mikla félagsstarf var geysi-
góður skóli, það átti ég eftir að
sannreyna síðar, þegar ég fór að
starfa frekar að félags- og síðar
stjórnmálum."
Svo segir Hermann sjálfur frá í
viðtali í 60 ára afmælissögu Hauka.
Við útgáfu þeirrar glæsilegu bókar
lagði hann sinn dijúga skerf að
mörkum sem formaður ritnefndar
og á ekki minnstan þátt í því hversu
vel tókst til með það verk.
Hér verður ekki rakinn viðburða-
ríkur æviferill Hermanns. Hitt er
víst að sú þjálfun og sá þroski sem
hann tók út á unglingsárum, er
hann var í forystu fyrir Haukum,
hefur haft sitt að segja um þann
dug, framtakssemi og ósérhllfni
sem hann sýndi ætíð í sínu lífs-
starfi, hvort heldur var á vettvangi
stjórnmálanna, I verkalýðsbarátt-
unni eða hjá íþróttahreyfingunni.
„Það var félagsstarfið sem var
grundvöllurinn fyrir okkar starfi og
ég hef sannfærst um það á langri
ævi, að félagsstarfið er grundvöllur-
inn, hvort svo sem það eru íþróttafé-
lög eða önnur félög sem eiga I hlut.
Menn ná aldrei árangri nema fé-
lagsstarfið sé í lagi,“ segir Hermann
ennfremur í áðurnefndu viðtali.
Þessi orð eru mælt af reynslu
hins síunga foringja, sem aldrei var
glaðari en þegar allir höfðu nóg að
starfa. Kominn hátt á áttræðisaldur
en léttur og lipur sem unglamb,
stýrði hann spili og skemmtun sinna
gömlu félaga síðasta ævikvöldið.
Hann var glaður og kátur, því að
þrátt fyrir ófærð og leiðindaveður
fjölmenntu „öldungarnir" í Hauka-
húsið til að vera með og rifja upp
gamlar endurminningar.
Haukafólk stendur svo sannar-
lega í mikilli þakkarskuld við Her-
mann Guðmundsson. Hann vísaði
veginn strax I upphafi, þá gæfu-
braut sem félagið og félagsmenn
hafa fylgt æ síðan. Hann lét ekki
þar við sitja, heldur, líkt og svo
margir úr hópi frumheijanna, fylgd-
ist hann vel með alla tíð og var
boðinn og búinn að leggja sitt af
mörkum til að halda úti góðu félags-
starfi.
Félagar í Knattspyrnufélaginu
Haukum þakka samfylgdina og
samstarfið í sex áratugi. Megi
minningin um Hermann Guðmunds-
son verða okkur öllum leiðarvísir
inn í framtíðina, börnum og öðrum
ættingjum sendum við hugheilar
samúðarkveðjur. Góður guð blessi
minningu Hermanns Guðmunds-
sonar.
Stefán H. Erlings-
son - Minning
Fæddur 16. júní 1968
Dáinn 5. desember 1991
Það er sagt að aðeins eitt viti
menn um framtíð sína og það er
að þeir muni deyja.
Ér þá ekki hægt að sætta sig
við dauðann, spyija menn sig og
hvert verður svarið?
Það er erfitt að sætta sig við
þegar mönnum í blóma lífsins er
kippt í burtu svo sviplega. En við
verðum að trúa að það sé einhver
tilgangur með því.
I þessa veru voru hugsanir okkar
bræðra er við fréttum lát frænda
okkar, Stefáns Hlyns Erlingssonar,
frá Birkihlíð, Staðarhreppi, Skaga-
firði.
Fyrstu kynni okkar voru er við
bræður fórum ungir að árum til
sveitardvalar að Birkihlíð og áttum
við saman ógleymanlegar samveru-
stundir við leik og störf í hinni fögru
sveit Skagafjarðar.
Alltaf fannst okkur vera sólskin
í kringum frænda okkar og er minn-
ingin um hann okkur kær.
Það er vissa okkar að nú sé hann
við leik og störf á grænum grundum
eilífðarinnar eins og hann var á
iðjagrænum völlum Skagafjarðar.
Við biðjum algóðan guð að
styrkja dótturina ungu, móður,
bróður og fósturföður í þeirra miklu
sorg.
Veit honum Drottinn
þína eilífu hvíld
og lát þitt eilífa ljós lýsa honum.
(Sálmur)
Sveinn Sigurðsson,
Aðalsteinn Sigurðsson.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
©DEXI0N
IMPEX - hillukerfi án boltunar sem
hentar m.a. fyrir verksmiðjur, lagera,
geymslur og bílskúra.
Auðvelt í samsetningu með stífingum og
lokun að óskum kaupanda.
LANDSSMIÐJAN HF.
Sölvhólsgötu 13 - Reykjavík - Sími (91) 20680 - Telefax (91) 19199