Morgunblaðið - 26.03.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
Háskólinn:
Opinn fyrirlestur
um Grímsvötn
MAGNÚS T. Guðmundsson flytur opinn fyrirlestur í Háskólanum
á Akureyri á föstudag, 27. mars, kl. 16. Fyrirlesturinn nefnir
hann Grímsvötn í Vatnajökli; innri gerð eldstöðvar undir jökli.
Þessi fyrirlestur er miðaður við
að almenningur skilji efnið, en.
ekki eingöngu jarðfræðingar eða
j arðeðlisfræðingar.
Magnús er 30 ára, hann stund-
aði að loknu stúdentsprófi nám við
Háskóla Islands og síðan fram-
haldsnám við University College í
London. Hann hefur unnið að
doktorsverkefni þar undanfarin ár
og mun fara utan í næsta mánuði
til að veija doktorsritgerðina.
Rannsóknir Magnúsar hafa
m.a. byggst á að mæla berggrunn
undir jökli með nýjum aðferðum,
en hann vann að þeim rannsóknum
í fleiri sumur við Grímsvötn á
Vatnajökli. Magnús hefur ferðast
mikið um fjöll og jökla á íslandi.
Áhugi hans á þeim er síður en svo
yfirborðskenndur, því hann hefur
nú þróað aðferðir til að skyggnast
inn í þau líka.
(Fréttatilky nning-.)
STÓÐREKSTUR
Höldur og1 Islandsflug:
Viking Brugg:
Páskabjór
á markað í
þriðja sinn
VIKING Brugg hf. setur nú
Páskabjór á markað í þriðja
sinn, en hann hefur notið sífellt
aukinna vinsælda. Fyrirtækið
setti slikan bjór fyrst á markað
árið 1990 og var þá fyrst ís-
lenskra fyrirtækja með sér-.
bruggaðan bjór fyrir ýmsar
hátíðir ársins.
Viðtökur voru mjög góðar allt
frá byijun og seldist bjórinn upp
í fyrstu, en hann hefur síðan verið
mest seldi páskabjórinn á mark-
aðnum. Það er hinn þýski brugg-
meistari Alfred Teufel sem hefur
veg og vanda að bruggun Páska-
bjórsins, en hann hefur starfað hjá
fyrirtækinu um nokkurra ára
skeið.
Viking Bragg hf. er stærsti
framleiðandi á bjór á landinu og
var markaðahlutdeild fyrirtækis-
ins um 37% á síðasta hluta ársins
1991. Framleiddar eru 7 tegundir
áfengs öls hjá fyrirtækinu og
starfa um 30 manns við framleiðsl-
una í verksmiðjunni á Akureyri.
Leignfluginu verður
frestað um 10 daga
Á FUNDI sem fulltrúar Hölds hf. og íslandsflugs áttu í gær með
fulltrúum Flugleiða, að ósk samgönguráðuneytisins, var ákveðið
að fyrirhuguðu leiguflugi Hölds og Islandsflugs miíli Akureyrar
og Reykjavíkur verði frestað um 10 daga.
Vilhelm Ágústsson framkvæmd-
astjóri Hölds sagði að aðilar hefðu
ákveðið að tjá sig að svo stöddu
ekki um hvað rætt hefði verið á
fundinum.
Áætlað hafði verið að fyrsta ferð-
in í þessu leiguflugi yrði á föstu-
dagsmorgun og er að því stefnt að
fljúga á þessari leið tvisvar á dag.
Eftir fundinn í gær, sem haldinn
var að ósk samgönguráðuneytis,
var ákveðið að fresta því um 10
daga að hefja umrætt leiguflug.
Ástæða þess að Höldur og ís-
landsflug hyggja á leiguflug á milli
þessara stað er tilboð, sem Flugleið-
ir hafa boðið þeim viðskiptavinum
sínum sem greiða fuilt flugfargjald
á bílaleigubílum. Flugleiðir, sem
hafa einkaleyfi á áætlunarflugi milli
Akureyrar og Reykavíkur hafa boð-
ið bílaleigubíla á 1.000 krónur á
sólarhring þar sem innifalin er 100
km akstur, virðisaukaskattur og
trygging. Tilboðið gildir til mánaða-
móta.
Höldur hf. svaraði þessu tilboði
með því að setja upp leiguflug milli
staðanna og bjóða bílaleigubíl frá
Bílaleigu Akureyrar fyrir nokkuð
lægra verð en Flugleiðir hafa boðið.
Leikfélag Akureyrar:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hús keypt fyrir leikskóla
Akureyrarbær hefur keypt húsið að Brekkugötu 34 til að reka þar leik-
skóla. Húsið var keypt á 10,5 milljónir króna, en gert er ráð fyrir að
heildarkostnaður verði um 17 milljónir króna, þ.e. að meðtöldum breyt-
ingum sem gera þarf á húsnæðinu, kaupum á leiktækjum, stofnbúnaði
og girðingu. Húsið, sem er 270 fermetrar að stærð, kjallari og tvær
hæðir, verður afhent 1. apríl næstkomandi og verður væntanlega farið
að huga að breytingum fljótlega upp úr því. Gert er ráð fyrir að pláss
verði fyrir allt að 30 börn á nýja leikskólanum og er stefnt að því að
opna hann næsta haust.
Elva Ósk Ólafsdóttir og Felix
Bergsson.
því 26 hlutverk eru í leikgerð
Sunnu af leiknum fyrir utan au-
kaleikara, þá verður leikmynd,
búningar, lýsing og tónlist tilkom-
umikil.
Næstu sýningar á verkinu
verða á laugardag og sunnudag,
en þegar er farið að panta miða
á sýningarnar fram í tímann.
mánuði, er hann verður níræð-
ur.
Hin ástsæla skáldsaga íslands-
klukkan, sem leikritið byggir á,
hefur átt greiðan aðgang að hjört-
um íslendinga síðan hún kom út
lýðveldistökuárið, en sagan styðst
við sögulega atburði á 17. og 18.
öld og' endurspeglar aldarfarið á
íslandi í svaitasta miðaldamyr-
krinu eftir siðaskiptin.
Aðalleikaj-ar í verkinu hjá LA
eru Elva Ósk Ólafsdóttir, sem
leikur Snæfríði Islandssól, Hallm-
ar Sigurðsson, sem leikur Arnas
Arnæus og Þráinn Karlsson sem
leikur Jón Hreggviðsson. Foreidr-
ar Hallmars, góðkunnir leikarar
frá Húsavík koma einnig við sögu,
þau Sigurður Hallmarsson og
Herdís Birgisdóttir. í helstu hlut-
verkum öðrum eru Felix Bergs-
son, Valgeir Skagfjörð, Jón Stef-
án Kristjánsson, Gestur Einar
Jónasson, Sigurveig Jónsdóttir,
Guðlaug Hermannsdóttir, Aðal-
steinn Bergdal, Marinó Þorsteins-
son, Árni Valur Viggósson, Þórdís
Arnijótsdóttir, Eggert Kaaber,
Ingrid Jónsdóttir og Agnes Þor-
leifsdóttir.
Mannmargt verður á sviðinu
ISLANDSKLUKKAN eftir
Halldór Laxness verður frum-
sýnd hjá Leikfélagi Akureyrar
annað kvöld, föstudagskvöldið
27. mars. Sunna Borg leikstýrir
íslandsklukkunni og gerir leik-
gerð, sem hún byggir á fyrri
leikgerðum þessa verks sem og
skáldsögunni. Tvær forsendur
liggja að baki vals LA á Islands-
klukkunni nú, í fyrsta lagi er
hún afmælisverkefni leikfélag-
ins sem verður 75 ára í apríl
og í öðru lagi mun Halldór
Laxness, höfundur sögunnar,
eiga enn stærra afmæli í sama
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gestur Einar Jónasson og Þráinn Karlsson í hlutverkum sínum
í íslandsklukkunni.
Afmælisverkefnið íslands-
klukkan frumsýnt annað kvöld