Morgunblaðið - 26.03.1992, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
MÚSÍKTILRAUNIR
MÚSÍKTILRAUNIR, hljómsveitakeppni Tónabæjar
og Rásar 2, hefjast í kvöld, en þetta verður í tíunda
sinn sem slíkar tilraunir eru haldnar. Gríðarmikill
áhugi er fyrir tilraununum, en í þeim keppa bílskúrs-
sveitir um land allt um hljóðverstíma, sem gætu
auðnað þeim að koma sér á framfæri.
Allar sveitir sem á annað borð ráða við að spila fjög-
ur frumsamin lög eru velkomnar á Músíktilraunir,
með þeim formerkjum þó að ekki komast allar að,
vegna nauðsynlegra fjöldatakmarkana. Nokkuð fleiri
sveitir taka þátt að þessu sinni en áður, því vegna
mikillar aðsóknar var ákveðið að fjölga þeim heldur
og hafa þær átta á hveiju kvöldi.
Tónlistarstefnur sveita sem tekið hafa þátt í Músík-
tilraunum hafa yfirleitt speglað það sem er að gerast
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
DYSTOPHIA
DYSTOPHIA kemur úr Reykjavík og sveitarmenn segjast
leika thrash/dauða/speedrokkblöndu. Sveitina skipa Eirík-
ur Guðjónsson gítarleikari, Herbert Sveinbjörnsson
trommuleikari, Magnús Guðnason bassaleikari og söngvari
og Aðalsteinn Aðalsteinsson gítarleikari. Meðaialdur sveit-
armanna er tæp átján ár.
Morgunblaðið/RAX
CONDEMNED
NÆRRI MÁ GETA að sveit sem heitir Condemned leiki
dauðarokk og sú er reyndin. í Reykjavíkursveitinni Con-
demned eru Siguijón Alexandersson gítarleikari, Friðfinn-
ur Sigurðsson trommuleikari, Bárður Smárason bassaleik-
ari, Egill Tómasson gítarleikari og Ámi Sveinsson söngv-
ari. Meðalaldur sveitarmanna er tæp sautján ár.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
NOT CORRECT
NOT CORRECT er önnur tveggja sveita úr Hafnarfirði,
en sveitina, sem leikur hippatónlist, skipa Gunnar Appel-
seth söngvari, Ingimundur Óskarsson bassaleikari, Stefán
Gunnlaugsson hljómborðsleikari, sá eini sem nýtir slíkt
apparat þetta tilraunakvöld, Andrés Gunnlaugsson gítar-
leikari og Eysteinn Eysteinsson trommuleikari. Meðalaldur
sveitarmanna er nítján ár.
í bílskúrum landsins. Að þessu sinni eru óvenju
margar dauðarokksveitir sem taka þátt, enda sú
tónlist vinsæl vel meðal rokkþyrstra unglinga.
Reykjavíkursveitir eru og óvenju margar miðað við
síðustu ár, en af sveitunum 24 sem þátt taka koma
12 úr Reykjavík. Athygli vekur að engin sveit kem-
ur af Akranesi að þessu sinni, en Skagasveitir hafa
jafnan verið áberandi í tilraununum. Tvær sveitir
koma úr Hafnarfirði, tvær frá Akureyri og tvær
sveitir frá Eiðaskóla, sem verður að teljast allgott,
en sveit frá Eiðaskóla, Trassarnir, náði öðru sæti í
síðustu Músíktilraunum. Eina sveit eiga Húsavík,
Djúpivogur, Keflavík, Selfoss, Grundarfjörður og
Garðabær. Eins og jafnan er fátt um stúlkur, en ein
kvennasveit kemur þó fram, Kolrassa Krókríðandi
Ljósmynd/Elín Ásvaldsdóttir
IN MEMORIAM
IN MEMORIAM erþungarokksveit úr Reykjavík sem skip-
uð er Kristjáni Þ. Ásvaldssyni trommuleikara, Árna Jóns-
syni söngvara, Þórarni Freyssyni bassaleikara og Vigfúsi
Rafnssyni gítarleikara. Meðalaldur sveitarmanna er tutt-
ugu og eitt ár.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
CRANIUM
CRANIUM heitir dauðarokksveit úr Reykjavík sem skipuð
er Ófeigi Sigurðarsyni bassaleikara og söngvara, Sigurði
Guðjónssyni gítarleikara, Herði S. Siguijónssyni trommu-
leikara og Birni Darra Sigurðarsyni gítarleikara. Sveitar-
menn eru allir á sautjánda árinu.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
AUSCHWITZ
AUSCHWITZ er önnur tveggja sveita úr Hafnarfirði, en
báðar sveitirnar leika í kvöld. Auschwitz, sem leikur þunga-
rokk, skipa Gísli Ámason bassaleikari, Páll K. Sæmunds-
son' gítarleikari, Árni Rúnar Þorvaldsson söngvari, Bjöm
Viktorsson trommuleikari og Þorváldur Einarsson gítarleik-
ari. Allir sveitarmenn, eru á sextánda árinu.
úr Keflavík. Þess má geta að síðast þegar kvenna-
sveit tók þátt í Músíktilraunum sigraði hún, en það
voru Dúkkulísurnar sem sigruðu 1983.
Fyrsta tilraunakvöld, mikið dauðarokkkvöld, verður
í kvöld, annað kvöldið verður 2. apríl, þriðja kvöldið
9. apríl og úrslit síðan 10. apríl. Verðlaun verða 30
tímar í Sýrlandi, einu helsta hljóðveri landsins, önn-
ur verðlaun 25 tímar í Grjótnámunni og þriðju verð-
laun 20 tímar í stúdíói Stef. Einnig veitir Skífan
plötuúttekt í aukaverðlaun. Eins og áður sagði eru
tilraunirnar haldnar í samvinnu Tónabæjar og Rásar
2, en þær verða kynntar á Rás 2 og úrslitakvöldið
sent út beint. Styrktaraðilar Músíktilrauna eru Hard
Rock Café, Vífilfell og Jón Bakan. Gestahljómsveit
fyrsta kvöldið verður Ham. Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Þorkell
BLIMP
BLIMP heitir Reýkjavíkursveit, sem leikur hrátt rokk.
Sveitina skipa Svavar P. Eysteinsson gítarleikari, Haukur
M. Einarsson trommuleikari, Ásgeir Ö. Sveinsson bassa-
leikari og Hilmar Ramos söngvári. Meðalaldur sveitar-
manna er rúm sextán ár.
INFLAMMATORY
INFLAMMATORY kemur úr Reykjavík og leikur dauða-
rokk. Sveitina skipa Hilmar Þór Ólafsson söngvari, Krist-
ján Jónsson bassaleikari, Bjarni Grímsson trommuleikari
og Pétur Þór Benediktsson og Árnar Guðjónsson gítarleik-
arar. Meðalaldur sveitarmanna er rúmlega fímmtán ár.