Morgunblaðið - 26.03.1992, Qupperneq 48
MERKISMENN HF.
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
NEYTENDAMAL
Boðið til veislu
NÚ Á tímum samdráttar, þegar allt virðist
mega hækka nema launin, er eðlilegt að
leitað sé leiða til drýginda á tekjum. Matar-
innkaup eru víða einn stærsti útgjaldaliður
heimilanna og þau verða ekki felld niður í
sparnaðarskyni eigi menn að halda heilsu.
En tilfellið er að sumir virðast komast bet-
ur af en aðrir með sömu tekjur. Hagsýni
getur m.a. verið fólgin í því að skipuleggja
málsverði vikunnar fyrirfram. Það má með
nokkurri útsjónarsemi útbúa veislurétti fyr-
ir fjölskylduna úr fremur ódýru hráefni.
Hér fylgja nokkrar uppskriftir úr tilrauna-
eldhúsi síðustu viku. Réttirnir eru fyrir 4-5:
Grillaðir kjötpinnar
á teini
500 g hakkað nautakjöt
2 msk. olífuolía (matarolía)
1 hvítlauksrif pressað
1 tsk. laukduft
'h bolli brauðmylsna
'h tsk. salt, pipar
Mjólk
Pressað hvítlauskrif er hitað í
olíunni og er blandan sett saman
við hakkið. Brauðmylsnu og
kryddi er blandað saman við
hakkið sem síðan er hrært út með
mjólk og hnoðað í fremur þétt
kjötdeig. Því er skipt í 10-12 hluta
sem hver um sig eru mótaðir með
höndum í mjósleginn klasa á grill-
tein. Þeir eru grillaðir í ofni í 5
mín. á hvorri hlið. Gott meðlæti:
Karrígrjón
1 bolli gijón
1-2 msk. olífuolía (matarolía)
1 stórt hvítlauksrif pressað
1 tsk. karrí
2 bollar vatn
'h ten. kjúklingakraftur
Pressað hvítlauskrif og karrí
er hitað í matarolíunni, gijónin
eru sett út í og léttsteikt með
kryddinu. Vatni og kjúlingakrafti
er bætt út í og gijónin soðin við
vægan hita í 10-15 mín. Látin
standa smá stund. Karrígijónin
* sett á fat og kjötpinnum raðað
ofan á.
Fiskbakstur með
eðalkartöflum
400 g ýsu- eða smálúðuflök
safi úr 'h sítrónu
300 g rækjur
1 'h bolli vatn
2 lárviðarlauf
6-8 heil piparkorn
salt
Sósan:
3 msk. hveiti
2 msk. smjörlíki
'h bolli kaffiijómi
1 ten. kjúklingakraftur
Stappaðar kartöflur:
10 kartöflur u.þ.b. 700 gr.
'k bolli mjólk (4 msk)
1 egg
'A tsk. múskat
Fiskflökin eru roðflett, skorin
í stykki og sett á fat. Sítrónusafa
er hellt yfir fiskinn og hann marin-
eraður í safanum í 15 mín. eða
lengur. Rækjur eru afþíddar við
stofuhita eða að hálfu í örbylgju-
ofni. Vatn, lárviðarlauf brotið í
sundur, piparkorn og salt er sett
í pönnu ásamt fiskinum með safa.
Fiskurinn er látinn krauma í 5
mín. og síðan færður upp á eldf-
ast fat og rækjunum dreift yfir.
Sósan er útbúin á venjulega hátt
úr hveiti, síuðu fiskisoðinu og
kaffirjóma og hellt yfir fiskinn.
Kartöflurnar eru soðnar og síðan
stappaðar, eggi, múskati og mjólk
bætt út í og hrært vei, stappan á
að vera fremur þétt í sér. Kartöfl-
ustappan eru látin í sprautupoka
og sprautað í toppa eða mynstur
á fiskinn á fatinu. Bakað við 350
gráður í 20 mín. eða þar til kart-
öflurnar hafa lyft sér og fengið
ljósbrúnan lit.
Nautahakksrú llur
með beikoni
500 gr. nautahakk
'h bolli brauðmylnsa
1 lítill laukur saxaður
'k græn paprika fínsöxuð
1 hvítlauksrif pressað
2 msk. matarolía
8 sneiðar beikon
salt og pipar
% græn og 1 rauð paprika
1 zucchini, má sleppa
Blandað er saman nautahakki,
brauðmylsnu og eggi. Feitin er
hituð í potti með fínsöxuðum lauk,
papriku og hvítlauk og látið
meyrna í feitinni í nokkrar mínút-
ur. Grænmetinu er blandað saman
við hakkið, hrært vel, mjólk bætt
við ef þarf. Mótaðar eru 16 rúllur
í þumalfingursstærð og hálfri bei-
konsneið vafið um hveija rúllu.
Paprikurnar eru þvegnar, hreins-
aðar og skornar í bita. Hakkrúll-
urnar og paprikubitar eru settar
á víxl á tein og grillaðar í 8 mín.
á hvorri hlið. Gott meðlæti er
stappaðar kartöflur eða:
Brún grjón með rósmarín
1 bolli brún gijón
2 'h bolli vatn
'h tsk. rósmarín ómalað
2 msk. olífuolía
1 laukur, 'k paprika
'h ten. kjúklingakraftur
Gijónin eru soðin í vatninu með
rósmaríninu í 20 mín. Matarolían
hituð í potti, saxaður laukur og
paprika látin krauma í feitinni
stutta stund. Grænmetinu bland-
að saman við soðin gijónin. Borið
fram með nautahakkrúllunum,
eða haft sem beð undir pinnamat-
inn.
Kjötbollu-pottréttur með
ostabrauðtoppi
500 g nautahakk
'h bolli brauðmylsna
'h tsk. chilipipar
salt og malaður pipar
1 msk. Worcestershire-sósa
1 lítill laukur niðurrifinn
1 egg
mjólk eftir þörfum
Sósan:
2 bollar vatn
1 msk. kjötkraftur
hveiti er hrært út með mjólk eða
kaffiijóma
2 stórar gulrætur
Kjöt, krydd og egg eru sett í
skál, hrært vel og mótaðar litlar
bollur. Vatn með kjötkrafti er hit-
að í pönnu og kjötbollurnar settar
út í sjóðandi soðið og látnar sjóða
í 10 mínútur. Þær eru síðan sett-
ar í eldfast mót ásamt niðurskorn-
um gulrótum. Úr soðinu er útbúin
bragðmikil fremur þykk sósa og
henni hellt yfir kjötbollurnar.
Brauðtoppur
l'A bolli hveiti
3 tsk. lyftiduft
'h tsk. chili duft
'k tsk. salt
'h bolli smjörlíki
1 egg
ca. 'h bolli kaffiijómi eða mjólk.
Blandað er saman hveiti, lyfti-
dufti, salti og chili. Smjörlíkið er
unnið upp í hveitiblönduna og hún
hnoðuð upp með eggi og vökva.
Deigið er flatt úr í 30 cm ferning,
1 bolli af rifnum osti er stráð yf-
ir, steinselja ef til er og seasonall-
salt. Brauðdeiginu er rúllað upp
og skorið í 8 sneiðar sem raðað
er ofan á bollurnar í rnótinu. Bak-
að við 400°C hita í 20 mínútur.
M.Þorv.
Frábært framtak hjá Hagkaup
Verslunin Hagkaup hefur látið útbúa bæklinga um heilbrigði og
heilsurækt, sem standa öllum viðskiptamönnum verslunarinnar til boða.
í bæklingunum er að finna helstu upplýsingar um nauðsyn góðrar
næringar, helstu næringarefni, gildi hreyfingar og afleiðingar streitu,
svo eitthvað sé nefnt. Þarna eru samandregnar fjölmargar fróðlegar
upplýsingar og góð ráð fyrir þá sem vilja efla styrk og viðhalda góðri
heilsu. En mikilvægt forvarnastarf í heilbrigðismálum hefst einmitt á
heimavelli.
I
SAMYO SAMSTÆÐAN
SKOÐAÐU
VERÐIÐ
Allt þetta fyrir aðeins 52.530,- eða
• 16 aðgerða þráðlaus
fjarstýring.
• Magnari; 2x60W með 5
banda tónjafnara.
• Útvarp; FM/AM/LW, 24
stöðva minni og sjálfvirkur
stöðvaleitari.
• Segulband; tvöfalt með
hraðupptöku, Dolby B og
samtengdri spilun.
• Plötuspilari; reimdrifinn,
hálfsjálfvirkur.
• Geislaspilari; með tvöfaldri
„digital/analog" yfirfærslu,
16 minni, lagaleit o.fl.
• Hátalarar. 80 Watta,
þriggja átta.
Umboðsmenn um land allt
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Reykjavík, Heimilistæki hf. Sætúni 8, Frístund, Kringlan, Rafbúð Sambandsins, Holtagörðum, Kaupstaður í Mjódd
■ Akranes, Skagaradíó • Borgarnes, Kaupfélag Borgfirðinga • ísafjörður, Póllinn hf. ■ Sauðárkrókur, Ratsjá •
Ólafsfjörður, Valberg • Akureyri, Radiónaust • Húsavík, KÞ Smiðjan • Vestmannaeyjar, Brimnes ■ Selfoss, Kf.
Ámesinga ■ Keflavfk, Radíókjallarinn.
Veggsport flyt-
ur í nýtt húsnæði
SKVASS- og veggtennisstaður-
inn Veggsport sem áður var til
húsa á Seljavegi 2 er nú fluttur
á Stórhöfða 17, við Gullinbrú.
Eigendur staðarins, Hilmar
Gunnarsson og Hafsteinn Daníels-
son íþróttakennarar, hafa opnar þar
5 skvass-sali og 1 veggtennissal.
Þetta eru allt steyptir salir með
glerbakveggjum. Allir sem spila í
Veggsport frá aðgang að lyftingar-
tækjum og gufuböðum. Starfrækt
er verslun á staðnum þar sem hægt
er að kaupa léttar veitingar og
íþróttavörur. Einnig er viðgerðar-
þjónusta fyrir þá sem slíta strengi
í spöðunum sínum.
Opið er alla virka daga ásamt
laugardögum og sunnudögum.
Veggsport verður 5 ára 15. mars
næstkomandi.
(Frcttatilkynning)
Eigendur Veggsports, Hafsteinn
Daníelsson og Hilmar Gunnars-
son.