Morgunblaðið - 08.04.1992, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 08.04.1992, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1992 37 Þorvaldur Armanns- son — Minning Með fáeinum orðum vil ég minn- ast elskulegs afa míns, Þorvalds Ármannssonar, sem lést nýlega 88 ára að aldri. Hin sorglegu tíðindi um fráfall afa bárust mér hingað til Finnlands, þar sem ég dvel um þessar mundir. Andlát afa kom á óvart, þrátt fyrir háan aldur, enda er þáð nú einu sinni svo að þegar þeir sem maður elskar og þykir vænt um falla frá, þá kemur það á óvart. Afi var verkamaður sem vann stærstan hluta starfsævi sinnar í Stálsmiðjunni í Reykjavík, en áður hafði hann stundað sjómennsku í fjölmörg ár. Afi var maður sem allir gátu treyst fullkomlega. Hann var traustur starfsmaður, sem vann hörðum höndum lengst af. Háttvísi og prúðmennska í allri framkomu var afa eðlileg. Síðastliðið eitt og hálft ár bjó afi á dvalarheimili aldraðra á Stokkseyri, eða frá því að elskuleg amma mín og eiginkona hans lést Fædd 7. janúar 1917 Dáin 29. nóvember 1991 Geymdu ekki til morguns það sem þú getur gert í dag. Þetta fór um huga minn, er ég frétti lát Gyðu vinkonu minnar. Ég hafði ætlað mér að heimsækja hana á sjúkrahúsið en varð of sein. Fund- um okkar bar fyrst saman er við gerðumst báðar „blaðakonur“ eins og við komumst að orði, það var að bera út Moggann á morgnana, hún fastráðin en ég í afleysingum. Ég dáðist að dugnaði og ósérhlífni þessarar konu, sem virtist þá vera orðin lúin og ekki eiga hægt um gang. Alltaf var hún komin á fætur eldsnemma á morgnana og lét sig ekki vanta hvernig sem viðraði, þó um hávetur væri. Hún vildi svo sannarlega standa sig og stóð með- an stætt var. Gyðu var ýmislegt til lista lagt, t.d. við fatasaum. Sá ég nokkrar flíkur sem hún hafði saumað og var fallegt handbragð á þeim, enda saumaði hún mikið fyrir aðra, naut þá sjálfsagt þeirrar kennslu sem hún hafði hlotið og sinnar eigin smekkvísi. Við Gyða áttum ýmislegt sameiginlegt, þótt aldursmunurinn væri talsverður, höfðum báðar yndi af börnum og báðar vorum við að passa börn, en hún hafði alveg sérstakt lag á börn- um. Þessi dagmömmubörn tóku sum mikilli tryggð við Gyðu og buðu henni seinna í fermingarveisl- una sína. Það lýsir því best hvers virði hún hefur verið þeim. Eitt var það í fari Gyðu, sem vert er að minnast, það er hversu þakklát hún var. Ef ég gerði henni greiða þá sagði hún: „Guð launar þér þetta, því ekki get ég það,“ og hló við. Ég leit nokkrum sinnum inn hjá Gyðu. Aldrei mátti ég koma þar nema þiggja góðgerðir, því hún var gestrisin fram úr hófi. Gyða hafði þó ekki alltaf mikið á milli hand- anna og þrátt fyrir erfiðar aðstæð- ur gerði hún gott úr því og tók því með brosi á vör. Þannig var Gyða, jákvæð, ljúf og gjafmild. Stundum fórum við í bæinn, slógum um okk- ur og fórum á kaffihús, einnig fór- um við í göngutúra saman, en þá var heilsan farin að bila.og átti hún þá oft erfitt með gang. Ég mun ekki rekja ættir Gyðu, er ekki nógu kunnug til þess, en hún var fædd á Skjaldvararfossi á Barðaströnd, ein af átta systkinum. Eftirlifandi systkini hennar eru: Unnur, Haf- steinn, Þórarinn og Gunnar. Gyða giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Benedikt Kristjáns- 80 ára að aldri. Ég minnist nú sérstaklega heim- sóknar minnar til afa þegar ég var heima á íslandi sl. sumar. Og er ég þakklátur fyrir það tækifæri að hafa hitt hann þá. En ég var ekki einn á ferðinni heldur voru við nokkur saman sem öll höfðum mik- inn áhuga á að hitta gamla mann- inn. Tvö barnabarnabörnin voru með í förinni, þau Steinunn og Kolbeinn, bræður mínir Þorvaldur og Guðmundur, og sambýliskona mín Piijo. Við veittum því strax athygli að afi hafði eignast marga góða vini á dvalarheimilinu á Stokkseyri. Enda var það svo að afi var alla tíð vinsæll maður, því hann var félagslyndur og kærleiks- ríkur gagnvart öllum sem umgeng- ust hann. Hinn stóri afkomenda- fjöldi afa naut kærleika hans í rík- um mæli. En afi og amma bjuggu saman í löngu hjónabandi lengst af að Nóatúni 24 í Reykjavík, en þangað sótti maður gömlu hjónin syni frá Bolungarvík. Eignuðust þau 3 börn: Kristján, rafmagns- verkfræðing, Friðgerði, stúdent, gifta Jóni Isakssyni og eiga þau þrjú börn. Einnig er komið langömmubarn. Yngstur er Ársæll, líffræðingur, allt myndar- og dugn- aðarfólk. Gyða bar mikla umhyggju fyrir öjlu sínu fólki, en sérstaklega fyrir Ársæli sem var við nám er- lendis. Hann bar gæfu til að koma heim og sjá móður sína áður en hún kvaddi þetta líf. Þeir feðgar hafa nú misst mikið og sendi ég þeim og ollum aðstand- endum samúðarkveðjur og bið Guð að blessa þá. Geymd er minning góðrar konu, sem einskis krafðist af öðrum, en þess meira af sjálfri sér. Guð blessi hana. Elín S. Kr. heim með reglulegu millibil, og allt- af voru móttökurnar' höfðinglegar og kærleiksríkar. Þangað var gam- an og eftirsóknarvert að koma. Afi var mjög gamansamur maður sem sló oft á létta strengi. Gamansem- ina kunni maður virkilega að metaý enda kom hún öllum í gott skap. I heimsókn okkar hjá afa á dvalar- heimilinu á Stokkseyri tókum við einmitt eftir því að gamansemin lifði enn góðu lífi, þrátt fyrir háan aldur. Minnisleysi sem var farið að gera vart við sig hjá gamla mannin- um, kom ekki í veg fyrir hresst og jákvætt viðmót. Líklega hefði afi getað lifað leng- ur ef hann hefði ekki dottið og meitt sig illa. Aðeins viku síðar lést afi á sjúkrahúsinu á Selfossi. Sorglegur aðdragandi að fráfalli afa, en ég trúi því að vel sé tekið á móti mjög góðum og ástríkum manni í nýjum heimkynnum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Um leið og ég votta öllum í fjöl- skyldunni dýpstu samúð og sér- staklega móður minni, Dagrúnu, og systrum hennar Viktoríu og Guðnýju, kveð ég afa með miklum söknuði og þakka allar dýrmætu samverustundirnar. Guð blessi minningu hans. Björgvin Björgvinsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Afí er nú til moldar borinn og nú er hann ekki lengur á meðal okkar. Hann sem alltaf var svo hress og hafði gaman af að grín- ast. Þær stundir sem ég og börnin mín áttum með honum í Nóatúni eru eftirminnilegar og gleymast aldrei. Alltaf var húmor hans í lagi: fram á síðasta dag þó heilsa hans hafi ekki sýnst leyfa það, á síðast- liðnu ári í það minnsta. Ollum ætt- ingjum og vinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur og þá sérstaklega móður minni sem syrgir föður sinn látinn. Þórir Björgvinsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG DÓRÓTHEA ÓLAFSD. THORARENSEN húsmóðir og þýðandi, varð bráðkvödd á heimili sínu 24. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Þeim, sem vilja heiðra minningu hennar, er vinsamleg- ast bent á líknarstofnanir. Elín Karitas Thorarensen, Hildur Thorarensen, Ólafur Thorarensen, Þóra Ölversdóttir, Ingibjörg Thorarensen. t Mágkona mín og frænka okkar, ANNA FRIEDA KUMMER frá Leipzig, sem lést í Borgarspítalanum 28. mars sl., verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, miðvikudaginn 8. apríl, kl. 15.00. Oddgeir Hjartarson og systkinabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGE-LISS JACOBSEN, Sóleyjargötu 13, Reykjavík, sem andaðist 31. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. apríl kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, HaukurJacobsen Gyða Guðmunds- dóttir - Kveðjuorð t Elskulegur eiginrnaður minn, faðir okkar og sonur, ÁRNI ERLING SIGMUNDSSON frá Suðureyri, Súgandafirði, Stillholti 11, Akranesi, sem lést af slysförum 1. aprfl sl., verð- ur jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 9. apríi kl. 11.00. Sigurlaug Inga Árnadóttir, Sigmundur Heiðar Árnason, Katla Bjarnadóttir, Elin Árnadóttir, Magnús Örn Friðjónsson, Anna Signý Árnadóttir, Ingimar Garðarsson, Hjördís Arnadóttir, Sigríður Árnadóttir, Sigmundur Guðmundsson, Ragnheiður Elíasdóttir og barnabörn. t , Elskblég móðir okkar, tengdamóðir og amma, , MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR ÁRMANN, er andaðist 30. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 8. apríl kl. 15.00. Arndís Ármann, Björn Gunnarsson, Ágúst Ármann, Anna María Kristjánsdóttir og barnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, fósturföður, tengdaföður og afa, AÐALBJÖRNS ELÍASAR GUÐMUNDSSONAR frá Gelti í Súgandafirði. Sigríður E. Aðalbjörnsdóttir, Óiöf Aðalbjörnsdóttir, Kristjana S. Aðalbjörnsdóttir, Jóhannes S. Aðalbjörnsson, Eydís Aðalbjörnsdóttir, Ósk Axelsdóttir, Þórir Axelsson, Sigurbjörg Pétursdóttir, Guðmundur Svavarsson, Sigurgeir Arngrímsson, og afabörn. Þorkelt L. Steinsson, Guðmundur Skarphéðinsson, Guðrún Ásgeirsdóttir t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURJÓNS GUÐMUNDSSONAR, Stóra-Saurbæ, Ölfusi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands. Jón Guðmundsson, Halldóra Þórðardóttir, Friðrik Kristjánsson, Ólína Sigurðardóttir. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, sonar og bróður, HALLDÓRS ÓLAFSSONAR. Ólafur Stefán Halldórsson, Anna María Halldórsdóttir, Erna Marfa Halldórsdóttir, Ólafur Halldórsson, Ella Dóra Ólafsdóttir, Kristín Björg Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu, HÖNNU G. HALLDÓRSDÓTTUR, Kumbaravogi, Stokkseyri. Innilegar þakkir færum við starfsfólki deildar 1A á Landakots- spítala fyrir sérstaka hlýju og umönnun. Kristján Friðbergsson, Guðni G. Kristjánsson, Halldór J. Kristjánsson, Erna Agnarsdóttir, Gfsli Ólafsson, Gunnar Kristjánsson, Jóhanna Agnarsdóttir, Karl Agnarsson, Karl Lárusson, Linda Ó. Keshishzadeh, Maria Haraldsdóttir, Pétur Kristjánsson, Róbert Haraldsson, Sigurborg Ólafsdóttir, Sigurður H. Sigurðsson, Þorsteinn Eyland og barnabörn. Kirsten Kristjánsson, Karólína F. Söebech, Tryggvi Jónsson, Sunna Sturludóttir, Guðbjörg Ingimundardóttir, Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Hamzik Keshishzadeh, Sigrún Valdimarsdóttir,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.