Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1992
45
i
i
i
(
(
<
I
í
i
I
I
I
Sólstjörnur og jarðstjörnur
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
ARI TRAUSTI, ættaður frá Miðdal
(og Haukada! lengra fram), til-
kynnti í fjölmiðli, að óvíst væri að
nokkurri sól fylgi reikistjörnur nema
þessari einu, sem við höfum fyrir
augum á daghimni. Ekki finnst mér
hann hafa fært sig vel í ætt með
þessu. Vanþekking er þetta og léleg
heimsfræði.
Allt frá því að Brúnó uppgötvaði
alheiminn á níunda áratug 16. aldar
(eða skömmu fyrr) - hann skildi, í
framhaldi af Kópernikusi að óendan-
lega margar sólir og jarðir sveima
um óendanlega víðan geim - hafa
bestu menn, fáir í fyrstu en síðan
fleiri, látið sér skiljast að svo er í
raun og veru. En hvaðan er hún
sumum komin þessi fluga í munn,
að hvergi séu plánetur nema hér?
Um 1930 var allmikið um andvís-
indastefnu (anti-intellectualism) á
Vesturlöndum, en þar sem sú stefna
ríkir, einangrast vísindamenn frá
skynsemi almennings (gerast fíla-
beins-turnbúar). Sir James Jeans,
stjörnufræðingur var einn. Það var
hann sem kom fram með, eða var
a.m.k. áhrifamestur í að styðja,
heimsmyndunarkenningu þá um
hina aðvífandi sól, sem átti að sýna
að hvergi væru plánetur nema hér.
Frá Guðmundi Guðbjarnarsyni:
VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dags-
brún hefur sem slíkt enga fjármuni
lánað og því engu tapað vegna þess-
ara viðskipta Lífeyrissjóðs Dags-
bnánar og Framsóknar, og KRON.
Þannig fjallar stjórn og ályktar án
nokkurrar blygðunar um glatað fé
Lífeyrissjóðs félagsmanna vegna
gjaldþrots KRON, í Dagsbrún 1.
tbl-. 43. árg. Þannig er íjallað um
jafnvirði 350 ársgjalda félagsmanna
í lífeyrissjóðinn, lífeyrissjóð sem tal-
inn var svo veikur fyrir nokkrum
árum að lífeyrisaldur var hækkaður.
Sama máli gilti um gjöldin þau voru
einnig hækkuð, til þess að laga fjár-
hag sjóðsins.
Ur þessum sjóð fer svo stjóm
hans að ausa tugum milljóna í væg-
ast sagt vafasamt lán til KRON á
20. veðrétti, með veð í verslunarhús-
næði sem vafasamt var að stæðist
í verði brunabótamatsverð, hvað þá
þegar til nauðungaruppboðs kæmi,
þegar framboð á verslunarhúsnæði
var orðið það gífurlegt að ekkert
annað en verðhrun var fyrirsjáan-
legt. Það sá það hver sem vildi, að
ekkert annað en dauðinn beið KRON
í þeirri grimmilegu orrustu sem verð-
stríð stórmarkaðanna var. Samt sem
áður lána vinir verkalýðsins dauð-
vona KRON tugi milljóna sem aðrir
hafa þurft að svitna fyrir. Hvar voru
þeir með hugann? Og hvað voru
þeir stjórnarmenn Dagsbrúnar að
hugsa þegar þeir fóru fram á, að
það yrði samþykkt ályktun þess efn-
is að aðalfundur Dagsbrúnar hvetti
félagsmenn til að kaupa hlutabréf í
KRON. Voru þeir að hugsa um hag
félagsmanna fyrstan? Eg held að
svarið sé augljóslega nei. Á þennan
hátt hafa þeir opinberað það að það
er vægast sagt óráðlegt að treysta
þeim fyrir fjármunum félagsmanna.
Svo fara þeir að slá ryki í augu
Dagsbrúnarmanna með því að halda
því fram að félagið sem slíkt hafi
engu tapað. Hefur nokkur maður
heyrt um mannlaust félag? Þegar
allir Dagsbrúnarmenn sem slíkir
tapa fé hgfur félagið auðvitað tapað
sem slíkt. Þarna hefur Hrói höttur
tekið frá þeim fátæku til að gefa
þeim ríku. Svo vantar ekki afsakan-
irnar fyrir afglapaskapnum, „það
var bara lítill hluti sjóðsins sem glat-
aðist" yfir 30 milljónir er í þeirra
munni smámylsna. Svo er lýst hátíð-
lega yfir „að það fé sem er nú þeg-
ar glatað, verði stjórn sjóðsins lík-
lega að neyðast til að afskrifa".
Annars staðar í sama blaði eru
skyndiverkföll Dagsbrúnar talin vel
heppnuð. Þetta var gaman að sjá,
Sú kenning er nú löngu úr gildi fall-
in - þegar árið 1942 sýndi Carl von
Weiszacker fram á, að hún var reikn-
ingslega óhæf með öllu. Tók von
Weiszácker upp að nýju Kant-
Laplace kenninguna um þetta efni
og má segja að hún hafi í aðaldrátt-
um verið ríkjandi síðan. Ýmislegt
hefur fundist með athugunum, sem
staðfestir, að reikistjörnur séu með
öðrum sólstjörnum, auk þess sem
yfirgnæfandi líkur styðja það úr
ýmsum áttum.
Ég fór á (almennan) fund hjá vís-
indamönnum nýlega þar sem rætt
var um reikistjörnur með öðrum sól-
stjörnum, og var auðvitað bara kom-
inn til að hlusta. En þegar þeir fóru
í stað stjörnufræði að tala um v.
Neumann-skrímslið sitt ömurlega
virtist mér sem gefa yrði umræðun-
um aðra stefnu, og lagði spurningu
fyrir aðalræðumann. Var það um
ástæður tvísólhverfi, þar sem minni
sólin er í álíka fjarlægð frá móður-
sól og reikistjarnan Júpiter er frá
sólinni okkar. Nú er Júpiter með
mörg tungl í reikistjörnuröð í kring-
um sig og hvað mælir þá á móti því
að litla sólin í hinu sólhverfinu hafi
svipaða reikistjörnuröð í nánd við
sig? Þessu gat stjarneðlisfræðingur-
inn ekki svarað, og þótti mér það
hugsar áhugasamur lesandi með
sér, en það er fátt sem bendir til
þess að ávinningur hafi orðið af
þeim. Þar er farið nokkrum orðum
að verkföllin hafi aukið félagslegan
styrk félagsins, ef það er eitthvað
takmark með verkföllum að auka
félagslegan styrk þá held ég að það
sé til önnur betri leið til þess.
Það eykur ekki á traust manna
þegar annars staðar er sagt frá því
að samningaviðræður sem staðið
hafa yfir mánuðum saman hafi eng-
um árangri skilað. Ég held að með
áframhaldandi stjórn þeirra manna,
sem bera ekki meiri virðingu fyrir
félagsmönnum en raun ber vitni,
muni börn, konur og aldraðir ástvin-
ir Dagsbrúnarmanna svelta í nán-
ustu framtíð.
Er það þetta sem barist var fyrir?
Er það kannski ætlunin að rífa niður
allt sem byggt hefur verið upp? Ég
skora á þá Dagsbrúnarmenn sem
iáta sig kjör sín og félagið einhverju
varða að mæta og láta heyra í sér
á næsta aðalfundi.
GUÐMUNDUR R. GUÐ-
BJARNARSON,
Ásbraut 9, Kópavogi.
all-athyglisvert, því honum hafði ein-
mitt orðið tíðrætt um tvísólhverfi í
erindi sínu. Hann gaf þar hreint og
beint frá sér að leysa þetta þriggja-
hnattavandamál eins og þeir kalla
það í fræðibókunum.
Ég er ekki frá því, að þessi spurn-
ing hafi borist í tal hér og þar hjá
fræðingum síðan, og til þess sé að
rekja þá „málsvörn" sem Ari frændi
vor Trausti telur sig þurfa að halda
uppi fyrir fáviskuna í þessu efni.
Ætla má að flestar sólir, ef ekki
allar, hafi með sér fylgihnetti af
reikistjörnustærð og að þær séu
gróðrarstöðvar lífsins í alheimi. Hinn
dauði alheimur er hugarfóstur dauf-
gerðra sálna.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON
Rauðalæk 14 Reykjavík
„Vonlaust
mál“
Frá Reyni Guðmundssyni:
í MORGUNBLAÐINU 28. mars sl.
er sagt frá EB-umræðu á Alþingi
og á einum stað segir: „Ólafur Ragn-
ar sagði að nú hefði forysta Alþýðu-
flokksins ákveðið að knýja á um það
að farið yrði að kanna það hvort
fýsilegt væri að ísland gengi í EB.
Það væri alveg á hreinu að Alþýðu-
bandalagið tæki ekki þátt í slíku.
Alþýðubandalagsmenn þekktu Róm-
arsáttmálann og
Maastricht-samkomulagið. Það
þyrfti ekki að kanna það til að af-
sala sjálfstæðinu til þessa nýja mið-
stýrða ríkis. Svar Alþýðubandalags-
ins væri nei.“
Þegar ég las þessi orð Ólafs Ragn-
ars Grímssonar kom mér í huga
smásaga, sem ég las fyrir mörgum
árum en man þó ekki hvað heitir
eða eftir hvern hún er en efni henn-
ar er eitthvað á þessa leið: Maður
sem hafði verið atvinnulaus um hríð
fékk loks boð um að koma í viðtal
hjá iðnfyrirtæki. Þegar kom að sett-
um tíma fylltist maðurinn kvíða en
klæddi sig í sitt besta tau og fór
síðan fram á baðherbergið til að
vatnsgreiða úfinn lubbann. Þegar
hann sá hár sitt sléttast í speglinum
fannst honum sem þar væri kominn
sjálfur atvinnurekandinn sem hann
átti að hitta. Hófust nú orðaskipti
milli spegilsins og vinar okkar sem
lauk mjög á einn veg. Því var það
þegar herbergisfélagi hans kom
heim um kvöldið og spurði hvernig
viðtalið hefði gengið að vinurinn,
sem kúrði undir sæng, svaraði að
málið hefði verið vitavonlaust.
REYNIR GUÐMUNDSSON,
Víðimel 21, Reykjavík.
Foreldrar
Nú fer sá timi í hönd, þegar reiðhjólin eru tekin fram.
Yfirfarið hjólin með börnum ykkar og sjáið um að allur
öryggisbúnaður sé í lagi. Brýnurn fyrir börnum okkar að
gæta varúðar og leiðbeinum þeim hvar öruggast er að hjóla.
Hverjir voru vinir
Dóra í Dagsbrún?
í & oenetfon Kringlunni
20% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum Okkar þáttur í betri kjörum
& V benelí on Kringlunni J
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-fiS1l;i;> - FAXgl-BTHflll
er fallegur og þægilegur sófi sem
með einu handtaki er breytt í svefnsófa.
Margar gerðir til af svefnsófum í ýmsum stærðum
og gerðum. Líttu til okkar sjón er sögu ríkari.
B:80xl90cmog 160xl90cm
Kr. 44.850.-