Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1992 KORFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN Morgunblaðiö/Eínar Falur Tómas Holton, þjálfari og leikmaður Vals, gat brosað breitt að leikslokum í Keflavík í gær. Lið Vals var í slæmri stöðu er hann tók við þjálfun 1. nóvember í haust, en hefur gjörbreyst síðan og er nú komið með aðra höndina á íslandsbikarinn. Valsmenn betri á öllum sviðum - sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður ÍBK sem tapaði stórt gegn Val „VALSMENN voru betri en við á öllum sviðum í þessum leik, það var sama hvað við reyndum þeir virtust eiga svar við öllu,“ sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður Keflvíkinga eftir að hafa tapað með 28 stiga mun 95:67 gegn Hlíðarendaliðinu í Keflavík í gærkvöldi. Þetta var þriðji leikur liðanna í úrslitakeppn- inni og hafa Valsfnenn unniðtvo leiki en Keflvfkingar einn. Liðin mætast í fjórða sinn í Valsheimilinu annað kvöld og með sigri þar geta Valsarartryggt sér íslandsmeistaratitilinn að öðrum kosti verða liðin að leika f immta leikinn sem þá fer fram í Keflavík. Geysilegur áhugi var fyrir leikn- um í gærkvöldi og var íþrótta- liúsið þegar orðið þéttsetið klukku- stund fyrir leik. Líkt Bjöm og í fyrri leikjum lið- Blöndal anna voru það Vals- skrifarfrá menn sem náðu þeg- Keflavík ar undirtökunum og munaði þar mestu um snilldartakta Bandaríkjamannsins Franc Bookers sem var besti maður vallarins í gær. Keflvíkingar lögðu greinilega allt kapp á að hleypa Valsmönnum ekki of langt frá sér og þeim tókst að halda í horfinu allt þar til 5 rnínút- ur voru eftir af fyrri hálfleik. Þá var staðan jöfn 27:27, en Valsmenn áttu góðan endasprett og höfðu náð 11 stiga forystu í hálfleik 42:31. í upphafi síðari hálfleiks reyndu Keflvíkingar stífa pressuvörn en hún gekk ekki frekar en annað sem þeir reyndu. Valsmenn léku hins vegar eins og sá sem valdið hefur og þeir juku forystu sína jafnt og þétt allt til leiksloka og var munur- inn 30 stig 64:94. Liðsheildin var frábær hjá Vals- mönnum sem allir eiga hrós skilið. Booker og Magnús Matthíasson voru þó atkvæðamestir í stigaskor- un en félagar þeirra virtust líka geta tekið upp þráðinn þegar á þurfti að halda. Þetta var ekki dagur Keflvíkinga og það er áreiðanlega langt síðan þeir hafa fengið aðra eins útreið. Bestu menn þeirra voru Kristinn Friðriksson í fyrri hálfleik og Jonat- han Bow í þeim síðari. „Við vissum að Keflvíkingar ætl- uðu ekki að láta söguna frá fyrri leikjum endurtaka sig þar sem við náðum fljótlega afgerandi forystu. Þeir lögðu því allt í sölurnar strax í upphafi en dæmið gekk ekki upp hjá þeim. Hjá okkur var ekki um annað að ræða en að halda áfram á sömu braut og í síðasta leik og sigur vannst fyrst og fremst með frábærri samvinnu okkar allra. Þetta er alveg ný staða fyrir liðið, því fyrir mánuði trúði enginn að við myndum ná svona langt sem nú er raunin og síst við sjálfir. Keflvíkingar eru með gott lið og við getum engan veginn bókað sig- ur gegn þeim í næsta leik,“ sagði Tómas Holton þjálfari og leikmaður Valsmanna. „Góð vörn og samvinna okkar allra sem liðsheildar lagði fyrst og fremst grunninn að þessum mikil- væga sigri - þetta er búið að vera ævintýri líkast og hrein unun að leika með strákunum,“ sagði Vals- maðurinn Franc Booker eftir leik- inn. Jón Kr. Gíslason þjálfari og leik- maður Keflvíkinga rak sína menn inn í búningsklefa og sagði þeim að gleyma þessum leik og þess í stað skyldu þeir einbeita sér að leiknum í Valsheimilinu sem yrði að vinnast. „Við erum nú komnir í sömu stöðu og Njarðvíkingar í fyrra þegar þeir voru 2:1 undir gegn okkur en unnu síðan tvo síðustu leikiiia og þar með íslandsmeistara- titilinn. Því er að duga eða drepast fyrir okkur í næsta leik ef við ætlum að halda baráttunni áfram." IpRÚmR FÓLK' ■ FYRIR leikinn í gærkvöldi voru sérstakir heiðursgestir kallaðir fram á gólf og kynntir. Þetta voru íslandsmeistarar íþróttafélags mmmm Keflavíkur (ÍFK) í Skúli Unnar körfuknattleik frá Sveinsson árinu 1952, eða fyrir skrifar 40 árum síðan. í lið- inu voru Bogi Þor- steinsson, Guðmundur Péturs- son, Helgi Jakobsson, Hjálmar Guðmundsson, Ingi Gunnarsson og Runólfur Sölvason. Þessir voru mættir í gær en auk þeirra voru í liðinu Krislján Júlíusson, Rós- mundur Guðmundsson, Jóhann Guðmundsson, sem er látinn fyrir nokkrum árum, og Friðrik Bjarna- son, sem lést fyrir nokkrum árum. ■ KEFL VÍKINGAR voru með „ljósakynningu“ eins og á síðasta heimaleik. „Við sögðum Völsurum fyrir leikinn að við myndum kynna bæði liðin með þessum hætti í odda- leiknum — en því miður yrði það ekki á þessu ári,“ sagði einn Kefl- víkingur kokhraustur fýrir leikinn. ■ KEFL VÍKING URINN í liði Vals, Guðni Hafsteinsson fékk, r brottrekstrarvillu þegar 6 mínútur og 45 sekúndur voru eftir af fyrri hálfieik. Hann hrinti Albert Ósk- arssyni vísvitandi. ■ MAGNÚS Matthíasson skoraði glæsilega þriggja stiga körfu í fyrri hálfleik. Valsmenn tóku leikhlé þegar 3 sekúndur voru eftir. Boltan- um var hent fram völlinn á Magnús sem var fyrir utan þriggja stiga lín- una, snéri sér við, skaut og boltinn fór rakleiðis ofaní — án þess að snerta hringinn! U MAÐURINN með kústinn, Magnús Jensson, vekur alltaf at- hygli á leikjum í Keflavík. Hann sér um að þurrka svita af gólfínu og gerir það oftar en ekki á meðaHB ' knötturinn er í leik. Snaggaralega gert og tefur leikinn minna en ella. ■ ÞAÐ gekk mikið á í leiknum. Kristinn Friðriksson fór alblóðug- ur af leikvelli í fyrri hálfleik eftir áð hann lenti á auglýsingaskylti og fékk skurð á höfuðið. Hann lét það þó ekki á sig fá og var mættur til leiks skömmu síðar með reifað höf- uð. ■ ÞAÐ vakti athygli að í leik- hléinu, þegar leikmenn liðanna voru farnir að hita upp, sátu þrír Kefl- víkingar lengstum á bekknum en hituðu ekki upp með félögum sírt** um. Þetta voru þeir Jón Kr. Gísla- son, Jonathan Bow og Guðjón Skúlason. ■ TÓMAS Holton lék óvenju lítið með Val í gær. Ástæðan var að Tómas var veikur. „Ég var alveg kraftlaus. Ég var veikur á sunnu- daginn, þegar við lékum við þá og núna var ég alveg kraftlaus," sagði Tómas sem átti mjög góðan leik með Val á sunnudaginn þrátt fyrir veikindin. ÍBK-Valur 67:95 íþróttahúsið í Keflavík, þriðji úrslita- leikur í íslandsmótinu í körfuknatt- leik, Japisdeild, þriðjudaginn 7. apríl 1992. Gangur leiksins: 0:6, 2:6, 2:10, 15:14, 19:19, 29:29, 29:39, 31:42, 33:50, 49:61, 49:68, 55:74, 60:80, 60:89,, 64:94, 67:95. Stig IBK: Jonathan Bow 21, Guðjón Skúlason 12, Kristinn Friðriksson 11, Jón Kr. Gíslason 10, Albert Ósk- arsson 6, Hjörtur Harðarson 6, Nökkvi M. Jónsson 1. Stig Vals: Franc Booker 35, Magnús Matthíasson 23, Ragnar Jónsson 9, Svali Björgvinsson 9, Símon Ólafsson 8, Tómas Holton 6, Ari Gunnarsson 3, Matthías Matthíasson 2. Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason sem dæmdu vel. ÁUorfendur: Um 1.100. Þriðji úrslitaleikur íslandsmótsins I körfuknattleik i iþróttahúsinu i Keflavik 7. april 1992 15/12 Víti 27/19 21/3 3ja stiga 22/9 31 Fráköst 28 23 (varnar) 23 8 (sóknar) 5 13 Bolta náð 12 18 Bolta tapað 14 13 Stoðsendingar 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.