Morgunblaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992 21 Wordnámskeið á Macintosh Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritið fyrir Macintosh og PC. Námskeið fyrir þá sem gera kröfur um góða ritvinnslu. Höfum kennt á Word frá árinu 1987. ( Tölvu- og verkfræðiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 Reuter Santa Maria í Japan Eftirlíking af skipi Kristófers Kólumbusar, Santa Maria, er hér dreg- in til japönsku hafnarborgarinnar Kobe í gær eftir að hafa fylgt siglingaleið Kólumbusar í tilefni af 500 afmælis sjóferðar hans. Skip- ið er án vélar og fór frá Barcelona í Katalóníu í júlí. Ólga á rússnesk- um viimumarkaði MIKIÐ er um verkföll og skærur á rússneskum vinnumarkaði um þessar mundir enda hafa launakjörin rýrnað mikið að undanförnu vegna ástandsins í efnahagsmálunum og mikilla verðhækkana. Að því er segir í Moskvublaðinu Nezavísímaja Gazeta bendir flest til, að ólgan muni fremur vaxa en hitt þar sem í júní á að gefa verð á kolum og olíu frjálst. Verkföll hafa verið víða í Úral- fjöllum og Síberíu að undanförnu en í gær og í dag lögðu kennar- ar við 42 skóla í Moskvu niður vinnu. Hóta þeir allsherjarverk- falli verði ekki orðið við kröfum þeirra en þeir vilja fá verðhækk- anirnar, sem orðið hafa á mörg- um nauðsynjum frá því um síð- ustu áramót, að einhvetju leyti bættar. Borís Jeltsín forseti til- kynnti raunar í febrúar, að laun ríkisstarfsmanna, það er að segja langflestra launþega, yrðu næst- um tvöfölduð en hækkunin er þó aðeins nýlega komin til fram- kvæmda. Síðastliðinn mánudag var verkfall hjá starfsfólki á 20% sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva í Moskvu og var það aðalkrafan, auk kjarakrafna, að rekstur stofnananna yrði tryggður og hlutdeild sjúklinga í lyfjakostn- aði afnumin. Segja læknarnir, að reynsla síðustu fjögurra mán- aða sýni, að almenningur hafí engin efni til að greiða fyrir lyfín. Olgan í Moskvu hefur mikil áhrif á landsbyggðinni þar sem verkföll hafa verið tíð, til dæmis meðal kolanámamanna. Hafa þeir lengi verið vellaunaðir á rússneska vísu og eru nú komnir með 17.000 rúblur í laun á mán- uði en kennaralaunin eru ekki nema 1.500. Eru fátæktarmörk- in nú sett við 2.000 rúblur á mánuði. Hefur þegar tryggt sér sess í sögunni Margir þeirra, sem fylgdust með Kohl beijast áfram upp á toppinn og skilja eftir sig langa röð af særð- um keppinautum, efast þó um að hann sé fús til að afsala séf kanslara- embættinu baráttulaust. Þá þykir hann snillingur í að skilja eftir sig falska slóð, vitandi að það ruglar andstæðingana í ríminu. A hinn bóg- inn kann Kohl að draga lærdóm af reynslu Adenauers (átrúnaðargoðs kanslarans), sem gnæfði yfir aðra stjórnmálamenn Þýskalands á sjötta áratugnum en var of lengi við völd, eins og Thatcher. Kohl hefur leitt flokk sinn til sig- urs í þremur kosningum og hans verður minnst í sögubókunum sem leiðtogans er stjórnaði sameiningu þýsku ríkjanna af snilld. Honum hef- ur aftur á móti ekki tekist eins vel upp í baráttunni við gífurlegan efna- hagsvanda sem kom í kjölfarið. Bú- ast má við að það taki að minnsta kosti áratug að leysa þennan vanda og ljóst er að það verður erfitt en vanþakkað verkefni. Myndi það ekki tryggja Kohl sess í sögunni sem mikilhæfs leiðtoga ef hann léti af embættinu fyrr en síðar? Hver tæki við kanslaraembættinu? Ef Kohl myndi ákveða að láta af embættinu er talið að aðeins tveir menn kæmu til greina í leiðtogastöðu Kristilegra demókrata. Wolfgang Schauble, fyrrverandi innanríkisráð- herra og nú formaður þingflokksins, er fljótur að taka ákvarðanir, mikill ræðumaður og duglegur (hann samdi um sambandssáttmálann við Austur- Þjóðveija). Hann hefur hins vegar aldrej náð sér að fullu eftir að hafa orðið fyrir skoti árið 1990. Hann þarf að notast við hjólastól og kann að skorta líkamlegt þrek til að geta gegnt kanslaraembættinu. Völker Rúhe er nýskipaður varnarmálaráð- herra eftir að hafa gegnt formennsku í Kristilegum demókrötum í þijú ár'. Hann er sérfræðingur í utanrikis- og öryggismálum en er tiltölulega reynslulítill og það gæti háð honum. Ólíklegt er talið að Kohl afsali sér kanslaraembættinu til að verða for- seti Þýskalands þar sem flokkur hans hefur haldið því embætti frá 1979. Forsetaembættið í Brussel myndi freista hans mun meira. Það er margt sem mælir með honum til starfans, þvi það var til dæmis stuðningi hans að þakka að hugmyndir Delors um efnahagslegan og pólitískan sam- runa EB-ríkja urðu ofan á innan bandalagsins. Kohl hefur oft látið þau orð falla að sameining Þýska- lands og Evrópu séu „tvær hliðar á sama peningnum". Þar sem hann hefur þegar séð fyrri drauminn ræt- ast kynni hann að snúa sér að hinum. útiuf: GLÆSIBÆ, S(MI 812922 Bosnía: Hóta Serb- um refsi- aðgerðum Belgrad. Reuter. JÚGÓSLAVNESKI herinn, sem er undir sljórn Serba, hélt enn uppi árásum í Bosníu-Herzegov- ínu í gær og Evrópubandalagið hótaði að beita Serba refsiað- gerðum ef herinn færi ekki úr landinu. Joao de Deus, utanríkisráðherra Portúgals, sagði að frysta bæri eignir Júgóslavíu erlendis og vísa landinu úr alþjóðlegum samtökum. Portúgalir eru nú í forsæti í ráð- herraráði Evrópubandalagsins. Viðræður hófust í Lissabon í gær milli hinna stríðandi fylkinga í Bosníu. Sérlegur samningamaður bandalagsins, Jose Cutileiro, kvaðst fyrst ætla að ræða við hveija sendi- nefnd fyrir sig áður en sameiginleg- ir fundir hæfust. Jörðin ber helming núverandi mannfjölda Amsterdam. Reuter. JÖRÐIN getur aðeins borið um 2,5 milljarða manna, eða um helming núverandi mannfjölda, án þess að óbætanlegur skaði verði á vistkerfinu, að því er hollenskur vísindamaður hélt fram í gær. ’ Miðað við nýjustu mannfjölda- spár er hins vegar fyrirsjáanleg fjölgun jarðarbúa og er talið að þeir verði um 10 milljarðar eftir hálfa öld eða tvisvar fleiri en nú. Eduard Adema, prófessor í um- hverfisfræðum við landbúnaðarhá- skólann í Wageningen í Hollandi, sagði að gripu menn ekki til ráðstaf- ana til að sporna við mannfjöldaþró- uninni myndi maðurinn útrýma sjálfum sér og eyðileggja umhverfi sitt. 4ííSrÍsí Fyrir dömur og herra í glæsilegu úrvali BYRGJUM STYRKJOM ÆSKONA í ”"AÐ NÁ TÖKCJM Á TILVERGNNI" AGUR UONS Laugardaginn 2. maí ganga sjálfboðaliðar Lions-hreyfingarinnar í hús og bjóða til sölu túlípana. Vinsamlegast takið vel á móti þeim og styrkið gott málefni. SIÓVÁBfc ALMENNAR blbmonyoiil »2- HOHtrbnft 9mi K7#« 0| 67CM * „Aö ná tökum á tilverunni“ er nafn á kennsluefni, sem tekið hefur veriö til kcnnslu í ýmsum grunnskólum að undirlagi Lions-hreyfingarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.