Morgunblaðið - 30.04.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992
31
Ingibjörg Ingólfs
dóttír — Minning
Fædd 6. október 1921
Dáin 20. apríi 1992
Ferðaþjónusta í dreifbýli:
Skyldunám fyrir þá sem
hefja rekstur hjá
Ferðaþjónustu bænda
Kynningarfundur verður í dag
FERÐAÞJÓNUSTA bænda hefur í samvinnu við Fræðsludeild Iðn-
tæknistofnunar og Bréfaskólann útbúið námsefni fyrir aðila sem
reka ferðaþjónustu í dreifbýli. Um er að ræða tveggja anna fjarnám,
og fyrsta kastið verður það með megináherslu á bændur sem reka
ferðaþjónustu, en ætlunin er að í náinni framtíð spanni námskeiðið
alla ferðaþjónustu í dreifbýli. Þetta er fyrsta námskeiðið í ferðaþjón-
ustu í dreifbýli sem stendur til boða I fjarkennslu.
Það var á vordögum 1935 að ung
borgfirsk sveitastúlka stóð allt í
einu í miðju strákageri á Bjargstúni
á Akranesi og spurðist fyrir um
bróður sinn sem henni var sagt að
væri þarna í fótbolta eins og títt
var um drengi á Akranesi þá eins
og ávallt síðan. Hún þekkti ekki
þennan bróður sinn svo hún spurði
hátt og skýrt: „Hver ykkar er
Dalli?“ Henni var bent á hann en
eitthvað hefur sú bending misst
marks því hún þreif í einn drengj-
anna og kyssti hann á kinnina.
Álengdar stóð bróðir hennar og
fylgdist með og leiðrétti þennan
misskilning sem vakti mikla kátínu
meðal drengjanna og einna mest
hjá þessari geðþekku stúlku sem
var komin til þess að heimsækja
móður sína og systkini á Akranesi.
Oft riíjuðum við upp þessi fyrstu
kynni okkar.
Ingibjörg fæddist að Brekku í
Norðurárdal í Mýrasýsju, dóttir Ing-
ólfs Sveinssonar og Ástrósar Þor-
steinsdóttur sem þá bjuggu í Múla-
koti í Stafholtstungum en leiðir
þeirra skildu og varð það að ráði
að Ingibjörg fylgdi föður sínum og
ólst hún upp hjá honum og föður-
systur sinni Ragnhildi Sveinsdóttur.
Ingibjörg vann því heimili öll ung-
lingsár sín og var til þess tekið
hversu mikill víkingur hún var til
allra verka bæði úti og inni, hún
var vel greind og stóð hugur henn-
ar til þess að mennta sig. Þá voru
ekki námslánin til þess að auðvelda
ungu fólki að fara menntaveginn.
Hún fór á Húsmæðraskólann að
Staðarfelli 1941-42 og talaði hún
oft um veru sína þar með mikilli
gleði og ánægju.
Ingibjörg var tvígift, fyrri maður
hennar var Eyjólfur Þorleifsson
starfsmaður hjá strætisvögnum
Reykjavíkur, hann lést af slysförum
3. október 1953 og var öllum harm-
dauði. Dætur þeirra eru Ásta Sig-
ríður, eiginmaður hennar er Lárus
Berg Sigurbergsson verksmiðju-
stjóri hjá Agli Skallagrímssyni og
eiga þau þijú börn, Eyjólf, Þorstein
og Ragnhildi. Ólöf Þórey, eiginmað-
ur hennar er Ármann Haraldsson
vörubifreiðastjóri og eiga þau þijú
börn, Ingibjörgu Lóu, Sigfíði Olsen
og Ingólf. Gróa Valgerður, eigin-
maður hennar er Þorlákur Ágústs-
son starfsmaður Samskipa og eiga
þau þrjú börn, Ingunni, Ágúst og
Ólaf. Það var kært með þeim mæðg-
um og voru barnabörnin og barna-
barnabörnin henni mikill gleðigjafi
og auðnaðist henni viku fyrir andlát
sitt að vera við fermingu eins barna-
barns síns. Þó mikið væri af henni
dregið lét hún engan bilbug á sér
finna og með æðruleysi og hetju-
lund tók hún þátt í þeirri hátíð með
ástvinum sínum. Seinni maður Ingi-
bjargar var Hilmar J.H. Lúthersson,
pípulagningameistari, þau slitu
samvistir.
Ingibjörg batt mikla tryggð við
dalinn sinn fagra og reisti ásamt
dætrum sínum og tengdasonum
sumarhús í landi Stóra-Pjalls þar
sem sjá mátti til æskustöðva henn-
ar upp í ásunum. Þar undi hún öll-
um frístundum sínum ásamt Bjarna
Sigurbjörnssyni sambýlismanni sín-
um sem reyndist henni vel í hennar
erfiðu veikindum. Eftirlifandi eru
alsystir hennar Þorbjörg er býr á
Akranesi og hálfbræður hennar
Guðmundur Kr. Októsson og undir-
ritaður. Ég vil þakka Ingibjörgu
systur minni fyrir vegferð hennar
og það sem hún var mér á unglings-
árum mínum. Ég og fjölskylda mín
vottum Bjarna, dætrum hennar,
tengdasonum, barnabörnum og
barnabarnabörnum okkar dýpstu
samúð.
Blessuð sé hennar minning.
Aðalsteinn Dalmann Októsson.
Elsku amma okkar, Ingibjörg
Ingólfsdóttir, lést í Landakotsspít-
ala 20. apríl sl. eftir erfiða sjúk-
dómslegu. Hún fæddist 6. október
1921 á Brekku í Norðurárdal í
Borgarfirði en fluttist þaðan nokk-
urra mánaða að Múlakoti í Staf-
holtstungum. Þar ólst hún upp til
rúmlega tvítugs en fluttist þá til
Reykjavíkur og giftist þar Eyjólfi
Þorleifssyni. Þau eignuðust þijár
dætur, en afa missti hún eftir fárra
ára sambúð. Amma giftist aftur
Hilmari J.H. Lútherssyni, en þau
slitu samvistir. Síðustu árin var hún
í sambúð með Bjarna Sigurbjörns-
syni. Eftir að dæturnar fóru að
heiman vann hún utan heimilis,
lengst af í Bernhöftsbakaríi.
Margs er að minnast þegar hugs-
að er til baka, allar góðu stundirnar
heima hjá ömmu, en oft var glatt
á hjalla þegar við frændsystkinin
vorum þar öll saman komin og voru
jólaboðin hennar ömmu okkur sér-
stakt tilhlökkunarefni. í Borgarfirði
í nálægð við æskustöðvar ömmu,
sem hún unni svo mjög, áttu hún
og fjölskyldur okkar sumarbústaði
saman. Margar stundir áttum við
saman þar við leik og störf, en
amma var óþreytandi við að gróður-
setja og hlúa að gróðrinum í kring-
um bústaðina og var amma lang-
duglegust við það verk. Jafnvel eft-
ir að hún var orðin veik lét hún
ekki sitt eftir liggja enda var amma
einstaklega dugleg og ósérhlífin
kona.
Margar ferðir fórum við með
ömmu um Borgarfjörðinn og voru
það ánægjulegar ferðir. Sérstak-
lega þótti okkur gaman að skoða
gamla bæinn í Múlakoti. Ekki voru
alltaf allir með í hverri ferð, en hún
fór þá bara aftur þangað til að við
gætum öll séð æskustöðvar hennar.
Margt sagði amma okkur frá upp-
vaxtarárum sínum og ansi erum við
hrædd um að okkur hefði fundist
erfitt ef við hefðum alist upp við
þær aðstæður, en þá voru ekki til
bílar á hveiju heimili og gekk hún
stundum í skólann sinn að Hlöðu-
túni eða í sund að Varmalandi.
Það er svo margt sem við vildum
segja og þakka fyrir en geymum í
minningunni um elskulega ömmu
okkar. Við vitum að nú líður henni
vel hjá horfnum ástvinum og við
biðjum Guð að blessa hana. Við
sendum Bjarna okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð. .
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þeir sem eru að hefja rekstur
ferðaþjónustu í dreifbýli verða héð-
an í frá að ljúka umræddu tveggja
anna námi, en samkvæmt lögum
Félags ferðaþjónustubænda verða
allir nýir aðilar að afla sér fag-
menntunar til að geta auglýst þjón-
ustu sína undir nafni og merki
Ferðaþjónustu bænda.
Mikil aukning hefur verið í ferða-
þjónustu í dreifbýli á undanfömum
árum, og samkvæmt upplýsingum
frá Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins hafa margir áhuga á að hefja
slíkan rekstur. í flestum tilfellum
sé um að ræða fólk sem þekkir lít-
ið til ferðaþjónustu, ogþví sé fjarná-
mið mikilvægur liður í að tryggja
aukna fagmennsku í ferðaþjónustu
til sveita og tryggja uppbyggingu
hennar.
Kynningarfundur um fagmennt-
un í ferðaþjónustu í dreifbýli verður
haldinn í Bókasafni Búnaðarfélags
íslans á 3. hæð Hótel Sögu fimmtu-
aginn 30. apríl kl. 13.30, og verða
þar meðal annarra fulltrúar Iðn-
tæknistofnunar, Ferðaþjónustunn-
ar og Bréfaskólans, auk fulltrúa
félagsmálaráðuneytis, samgöngu-
ráðuneytis og Ferðamálaráðs Is-
lands.
Barnabörn.
t
Astkær eiginmaöur minn,
EINAR GUÐMUNDSSON
sendibflstjóri,
Heíðargerði 18,
verður jarðsetturfrá Selfosskirkju laugardaginn 2. maí kl. 13.30.
Bílferð verður frá Sendibílastöðinni hf., Borgartúni 21, kl. 12.00
á hádegi.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Magnea S. Hallmundsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURBJÖRN SIGURJÓNSSON,
Tjarnargötu 27a,
Keflavfk,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 2. maí kl.
11.00.
Aðalbjörg Stefánsdóttir,
Stefán Sigurbjörnsson, Ebba Valvesdóttir,
Axel Gísli Sigurbjörnsson, Ingibjörg Pálmadóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS INGIMARSSONAR,
Brekkugötu 5,
Ólafsfirði.
Kristín Margrét Pálsdóttir,
Asta Ragnarsdóttir,
Sjöfn Ragnarsdóttir,
Jóhanna Ragnarsdóttir,
Gylfi Ragnarsson,
Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Sveinbjörg Þóra Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Andrés Kristinsson,
Sigurður Hinrik Hjörleifsson,
Sigurjón Jónasson,
Auður Traustadóttir,
Guðmar Stefánsson,
Birgir Bragason,
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
ELINBET H. JÓNSDÓTTIR
frá Fagradai,
verður jarðsett frá Garðakirkju í Garðabæ laugardaginn 2. maí
kl. 13.30.
Börn og tengdabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN JÓNSSON,
Ytra-Hóli,
A-Húnavatnssýslu,
verður jarðsunginn frá Höskuldsstaðakirkju laugardaginn 2. maí
kl. 14.00.
Sigríður Björnsdóttir, Jens Jónsson,
Sigrún Björnsdóttir,
Björg Sigríður Björnsdóttir,
Björn Þormóður Björnsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ÍSLEIFAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Gaddstöðum,
Faxabraut 32c,
Keflavík.
Helgi G. Eyjólfsson,
Hermann Helgason, Áslaug Ólafsdóttir,
Eyjólfur Helgason, Erla Knudsen,
Guðmundur Helgason,
Þórhallur Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför
ÓLAFS KJARTANS GUÐJÓNSSONAR
frá Hnífsdal,
Suðurgötu 109,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 13D á Lands-
pítalanum og á A-deild Sjúkrahúss Akraness fyrir frábæra umönn-
un, svo og þakkir til félaga í Oddfellowstúkunum á Akranesi.
Filippía Jónsdóttir,
Guðjón B. Óiafsson, Guðlaug B. Guðjónsdóttir,
Asgerður Ólafsdóttir, Sigurður Rúnar Jónsson,
Sæunn Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Birting a finælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.