Morgunblaðið - 30.04.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1992
39
Aðför að lýðræðinu
Frá Jóhannesi R. Snorrasyni:
UTANRÍKISRÁÐHERRA íslands
hyggst undirrita EES-samninginn
þann 2. maí nk., í Portúgal. Sú
undirritun er ekki bindandi fyrir
Island, íslenska þjóðin á eftir að
segja sitt, og ekki víst að hún
samþykki forræði útlendinga í lífs-
hagsmunamálum hennar á nýjan
leik. Alþingi á eftir að grannskoða
samninginn með öllu sem fylgir,
þ. á m. um 11.000 blaðsíður er-
lendra laga og reglugerða Evrópu-
bandalagsins, sem taka eiga gildi
hér, og vera æðri íslenskum lög-
um, sem er andstætt stjórnar-
skránni. Þetta verður ekki gert
með því að framlengja vorþing um
Pennavinir
Franskur frímerkjasafnari vill
komast í samband við íslenska safn-
ara:
Philippe Neau,
30 Rue du Pré St. Gervais,
Appartement 5,
93500 Pantin,
FRANCE.
Frá Ghana skrifar 28 ára karl-
maður með áhuga á útivist, íþrótt-
um, kvikmyndum o.fl.:
Michael C. Mefful,
P. O. Box 1012 Oguaa,
Central Region,
Ghana,
West Africa.
Tólf ára sænsk stúlka með áhuga
á hestum, útivist o.fl. vill skrifast
á við 11-14 ára krakka:
Marie Andersson,
Hemmansv. 7,
871 53 Hárnösand,
Sweden.
nokkrar vikur og á stuttu sumar-
þingi. Til þess að þingmenn geti
að fullu áttað sig á flóknum innvið-
um samningsins, ásamt miklum
fjölda fylgirita og breytinga, þá
er áætlaður tími út í hött.
Það virðist eiga að „keyra“
samninginn í gegn um þingið með
„offorsi“ á nokkrum vikum, bera
síðan allt lagasafnið undir atkvæði
í einu lagi, láta svo einfaldan
meirihiuta samþykkja samninginn.
Sýnist þá augljós tilgangurinn með
stuttu sumarþingi. Þetta gjörræði
á að fara fram meðan þjóðin er
mötuð á villandi og ónógum upp-
lýsingum um að verið sé að af-
henda útlendingum forræði í lífs-
hagsmunamálum hennar. Þjóðinni
er ranglega sagt, að samningur
um EES sé venjulegur viðskipta-
samningur, og forðast að kynna
henni hinnar neikvæðu hliðar
hans, með fórnum og afsölum á
fjölmörgum sviðum. Þvi síður er
viðurkennt, að EES sé áfangi á
fyrirhugaðri hraðferð inn í EB, og
að þar með yrðu endalok fullvalda
lýðveldis á Islandi staðfest.
Formaður utanríkismálanefnd-
ar Alþingis, Eyjólfur Konráð Jóns-
son, hefir opinberað þjóðleg og
raunsæ viðhorf sín til EES-samn-
ingsins, telur hann brjóta í bág
við stjórnarskrá lýðveldisins, sem
einnig er álit fjölmargra lögfróðra
íslendinga. Viðbrögðin létu ekki á
sér standa, og ættu að vera öllum
lýðræðislega hugsandi mönnum
áhyggjuefni. Formaðurinn á skilið
lof og þakkir landsmanna fyrir
einarða framgöngu í máli, sem
varðar framtíð þjóðarinnar og
umráðarétt hennar yfir gögnum
og gæðum lands okkar, hvorki
meira né minna. Undrar nokkurn,
þótt heilsteyptum íslendingi renni
blóðið til skyldunnar, þegar á
sjálfu Alþingi íslendinga eru uppi
tilburðir til þess að svipta þjóðina
forræði eigin mála og friðhelgi
fískveiðilögsögunnar, lífshags-
muna-forðabúrinu, fyrir ásælni og
ágangi erlendra aðila, að
ógleymdri hættu á því, að útlend-
ingar nái hér varanlegri fótfestu
og tangarhaldi á fjölmörgum svið-
um í efnahags- og atvinnulífi þjóð-
arinnar? Sú hætta blasir við ís-
lenskri þjóð, að hún í andvaraleysi
sogist inn í fjölþjóðaríkið á megin-
landi Evrópu, og verði innan fárra
ára innlimuð hjálenda þess. Þjóðin
sjálf verður að koma í veg fyrir
að þetta, íslands mesta ólán, verði
að veruleika. Þjóðin verður að
koma í veg fyrir innlimunaráform
„euro-kratanna“, áður en um sein-
an verður. Það verður best gert
með þjóðaratkvæðagreiðslu um
EES, sem er óvéfengjanlega and-
dyrið að EB. Það tók íslenska þjóð
700 ár að losna úr viðjum erlendr-
ar áþjánar. Við skulum koma í veg
fyrir að ungir og óbomir íslending-
ar neyðist til þess að heyja sjálf-
stæðisbaráttu á komandi öld,
vegna skammsýni þeirra, sem nú
fara með völd á íslandi.
JÓHANNES R. SNORRASON
Helgalandi 6, Mosfellsbæ
LEIÐRÉTTING
Auglýsingar fyr-
ir almættið
í BLAÐINU í gær er í Umsögn
Eiríks Þorlákssonar um sýninguna
„Auglýsingar fyrir almættið", sem
haldin er í Gallerí G-15 við Skóla-
vörðustíg sagt að sýningunni Ijúki
á fimmtudag. Þetta er ekki rétt.
Sýningunni lýkur á sunnudag.
8,3%
ÁrsávöxUin uiníram vcTÖbólgu s.I. (i mán.
SJOÐSBREF 10
Sjóðurinn er ávaxtaður í hluta-
bréfum evrópskra fyrirtækja.
Góð áhættudreifmg fyrir þá sem
vilja fjárfesta í hlutabréfum.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30.
Hlýjar móttökur hjá starfsfólki
Hard Rock Cafe
HARD ROCK CAFE - S. 689888
L________________________Á
Námslceid
fyrir sumarið
TIL ÚTLANDA?
Hraðnámskeið í tungumálum í maí fyrir byrjendur og hina
sem vilja bæta við eða dusta rykið af fyrri kunnáttu. Danska,
enska, franska, ítalska, spænska, sænska og þýska.
ÆTLARÐU AÐ TAKA MYNDIR?
Helgarnámskeið í Ijósmyndatöku 8.-11. maí. Tæknileg
undirstöðuatriði, myndbygging og myndataka við misjöfn
skilyrði. Leiðbeinandi: Halldór Valdimarsson.
FÖT FYRIR SUMARIÐ?
Síðasta saumanámskeiðið á þessu misseri. Fyrir byrjendur
og lengra komna. Hefst 4. maí.
Leiðbeinandi: Ásta Kristín Siggadóttir.
VILTU TÍNA GRÖS?
Á námskeiðinu „Villtar jurtir og grasasöfnun“ kynnistu
nytjajurtum í náttúrunni og hvernig má nota þær. Byrjar
um miðjan maí og lýkur með grasaferð í júní.
Leiðbeinandi: Einar Logi Einarsson.
KANNTU AÐ TEIKNA OG MÁLA?
Myndlistarnámskeið með teikningu og vatnslitun.
Harpa Björnsdóttir kennir og fer út með hópinn að sækja
fyrirmyndir þegar veður leyfir. Hefst 9. maí.
GRÓÐURÁHUGI?
Hafsteinn Hafliðason leiðbeinir um „Vorverkin í garðinum"
11. maí og „Kryddjurtarækt" 13.-14. maí.
ÞEKKIRÐU FUGLANA?
Stutt námskeið í fuglaskoðun og fuglagreiningu hefst 5. maí.
Leiðbeinandi: Jóhann Óli Hilmarsson.
Nánari upplýsingar um námskeiðin, staðsetningu,
tíma og verð á skrifstofu Tómstundaskólans,
Grensásvegi 16A, sími 67 72 22.
TÓMSTUNDA
SKOUNN
Grensásvegi16 a
Sími 67 72 22
HVlTA HÚSID / SlA