Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐÍÐ ÞRÍÐJUDÁGUR 2. JÚNI 1992 '
Folda og Istex:
Rússar kaupa ullar-
vörur fyrir 255 millj.
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli innanríkisvið-
skiptaráðuneytis Rússlands og
innkaupastofnunar rússneska
lýðveldisins annars vegar og fyr-
irtækjanna sem áður mynduðu
Álafoss, þ.e.a.s. ullarbandsfyrir-
tækisins Istex og framleiðslufyr-
irtækisins Foldu, um sölu á ullar-
vörum til Rússlands fyrir um 255
Grunuð um að hafa
orðið fyrrum eigin-
manni sínum að bana
51 ÁRS gömul kona hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30.
þessa mánaðar vegna rannsóknar lögreglu á því hvernig andlát fyrr-
um eiginmanns hennar bar að höndum. Vegfarendur fundu mann-
inn, sem var 52 ára gamall, meðvitundarlítinn og blóðugan af völd-
um stungusárs í strætisvagnaskýli við Nýbýlaveg í Kópavogi um
klukkan hálfníu á laugardagskvöid.
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús
þar sem hann lést um kvöldið. Fyrr-
um eiginkona mannsins er búsett í
húsi í grennd við biðskýlið þar sem
maðurinn fannst og var hún hand-
tekin vegna málsins og á sunnudag
úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30.
þessa mánaðar.
Fólkið var skilið að borði og
sæng og að sögn rannsóknar-
lögeglu er vitað að maðurinn hafði
komið á fyrrum sameiginlegt heim-
ili þeirra skömmu fyrir atvikið og
leikur grunur á að þar hafi hann
hlotið stungusárið. Konan hafði
ekki gengist við verknaðinum í
gær, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.
Nafn mannsins verður ekki birt
að svo stöddu þar sem ekki hafði
náðst til allra nánustu ættingja
hans í gær, að sögn RLR.
Viðskipti íslands við Serbíu og
Svartfjallaland hafa hingað til ekki
verið greind frá öðrum viðskiptum
við það svæði sem fyrrum tilheyrði
sambandslýðveldinu Júgóslavíu en
þess má geta að í fyrra var fluttur
út til Júgóslavíu varningur fyrir
sem nemur 75 milljónum króna.
Var aðalega seld skreið, saltfiskur,
og ullarlopi og ullarband. Frá Júgó-
slavíu var í fýrra fluttur inn varn-
ingur fyrir 133 milljónir, þar af
fatnaður fyrir 71 milljón.
Samþykkt Öryggisráðsins gerir
ráð fyrir algjöru viðskiptabanni
gagnvart>þessum lýðveldum að því
frátöldu að þeim verður heimill
innflutningur matvaéla og lyfja.
Lést eftir lungnaskipti
ANNA Marý Snorradóttir sem
nýlega gekkst undir lungna-
skiptaaðgerð á sjúkrahúsi í Lund-
únum lést þar síðastliðinn laugar-
dag. Hún var 31 árs gömul.
Anna Marý hafði beðið eftir lung-
um á Brompton-sjúkrahúsinu í
Lundúnum í um það bil ár þegar
hún fékk ný lungu sem grædd voru
í hana á Harefield-sjúkrahúsinu að-
faranótt laugardagsins 23. maí síð-
astliðinn. Aðgerðin þótti í fyrstu
hafa tekist vel en Anna Marý lést á
sjúkrahúsinu viku eftir aðgerðina.
Anna Marý var fædd 12. nóvem-
ber 1960. Hún var húsmóðir og
bóndi á Syðra-Langholti í Hruna-
mannahreppi. Hún lætur eftir sig
eiginmann, Sigmund Jóhannesson
bónda, og tvær dætur, Tinnu Björk
11 ára og Örnu Þöll 3 ára.
Anna Marý Snorradóttir verður
jarðsungin frá Akraneskirkju næst-
komandi föstudag.
milljónir króna til loka næsta árs.
Að sögn Ólafs Ólafssonar fyrrum
forstjóra Álafoss, sem tók að sér
að koma þessum samningi á eftir
að hann lét af störfum hjá fyrirtæk-
inu um síðustu áramót, má búast
við að fljótlega verði einnig gengið
frá samningi milli aðilanna að verð-
mæti allt að 60 milljónum króna
um sölu á værðarvoðum. Samning-
urinn sem nú hefur verið undirritað-
ur nær hins vegar til blandaðrar
ullarvöru.
Að sögn Ólafs dreifist fram-
leiðsla samkvæmt samningnum á
mismunandi deildir fyrirtækjanna
tveggja og er samningurinn vel til
þess fallinn að jafna sveiflur og
fylla upp í annars dauðan tíma hjá
Foldu og ístex, sem er tíminn frá
nóvember til mars.
Samningurinn er háður fyrirvara
af hálfu Rússa um að hann öðlist
gildi þegar þeim hefur tekist að
afla leyfa fyrir útflutningi þeirrar
olíu sem koma á sem greiðsla fyrir
ullina, samkvæmt milliríkjavið-
skiptasamningi þjóðanna.
♦ ♦ ♦
Viðskiptabann á Serbíu og Svartfjallaland:
Vörur til Júgóslavíu
fyrir 75 millj. í fyrra
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti síðastliðinn laugar-
dag bann við viðskiptum við Serbíu og Svartfjallaland, þ.e.a.s. þau
lýðveldi sem enn tilheyra því sem fyrrum var sambandslýðsveldið
Júgóslavía. Bannið mun mjög bráðlega taka gildi varðandi við-
skipti íslendinga við þessi svæði.
Fékk spark
í höfuðið
MAÐUR VAR fluttur í sjúkrahús
eftir að hafa orðið fyrir árás á
Klapparstíg skammt frá Lauga-
vegi í fyrrinótt.
Maðurinn skarst í leikinn þar sem
dyraverðir í veitingahúsi áttu í átök-
um við tvo menn og varð fyrir því
að annar þeirra sem deildi við dyra-
verðina sparkaði í höfuð hans.
Maðurinn var fluttur í sjúkrahús
til rannsóknar en árásarmaðurinn
og félagi hans voru fluttir á lögregl-
ustöð.
Morgunblaðið/Sverrir
Bifreiðaskoðun íslands býður í dag mælingu á CO-gildi í út-
blæstri bifreiða.
Bíleigendur hugi að
mengun í útblæstri
Hertar reglur taka gildi um næstu mánaðamót
„HREINT loft í heila viku“ er kjörorð varnarátaks gegn loftmeng-
un sem tóbaksvarnamefnd hefur haft forgöngu um. En það era
fleiri heldur en tóbaksneytendur beðnir um að takmarka loft-
mengun. Bifreiðaeigendur eru hvattir til að huga að kolsýrings-
mengun í útblæstri og í dag er athyglinni beint að þeirri loftmeng-
un sem stafar frá útblæstri bifreiða.
Bifreiðaskoðun íslands býður blæstri heldur en 0,5% miðað við
ökumönnum upp á afgasmælingar
á Jtolsýringi* frá bílum, þ.e. CO-
gildi, miðað við rúmmál, í út-
blæstri bíla og fá þær bifreiðar
sem mældust með CO-gildi 0,5%
eða minna viðurkenningu í formi
límmiða sem líma má í afturrúður
þeirra. Einnig fara starfsmenn
fyrirtækisins á milli bensínstöðva
í Reykjavík og bjóða afgasmæl-
ingar á CO-gildi. I haust er fyrir-
hugaður svipaður dagur víðsvegar
um landið. Við skoðun í maí kom
í ljós að CO-innihald af afgasi var
undir 0,5% frá 25,4% ökutækja.
Framundan eru hertar reglur
um útblástur frá bifreiðum og frá
og með 1. júli næstkomandi verð-
ur kveðið á um að bifreiðar sem
fluttar verða inn til landsins megi
ekki gefa meiri kolsýring í út-
rúmmál. Taka þessar reglur mið
af bandarískum og sænskum regl-
um og tilskipunum Evrópubanda-
lagsins.
Þessi reglugerðaákvæði ná
einnig til eldri bifreiða sem ein-
staklingar flytja inn. Þó er sú
undantekning gerð að heimilt
verður að flytja bifreið sem ekki
nær staðli ef hún er hluti af bú-
slóð og viðkomandi hefur átt bif-
reiðina í a.m.k. eitt ár. Önnur og
hærri viðmiðunarmörk munu
áfram gilda um eldri bifreiðar
hérlendis. Bent var á að það akst-
urlag sem væri hvað umhverfis-
vænast væri einnig það hættu-
minnsta og fjárhagslega hag-
kvæmast. Yfirveguð keyrsla á
jöfnum hraða.
Sturla Siguijónsson sendiráðs-
ritari í alþjóðadeild utanríkisráðu-
neytisins sagði utanríkisráðuneytið
nú vera að kynna sér nákvæm
ákvæði og orðalag í samþykkt ör-
yggisráðsins. Hann gerði fastlega
ráð fyrir því að mjög fljótlega
myndu íslensk stjómvöld taka
ákvörðun um að framfylgja ráð-
stöfunum ráðsins í samræmi við
heimildalög nr. 5 frá 1969 um
framkvæmd fyrirmæla Öryggis-
ráðsins. Yrði birt auglýsing í
Stjómartíðindum þar að lútandi.
Brot á ákvæðum laganna um
framkvæmd fyrirmæla Öryggis-
ráðsins geta varðað sektum eða
fangelsi allt að 2 árum.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Vill ekki skerða eig-
ið fé Fiskveiðasjóðs
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að aldrei hafi kom-
ið til álita í sjávarútvegsráðuneytinu að hluti af eigin fé Fiskveiða-
sjóðs yrði gerður upptækur og settur í ríkissjóð. Einkavæðingar-
nefnd ríkissljórnarinnar hefur lagt til að hlutabréf sjóðsins í íslands-
banka verði seld og andvirðið renni í ríkissjóð og hefur forsætisráð-
herra tekið undir þá tillögu.
Anna Marý Snorradóttir.
„Það var aldrei hugsunin að þessi
bréf yrðu um alla framtíð í eigu
Fiskveiðasjóð heldur að þau yrði
seld síðar meir. Hins vegar hefur
það aldrei komið til álita í sjávarút-
vegsráðuneytinu, sem fer með mál-
efni sjóðsins, að hluti af eigin fé
Fiskveiðasjóðs yrði gerður upptæk-
ur og settur í ríkissjóð. Það myndi
gerbreyta fjárhagslegri stöðu sjóðs-
ins á erlendum lánamörkuðum og
setja ríkissjóð í þá stöðu að þurfa
væntanlega að taka ábyrgð á lánum
sjóðsins og væri sjóðasukk af því
tági sem ég vildi ekki taka ábyrgð
á. Þetta sjónarmið hefur alltaf legið
fyrir af hálfu sjávarútvegsráðuneyt-
isins og ég hafði gert einkavæðing-
arnefnd ríkisstjórnarinnar fulla
grein fyrir þeirri afstöðu. Það kom
mér mjög á óvart, að [Hreinn Lofts-
son] formaður einkavæðingar-
nefndarinnar skyldi tala um þetta
mál með þessum hætti,“ sagði Þor-
steinn.
Þegar Þorsteinn var spurður
hvort hann sem sjávarútvegsráð-
herra hefði ákvörðunarvald í þessu
máli svaraði hann: „Að sjálfsögðu.
Sjóðurinn heyrir undir sjávarút-
vegsráðuneytið og afstaða þess hef-
ur legið alveg skýr fyrir."
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur í íjölmiðlum tekið undir það
sjónarmið að selja eigi hlutabréf
Fiskveiðasjóðs í íslandsbanka og
andvirðið renni í ríkissjóð. Þegar
þetta var borið undir Þorstein sagð-
ist hann ekkert hafa um það að
segja.
Þorsteinn sagði ljóst, að vinna
þyrfti að ýmsum breytingum á fjár-
festingarlánasjóðum atvinnuveg-
anna, meðal annars að kanna mög-
uleikana á að breyta þeim í hlutafé-
lög. Unnið væri að lögfræðilegri
athugun á því máli, sérstaklega
með tilliti til þess hvernig líta ætti
á greiðslur atvinnuveganna inn í
sjóðina á sínum tíma. „En það er
eitt mál að breyta sjóðunum í hluta-
félag og annað að taka eigið fé
sjóðsins inn í ríkissjóð,“ sagði Þor-
steinn Pálsson.
Tilboð útrunnið í fram-
kvæmdir við Fljótsdal
TILBOÐ Norðtaks í framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun rann út í
gær. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa hjá Lands-
virkjun, litur því út fyrir að ekkert verði frekar aðhafst í virkjunar-
málinu fyrr en ákvörðun um að hefja framkvæmdir við álver á
Keilisnesi liggur fyrir.
Á bak við Norðtak standa Hag- virkjunar um að fyrirtækið fengi
virki-Klettur, Hagvirki, hið sænska verkefnið ef hafíst yrði handa innan
NCC og Statskraftverker, Noregi. þess tíma. Að sögn Þorsteins eru
Tilboð Norðtaks í gangagerð og nú báðir aðilar óbundnir af þessu
gerð Eyjabakkastíflu hafði áður samkomulagi og allar framkvæmdir
verið framlengt til 1. júní gegn því í biðstöðu.
að fyrir lægi viljayfirlýsing Lands-