Morgunblaðið - 02.06.1992, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
Ólafsvík:
Trilla strandaði á Hróaskeri
TRILLA steytti á skeri skammt
vestan við hðfnina í Ólafsvík á
laugardag. Einn maður var um
borð og var honum bjargað í
land. Trillan sökk siðan um nótt-
ina þegar reynt var að draga
hana á flot.
Þórunn Jónína KE 58, 4 tonna
trilla frá Njarðvík, var að koma
úr handfæraróðri um kvöldmatar-
leytið á laugardag þegar hún tók
niðri á Hróaskeri skammt vestan
við hafnargarðinn í Ólafsvík og
rann upp á skerið. Einn maður var
Morgunblaðið/Alfons
Þórunn Jónína á Hróaskeri á laugardagskvöldið. Maðurinn var enn um borð þegar myndin var tekin.
Annar smábátur bíður átekta skammt frá.
VEÐUR
V
ÍDAGkl. 12.00
Heimiid: Veöurstofa ístonds
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 f gœr)
VEÐURHORFUR I DAG, 2. JUNI
YFIRLIT: Skammt suðvestur af landinu er 1.000 mb lægft á hægri hreyf-
ingu norðvestur. Milli Svalbarða og N-Noregs er 1.027 mb hæð.
SPÁ: Hæg suðaustlæg ótt. Skúraleiðingar víða um land, einna síst þó
norðanlands. Með kvöldinu má búast við rigningu suðaustan- og austan-
lands. Hiti 7-15 stig. Svalast við ströndina, en hlýjast (innsveitum norð-
anlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Fremur hæg suðlæg eða
breytileg átt. Skýjað að mestu og skúrir víða um land, einkum sunnan-
og vestanlands. Hiti 7-15 stig að deginum, hlýjast í innsveitum.
Svarsímt Veðurstofu fslands - Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
/ / /
f f
f f f
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V V V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
itig..
FÆRÐA VEGUM: <ki. 17.30 ígær)
Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, undantekning er þó á norð-
austurvegi (Sandvíkurheiði), þar er mikil aurbleyta og er því aðeins fært
fyrir jeppa og fjórhjóladrifna bíla. Einstaka vegakaflar eru þó ófærir, svo
sem Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum, Hólssandur og öxarfjarðarheiði
á Norðausturlandi og Mjóafjarðarheiði á Austfjörðum er lokuð vegna
aurbleytu. Vegna aurbleytu eru sums staðar sérstakar öxulþungatak-
markanir á vegum og eru þær tilgreindar með merkjum við viðkomandi
veg. Þessum takmörkunum hefur þó verið létt af eftirtöldum vegum:
Þjóðvegi 1 á milli Mývatnssveitar og Fellabæjar, þjóðvegi 1, Austurlands-
vegi í Breiðdal, þjóðvegi 94, Borgarfjarðarvegi um Vatnsskarö, þjóðvegi
917, Hlíðarvegi, þjóðvegi 926, Hróarstunguvegi, þjóðvegi 962, Norður-
dalsvegi, og þjóðvegi 964, Breiðdalsvegi. Einnig hefur takmörkunum
verið aflétt af ýmsum vegum í Húnavatnssýslu. Allir hálendisvegir lands-
ins eru lokaðir vegna aurbleytu og snjóa. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 ígær
UMHEIM
að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 16 9 veður mistur rígning
Bergen 23 léttskýjaö
Helsinkl 23 léttskýjað
Kaupmannahöfn 24 léttskýjað
Narssaresuaq 4 léttskýjað
Nuuk 0 skýjað
Ósló 27 léttskýjað
Stokkhólmur 27 skýjað
Algarve 22 skýjað
Amsterdam 24 skýjað
Barceiona vantar
Berlín 26 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 19 mistur
Hamborg 25 hálfskýjað
London 17 rignlng
LosAngeles 17 þokumóða
Lúxemborg 20 skýjað
Madríd 18 rokur
Malaga 24 skýjað
Maliorca 20 rigning
Montreal 16 alskýjað
NewYork 17 skýjað
Orlando vantar
París 19 skýjað
Madeira 20 léttskýjað
Róm 24 alskýjað
Vín 22 skýjað
Washington 17 léttskýjað
Winnipeg 15 skýjað
um borð. Lét hann yfirvöld ekki
vita en fékk nærstaddar trillur til
að reyna að draga bátinn á flot.
Lögreglan frétti af því að trillan
væri strönduð og síðar um kvöldið
fékk hún björgunarsveitina Sæ-
björgu til að fara'með lögreglu-
mann á gúmmíbát út að bátnum.
Var þá veðurútlit að versna og var
farið með manninn í land til
skýrslutöku.
Á flóðinu upp úr klukkan 5 um
nóttina reyndi bátur að draga trill-
una á flot en þá var hún orðin
hálffull af sjó og lagðist á hliðina
og sökk þegar hún rann fram af
skerinu. Þar liggur trillan á hlið-
inni og sést í hana á fjöru. Ekki
var í gær vitað hvað gert yrði við
trilluna.
Eigandinn er úr Njarðvík og
fara sjóprófin fram hjá bæjarfóg-
etaembættinu í Keflavík. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
misreiknaði maðurinn sig, taldi sig
vera utar en hann reyndist vera.
» ♦ ♦
Baldur í
slipp á
Akranesi
Breiðafjarðarferjan Baldur
var tekin í slipp hjá Þorgeir og
Ellert hf. á Akranesi aðfaranótt
laugardagsins, en ferjan steytti
á skeri á leið frá Brjánslæk til
Flateyjar á föstudaginn. Að sögn
Guðmundar Lárussonar, fram-
kvæmdastjóra Baidurs, er búist
við að viðgerð á skemmdum sem
urðu á botni ferjunnar ljúki á
fimmtudaginn og sigling hefjist
síðan samkvæmt áætlun á föstu-
dagsmorguninn.
Guðmundur sagði að skemmdir
hefðu orðið á fjögurra metra löng-
um kafla á botni Baldurs, og leki
komið að olíutanki og sjótanki, en
engar upplýsingar lægju fyrir um
hve kostnaðarsöm viðgerðin yrði.
Hann sagðist reikna með því að
sjópróf yrðu haldin vegna óhapps-
ins, og ekki yrði opinberlega rætt
um ástæðu þess fyrr en að sjópróf-
um loknum.
Amaldur Arnarson
Arnaldur
vinnur al-
þjóðlega
gítarkeppni
ARNALDUR Arnarson gítar-
leikari vann fyrstu verðlaun í
alþjóðlegri keppni gítarleikara
í Róm dagana 27.-29. maí.
Keppnin er kennd við ítalska
tónskáldið Fernando Sor og
var haldin í 21. sinn. Þetta mun
vera í fyrsta sinn sem íslenskur
gítarleikari vinnur fyrstu verð-
laun í alþjóðlegri gitarkeppni.
„Þetta er þekkt keppni og það
var bara gaman að vinna hana,
en framtíðin verður að leiða það
í ljós hvaða þýðingu þetta hefur
fyrir feril minn. Eg átti ekkert
sérstaklega von á því að vinna
en maður reynir náttúrlega sitt
besta,“ sagði Amaldur. Hann
kvaðst eiga von á því að hann
léki á tónleikum á Ítalíu í kjölfar
sigursins.
Amaldur lék í fyrstu umferð
skylduverkefni eftir Fernando
Sor og Maurice Ohana. í annarri
umferð lék hann verk að eigin
vali eftir Heiter Villa-Lobos, Jón
Ásgeirsson og Femando Sor. í
þriggja manna úrslitum 29. maí
lék Arnaldur verk eftir Fernando
Sor og Manuel Ponce.
Amaldur hefur búið í átta ár
í Barcelona þar sem hann stundar
hljóðfæraleik og kennslu. Hann
hefur komið reglulega til tón-
leikahalds á íslandi og leikur á
tónleikum á Listahátíð í Reykja-
vík 14. júní í Áskirkju. „Ég var
á báðum áttum með hvort ég
ætti að taka þátt í keppninni svo
skömmu fyrir Listahátíð vegna
þess að ég þurfti að undirbúa það
mikið af nýju efni. En ég gerði
það í og með til að búa mig und-
ir Listahátíð, herða taugarnar
dálítið og koma mér í góða æf-
ingu tímanlega."
Kennarastöður á Vestfjörðum:
Aldrei fleiri umsókn-
ir frá réttindafólki
MUN MEIRI eftirspurn hefur verið eftir kennarastöðum á Vestfjörðum
en áður. Kennarar með réttindi hafa sótt um í auknum mæli og nú
þegar er búið að ráða nokkra, að sögn fræðslustjórans á Vestfjörðum.
Hann segir tvær meginskýringar vera á þessum auknum umsóknum,
annars vegar þrengri vinnumarkaður en oftast áður og hins vegar
fækkun á kennarastöðum á landinu vegna niðurskurðar í skólum.
Að sögn fræðslustjórans, Péturs
Bjarnasonar, gerir hann sér vonir
um að hægt verði að manna um
70-80% af þeim 150-160 kennara-
stöðum sem eru í umdæminu með
réttindafólki. Hingað til hafa einung-
is 50-55% af stöðunum verið mann-
aðar af fólki með réttindi en allar
þær stöður sem leiðbeinendur hafa
gegnt hafa verið auglýstar til um-
sóknar, alls um 60-70 stöður. Auk
þess hafa verið auglýstar nokkrar
skólastjórastöður.
„Trúlega er tvennt sem veldur
þessum aukna áhuga á kennarastöð-
um á Vestfjörðum. í fyrsta lagi eru
kennarar sem lokið hafa námi gjarn-
an í öðrum störfum en við kennslu
en nú er vinnumarkaðurinn þrengri
en almennt gerist. í öðru lagi fækk-
ar kennarastöðum á landinu vegna
niðurskurðar í skólum. Á höfuðborg-
arsvæðinu minnkar því yfirvinna hjá
kennurum en yfirvinna á Vestfjörð-
um hefur hins vegar verið nokkuð
mikil. Það er vegna þess að við viljum
heldur að kennslan sé í höndum
þeirra sem hafa menntun og reynslu,
frekar en að ráða reynslu- og mennt-
unarlaust fólk. Auk þess tíðkast yfir-
leitt yfirboð til kennara á Vestfjörð-
um í formi flutningsstyrkja, hús-
næðisfríðinda og beinna launa-
greiðslna," segir Pétur.
Umsóknir um kennarastöður fara
til skólanefnda sem eru 22 á Vest-
fjörðum. Umsóknir koma venjulega
í tveimur bylgjum. Fyrst á vorin þeg-
ar auglýst er og aftur um miðjan
júní þegar eftirsóttari skólar á höfuð-
borgarsvæðinu fara að hafna fólki.
Umsóknimar fara til fræðslustjóra
eftir að umsóknarfresturinn rennur
út en það var í gær, 1. júní. Því er
enn ekki ljóst nákvæmlega hversu
margir kennarar með réttindi hafa
sótt um á Vestfjörðum en það mun
skýrast á næstunni.