Morgunblaðið - 02.06.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1992
15
er enn mikilvægara er að samstarf
japanskra og bandarískra fyrir-
tækja vex hröðum skrefum og verð-
ur sífellt nánara. í stað gamla öx-
ulsins, Bandaríkin-Evrópa, er nýi
öxullinn, Bandartkin-Austur-Asia,
að taka völdin. Svo getur farið, að
Evrópa, þessi litli skagi vestur úr
Asíu, sem lítur svo stórt á sig, verði
afskekkt og einangrað krumma-
skuð, sem látið verði eiga sig með
alla sína tollmúra. Hinn margróm-
aði nýi sameiginlegi markaður
þjóða, sem hættar eru að vaxa, er
ekki nema brot af risamarkaði
Austur-Asíu, sem núna vex hröðum
skrefum. Það væri mikið ólán að
láta misheppnaða fjármálaspekúl-
anta undir krataleiðsögn gabba
okkur að óþörfu inn í evrópska ein-
angrun, allt af því að íslenska þjóð-
in veit ekki hvar á hnattkúlunni
hÚN er stödd. Flestir virðast trúa
því, að við séum þetta evrópska
útsker, sem gamla Evrópukortið í
skólabókunum sýnir. Rétta kortið I
okkar sýnir norðurhvel jarðar, at-
hafnasvæði okkar, en þar erum við
örstutt frá miðpunktinum. Evrópsk
einangrun hæfir ekki þeim á slíkum
stað búa.
Sjálfstætt ísland, land
möguleikanna
í upphafi gengum við til samn-
inga við EB til þess að fá fríverslun
fyrir fisk. Okkur var neitað um
hana, og þótt tollur sé afnuminn
af ákveðnum fiskafurðum og lækk-
aður á öðrum er það skiptimynt
sem við högnumst á, en enginn
veit hve mikið af þessum lækkun-
um fellur okkur í hlut hveiju sinni
og hve mikið markaðurinn fær. Það
fer eftir aðstæðum hvers tíma. En
EB sá við okkur því áfram skal
haldið opinberum styrkveitingum
til útgerðar og fiskvinnslu EB,
Samstaða um óháð
ísland:
Synjaö um
styrk til kynn-
ingar á EES
Ráðuneytið ekki af-
lögufært, segir
skrifstofustjórinn
UMSÓKN samtakanna Samstöðu
um óháð Island til utanríkisráðu-
neytisins um fjárstyrk til kynn-
ingar á samningnum um evrópskt
efnahagssvæði hefur verið hafn-
að. Samtökin sóttu um 2,5 miHj-
óna króna styrk til útgáfustarf-
semi og kynningarfunda á sjónar-
miðum sínum varðandi samning-
inn. Gunnar Snorri Gunnarsson,
skrifstofustjóri viðskiptaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins,
sagði að heildarupphæðin sem
ætluð er til kynningar samnings-
ins sé um 7-10 miHjónir króna,
og því sé ráðuneytið ekki aflögu-
fært, enda hafi fleirum verið synj-
að.
í bréfi stjórnar félagsins, dagsettu
27. apríl, segir meðal annars að
stjórnin telji eðlilegt að hluta þess
flár, sem á fjárlögum sé ætlað til
kynningar samningsins, verði veitt
til almannasamtaka er láti sig málið
sérstaklega varða. Þar segir enn-
fremur að á öðrum Norðurlöndum
sé litið á starf samtaka á borð við
Samstöðu sem hlekk í lýðræðislegri
umræðu.
í fréttatilkynningu frá Samstöðu
segir að afstaða utanríkisráðuneyt-
isins bendi til þess að ráðuneytið
ætli ekki að stuðla að gagnrýninni
og opinni umræðu um þetta afdrifa-
ríkasta mál sem íslendingar hafi
staðið frammi fyrir í sögu lýðveldis-
ins, eins og komist er að orði í til-
kynningunni.
„Við höfum neitað stofnunum með
sterkari stöðu,“ sagði Gunnar
Snorri. „Utanríkisráðuneytið er hér
að kynna efnisatriði samnings sem
liggur fyrir. Auk þess nægir fjár-
hæðin aðeins til prentunar grund-
vallarupplýsinga."
t—þessum-styrkjtrm-sem -gert-hafa—gehim--haldið'-hltrt,-ekk-ar- til-jafná-—
Þjóðverjum og öðrum mögulegt að
bjóða mun hærra verð í fiskinn
okkar óunninn en ella, sem ræður
markaðsverðinu hér heima og er
að setja fiskiðnaðinn okkar á haus-
inn og skerða lífskjör okkar og mun
að endingu gera okkur að hráefnis-
útflytjanda og nýlendu. Þetta er
ekki allt, því skipaiðnaður EB er
einnig „utan kerfisins“ og á að
halda áfram að fá opinbera styrki
á kostnað skipaiðnaðar okkar. Það
flokkast undir trúarbrögð að sjá
hagkvæmni í slíkum viðskipta-
samningi, þar sem auk þessa er
krafist að við innleiðum iðnaðar-
hagkerfið þeirra gegnum fjórfrels-
isáætlunina, gerum þeirra lög æðri
okkar lögum og setjum dómstólana
þeirra yfir okkar dómstóla. Þetta
er okkur ætlað að þola án nokkurs
sannanlegs ávinnings.
Höfuðstóll íslands og íslendinga
er nægilega stór til þess að við
við hvern sem er, það er að segja,
ef við nýtum hann rétt. Við kom-
umst þangað sem við erum nú í
krafti þess, að við réðum okkur
sjálf og unnum í eigin þágu. Á
sama hátt getum við náð miklu
lengra. Við eigum að opna landið
fyrir öllum heiminum en hafa samt
fullt vald yfír þróun samfélagsins.
Langtímasjónarmið eiga að ráða
ferðinni í uppbyggingu markaða.
Bandaríkin eru enn á sínum stað
og á næstu árum verður Rússland
stór og áhugaverður markaður svo
ekki sé talað um Asíulönd. Að sjálf-
sögðu eigum við að stunda mikil
viðskipti við EB, en á grundvelli
jafnréttis. Enn sem fyrr á það að
vera meginverkefni utanríkisstefnu
okkar að varðveita fullveldið og
sjálfstæðið.
Höfundur er aðstoðarforstjóri
Byggðnstofn unar.
Adalfundur
SAMBANDS ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
verður haldinn föstudaginn 5. júní 1992
í Sambandshúsinu, Kirkjusandi.
Fundurinn hefst kl. 9 árdegis.
$ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
AUK ÞESS AD BJÓDA HER
QG NÚ iNtWtlTINGAJfyjf
lagerátrábæruverbi
bjóddm WD Nú rlcjökt
SPRENGITUBDB: HELLD-
BORfi, QFN OG VIFIÚ NITÚ
16,27% AFSLÆTTI*)
TIL KADPENDA HÉR OG NU
v
X? V'
nartæKi «ne6
A6,2T*» a-933
£\dbóst®K' 1^452
^ l?k' með
y lo,nberg Nettó?. afa,i*tU:
"lfNe®«V "*
^//Ubo röMPN 41.900
~^603HV V 14.40o
Samtals
66^200
Verðl^f^m—J*Z§7
SS.443
„etíó lln®
. ,A\ usN 609^ gM11
®S slcoiskáf
^skur
Einfö/d eldhúslnnréíí/nn 0„
verðkn72.778,. Stgf
1«\,
^’sötódV. gfiO aWT-
0 A *
if&'
. 0t«*‘
Gásar
Ármúla 7, sími 30 500