Morgunblaðið - 02.06.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
Morgunblaðið/KGA
James Galway: „Ég æfi mig ein-
faldlega meira en aðrir.“
-r
þær allar og vel síðan þá sem er
best hveiju sinni.“
Æfingin er lykillinn
— Hvernig býrðu þig venjulega
undir tónleika?
„Nú, með því að æfa mig. Ég
er ekki hjátrúarfullur, fer ekki með
bænir og geri ekkert annað en æfa
mig. Jú, ég skipti reyndar um föt
fyrir tónleika." Hann glottir, aug-
ljóslega ánægður með svarið. „Guð
vill ekki bænir. Hann vill sjá árang-
ur af sköpunarverkinu. Þegar þú
byijar að læra á hljóðfæri áttu
möguleika á að opna nýjar dyr.
Dyrnar opnast í sama hlutfalli og
æfingarnar. Æfingar eru lykill að
velgengni. Ég bý ekki yfir neinum
töfraformúlum. Ég æfi mig einfald-
lega meira en aðrir og þess vegna
er ég betri.“
Viðtal: Brynja Tomer
PEUCEOT
Ef þú gerir kröfu um snerpu, þægindi
og rými er Peugeot 405 bíllinn fyrir
þig. Hann er rúmgóður og kraftmikill
og búinn öllum þægindum. Peugeot
405 er hagkvæmur í rekstri og gæddur
einstökum aksturseiginleikum, lipur í
borgarumferðinni og skemmtilega rás-
fastur úti á vegum. Það fer sérlega vel
um ökumann og farþega, fjöðrunin er
einstök, sætin frábær og útsýnið mjög
gott, bæði úr fram- og aftursætum. Svo
er Peugeot 405 á ótrúlega góðu verði.
Peugeot 405 GR. 1,6 beinsk. á 1.197.600 kr.
Peugeot 405 GR. 1,9 sjálfsk. á 1.431.900 kr.
Innifalið í verði er: Rafdrifnar rúður, velti- og vökvastýi i,
Qarstýrðar samlæsingar á hurðum, skráningarkostnaður
og verksmiðjuryðvörn með 6 ára ábyrgð.
JOFUR
NYBYLAVEGl 2 • SIMI 42600
Vinn út frá umhverfinu
Frá opnun sýningarinnar 2000 ára litadýrð, frá Jórdaníu og Palest-
ínu, í Listasafni Islans. F.v.: Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands,
Widad Kawar, eigandi búninga á sýningunni, Alia A1 Feisal, prins-
essa, Feisal Bin A1 Hussein, eiginmaður hennar og prins frá Jórdan-
íu, Olafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, og Bera Nordal, for-
stöðumaður Listasafns Islands.
Morgunblaðið/Bjarni
Utilistaverk Daniels
Burens við Gallerí 11.
Daniel Buren
af níræðisafmæli hans. „Það er
gleðiefni að Listahátíð hafði for-
göngu um að fá Hjálmar H. Ragn-
arsson, tónskáld, til að semja sér-
stakt tónverk við kvæði Halldórs
Laxness Rhodymenia Palmata, sem
verður hér frumflutt. Hjálmar hefur
fengið til liðs við sig leikhús Frú
Emilíu við flutninginn og ég veit
að þessir frábæru listamenn okkar
munu hylla skáldið með eftirminni-
legum hætti.“
Þriðji viðburðurinn á Listahátíð
á laugardag var opnun sýningarinn-
ar 2000 ára litadýrð, frá Jórdaníu
og Palestínu, en daginn eftir voru
4 sýningar formlega opnaðar. A
Kjarvalsstöðum var opnuð sýning á
verkum Míros og Kjarvals, I Lista-
safni Siguijóns Ólafssonar hófst
sýning á æskuverkum Sigurjóns
Olafssonar, í Nýlistasafninu sýning
á verkum frönsku myndlistarmann-
anna Veijux og Perrodin og í Lista-
safni íslands sýning á umhverfis-
verkum Daniel Buren. Opnuð var
sýning á íslenskri nútímahögg-
myndalist í Kringlunni á vegum
Kjarvalsstaða á mánudag.
- segir Daniel
Buren
GÓÐ HUGMYND getur komið á
tveimur sekúndum og á hinn
bóginn getur útkoman eftir
tveggja ára ígrundun allt eins
verið slæm,“ sagði Daniel Buren
í samtali við Morgunblaðið. Bur-
en kvaðst vinna út frá umhverf-
inu, og eru það helst byggingar
og bæjarmyndin sem hann legg-
ur til grunns verka sinna. „Göm-
ul hús, litadýrð þeirra og næst-
um naív hönnun, vakti strax at-
hygli mína hér í Reykjavík,"
sagði Buren. „Það er næstum
eins og þau hafi verið dreymd
upp, frekar en nokkuð annað,
og síðan máluð af börnum."
Franski listamaðurinn Daniel
Buren er einn eftirsóttasti lista-
maður Frakka. Hér á landi setti
hann upp útilistaverk við Gallerí
11 á Skólavörðustíg og við Lista-
safn íslands. Frá því að Buren kom
fram á sjónarsviðið um og eftir
1968 hefur hann verið þekktur
fyrir róttækni, en hann neitar öllu
slíku. „Það var aldrei ætlun mín
að vera róttækur og ég veit ekki
hvort ég er það yfir höfuð. En
hafi ég verið það hlýt ég að vera
það ennþá, því ég hef ekki breyst.
Aftur á móti hefur umhverfið gert
það, og þar sem ég vinn út frá því
má gera ráð fyrir að verk mín
hafi líka breyst,“ sagði listamaður-
inn.
Buren sagði að hugmyndin um
að vinna með framhlið hússins þar
sem Gallerí 11 er til húsa hafi
komið mjög fljótt, en Listasafnið
hafi reynst honum erfiðara. Buren
vinnur mikið með lóðréttar línur,
sem ætíð eru 8,7 sentímetrar að
breidd. Ætlunin með því mun vera
að leggja áherslu á mikilvægi sam-
hengis og framhalds. Verk hans
nefnast í sameiningu Staðsetn-
ing/framsetning/tilfærsla — stað-
bundin verk, og stendur sýning
þeirra til 25. júní.
Sýnishorn af íslenskri högg-
myndalist er í Kringlunni.
dag. Hann sagði að það væri vel
við hæfi að fyrsta atriði Listahátíð-
ar væri haldið til heiðurs Nóbels-
skáldinu Halldóri Laxness í tilefni