Morgunblaðið - 02.06.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ VtÐSKOTlAOVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
33
Stjórnun
Atferlisákvörðunarfræði
Leið til markvissari ákvörðunartöku
eftir Marinó G.
Njálsson
Flestir, ef ekki allir, hafa ein-
hvern tímann staðið frammi fyrir
því að taka ákvörðun þar sem
framtíðin er óþekkt og fram-
kvæmdin óafturkallanleg. í mörg-
um tilfellum er hægt að beita ein-
faldri rökhyggju til að taka skyn-
samlegustu ákvörðunina. í öðrum
tilfellum getur ákvörðunin verið
svo flókin vegna fjölda óvissuþátta,
að margþætt reiknilíkön eru nauð-
synleg til að finna „bestu“ lausn
og þrátt fyrir allt það hugvit, sem
lagt er í ákvörðunina, getur útkom-
an verið slæm.
Stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana telja almennt að sá hæfileiki
að kunna að taka ákvörðun sé
mjög mikilvægur, en fólk er að
jafnaði viðvaningar þegar kemur
að því að taka rétta ákvörðun.
Það að vera góður ákvörðunar-
taki er eins og að vera góður
íþróttamaður. Maður þarf hæfi-
leika og góða leiðsögn. Góður
íþróttaþjálfari getur náð mjög
langt með hæfileikaríka íþrótta-
menn og raunar líka okkur hin. Á
sama hátt er ljóst að sá, sem hefur
hlotið leiðsögn í betri og skipulagð-
ari ákvarðanatöku, tekur að jafn-
aði betri ákvarðanir. (Varast ber
að rugla saman góðri ákvörðun og
góðri útkomu. Góð ákvörðun getur
leitt til slæmrar útkomu, ef utanað-
komandi óvissuþættir rætast
ákvörðunartakanum í óhag. Og
öfugt.)
Skipulögð kennsla í kerfisbund-
inni ákvörðunartöku hefur verið
af skornum skammti og raunar eru
flestir sjálfmenntaðir. Það er sann-
færing mín, að hver sá, sem hefur
komist í kynni við slíka skipulagða
kennslu, mun aldrei aftur nota
gömlu aðferðirnar. Á sama hátt
mun sá, sem einu sinni hefur notið
leiðsagnar góðs íþróttaþjálfara,
alltaf njóta góðs af þeirri tilsögn.
Þjálfarinn mun leiðrétta þær villur,
sem íþróttamaðurinn gerir, og
kenna honum hvernig betra er að
bera sig að til að ná árangri.
Þeir sem rannsakað hafa
ákvörðunarferli einstaklinga hafa
tekið eftir því að ákvörðunartakar
gera sig margir seka um svipaðar
vitleysur. T.d. á fólk það til að
skilgreina vandamál sitt á þann
veg að litið er framhjá besta kost-
inum. Eða það lætur hjá líða að
safna nógum upplýsingum vegna
þess að það treystir um of á eigin
dómgreind. Líkt og íþróttaþjálfarar
nota þróaðar aðferðir til að venja
íþróttamenn af vitleysum sínum,
eru ákvörðunarfræðingar smátt og
smátt að þróa sínar aðferðir til að
venja sjálfmenntaða ákvörðunar-
taka af sínum vitleysum.
Þetta er nýjung. Hingað til hafa
flestir ákvörðunarfræðingar ein-
beitt sér meira að því að hvernig
ætti að taka ákvörðun. Þeir hafa
búið til reiknilíkön, sem mælt er
með að fólk noti, en jafnan komist
að því að raunveruleikanum verður
ekki lýst fullkomlega með slíku
líkani.
Aðrir hafa einbeitt sér að því
að skoða hvernig góðir ákvörðun-
artakar vinna og hvernig aðrir
geta lært af þeim. Þessi hluti er
kenndur við „atferlisákvörðunar-
fræði“ („behavioral decision mak-
ing“) vegna þess að þar er horft
á atferlið sjálft, en ekki svo mjög
aðferðina. Atferlisákvörðunar-
fræði fellur undir nýjan hugsunar-
hátt í stjórnun, sem kenndur hefur
verið við „hugræn sjónarmið" (á
ensku Cognitive Perspective) og
hefur verið talað um að verði ein-
kennandi fyrir stjómunaraðferðir
þessa áratugar. Atferlisákvörðun-
arfræði á upptök sín í nokkrum
háskólum í Bandaríkjunum (þeirra
á meðal eru Cornell háskóli,
Chicago háskóli og Stanford há-
skóli) og er sambland af nokkrum
ólíkum greinum, m.a. sálfræði,
tölvunarfræði og viðskiptafræði,
sem blandað hefur verið saman til
að ná betri árangri.
10 hindranir á leiðinni
til markvissari
ákvörðunartöku
Rannsóknir á ákvörðunarferli
einstaklinga hafa leitt í ljós, að
fólk í ólíkum þjóðfélagshópum
virðist gera sig sekt um sömu mis-
tökin við ákvörðunartökuna. Þann-
ig að það skiptir ekki máli hvers
konar vandamál er verið að fást
við, öllum ættu að nýtast það inn-
sæi sem fáeinir ákvörðunarfræð-
ingar hafa þróað til að koma í veg
fýrir að sömu mistökin endurtaki
sig ítrekað. Algengustu villurnar
eru:
- menn steypa sér út í ákvörðun-
ina,
- vandamálið er vitlaust afmark-
að,
- aðeins er litið á eina hlið,
- of mikil trú á eigin vitneskju,
- skammsýni,
- óyfirvegaðar ákvarðanir,
- hópvilla,
- eldri niðurstöður hunsaðar eða
misskildar,
- ekki er haldið utan um upplýs-
ingar,
- vantar að fara yfir ákvörðunar-
ferlið.
Þegar taka þarf einfalda ákvörð-
un, t.d. hvort svara eigi síma, er
líklegast engin þörf á því að hugsa
um þessar gildrur. Margir eru of
mikið í símanum og þurfa að læra
fáeinar þumalputtareglur, sem
gefa þeim meira næði. Ákvörðun-
argildrurnar hér að ofan koma þar
að litlu gagni.
í mikilvægum ákvörðunum geta
gildrurnar valdið tjóni. Til dæmis
þegar verið er að hugleiða nýtt
starf, getur hver gildra um sig
valdið óbætanlegu tjóni. Mjög
margir líða fyrir það að afmarka
Auglýsing um samruna
Lífeyrissjóðs byggingamanna og
LfleyrissjMs málm- og skipasmiða
og stofnun nýs Iffeyrissjóðs;
Sameinaöa lífeyrissjóösins
kt. 620492-2809.
Hér meó tilkynnist öllum þeim, er telja til eignar eóa skuldar hjá Lífeyr-
issjóói byggingamanna og Lífeyrissjóói málm- og skipasmiða, að með
reglugerð, sem samþykkt var á stofnfundi Sameinaða lífeyrissjóðsins
hinn 27. maí 1992 og, sem fjármálaráðuneytið hefur staófest í sam-
ræmi við 2. gr. laga nr. 55/1980, hefur Sameinaói lífeyrissjóðurinn,
Suðurlandsbraut 30, Reykjavík, tekið við allri starfsemi þessara lífeyris-
sjóóa og réttindum þeirra og skyldum frá og meó 1. júní 1992 og frá
sama tíma tekur hann við öllum eignum og skuldum sjóðanna.
Reykjavik, 27. mai 1992.
Stjórn Sameinaóa lifeyrissjóósins.
Benedikt Daviósson
Gunnar S. Björnsson
Guómundur Hilmarsson
Hallgrimur Gunnarsson
vandamálið vitlaust, þannig að
þeir vita ekki almennilega að
hvetju þeir eru að leita; flestir líða
fyrir of mikla trú á eigin vitneskju
varðandi það hvaða störf eru á
lausu; margir steypa sér út í og
taka fyrsta starfi, sem býðst, án
þess að hugsa nánar um þá ákvörð-
un og hvernig hún var tekin.
Fólki verður á þessi mistök
vegna þess að það er í tilfmninga-
legu ójafnvægi þegar það er í at-
vinnuleit. Góðir íþróttamenn lenda
líka oft í taugastrekkjandi aðstöðu
og þeir bestu hafa þjálfað sig upp
í það að verða nógu góðir til að
þola álagið.
Atferlisákvörðunarfræði getur
kennt fólki að bregðast rétt við
þegar hindranir eru veginum. Með
æfingunni lærir maður ekki bara
reglumar um það hvernig hægt
er að taka frábærar ákvarðanir,
heldur verður ferlið hluti af manni.
Vel þjálfuðum ákvörðunartaka
verða stundum á mistök, alveg eins
og frábær íþróttamaður getur
klúðrað mikilvægum leik. En lík-
urnar á að árangurinn verði að
jafnaði góður eru meiri, ef maður
tileinkar sér gott ákvörðunarferli
og notar það!
Höfundur er mci) vcrkfræðigrádu
í adgerðarannsóknum frá Stan-
ford-háskóla.
KÚPLINGS -LEGUR
—DISKAR, -PRESSUR,
SVINGHJÓLSLEGUR
^5i^^B0RGARTÚNI 26
SÍMI 62 22 62
SANDPAPPIR
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 -REYKJAVfK- SlMI 687222 -TELEFAX 687296
KREM KREMANNA FRA
JEAN D'AVÉZE
Jouvence kremió, best selda kremió hjó
Jean d’Aveze, er orAiA
30 ára gamalt og sýnir
allsengin
aldurseinkennf.
O Mjög virkformúla inniheldurjurtaefnið Perretol, sem stuðlarað
jafnvægi, eykur endurnýjun frumanna og dregur úr ellimörkum ásamt
öðrum húðgöllum og lýtum eins og örum. Krem sem konur vilja í dag.
O Notist sem næturkrem og/eða dagkrem ef húðin er mjög þurr,
hefurgræðandi og róandi áhrif.
O Jouvence kremið hentar öllum húðtegundum og öllum aldurshóp-
um. Öumdeilanlegur sigurvegari, sem mun áfram láta til sín taka.
Jouvence línan er einföld og Inniheldur allt sem þú þarft
fyrlr virka húðmeöferö. Fyrlr utan Jouvence kremið er boð-
Ið upp ð: Mjög milda hreinsimjólk, andlitsvatn með og án
alkóhóls,
þunnfljótandl rakakrem, verndandl dagkrem og sórkrem
elns og hálskrem og andlitsmaska.
Útsölustaðir:
Reykjavík og nágrennl:
Andorra, Arsól, Bylgjan, Evlta, Snyrtistofan Jóna, Mikligarður v/Holtaveg, Slgurbog-
inn, Snyrtivöruverslunín Glæsibæ, Top Class.
Landsbyggðin:
Apótek Ólafsvikur, BJarg, Akranesl, Grindavikurapótek, Lyfsalan Vopnafiröi, Stykkis-
hólmsapótek, Smart, Keflavík, Vörusalan, Akureyri.
M 191292