Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
SOLIGNUM
olfuviðarvörn
að þínu sumarslcapi!
Solignum Architectural fæst nú í
14 litum - einn þeirra er örugglega
að þínu sumarskapi.
Einnig bjóðum við Solignum grunnefni
og gróðurhúsaefni.
Fæst í flestum mólningarvörubúðum.
SKAGFJ0RÐ
I il J ií ö.A- 'fú'jnf’fj} J.JJ
Kristjón Ó. Skogfjörð hf. Umboðs- og heildverslun
SUMARFATNAÐUR FRÁ
DRAGTIR - STAKIR JAKKAR - BLÚSSUR
PILS - BUXUR, STUTTAR OG SÍÐAR.
GLÆSILEGT ÚRVAL AF SILKIFATNAÐI
SILKIKJÓLAR - DRAGTIR - JAKKAR - BUXUR OG PILS.
-jt&Bett/ui____________________1
LAUGAVEGI 84, SÍMI 10756
Fylki skulu þau heita
Svarað fullyrðingum um ríki í Bandaríkjunum
eftirJón Asgeir
Sigurðsson
Góðgjarnir menn hafa sett út á
orðaval mitt, þegar ég segi frá
stjómarumdæmum Bandaríkjanna.
Þeir vilja kalla þau ríki og krefjast
þess að ég láti af þeim ósið að kalla
þau fylki. Ég ásaka þá ekki um
ofríki, borga ekki í sömu mynt og
banna þeim því ekki að tala um ríki
í Bandaríkjunum. Mín vegna má
nota hvort sem er fylki eða ríki.
Aftur á móti læt ég ekki segjast
vegna þess að röksemdirnar á móti
eru lélegar og mínar röksemdir mun
betri.
Björn S. Stefánsson skrifar þætt-
inum „íslenskt mál“ í umsjón Gísla
Jónssonar og byrjar á kjánalegum
útúrsnúningi: Fréttamaður Út-
varpsins vestra talar oft um fylki
Bandaríkjanna, hvers vegna talar
hann þá ekki líka um Bandafylkin?
Ég sný út úr á móti: Hvers vegna
talaði Bjöm ekki um Gorbatsjov
forseta Sovétlýðveldanna, úr því að
hann taldi Sovétríkin samanstanda
af lýðveldum?
Upprunakenning
Næst reynir Bjöm efnislega rök-
semd, hann leitar upprunans. Ef
sjálfstæð ríki stofni með sér sam-
bandsríki og afsali sér fullveldi að
hluta, þá séu þau áfram ríki. Þess
vegna séu ríki í Bandaríkjunum.
Sé ríki hins vegar hlutað í sundur
í stjórnammdæmi, þá sé rétt að
kalla þau fylki. Þess vegna séu fylki
í Noregi. (Og Víkveiji beitir 7.
mars sömu röksemdafærslu til þess
að sanna að í Kanada séu fylki, en
ekki Bandaríkjunum.)
Jafnvel þótt tvö rííci hefðu sams
konar stjómkerfí í dag (50 um-
dæmi, þing, stjórnir, o.s.frv.), ylti
samkvæmt þessari kenningu allt á
því hvemig til þeirra var stofnað.
En hvemig hefðu þeir Björn og
Víkveiji svarað mönnum hér í
Bandaríkjunum fyrir tveimur öld-
um, þegar þeir fundu nýrri stjórnar-
skrá það helst til foráttu, að með
henni væri komið á öflugri mið-
stjóm. Það væri ekki myndað sam-
band sjálfstæðra ríkja, heldur þjóð-
ríki sem byggðist á sammna aðild-
arríkjanna? Vissulega stofnsettu
sjálfstæði ríki Bandaríkin, en at-
hafnir valdstjómar í Washington
lúta ekki fyrst og fremst að þessum
50 fylkjum/ríkjum. Flestar athafnir
stjómvalda í Washington beinast
að lögpersónum, einstaklingum,
þegnum Bandaríkjanna, vegna þess
að hér er um að ræða þjóðríki með
stjórnaramdæmi — fylki — sem era
ekki sjálfstæð.
Einkunnir
Björn Stefánsson gerir sér grein
fyrir því hversu takmarkað sjálf-
ræði bandarískra fylkja er. En samt
telur hann „rétt að tala um ríkið
Tennessee í suðurríkjum Bandaríkj-
anna, meðan stjórnvöld í Tennessee
kalli svo, hversu þröngt sem þau
kunni að starfa undir alríkisstjóm-
inni í Washington". Forsendan, seg-
ir Björn, er sú að „í þessu efni tel
ég rétt að nota þá einkunn sem
viðkomandi velur sér“.
Ég leyfí mér að efast um að
þarna segi Björn það sem hann
meinar, og líklega meinar hann
ekki heldur það sem hann segir.
Hugsum okkur til dæmis að Rauðu
khmeramir í Kampútseu segist
hafa „unnið þarfaverk og gert land-
hreinsun" með því að drepa tvær
milljónir landsmanna sinna. Við
Bjöm mundum ekki éta þetta at-
hugasemdalaust upp eftir khmeran-
um, það er að segja „nota þá ein-
kunn sem viðkomandi velur sér“.
Við mundum gaumgæfa málið sjálf-
stætt og nota síðan orð sem færa
nær sannleikanum. Líkast til mein-
ar Björn það formlega nafn sem
viðkomandi velur sér, en það er
ekki einfalt mál heldur.
Sú deild úr fjármálaráðuneyti
Bandaríkjanna sem starfrækir líf-
varðarsveitir fyrir Bandaríkjafor-
seta, heitir Secret Service. Rétt
þýðing væri „leyniþjónustan", en
það heiti er notað um aðra stofnun,
sem ber á ensku upphafsstafína
CIA. Hún heitir á ensku Central
Intelligence Agency, en í samræmi
við merkinguna mætti kalla hana
Njósnastofnun Bandaríkjanna.
Bjöm vill eflaust ekki breyta
þessum nafngiftum, vegna þess að
þegar þýðing á nafni nær festu, er
varla von til þess að breyta henni.
En þegar vísa skal til tiltekins hlut-
ar eða atburðar, þá notum við ýmis
nafnorð (til dæmis ríki eða fylki)
ekki bara það eitt sem sumir telja
löggilt.
Sjálfstæðisstig
Víkveiji segir: „Bandaríkin era
ríkjabandalag sjálfstæðra ríkja,
sem hvert um sig hefur eigið þing
og lög og reglur sem era mismun-
andi... Fylkin sem svo eru nefnd
eru í nágrannaríkinu fyrir norðan,
sem heitir Kanada."
Hvemig útskýrir Víkveiji, að svo
gæti farið að Quebec-fylki segi sig
úr lögum við sambandsríkið
Kanada? Ef sjálfstæðisstig stjórnar-
umdæma þjóðríkis ræður því, hvort
tala skuli um fylki eða ríki, þá ætti
samkvæmt röksemdafærslu Vík-
veija fremur að tala um ríki í
Kanada en í Bandaríkjunum.
Stjómskipun Bandaríkjanna
byggir eins og hjá öðrum lýðfijáls-
um þjóðum á þrískiptingu stjórn-
valds í löggjafarvald, framkvæmda-
vald og dómsvald. í bandarísku
stjórnarskránni segir í VI. grein:
„Stjórnarskrá þessi, og lög Banda-
ríkjanna sett í samræmi við hana;
svo og allir milliríkjasamningar,
sem bandarísk stjórnvöld hafa gert
eða gera framvegis, eru æðstu rétt-
arheimildir þjóðfélagsins; og skulu
dómendur allra fylkja bundnir af
þeim, jafnvel þótt þau gangi þvert
á ákvæði í stjórnarskrám eða lögum
einstakra fylkja."
Lög og gerðir bandarískra fylkja
víkja sem sagt fyrir ákvörðunum
ríkisvalds þjóðríkisins, sem var
stofnsett með samrana aðildarríkj-
anna. Auk þess er fylkjum sam-
kvæmt stjómarskrá bannað að gera
milliríkjasamninga, gefa út pen-
inga, leggja tolla á vöraviðskipti,
stofna her, og fleira. Á hinn bóginn
hafa fylkin „heimastjórn" í ýmsum
málum, íbúar þeirra kjósa sér fylk-
isþing, fylkisstjóra og svo framveg-
is.
Skýrt og skiljanlegt
Lengi vel hafa menn burðast við
að nota orðið „ríki“ bæði um heild-
ina og einstök stjórnarumdæmi
Bandaríkjanna. Það ærir óstöðugan
að nota í tíma og ótíma tvöfalda
merkingu orðsins „ríki“ eins og
þetta klúður úr orðabók Menningar-
sjóðs sannar: alríki, allt ríkið (notað
um sambandsríki, samsett af smá-
ríkjum), ríkisstjóri, þjóðhöfðingi
sambandsríkis (t.d. í Bandaríkjun-
um).
Hér hefur „sambandsríki" tvenns
konar gagnstæða merkingu, í fyrra
tilfellinu er átt við heildina, þjóðrík-
ið, en í því síðara um tiltekna ein-
ingu, t.d. bandarískt fylki. „Alríki“
var að mínu viti klambrað saman
vegna þess að mönnum reyndist
erfitt að útskýra atburði í Banda-
ríkjunum, þegar „ríkið“ hafði tvö-
falda merkingu. Fleygjum „alríki"
út í ystu myrkur. I stað þess að
þýða Federal Bureau of Investigat-
ion með „alríkislögreglan FBI“,
tölum við um rannsóknarlögreglu
Bandaríkjanna. Það skilja allir.
Ríki á ríki ofan
„Ríkisvaldið er bundið við ákveð-
ið landsvæði og ákveðið þjóðfélag.
Islensk réttarskipun miðast því við
tiltekið land og tiltekna þjóð, ís-
lenska ríkisborgara." (Úr Lögum
Nokkrar línur til
Davíðs Stefánssonar
eftir Þóri Karl
Jónasson
Davíð Stefánsson formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna
skrifaði grein í Morgunblaðið 16.
maí síðastliðinn. Hét hún Ríkis-
rekstur settur á safn. í greininni
fagnar Davíð endalokum Ríkis-
skipa, og bendir á hvað ríkið hafí
tapað miklum fjármunum við rekst-
ur þess ágæta fyrirtækis.
Orðrétt segir í grein Davíðs:
„Hinn 30. apríl gerðist merkur
áfangi í einkavæðingaáformum rík-
isstjómarinnar. Ríkisskip, eða það
litla sem eftir var af fyrirtækinu,
vora þá sett á sögulegt safn. Þjóð-
minjaverði vora þá afhent með
formlegum hætti ýmis gögn og
munir, sem tilheyrðu fyrrum skipa-
félagi ríkisins, sem lagt hafði verið
niður af því að rekstur þess var
orðin hrein tímaskekkja."
Forystumenn Sjálfstæðisflokks-
„Ef núverandi ríkis-
stjórn situr út kjörtíma-
bil sitt er vá fyrir dyr-
um. Hættan er sú að
það verði búið að einka-
væða bæði skólana og
sjúkrahúsin.“
ins hafa alltaf litið hýra auga til
Ríkisskipa og vijjað afhenda það
Eimskipafélagi íslands. En sem
betur fór mistókst þeim það.
Þegar greinar eins og grein Dav-
íðs Stefánssonar birtast á prenti á
maður erfitt með að draga ekki
fram pennann. Ég vil benda Davíð
Stefánssyni á nokkrar staðreyndir.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið í ríkisstjórn hefur hann dælt
fjármagni inn í illa stödd einkafyrir-
tæki úr sjóðum ríkisins. Sá einka-
rekstur sem sjálfstæðismenn vilja
er ekki raunverulegur einkarekstur,
heldur vilja þeir ná fram einokun.
Það er óhætt að fullyrða að Ríkis-
skip var ekki venjulegt fyrirtæki,
heldur var það fyrst og fremst þjón-
ustufyrirtæki við landsbyggðina.
Það forréttindakerfi sem Sjálfstæð-
isflokkurinn vill viðhalda, er að af-
henda forréttindaklíkunni í Sjálf-
stæðisflokknum öll arðbær ríkisfyr-
irtæki. Og þeir sem era á annarri
skoðun era kallaðir kommúnistar,
og er ég tilbúinn að vera í þeirra
hópi.
Sá áróður sem Sjálfstæðisflokk-
urinn er með gagnvart ríkisfyrir-
•tækjum er vægast sagt ósanngjarn,
það er aldrei minnst á allt það fólk
sem vinnur hjá þessum fyrirtækj-
um, samanborið Ríkisskip. Margt
af því fólki sem starfaði þar hafði
unnið þar áratugum saman, þetta
sama fólk á fjölskyldur, sem þurfa
að lifa. En það kemur okkur ekkert
við, segja sjálfstæðismenn, því sam-
kvæmt þeirra kenningum er nauð-
synlegt að hafa atvinnuleysi, og
nota það sem hagstjórnartæki. Það
kerfí sem Sjálfstæðisflokkurinn er
að reyna að innleiða í íslenskt sam-
félag er alls staðar að hrynja, bæði
í Bandaríkjunum og Bretlandi, og
era þau samfélög að rotna inn-
anfrá, vegna spillingar og sukks.