Morgunblaðið - 02.06.1992, Page 41
Jón Ásgeir Sigurðsson
„Við notum orðið ríki
til að tákna þjóð sem
býr á ákveðnu land-
svæði með tiltekin al-
þjóðlega viðurkennd
landamæri og mótaða
réttar- og sljórnskip-
un.“
og rétti eftir Ólaf Jóhannesson.)
Með öðrum orðum: Við notum
orðið ríki til að tákna þjóð sem býr
á ákveðnu landsvæði með tiltekin
alþjóðlega viðurkennd landamæri
og mótaða réttar- og stjórnskipun.
Ríkið hefur öðlast sjálfstæði gagn-
vart öðrum ríkjum heims og þegnar
hafa þar ríkisfang, það er að segja
ríkisborgararétt.
Sum ríki skiptast í umdæmi með
takmörkuðu sjálfræði, þeirra á með-
al Sovétríkin fyrrverandi, Bandarík-
in, Þýskaland og Kanada. Að mínu
mati er mun auðveldara að tala um
fylki innan einhvers ríkis, hvort sem
það heitir Bandaríkin, Þýskaland
eða annað. Hugsum okkur það klúð-
ur, að tala um „ríkisstjóra Kaliforn-
íu, sem er ríki í Bandaríkjunum, sem
undirbúa nýtt ríkjasamband með
Kanada og Mexíkó", ríki í ríki með
ríkjum ...
Ástæða þess að ég tala um fylki
en ekki ríki í Bandaríkjunum er
einfaldlega sú, að með þeim hætti
er mál mitt auðskilið.
Höfundur er fréttaritari
Ríkisútvarps í Bandaríkjunum.
Aths. ritstj.: Það skal tekið fram,
að grein þessi hefur beðið birt-
ingar um skeið vegna mikilla
þrengsla í blaðinu.
En það er ekki nóg með það að
Sjálfstæðisflokkurinn vilji selja öll
ríkisfyrirtæki, heldur vilja þeir kné-
setja starfsemi verkalýðsfélaga.
Það böl sem núverandi ríkisstjórn
er að hella yfir okkur er stórhættu-
legt okkar litla samfélagi. Ég lít á
það sem mannréttindi að hver ein-
staklingur hafi atvinnu og eigi þak
yfir höfuðið. En það frnnst þeim
félögum í Sambandi ungra sjálf-
stæðismanna ekki vera. Stuttbuxn-
aliðið í Sjálfstæðisflokknum vill
byggja upp forréttindakerfi þeirra
sem eiga fjármagnið. Það kerfi tek-
ur ekki tillit til þeirra sem þurfa á
einhverri samfélagslegri hjálp að
halda, því kjörorð þeirra er að hver
er sér næstur.
Ef núverandi ríkisstjórn situr út
kjörtímabil sitt er vá fyrir dyrum.
Hættan er sú að það verði búið að
einkavæða bæði skólana og sjúkra-
húsin. Og þá hefur venjulegt al-
þýðufólk eins og ég ekki efni á að
njóta slíkrar þjónustu. Allt félags-
hyggjufólk verður að sameinast um
að koma þessari ríkisstjórn frá sem
fyrst, ríkisstjórn forréttindahóp-
anna.
/
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
41
Vormót Hraunbúa
52. VORMÓT Hraunbúa verður
haldið í Krýsuvík um hvítasunnu-
helgina 5.-8. júní nk. Það er
Skátafélagið Hraunbúar í Hafnar-
firði sem hefur veg og vanda að
mótinu en árleg Vormót
Hraunbúa eru þegar orðinn fastur
liður' í sumarkomu skátanna.
Kjörorð mótsins eru tvö að þessp
sinni. Annars vegar: Ungir í anda
og hins vegar: Verndum landið. I því
fyrmefnda er höfðað til þess að í ár
heldur Bandalag íslenskra skáta upp
á 80 ára afmæli sitt og Hraunbúar
í Hafnarfirði eru 67 ára. Á þessum
tímamótum eru skátar hvattir til að
hugsa til baka og kynna sér eitt og
annað frá fyrri tíð. í flokkakeppni
sem verið hefur í gangi í vetur og
lýkur á mótinu sjálfu, hafa skátar
unnið að verkefnum sem tengjast
eldri kynslóðinni og fyrri tíð. Hafa
þeir farið í heimsóknir til eldra fólks,
tekið viðtöl við það og kynnt sér líf
þess og störf. Eitt verkefnið var að
finna 60-70 ára gamla matarupp-
skrift og matreiða hana. Einn móts-
dagurinn verður sérstaklega helgað-
ur eldri borgurum og þeim boðið í
heimsókn. Þar gefst þeim m.a. kost-
ur á að gæða sér á þesum gömlu
réttum og dæma um hvernig til hef-
ur tekist hjá skátunum.
Með kjörorðinu Ungir í anda vilja
Hraunbúar segja, að árafjöldi segi
ekki alla söguna. Þótt árin séu orðin
80 hjá skátahreyfmgunni á íslandi
er hún ung í anda og tilbúin að tak-
ast á fullum krafti á við þau verk-
efni sem framundan eru. Eitt þeirra
er að hlúa betur að landinu okkar,
kunna að meta gæði þess og læra
að ganga um það með virðingu og
varkárni. Þess vegna kjörorðið
Vemdum landið.
Það er mikill hugur í skátum fyrir
Vormótið og vænst er þátttöku skáta
alls staðar að af landinu. Það verða
ijölskyldubúðir að venju og eru eldri
skátar, aðstandendur og velunnarar
hvattir til að mæta og eyða skemmti-
legri helgi í fallegu umhverfi og góð-
um félagsskap í Krýsuvík. Nánari
upplýsingar á skrifstofu Hraunbúa í
Hafnarfírði.
(Fréttatilkynning)
------».---------
Ráðstefna um
grunnskóla
í strjábýli
RÁÐSTEFNAN Grunnskóli í
stijábýli verður haldin á Hótel
Borgarnesi föstudaginn 5. júní nk.
og hefst kl. 10. Ólafur G. Einars-
son menntamálaráðherra flytur
ávarp við setninguna.
Fræðslustjórar Reykjanesum-
dæmis, Vesturlandsumdæmis, Vest-
fjarðaumdæmis, Norðurlandsum-
dæmis vestra og eystra, Austfjarð-
aumdæmis og Suðurlandsumdæmis
boða til ráðstefnunnar. Ráðstefnu-
stjórar eru Guðmundur Magnússon
fræðslustjóri og Pétur Bjamason
fræðslustjóri.
Viðfangsefni ráðstefnunnar eru
viðbrögð við hugsanlegum flutningi
gmnnskólans til sveitarfélaga. Fjall-
að verður um ýmsar forsendur hans,
hveijar yrðu helstu breytingarnar og
hvaða undirbúningur þarf að eiga sér
stað ef til kastanna kemur. Auk þess
verður drepið á fjölmörg atriði sem
nauðsynlegt er að átta sig á, segir
í fréttatilkynningu.
Til ráðstefnunnar er boðið: Mennt-
amálaráðherra, ijármálaráðherra,
félagsmálaráðherra, fulltrúum sveit-
arfélaga og fræðsluráða, fulltrúum
kennarasamtaka, formanni nefndar
um endurskoðun laga um gmnnskóla
auk þeim fulltrúum sem ofangreind
ráðuneyti kjósa að senda.
• Sérsmíöum glugga eftir þínum óskum.
• Gerum föst verðtilboð í alla smíði.
• Yfirborðsmeðhöndlun - 400 litir.
• Góðir greiðsluskilmálar.
• Smíöum einnig sólstofur.
Áratuga reynsla í glugga- og hurðasmíöi.
við Reykjanesbraut í Hafnarfirði - Símar 54444 og 654444
Vatnsklæðning kúpt 145 Im 130 Im
Pallaefni 28x95 160 Im 144 Im
Helluborð f. sumarb. 9.283 7.612
Stálvaskur 5.983 4.958
Þakrenna 80mm/4m 1.432 1.217
Álstigi 3 Way 7.533 6.135
▲ Þakvari 4 I 2.691 2.260
A Bútsög B & D 23.961 19.823
▲ Fúavarnarkústur 225 182
A Garðhanskar 6 stk. 476 3 95
A Heyhrífa l .355 1.095
A Þrýstikútur 2 gall. 3.384 2.781
■ f r
Ú
Ú
0
Ú
p
Ú
0
VERSLANIR
SKIPTIBORÐ 41000
GRÆNT NUMER
996 410
HAFNARFIRÐI
_______
BYKO B R EID DIN NI
S. 5 44 11
S . 6 4 19 19
HRINGBRAUT
QDODCC
S . 6 2 9 4 0 0
>ac>aDaQaQC]DaQaQ4
ú
0
p
ú
p
Höfundur er Dagsbrúnarmaður.