Morgunblaðið - 02.06.1992, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
53*
Verkmenntun í iðnaði
Frá Atlíi Hraunfjörð:
Að undanförnu hefur farið fram
umræða um verkmenntun í blöð-
um og hafa margir, leikir sem
lærðir, tjáð sig um málið.
Öll umræða er af hinu góða og
öll á hún það sammerkt að greinar-
höfundar eru sammála um þörfina
á bættri kennslu í verkmenntun.
Að sjálfsögðu lítur hver sínum
augum á silfrið og menn sjá mis-
munandi leiðir að markinu. Verk-
mennt snertir alla þjóðfélags-
þegna, hvar í heimi sem þeir búa.
OECD setti á fót nefnd, þar sem
sérstaklega var tekin fyrir staða
verkmenntunar í hinum vestræna
heimi. Þar kom margt athyglisvert
fram, t.d. að árið 2000 munu um
80% af því fólki, er nú starfar,
starfa enn. Að menntun og hæfni
einstaklingsins ráði velgengni fyr-
Pennavinir
21 ÁRS GÖMUL japönsk stúlka í
menntaskóla vill eignast pennavini
á íslandi. Áhugamál hennar eru
ferðalög, tennis og saumaskapur.
Heimilisfang hennar er:
Naoko Arimura
2-18, 1-401, Venosaka, Toyon-
aka-shi
Osaka 560, Japan
Franskur 28 ára karlmaður með
áhuga á íþróttum, ferðalögum, tón-
list og bréfaskriftum:
Olivier Pain,
Parc J. Duclos,
Appartement 11,
F-60590 Serifontaine.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og bréfaskriftum:
Keiko Moroga,
241-3 Asai Wakasa-cho,
Yazu-gun,
Tottori-ken,
680-07 Japan.
Kanadískur frímerkjasafnari sem
skrifar á frönsku eða ensku:
Cecile Besner,
8991 D’Iberville Rue,
Montreal,
Quebec HlZ 2R2,
Canada.
Sautján ára þýskur piltur með
áhuga á tónlist, sundi, körfuknatt-
leik o.fl. Uppáhaldshljómsveitirnar
eru Roxette, Genesis, Dire Straits:
Marcel Felbor,
Wittenerstrasse 200,
4630 Bochum 1,
Germany.
irtækja. Að starfsskilyrði starfs-
mannsins séu þannig, að honum
líði vel og hafi allt í senn, sjálfs-
traust, að hann ráði við verkefnið
og hann njóti þess að starfa. Það
að vinnustaðurinn sé eins og lítið
heimili þar sem fullkomið traust
er á milli manna, jafnt yfirmanna
og þeirra er verkin vinna. Þessi
skýrsla er stórfróðleg lesning og
er í sjálfu sér efni í aðra grein. I
febrúar á síðasta ári var haldin í
Rúgbrauðsgerðinni ráðstefna um
stöðu verkmenntunar í verk-
menntaskólum víða um land, svo
og í Iðnskólanum í Reykjavík. Kom
þar fram að þáttur hins opinbera
í útbúnaði þessara skóla er snýr
að verkmenntun er svo lítill að
furðu sætir. Þannig hefur -T'Se.gi
bóknáms ósjálfrátt aukist á kostn-
að verknáms. Einnig kom fram
að tækni og þróun í verklegum
greinum hafi fært störfin meira
og minna út í sérhæfni, án þess í
rauninni að starfsheiti iðngreinar-
innar hafi breyst. En kröfur um
breytt starfsnám hafa komið fram
og því er enn meiri ástæða fyrir
vel búnum verkmenntaskóla. Þá
er ekki síður mikilvægt að leið-
beinandi hafi ávallt hina bestu og
nýjustu þekkingu á sínu valdi.
Þarna kemur tvennt til, það þarf
að þjálfa vel hina nýju kynslóð og
hinir eldri eiga ávallt að geta geng-
ið að marktækri endurmenntun.
Okkur, sem lokið hafa iðnskóla-
námi og öðlast þekkingu reynsl-
unnar, ber að halda uppi merki
iðnaðarmannsins, því ekki gera
það aðrir. Við verðum að hafa í
heiðri þá siðfræði er okkur var
innprentuð af meistara okkar og
samferðamönnum öðrum. Áunnin
siðfræði er ekki kennd í skólum,
heldur fest í sessi á vinnustað.
Skilaðu ætíð góðu handverki,
stattu ávallt við orð þín, sýndu
heiðarleika svo þér verði treyst.
Ráðvendni og vandvirkni eru aðall
fagmannsins.
Með hugmyndum þeira forustu-
manna fagfélaga, sem fjarlægst
hafa hugsjónir fagmannsins,
munu kröfur fagsins þynnast út.
Afnám löggildingar iðngreina, af-
nám iðnnáms, afnám meistarkerf-
isins, eru hugmyndir er bera vott
um uppgjöf og kjarkleysi. Þeirra
sem einmitt eiga að blása í herl-
úðra og krefjast lagfæringar á því
sem miður hefur farið.
Á næsta ári má búast við að
þessi mál fari að skýrast þar sem
lagðar hafa verið fram á Alþingi
tvær þingsályktunartillögur, önn-
ur um endurskoðun iðnfræðslu,
hin um gerð iðnaðarstefnu.
Það skiptir miklu máli á hvern
hátt endurskoðun og breytingar á
lögum um iðnfræðslu fara fram.
Við verðum að læra á mistökum
okkar og annarra þjóða. Við höf-
um í dag þijár aðferðir við að út-
skrifa sveina: 1. nemi og meistari,
útskrift úr jðnskóla, 2. svokallaðir
hjálparmenn með tíu ára starfsfer-
il í faginu undir leiðsögn meistara,
þeir fá sveinsbréf eftir próftöku,
3. nemendur úr verkmenntaskóla
sem þurfa að fá viðurkenndan tíma
hjá starfandi meistara í viðkom-
andi fagi og gangast að lokum
undir sveinspróf. Eg tel að meist-
arakerfið eitt geti séð um þá end-
urnýjun og þá viðbót sem viðkom-
andi iðngreinar þurfa af sveinum.
Það er hagsmunamál fyrir iðnað-
armenn að ekki útskrifist fleiri
sveinar en talið er nauðsynlegt
hveiju sinni. Að sjálfsögðu þarf
að gera úttekt á stöðu hverrar
iðngreinar í samtímanum og á
markaðnum. Við þurfum að mæta
þeirri auknu sérhæfni sem á sér
stað á markaðnum og í nútímanum
þó að hollt sé hveijum og einum
að vita og geta margt. Ekki tel
ég nauðsynlegt að skipta iðngrein-
um upp frekar en nú er. Við eigum
að leggja alúð við ákveðin grunn-
fög og sinna þeim vel, en gefa
síðan kost á námskeiðahaldi í
tengslum við verkmenntaskóla.
Þannig að allir sem nennu og getu
hafa fái þar þekkingu og grunn-
þjálfun í hinni litríku flóru þess
fags er hann hefur valið að ævi-
starfi.
ATLI HRAUNFJÖRÐ
Kársnesbraut 82a, Kópavogi
ÚTVARP ÞJÓÐARINNAR
-
Ná þessu æðislega í fari íslendinga. Þessu
„kveikj a-í-vi ndli-með-Ronsonkveikj ara-á-
næstablússlega“„
Pétur Gunnarsson, Dýrðin á ásýnd hlutanna.
RÁS 2 NÆR ÞVÍ. NÍU-FJÖGUR í DAG.
N Áni i bví.
Upphækkanir fyrir flestar
gerðir bifreiða
Útsölustaðir:
Bílanausthf.
Flestbifreiðaumboð
Málmsteypan HELLAhf.
KAPLAHRAUNI 5 - 220 HAFNARFJOROUR - SÍMI 65 10 22
GARÐASTAL
Afgreitt eftir máli.
Allir fylgihlutir.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ, SÍMI 652000
Sálfræðistöðin
Námskeið
Sjálf sþekking - Sjálf söryggi
A námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
■bhi ianrituR oi Ránari uppijsinpf mm
VISA® í sírmun SáifræðistöðvarinRar E
■■■■ 623875 og 21118 kl. 11-12.