Morgunblaðið - 02.06.1992, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992
Námskeið Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins
REYKJAVÍKURDEILD Rauða
kross íslands gengst fyrir nám-
skeiði í skyndihjálp sem hefst
miðvikudaginn 3. júni kl. 20 og
stendur 4 kvöld. Kennsludagar
verða 3., 4., 9. og 10. júní. Nám-
skeiðið verður haldið í Armúla
34, 3. hæð (Múlabæ). Öllum 15
ára og eldri er heimil þátttaka.
Þeir sem hafa áhuga á að kom-
ast á námskeiðið geta skráð sig
í síma 688188.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu eru blástursmeðferðin,
hjartahnoð, hjálp við bruna, blæð-
ingum, beinbrotum og mörgu öðru.
Einnig verður fjallað um það hvem-
ig má koma í veg fyrir slys. Sýnd
verða myndbönd um helstu slys.
Við vitum aldrei hvenær hjálparinn-
ar verður þörf. Um þessar mundir
eru margir að fara í sumarleyfi.
Það væri e.t.v. ekki svo vitlaus
hugmynd að hluti af undirbúningi
frísins væri að fara á námskeið í
skyndihjálp.
Að námskeiðinu loknu fá nem-
endur skírteini sem hægt er að fá
metið í ýmsum framhaldsskólum.
Tekið skal fram að Reykjavíkur-
deild RKÍ útvegar leiðbeinindur til
að halda námskeið í fyrirtækjum
og hjá öðmm sem þess óska.
(Fréttatilkynning)
Tvær þotur Sólarflugs á Keflavíkurflugvelli sl. föstudag, Boeing 737
frá Atlantsflugi og Boeing 757 frá Sterling.
Metflutningar
hjá Sólarflugi
METDAGUR var hjá Flugferð-
um-Sólarflugi föstudaginn 28.
maí i leigufluginu til Kaup-
mannahafnar og London sem
starfrækt er nú annað árið í röð.
Fluttir voru 465 farþegar milli
íslands, Danmerkur og Bret-
lands með tveimur þotum Boeing
737-200 frá Atlantsflugi og Bo-
eing 757-200 frá danska flugfé-
laginu Sterling.
Mikil aðsókn er að leiguflugi
Flugferða-Sólarflugs og er flogið
tvisvar í viku bæði til London og
Kaupmannahafnar á þriðjudögum
og föstudögum. Odýrasti flugkostn-
aðurinn á þessum leiðum er 15.900
krónur til Kaupmannahafnar og
14.900 til London. Hægt er að velja
um einnar til þriggja vikna dvöl.
Sú nýjung hefur verið tekin upp
hjá Sólarflugi að gefa kost á svo-
kölluðum vinnu-flugferðum, utan á
þriðjudegi og heim aftur á föstu-
degi.
Þeir sem fljúga með leiguflugi
ferðaskrifstofunnar geta valið á
milli mjög ólíkra og íjölbreyttra
gistimöguleika erlendis og nýtt sér
20-50% samningsafslátt, bílaleigu
á hagstæðum kjörum og framhalds-
ferðir með dönskum og enskum
ferðaskrifstofum.
(Frcttatilkynning)
Brúðubíllinn frumsýnir á morgun söngleikinn „Dajrur i brúðubæ" í Hallargarðinum við Fríkirkju-
veg 11. Á myndinni má sjá þau Helgu Sigríði Harðardóttur, Helgu Steffensen og Jason Ólafsson,
starfsmenn Brúðubílsins, auk hundsins Sáms, en inni í honum leynist Sigríður Hannesdóttir.
Frumsýning' hjá Brúðu-
bílnum á morgun
BRÚÐUBÍLLINN frumsýnir á
morgun kl. 14 brúðusöngleik-
inn „Dagur í Brúðubæ" í Hall-
argarðinum hjá Fríkirkjuvegi
11. I fréttatilkynningu frá
Brúðubílnum kemur fram, að
söngleikurinn fjalli um vinátt-
una og hversu mikilvægt það
sé að sýna öllum góðvild, bæði
mönnum og dýrum.
Brúðubíllinn sýnir í sumar á
.öllum gæsluvöllum Reykjavíkur-
borgar og á nokkrum öðrum úti-
vistarsvæðum, svo sem í Árbæjar-
safni, Gerðubergi og víðar. Brúðu-
bíllinn er bamaútileikhús, sem
starfað hefur reglulega undanfar-
in 15 ár. Brúðubíllinn starfar á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur og eru sýningarnar
öllum opnar og aðgangur ókeypis.
Söngleikurinn „Dagur í
Brúðubæ" er eftir Helgu Steffen-
'sen. Hún býr einnig til brúðumar
og Ieikstýrir ásamt Þóranni
Magneu Magnúsdóttur. Vísurnar
era eftir Sigríði Hannesdóttur og
tónlistina annast Magnús Kjart-
ansson. Um raddir brúðanna sjá
leikaramir Edda Heiðrún Back-
man, Felix Bergsson og Aðal-
steinn Bergdal. Brúðuhreyfingar
era í höndum Helgu Steffensen,
Sigríðar Hannesdóttur og Helgu
Sigríðar Harðardóttur. Tækni-
maður og bflstjóri er Jason Ólafs-
son.
Dagskrá Brúðubflsins í júní
verður sem hér segir:
Miðvikudaginn 3. júní verður
sýning klukkan 10 að Amarbakka
og klukkan 14 í Hallargarðinum.
Fimmtudaginn 4. júní verður sýn-
ing kl. 10 við Bleikjukvísl og kl.
14 við Barðavog. Föstudaginn 5.
verður sýning kl. 10 við Dunhaga
og kl. 14 við Dalaland. Þriðjudag-
inn 9. verður sýning kl. 10 við
Fannafold og kl. 14 við Fífusel.
Miðvikudaginn 10. verður sýning
kl. 10 við Frostaskjól og kl. 14
við Freyjugötu. Fimmtudaginn
11. verður sýning kl. 10 við Hvas-
saleiti og kl. 14 við Gullteig.
Föstudaginn 12. verður sýning við
Ljósheima kl. 10 og við Iðufell
kl. 14. Mánudaginn 15. verður
sýning kl. 10 við Malarás og kl.
14 við Kambsveg. Föstudaginn
19. verður sýning kl. 10 við Njáls-
götu og kl. 14 við Rauðalæk.
Mánudaginn 22. júní sýnir
Brúðubíllinn kl. 10 við Austurbæj-
arskóla og kl. 14 við Gerðuberg.
Þriðjudaginn 23. verður sýnt við
Einarsnes í Skeijafirði kl. 10 og
kl. 14 við Árbæjarsafn. Miðviku-
daginn 24. verður sýning klukkan
10 við Rofabæ og klukkan 14 við
Safamýri. Fimmtudaginn 25.
verður sýnt kl. 10 við Stakkahlíð
og kl. 14 við Suðurhóla. Föstudag-
inn 26. verður sýning klukkan 10
við Sæviðarsund og kl. 14 við
Tungusel. Mánudaginn 29. júní
verður sýning við Tunguveg kl.
10 og við Vesturberg kl. 14 og
þriðjudaginn 30. júní verður svo
sýning á Vesturgötu kl. 10 og við
Yrsufell kl 14.
(Úr fréttatílkynningu.)
Sigurvegararnir Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson fagna
sigri fyrir utan Glóðina í Keflavík, en rallmótið fór fram á Suður-
nesjum.
Rallakstur:
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Steingrímur Ingason og Guðmundur Björn náðu öðru sæti á heima-
smíðuðum Nissan.
„Sigurinn lofar góðu fyrir sumarið“
„SIGURINN lofar góðu fyrir sumarið. Við unnum í sömu keppni í
fyrra, en þurftum að hafa meira fyrir sigrinum núna og hraðinn
hefur aukist frá því í fyrra,“ sagði Ásgeir Sigurðsson í samtali við
Morgunblaðið, en hann vann ásamt Braga Guðmundssyni í fyrsta
rallmóti ársins á Metro 6R4. í öðru sæti eftir mikla keppni urðu
Steingrímur Ingason og Guðmundur Steinþórsson á Nissan, en feðg-
amir Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson urðu þriðju á Mazda 4x4,
í flokki óbreyttra bíla vann sonur Jóns, Baldur, ásamt Guðmundi
Pálssyni og óku þeir Mazda 323 4x4 í sinni fyrstu keppni.
Baráttan um heildarsigurinn var
strax milli Ásgeirs og Steingríms,
en sá síðarnefndi ók bíl sem hann
hefur smíðað upp frá granni með
eigin hugviti ásamt aðstoðarmönn-
um og hafa vinnustundimar skipt
þúsundum. Hann kvaðst þó eiga
eftir að bæta ýmislegt í bilnum, sem
ætti að koma til góða í mótum árs-
ins. „Við vissum aldrei hvort Stein-
grímur ætti eitthvað inni, en hann
náði alltaf að saxa á forskot okkar
á stuttu leiðunum," sagði Ásgeir,
„við gerðum þvi úrslitaatlögu á
Isólfskála, þegar hann var ekinn í
síðasta skipti og náðum 26 sek-
úndna betri tíma. Það gerði gæfu-
muninn og við unnum með 43 sek-
úndna mun. Bíllinn slapp vel frá
keppninni og við eram klárir í næsta
rall.
Baldur Jónsson kom mörgum á
óvart með hröðum akstri í flokki
óbreyttra bíla, en hann hefur fylgst
með bróður sínum og föður vinna
á fjölmörgum rallmótum síðustu ár.
„Þeir voru búnir að tala mig til og
mér tókst eiginlega mun betur upp
en ég átti von á,“ sagði Baldur, „ég
hef aldrei setið í rallbíl með Rún-
ari, en einu sinni með pabba, þann-
ig að þetta var mikil og skemmtileg
reynsla að keppa. Það var líka
ánægjulegt að vinna í fyrstu til-
raun,“ sagði hann.
Norræn nær-
ingafræði-
ráðstefna
HALDIN verður í Háskólabíói
dagana 14.-17. júní nk. norræn
ráðstefna í næringafræði vegum
Manneldisráðs og heilbrigðisráðu-
neytis. Ráðstefnan er áhugaverð
fyrir heilbrigðisstéttir, kennara
og aðra sem áhuga hafa á að kynn-
ast nýjungum í næringafræði.
Dagskrá ráðstefnunnar er fjöl-
breytt og flytja þekktir fyrirlesarar
inngangserindi. Aðalerindi ráðstefn-
unnar flytur prófessor Walter Willett
frá Bandaríkjunum. Erindi hans
nefnist: Getur fituneysla orsakað
krabbamein? Af öðrum fyrirlesuram
má nefna: Stephan Rössner frá Sví-
þjóð sem fjallar um meðferð offitu
og Wenche Barth Eide frá Noregi
sem ræðir um næringu þriðja heims-
ins og nefnist erindi hennar Næring-
arrannsóknir í þróunarlöndum:
Heimsveldisstefna vísindanna eða
vopn í baráttunni gegn hungri og
vannæringu? Einnig verða eftirtalin
efni á dagskrá: Neyslukannanir og
faraldsfræði, Næring og sjúkdómar,
Næring ungbarna, barna, eldri borg-
ara og þungaðra kvenna.
Efnt verður til tveggja málþinga
í tengslum við ráðstefnuna. Þann 14.
júní verður rætt um það hvernig
hægt er að hafa áhrif á neysluvenjur
og þann 18. júní verður fjallað um
atvinnumöguleika og störf næringar-
ráðgjafa. Einnig verður efnt til sýn-
ingar í anddyri Háskólabíós.