Morgunblaðið - 02.06.1992, Qupperneq 56
Alþjóðleg ráðgjafanefnd mælir með 40% samdrætti í þorskveiðiim á næsta ári:
Útflutnmgstekjur mimik-
uðu um 12 -15 milljarða
Sjávarútvegsráðherra segir verulega skerðingu aflaheimilda óhjákvæmilega
Fiskveiðiráðgjafanefnd Al-
þjóðahafrannsóknarráðsins fja.ll-
aði á nýafstöðnum fundi sínum
um ástand nokkurra fiskstofna við
ísland að frumkvæði íslenskra
stjórnvalda. í niðurstöðum sínum
mælir nefndin með að sókn í
þorskstofninn verði minnkuð um
r - 40% á næsta ári, þannig að leyfi-
legur þorskafli næsta árs verði
150 þúsund tonn, sem samsvarar
175 þúsund tonna afla á næsta
fiskveiðiári, en á yfirstandandi
fiskveiðaári er þorskkvótinn 265
þúsund tonn. Að sögn Þórðar Frið-
jónssonar forstjóra Þjóðhags-
stofnunar jafngilda tillögur
nefndarinnar um 12-15 miHjarða
króna samdrætti í útflutningstekj-
um. Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra segir að ekki geti
farið hjá því, að um verulega
'skerðingu verði að ræða á þorsk-
aflaheimildum á næsta fiskveiði-
ári í Ijósi niðurstöðu nefndarinnar
ef hrygningarstofninn eigi að hafa
möguleika á að stækka.
í niðurstöðum nefndarinnar kemur
fram að gögn bendi til að hrygning-
arstofn þorsks hafi minnkað úr því
að vera yfír milljón tonn milli áranna
1955 og 1960 í rúmlega 200 þúsund
tonn árið 1992. Einnig sé nú orðið
ljóst að allir árgangar frá 1985 séu
undir meðallagi og að 1986-árgang-
urinn sé sá lélegasti frá 1955.
„Þetta eru sennilega einhver alvar-
legustu tíðindi sem sjávarútvegurinn
hefur fengið fyrr og síðar. Framhjá
því verður ekki litið, að við erum í
mjög alvarlegri stöðu með þorsk-
stofninn," sagði Þorsteinn. Hann
sagði að óháður sérfræðingur í Eng-
iandi yrði fenginn til að leggja mat
á niðurstöður Hafrannsóknastofnun-
ar um ástand þorskstofnsins, sem
væntanlegar eru síðar í þessum
mánuði. Þorsteinn sagðist telja þetta
óhjákvæmilegt í þessari stöðu, þar
sem svo mikilvægir efnahags-
hagsmunir væru í húfi.
Laxveiðin
byijar vel
Á hádegi í gær höfðu 10 laxar
veiðst í Þverá og 8 í Norðurá
og telja laxveiðimenn aflann
prýðilega bytjun á laxveiði
sumarsins. Friðrik Þ. Stefáns-
son heldur hér á 12 punda
hrygnu úr Drottningarhyl í
Norðurá. Tók laxinn kl. 7.20
og var fyrsti laxinn úr Norðurá.
Sjá einnig bls. 25.
Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar segir að í ljósi niður-
stöðu nefndarinnar virðist óhjá-
kvæmilegt að draga enn frekar úr
þjóðarútgjöldum. Kristján Ragnars-
son formaður LÍÚ segist óttast að
niðurstöður Fiskveiðiráðgjafamefnd-
Fulltúar námsmanna munu hitta
menntamálaráðherra árdegis í dag,
þriðjudag, og ræða hinar nýju regl-
ur. Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra sagðist í gær væntan-
lega myndu staðfesta reglurnar í
dag.
Samkomulag LIN við fulltrúa
arinnar um þorskstofninn séu réttar.
Veiðar togaranna bendi til hins sama.
„Við verðum að snúa þróuninni við,
megum ekki skerða stofninn meira
en orðið er,“ segir Kristján. Óskar
Vigfússon líkir þessum niðurstöðum
við hrun síldarstofnsins.
banka og sparisjóða var gert sl.
föstudag en það hefur þó ekki
verið formlega undirritað.
„Bankar og sparisjóðir hafa þó
skuldbundið sig til að lána náms-
mönnum sem koma til okkar með
lánsloforð frá LÍN. Þetta er líkt
og tíðkast hefur gagnvart fyrsta
Þetta var í fyrsta skipti frá 1976
sem Fiskveiðiráðgjafanefnd Alþjóða-
hafrannsóknarráðsins fjallar um
ástand þorskstofninn en auk hans
fjallaði nefndin um ástand loðnu-,
ufsa-, karfa-, og grálúðustofnanna.
Sjá nánar á miðopnu
árs nemum hjá Lánasjóðnum. Þeir
hafa getað fengið bankalán fyrir
90% af lánsloforði LÍN en það kem-
ur til greina að lán til þeirra náms-
manna sem lengra eru komnir verði
hærra hlutfall af lánsloforði," segir
Brynjólfur.
Brynjólfur segir útfærsluna í
smáatriðum á lánum til námsmanna
ekki vera tilbúna en það verði á
næstu dögum. „Hugsanlega verður
boðið upp á fleiri en eitt lánsform,
annars vegar yfirdráttarlán og hins
vegar föst lán. Í föstum lánum felst
að námsmenn taki víxil- eða skulda-
bréfalán og eyði þeim þegar þeim
hentar. Víxilforvextir eru nú 11,5%
en ofan á það bætast eftir á reiknað-
ir vextir og lántökukostnaður.
Loftið var
hreinna á
reyklausa
deginum
ÁRNI Einarsson framkvæmda-
sljóri átaksins: „Hreint loft í heila
viku,“ segir að loftið á mörgum
vinnustöðum hafi verið mun
hreinna í gær á reyklausum degi.
Tóbaksvamamefnd grennslaðist
fyrir um það á nokkrum vinnustöðum
hvort dregið hefði úr reykingum
meðal starfsmanna. Það hefði nánast
verið undantekningarlaus regla að
minna hefði verið reykt. Nokkrir eig-
endur sölutuma sem haft var sam-
band við mátu það einnig svo að
nokkuð hefði dregið úr sölu á tóbaki.
------------------
Mikið rykmý
Björk, Mývatnssveit.
I hlýindunum að undanförnu
hefur kviknað óhemjumagn af
rykmýi við Mývatn. Háir mýstrók-
ar, 6 til 7 metra háir, myndast upp
af hólum, hverum og eyjum þegar
logn er.
Sums staðar er mergðin svo mikil
að ekki er hægt að opna glugga, þá
fyllist allt af mýi og vart sér á milli
húsa. Á þjóðveginum næst vatninu
er víða mýský, sem byrgir útsýn og
verður því að aka með gætni á þeim
svæðum. - Kristján
Hins vegar geri ég ráð fyrir að
einhvers konar yfirdráttarfyrir-
komulag henti námsmönnum
best. Ef við segjum að meðaltalslán
sé um 50 þúsund á mánuði fengi
námsmaðurinn 50 þúsund króna
yfírdrátt á fyrsta mánuði námsárs
sem síðan myndi hækka upp í 100
þúsund krónur á öðrum mánuði,
o.s.frv. Heildarlánið gæti því verið
um 150-200 þúsund þegar að út-
hlutun hjá Lánasjóðnum kæmi. Með
yfírdráttarforminu borga þeir ein-
ungis vexti fyrir þá daga sem þeir
hafa notað yfirdráttarheimild sína.“
Gunnar Birgisson, formaður
stjórnar LÍN, segir að líklega verði
veittar um 30-50 milljónir króna
í námslán vegna vaxtakostnaðar.
Sjá ennfremur frétt bls. 24.
Samkomulag LÍN og fulltrúa banka:
Yfirdráttarlán líklegasta
lánsfonniö til námsmanna
Vextir á lánum til námsmanna hinir sömu og til annarra hópa
SAMKOMULAG hefur orðið á milli LÍN og fulltrúa banka og spari-
sjóða um fyrirgreiðslu við námsmenn vegna breyttra reglna um
útborganir námslána frá LÍN. Brypjólfur Helgason, aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans, segir að fyrirkomulagið hjá Landsbankanum
verði væntanlega þannig að lánþegar LÍN fái fyrirgreiðslu í formi
yfírdráttarlána eftir að þeir hafa verið samþykktir sem lánshæfir
þjá sjóðnum. Vextir verði þeir sömu og almennt eru á viðkomandi
lánsformum þar sem ekki sé reiknað með því að hægt sé að vera
með lægri vexti til ákveðinna hópa I þjóðfélaginu en annarra. Nú
eru vextir á yfirdráttarlánum hjá Landsbankanum 14,5%.