Morgunblaðið - 08.07.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JUU 1992
9
Innilegar þakkir fceri ég öllum, œttingjum og
vinum, fyrir heiður og ánœgju mér sýnda á
75 ára afmœli mínu.
Njörður Snæhólm,
Mánabraut 13.
Innilegar þakkir fceri ég öllum vinum mínum
og œttingjum, nœr og Jjcer, fyrir heimsóknir,
blóm, heillaóskaskeyti og gjafir á 70 ára afmœli
mínu sunnudaginn 28. júní.
Steinunn Þorsteinsdóttir,
Ólafsvík.
Nú er rétti tíminn til að
hefja reglulegan spamað meb
áskrift að spariskírteinum
ríkissjóðs.
Ný forskrift
Stiklað verður á köfl-
um úr forustngreinum
þriggja dagblaða í Stak-
steinum í dag, Alþýðu-
blaðsins, Tímans og DV.
Forustugrein Alþýðu-
blaðsins í gær nefndist
„Rétt viðbrögð rikis-
stjórnarinnar". Þar segir
m.a.:
„Það er ljóst að tíminn
var að hlaupa frá ríkis-
stjórninni í þessu máli en
setning bráðabirgðalaga
síðastliðinn föstudag
virðist vera ásættanleg
lausn fyrir flesta. Setn-
ing bráðabirgðalaga er
auðvitað algert neyðar-
úrræði en var því miður
nauðsynleg aðgerð við
þær aðstæður sem ríktu
í þjóðfélaginu. Ríkis-
stjórnin hefur því metið
stöðuna rétt og skjót við-
brögð hennar hafa nægt
til þess að slá á þær deil-
ur sem höfðu magnast
undanfama daga. Ríkis-
stjórnin hefur með
ákvörðun sinni gefið
Kjaradómi nýja forskrift
og reglur til þess að
vinna eftir. Kjaradómi
ber því að kveða upp
nýjan úrskurð þar sem
teldð er tillit til efnahags-
ástands og launaþróunar
í landinu. Þessu á að vera
lokið í síðasta Iagi fyrir
lok þessa mánaðar.“
Áróðursstríð
„Þungar ásakanir voru
bornar á ríkisstjórnina
og stjómarflokkana í þvi
áróðursstríði sem ein-
kenndi umræðuna um
Kjaradóm. Ríkisstjómin
var gerð ábyrg fyrir
gerðum Kjaradóms,
þrátt fyrir að hún hafi
strax í upphafi málsins
beðið Kjaradóm um taf-
arlausa endurskoðun á
þeirri niðurstöðu sem olli
þessum darraðardans'
Nú ætti hins vegar eng-
inn að efast um raun-
verulegan vijja ríkis-
stjómarinnar í þessu við-
kvæma máli. Jóhanna
Sigurðardóttir félags-
málaráðherra og vara-
formaður Alþýðuflokks-
ins segir t.d. í samtali við
Alþýðublaðið í dag: „Eg
Ríkisstjórnin og bráða-
birgðalögin
Viðbrögð við bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar í Kjaradómsmálinu eru mis-
munandi. Það kemur m.a. fram í forustu-
greinum dagblaðanna.
lít svo á að það séu kom-
in afar skýr fyrirmæli til
Kjaradóms, sem geta
tæpast annað en leitt til
þeirrar niðurstöðu að
launahækkun þeirra
hópa sem heyra undir
dóminn verði í samræmi
við það sem er að gerast
í launamálum annars
launafólks í landinu.
Þannig ætti engum að
blandast hugur um að
ríkisstjómin hefur leyst
þetta mál fyrir sitt leyti.“
Gottsamráð
„Það er því greinilegt
að ríkisstjómin hefur
með þessu móti komið til
móts við þær kröfur sem
launþegasamtökin og al-
memiingur í landinu
settu fram á síðustu dög-
um. A meðan á deilunni
stóð hafði ríkisstjómin
gott samráð með aðilum
vinnumarkaðarins til
þess að fínna lausn sem
allir gætu sætt sig við.
Viðbrögð Ásmundar
Stefánssonar forseta ASÍ
sýna að það er viyi til
þess að koma til móts við
stjórnvöld og fínna sam-
eiginlega launs á málinu.
Framkoma Ögmundar
Jónassonar formanns
BSRB hefur hins vegar
vakið furðu og greinilega
aðeins til þess gerð að
upphefja hans eigin per-
sónu i pólitískum skolla-
leik.“
Amælisverð
leið
Fomstugrein Tímans í
gær nefndist „Með tæm-
ar framaf bjargbrún-
inni“. Þar segir m.a.:
„Sú leið, sem ríkisstjóm-
in velur í þessu máli er
mjög ámæhsverð og þær
viðbárur, sem forustu-
menn hennar hafa haft í
fjölmiðlum, em út í hött.
Engin vandkvæði vom á
því að kaUa þing saman
og afgreiða á þingræðis-
legan hátt frumvarp
samhljóða bráðabirgða-
lögunum. Staðhæfingar
um að svo mikU ólga
hafí verið i þjóðfélaginu
að ekki væri hægt að bíða
eftir umfjöllun Alþingis
em rangar. Aðalkrafan,
sem samþykkt var á úti-
fundinum á Lækjartorgi,
var að kalla þing saman
og það tæki á málinu.
Kjaradómur hefur
frest tíl 31. júlí til þess
að kveða upp nýjan úr-
skurð. Þangað tU er fyrri
úrskurður hans í gildi.
Ólgan í þjóðfélaginu er
því fyrir hendi þangað
tíl nýr úrskurður hefur
verið kveðinn upp.
Enn meiri athygli
vekja yfirlýsingar um að
ekki hafí verið mögulegt
að kveðja Alþingi saman
vegna þess að „fleiri en
ein skoðun" komu fram
í ummælum fomstu-
manna stjómarandstöð-
unnar og ekki væri hægt
að „koma böndum á
stjórnarandstöðuna".
Slíkar og þvílíkar yfírlýs-
ingar em auðvitað ekki
boðlegar í lýðræðis- og
þingræðisþjóðfélagi.
Hins vegar em þær góð-
ar og gildar í einræðis-
rikjum.“
Verkið unnið
Forystugrein DV síð-
astliðinn mánudag
nefndist „Aftur tU Kjara-
dóms“. Þar segir m.a.:
„Einhver kann að segja
að ríkisstjórnin geri sig
bera að hringlanda og
örvilnun enda hafa ein-
stakir ráðherrar verið
ráðvUltir.
En það er engin
skömm að því á játa mis-
tök sín og með setningu
bráðabirgðalaga er búið
að vinna það verk, sem
Alþingi var ætlað, ef það
hefði verið kallað saman
tafarlaust. Stjómarand-
staðan getur i sjálfu sér
kvartað undan því að
hafa ekki fengið að vera
með í ráðum og vera má
að hún hafí viljað ganga
lengra. Sumir stjórnar-
andstæðinga segjast
jafnvel vera tilbúnir tU
að afnema dóm Kjara-
dóms án frekari orða-
lenginga. Sú leið er fær
og hefur verið möguleg
og er hugsanlega einföld-
ust og skjótvirkust. Þá
þyrfti enginn að bíða enn
og aftur eftir nýjum dómi
Kjaradóms og pólitiskur
vilji réði ferðinni.
Sannleikurinn er
nefnUega sá að efnislega
og lagalega er ekki hægt
að gagnrýra niðurstöður
Kjaradóms. Það er ómak-
legt að ásaka Kjaradóm
og þá sem í honum sitja
fyrir niðurstöðumar.
Dóniendur hafa margt til
síns máls og fara eftir
þeim reglum og lögum
sem þeim em settar. Þeir
geta með ýmsum rökum
bent á að launakjör
þeiira sem Kjai'adómi
hlíta em komin gjörsam-
lega úr böndum."
Notaðu símann núna,
hringdu í
62 60 40,
69 96 00
eða 99 66 99
sem er grænt númer.
RÍKISVERÐBRÉFA
Oryggi
Góð ávöxtun
Ekkert innlausnargjald
Sveigjanleiki
SJÓÐSBRÉF 1: ÖRUGG LEIÐ TIL ÁVÖXTUNAR SPARIFJÁR!
Sjóðsbréf 1 henta til ávöxtunar allt frá nokkrum
mánuðum til nokkurra ára. Megináhersla er lögð á
öryggi sjóðsins og hann ber mjög stöðuga og góða
ávöxtun. Hann er auk þess verðtryggður. Sjóðsbréf 1
eru fáanleg í mismunandi einingum, auk þess sem
hægt er að innleysa þau hvenær sem er án kostnaðar.
Ráðgjafar VIB veita frekari upplýsingar um Sjóðs-
bréf 1 og hægt er að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VÍB.
Kalkofnsvegi 1, Hverfisgötu 6, sími 91- 626040
sími 91- 699600 Kringlunni, sími 91- 689797
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.