Morgunblaðið - 08.07.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992
15
okkar á sviði sjávarútvegs. Þess
vegna er skynsamlegast að semja
um framtíðarskipan samskipta Is-
lands og EB áður en Noregur er
kominn EB-megin við borðið. Vissu-
lega hefur verið erfitt að eiga við
EB á undanförnum árum i málefn-
um sjávarútvegsins en hálfu verra
verður það þegar Noregur fer að
reka sjávarútvegssamkeppni sína
við ísland í gegnum EB.
Hugsanleg EB-aðild Noregs er
þess vegna enn frekari rök fyrir því
að bíða ekki með varanlega tvíhliða
lausn við EB heldur fara strax í
formlegar viðræður um slíka skipan
áður en Noregur er kominn EB-
megin við borðið.
3. aðferð.
Þriðja aðferðin er að horfast í
augu við þá staðreynd að öll önnur
aðildarríki EES líta á samninginn
eingöngu sem biðsal fyrir EB-aðild
og Island segi þess vegna skýrt við
EB og hin EFTA-ríkin:
Sú ieið sem þið hafið ákveðið, að
stækka EB með nýjum aðildarríkj-
um, er önnur leið en EES-samning-
urinn var byggður á í upphafi við-
ræðnanna. Hann er þess vegna nú
orðinn bráðabirgðaskipan. Allt
gangvirki hans mun þess vegna af
ykkar hálfu fyrst og fremst miðast
við árangur í formlegum viðræðum
ykkar um stækkun EB.
ísland hefur hins vegar valið aðra
leið: Sjálfstæðan tvíhliða samning
við EB um viðskipti og samvinnu.
Það þjónar best íslenskum hags-
munum og reyndar líka samninga-
ferli hinna EFTA-ríkjanna um EB-
aðild að ísland fari beint og án milli-
lendingar í gerð tvíhliða samnings
milli Islands og Evrópubandalags-
ins. Á þann hátt yrði ísland ekki
til trafala í samningum hinna
EFTA-ríkjanna við EB.
Þau gætu íreynd haft EES-samn-
inginn sem æfingabúðir fyrir EB-
aðild eins og þau greinilega vilja.
Við færum hins vegar fara án tafar
íþað sem við kjósum sem framtíðar-
lausn, sjálfstæðan tvíhliða samning
um viðskipti og samvinnu.
Evrópubandalagið gæti ekki neit-
að slíkri ósk þar eð leiðtogar banda-
lagsins hafa nú þegar ákveðið á
fundi sínum í Lissabon að hefja
formlegarviðræður við hin EFTA-
ríkin um aðra framtíðarskipan en
EES. Hin EFTA-ríkin gætu heldur
ekki gert athugasemdir þar eð þau
höfðu sjálf frumkvæði að því að
velja aðra framtíðarleið en EES. Þau
hafa nú þegar lýst því yfir að þau
ætli sér að notast við EES eingöngu
sem eins skammvinna bráðabirgða-
lausn og hægt er. Hin EFTA-ríkin
sæju líka mikla kosti við að vera
laus við þá árekstra sem óhjákvæmi-
lega hlytust af NEI-hlutverki ís-
lands í stofnunum EES.
Að fara strax að vinna að hinni
varanlegu framtíðarlausn fyrir ís-
land — sjálfstæðum viðskiptasamn-
ingi — væri því í reynd hagkvæm-
asta lausnin fyrir alla: ísland, EB
og hin EFTA-ríkin.
Reyndar eru miklar líkur á því
að sú leið myndi skapa íslandi sterk-
ari stöðu gagnvart EB og EFTA á
næstu árum heldur en NEI-hlut-
verkið sem ísland er dæmt til að
gegna í EES. ísland myndi strax
hljóta góðvild og aukinn skilning
og vera laust við hlutverk skemmd-
arvargsins gagnvart hinum EFTA-
ríkjunum og EB meðan bráða-
birgðaskipan EES yrði við lýði.
Efni sjálfstæðs tvíhliða
samnings
í samþykkt þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubandalags-
ins er lagt til að niðurstöður EES-
samninganna verði endurskoðaðar
þegar í haust með það að markmiði
að gera sjálfstæðan tvíhliða við-
skiptasamning milli íslands og EB.
Slíkur sjálfstæður samningur ís-
lands og EB yrði m.a. byggður á
viðskiptaþáttum EES-samningsins,
sérstökum sjávarútvegssamningi og
bókun 6 í samningum við EB sem
verið hefur í gildi síðan 1976.
Framkvæmd tvíhliða samnings
milii íslands og Evrópubandalagsins
yrði einfaldari í sniðum heldur en
samkvæmt EES-samningnum. Ein-
göngu verði sett á fót samstarfs-
nefnd um eftirlit og gerðardómi
beitt ef deilumál um framkvæmd
samningsins verða ekki útkljáð.
Pólitísk vandamál yrðu fyrst og
fremst leyst í ráðherraviðræðum.
í slíkum tvíhliða samningi íslands
og EB verði m.a. byggt á hugmynd-
um um fijálsa vöruflutninga, fólks-
flutninga, þjónustustarfsemi, fjár-
magnsflutninga og almenna sam-
keppni auk þess sem hafðar verði
til hliðsjónar reglur Norðurlandanna
um vinnumarkað og búseturétt.
Réttur íslendinga til að skipa for-
ræði og eignarhaldi á auðlindum til
lands og sjávar með sérstökum lög-
um verði afdráttarlaus.
Þessi samningur yrði ekki aðeins
um viðskipti heldur myndi hann
einnig fjalla um samvinnu íslands
og EB á öðrum sviðum, svo sem
varðandi rannsóknir og þróun, um-
hverfismál, menntun og menningu.
Samningurinn yrði gerður á þann
hátt að þar yrðu engin atriði sem
brytu í bága við stjórnarskrá né
heldur yrði efnislegt og formlegt
löggjafarvald á íslandi tekið úr
höndum Alþingis og þjóðarinnar.
Sýnishorn
Til að skýra betur þennan raun-
hæfa valkost fékk ég sérfræðinga
til að setja saman fullbúið sýnishom
af slíkum sjálfstæðum samningi ís-
lands og Evrópubandalagsins um
viðskipti og samvinnu. Á blaða-
mannafundi 29. júní var sýnishornið
lagj; fram til kynningar svo að hver
og einn gæti íjallað um sanmings-
gerðina á hlutlausum grundvelli.
Það er til reiðu sérhveijum áhuga-
manni eða sérfræðingi sem vildi
skoða það nánar.
Munurinn á tvíhliða sýnishorninu
og EES-samningnum eins og hann
liggur fyrir felst fyrst og fremst í
eftirfarandi höfuðatriðum:
1. Stofnanabákn EES-samnings-
ins er ekki að finna í hinum sjálf-
stæða viðskiptasamningi.
2. Báðir aðilar, ísland og EB,
hafa sama rétt til að gera formlegar
tillögur um nýskipan viðskipta í
framtíðinni. í EES-samningnum
hefur Evrópubandalagið eitt slíkan
rétt.
3. ísland hefur fullt forræði á
auðlindum og auðlindanýtingu á öll-
um sviðum sjávarútvegs, landgæða,
orku og vatnsframleiðslu en í EES-
samningnum er slíkt forræði ein-
göngu í fiskveiðum.
4. Löggjafarvald og dómsvald
yrðu ótvírætt í höndum íslenskra
stofnana samkvæmt íslenskri
stjórnarskrá en verulegar breyting-
ar er að finna í EES-samningnum.
Sterk rök hafa verið færð fyrir því
að þær breytingar standist ekki ís-
lensku stjórnarskrána.
5. íslendingar hefðu sömu mögu-
leika til að tryggja jafnvægi á hér-
lendum vinnumarkaði og tíðkast
hefur í samskiptum Norðurlanda. í
EES-samningnum fá ríki Evrópu-
bandalagsins mun meiri rétt gagn-
vart íslenska vinnumarkaðnum en
Norðurlöndin hafa haft til þessa.
Viðskiptasamningur —
efnahagstengsl
í raun má einfalda málið með því
að segja að sú leið sem Alþýðu-
bandalagið leggur til feli í sér víð-
tækan samning um viðskipti og
aukna samvinnu á sviði rannsókna,
umhverfismála, menningar og
mennta. EES-samningurinn felur
hins vegar í sér til viðbótar að tengja
ísland með formlegum hætti inn í
það stofnanavirki, sumir segja skrif-
ræðisbákn, sem er kjarninn í þeim
breytingum sem forysta Evrópu-
bandalagsins hefur knúið fram.
Annar samningurinn, sá sem við
leggjum til, snýst. eingöngu um við-
skipti og efnhagslíf, fijálsa vöru-
flutninga, fólksflutninga, þjónustu-
starfsemi og fjármagnsflutninga
auk almennrar samkeppni og sam-
vinnu á ýmsum öðrum sviðum.
Hinn samningurinn, EES, er kerf-
isgrind til undirbúnings aðild að EB,
með ítarlegum köflum um stjóm-
skipan, stofnanir, dómstóla,
embættiskerfi og eftirlit sem allt
tekur mið af stofnanauppbyggingu
EB. Auk þess felur hann í sér yfír-
ráð EB í allri formlegri ákvarðana-
töku.
Okkar leið er leið viðskiptahags-
muna og fjölþættra efnahagstengsla
sem fyrst og fremst taka mið af
hagsmunum íslands. Leið EES-
samningsins vísar hins vegar beint
Samkvæmt upplýsingum Mark-
úsar Amar Antonssonar borgar-
stjóra höfðu Ráðningaskrifstofu
Reykjavíkurborgar borist 3.190
umsóknir um sumarstörf um síðustu
mánaðamót, og þar af væri búið að
ráða 1.943 til stofnana og fyrir-
tækja borgarinnar. Ráðingarstof-
unni bárust alls 1.916 umsóknir frá
skólafólki um sumarstörf í fyrra.
Þar af hefðu 1.307 verið ráðnir til
borgarinnar um lengri eða skemmri
tíma í fyrrasumar.
Þá kom fram að í fjárhagsáætlun
1991 hefði verið miðað við 300 sum-
í stofnanavirki skrifræðisins íBruss-
el og tekur mið af stofnanatengslum
Evrópubandalagsríkja.
Það er sérkennilegt að ýmsir sem
hafa á undanförnum árum barist
eindregið gegn ríkisafskiptum í ís-
lenska hagkerfinu og krafist þess
að aukið fijálsræði markaðsaflanna
fengi að ríkja í okkar landi — sbr.
kjörorðið Báknið burt — eru nú
orðnir áköfustu talsmenn þess að
gera skrifræðisbáknið i Brussel, sem
annast mun allt formlegt frum-
kvæði í EES, að aðaláhrifaafli í
efnahagsmálum íslendinga í fram-
tíðinni. Það er greinilega ekki sama
hvort að afskipti báknsins eru inn-
lend eða ættuð frá EB. Er það virki-
lega þannig að opinber afskipti og
embættismannakrukkið í hagkerf-
inu séu í hugum þessara manna
aðeins vond ef kontoristarnir eru
með íslenskt vegabréf en af hinu
góða ef vegabréf kontoristanna eru
komin frá EB, blá með gulum stjöm-
um?
Eg hefði haldið að raunverulegir
markaðssinnar og hægri menn, sem
fyrst og fremst líta á kosti sam-
keppni og fijálsræðis án ríkisaf-
skipta, ættu mun meiri samleið með
okkar tillögum — tillögum um sjálf-
stæðan samning um viðskipti —
heldur en að fylgja utanríkisráðherr-
anum inn í reglugerðafrumskóg og
löggilt skrifræðisbákn EES, þar sem
miðstýringaröflin og afskipta-
sinnarnir í höfuðstöðvum Evrópu-
bandalagsins með Delors í broddi
fylkingar fara með allt formlegt
vald.
Einangrast ísland? —
Viðræður strax
Það eina sem getur forðað íslandi
frá því að einangrast og vera eitt
og sér með aðeins bráðabirgða-
lausnina EES í höndunum, er að
arstörf hjá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur í 8 vikur og kostnaður
af þeim verið áætlaður 87.832.000.
Síðan hefði verið ákveðið að ráða í
100 störf til viðbótar og samþykkt
aukafjárveiting í því skyni að fjár-
hæð 29.593.000 krónur.
Hann sagði að forsendur fjár-
hagsáætlunar yfirstandandi árs
hefðu verið hinar sömu og í fyrra
en til viðbótar hefði verið ráðið í
400 störf.
Samtals yrðu því 700 skólanemar
við störf hjá skógræktarfélaginu í
sumar á móti 400 í fyrra.
óska nú þegar eftir formlegum við-
ræðum við EB um raunverulega
framtíðarskipan, sjálfstæðan tví-
hliða viðskiptasamning íslands og
Evrópubandalagsins.
Öll önnur aðildarríki EES hafa
ákveðið að halda áfram viðræðum
um aðra framtíðarskipan en EES.
ísland á það því á hættu að vera
eina EFTÁ-landið sem ekki er í við-
ræðum við EB um nýjan framtíðar-
skipan samskiptanna.
Hin EFTA-ríkin munu strax í
september hefja könnunarviðræður
um aðild að EB. Utanríkisráðherra
íslands má hins vegar ekki heyra á
neitt annað minnst en EES. Afstaða
hans er lík afstöðu bamsins sem
starir hugfangið á blöðruna sína en
veit ekki að innan tíðar verður allt
loft farið úr henni.
Fái utanríkisráðherrann að ráða
verður niðurstaðan í haust sú að öll
EFTA-ríkin nema ísland halda
áfram í viðræðum við EB og ísland
einangrast eitt og sér frá þróun
samskipta í álfunni. Það er óskyn-
samleg leið og hún brýtur í bága
við framtíðarhagsmuni íslands.
Ef ísland hafnar að verða sam-
ferða hinum EFTA-ríkjunum í að-
ildarumsókn að EB, þá er eina raun-
hæfa leiðin að hefja nú þegar í haust
formlegar samningaviðræður milli
íslands og EB um framtíðarskipan
samskipta landsins við bandalagið,
sjálfstæðan tvíhliða samning milli
íslands og EB um viðskipti og sam-
vinnu.
Allt annað er skortur á raunsæi.
Aðgerðarlaus bið í bráðabirgðastöðu
EES getur ekki gert annað en tafið
fyrir að þjóðin nái farsælli niður-
stöðu sem dugi fyrir ísland til fram-
búðar.
Höfundur er alþingismaður og
formaður Alþýðubandalagsins.
í forsendum fjárhagsáætlana
borgarinnar 1991 og 1992 hefði
verið gert ráð fyrir 186 störfum hjá
garðyrkjustjóra og 195 störfum á
vegum embættis gatnamálastjóra,
125 sumarstörfum í bækistöðvum
gatnamálastjóra og um 70 störfum
í öðrum deildum sem hann hefði
umsjón með. Þá hefði í forsendum
fjárhagsáætlunar bæði árin verið
gert ráð fyrir 100 sumarstörfum hjá
Iþrótta- og tómstundaráði.
Erfitt væri með sama hætti að
henda reiður á sumastörfum skóla-
fólks hjá öðrum stofnunum og deild-
um borgarsjóðs, þar sem sá kostn-
aður væri víða innifalinn í kostnaði
af afleysingum, en sennilega væri
þar um að ræða 300 sumarstörf,
þar af ríflega 100 á Borgarspítalan-
um.
Við þetta bættust 120 sumarstörf
hjá veitustofnunum borgarinnar.
Markús Öm sagði að því virtist
að jafnaði mega gera ráð fyrir um
900 sumarstörfum í forsendum
umræddra fjárhagsáætlana 1991 og
1992.
Reykjavíkurborg:
Kostnaður borgarinnar vegna
sumarstarfa um 370 milljónir
Sumarið 1991 voru veittar 64 milljónir
Aukafjárveitingar úr borgarsjóði vegna sérstakra ráðstafana í at-
vinnumálum skólafóiks nema samtals 339 milljónum króna. Þar af
renna 185,3 milljónir til sumarstarfa skólafólks á 16. ári og eldri en
153,7 miiyónir til viðhalds grunnskólamannvirkja. Þar til viðbótar
er áætlað að samþykktar heimildir til að fjölga sumarstörfum hjá
veitustofnununum um að minnsta kosti 100 hafi í för með sér um
30 miiyóna króna kostnað. Heildarkostnaður borgarsjóðs og borgar-
fyrirtsekja af framangreindum ráðstöfunum verður því vart undir
370 miiyónum króna á þessu ári. Samþykktar aukafjárveitingar vegna
sumarstarfa skólafóiks árið 1991 voru um 64 milljónir króna.
/— —"A
Q benelíon
J
Föt fyrir alla
Lokaðí
Barnafatnaður
Unglingafatnaður
dag og fimmtudag vegna verðbreytinga
--------------\
Qt benefíon
\_____________J
KRINGLUNNI
ÚTSALAN
hefst á föstudag
Benetton markaðurinn,
SkiphoHi 50c, verður opinn
eins og venjulega mánud.-
föstud. frá kl. 10.30-1&00.
markaöHiii