Morgunblaðið - 08.07.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JULI 1992
Blásaratón-
loilrd»» í
Tónleika-
ferð um
Norðurland
[ sólarhita á tjaldstæðinu á Akureyri.
Mikil aðsókn að
tjaldsvæðum
Mikil aðsókn hefur verið á (jaldsvæði á Akureyri og í Eyjafirði
það sem af er sumri. Islenskum tjaldgestum hefur fjölgað hlut-
fallslega miðað við fjölda útlendinga á síðustu árum. Að sama
skapi vaxa kröfur sem gerðar eru til búnaðar á tjaldsvæðum.
Veður ræður miklu um fjölda
gesta á tjaldsvæðum. Að sögn
Péturs Halldórssonar á tjaldstæð-
um Akureyrar olli góðviðrið í fyrri
hluta júní því að þá stefndi í met-
ár. Kuldakastið um Jónsmessu
varð þó til þess að aðsókn hjaðn-
aði mjög. Taldi Pétur að fólk hefði
flúið suður í hlýrra veður eða
komið sér fyrir á gistiheimilum á
meðan kuldakastið stóð. Þó hefðu
gestir orðið alls um 1.800 eða um
það bil, sem best hefur verið í
júní áður. Pétur sagði að júlí
væri hins vegar aðaltjaldmánuð-
urinn og þá hefðu gestir nú síð-
ustu ár verið á frá 9.000 til
11.000. í júní væru flestir gestir
fjölskyldur, einstaklingar og fólk
í samfloti en í júlí kæmu jafnan
stórir hópar erlendra gesta. Áber-
andi væri hve hlutur Islendinga í
hópi gesta hefði farið stórvaxandi
á allra síðustu árum. Af útlend-
ingum væru Þjóðverjar áberandi
flestir það sem af væri sumri en
Frakkar væru jafnan mjög fjöl-
mennir þegar kæmi fram í júlí.
Pétur sagði sífellt koma betur
í ljós nauðsyn þess að bæta að-
stöðu fyrir tjaldgesti og aðra sem
hefðust við á tjaldstæðum. Út-
lendingar væru vanir góðum og
vel skipulögðum tjaldsvæðum og
íslendingar kynntust þeim sífellt
betur á ferðum sínum erlendis.
Nú hefði verið komið fyrir svolít-
illi aðstöðu syðst á efra svæðinu
svo fólk ætti þar auðveldara með
að nálgast vatn og fleira og auk
þess hefði verið gerð tilraun til
að hleypa húsbílum inn á afmark-
að svæði þar. Islendingar kæmu
mikið á húsbílum og með hústjöld
en það færi auk þess í vöxt að
yngra fólk kæmi með smærri
tjöld. Þess vegna væri ekki lengur
hægt að setja jafnaðarmerki milli
kúlutjalds og útlendings.
Að mati Péturs verður varla
betur um bætt nema komið verði
upp nýju og vel skipulögðu tjald-
stæði í úthverfi bæjarins, til dæm-
is við Verkmenntaskólann, en þar
taldi hann unnt að koma upp að-
stöðu sem jafnaðist á við það sem
best gerðist erlendis, tölusett af-
mörkuð svæði þar sem betur
mætti tryggja frið en nú væri
unnt á ákveðnum tímum sólar-
hrings. Auk þess væri þetta svæði
ekki afskekktara en svo að þaðan
væri auðvelt að ganga í bæinn,
en einnig mætti tengja svæðið
bænum betur með góðum strætis-
vagnaferðum.
Nýverið var opnað nýtt tjald-
svæði í landi Húsabrekku, gegnt
Akureyri, á móts við norðurenda
Vaðlareits. Þar hafa ábúendur
útbúið rými fyrir 70-80 tjöld auk
stæða fyrir húsbfla, sem geta
komist í samband við rafmagn
þar. Þá er á svæðinu hús með
aðstöðu fyrir ferðalanga.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir á
Húsabrekku sagði að aðsókn hefði
verið heldur dræm framan af júní
en hefði vaxið mjög nú síðustu
daga og væri orðin ágæt. Mest
sagði hún að þarna kæmu ein-
staklingar eða fólk í samfloti en
þó hefði komið stór hópur um síð-
astliðna helgi. Hefði hún ekki orð-
ið annars vör en að fólki hefði
líkað vel að tjalda þarna í sveita-
sælunni í örskotsfjarlægð frá
bænum.
Vatnslögn til
AKVA á Akureyri:
Jarðboranir við Laugaland á Þelamörk:
Yonast til að hitta í rétta æð
— segir Franz Amason hitaveitustjóri
Hlé er nú á borunum eftir heitu vatni á Laugalandi á Þelamörk. Nú
er þess beðið að unnt verði að mæla hita vatnsins í holunni. Ljóst
er talið að þarna sé rnögulegt að fá góða viðbót við heitan vatnsf-
orða Hitaveitu Akureyrar, en vandinn er í því fólginn að hitta rétt
á sprungu, sem um er vitað þarna.
skemmunni
Blásarasveit æskunnar heldur
tónleika i Iþróttaskemmunni i
kvöld. Þetta er lokasprettur sveit-
arinnar áður en hún tekur þátt í
alþjóðlegu tónlistarmóti í Sviss nú
í júlí.
í Blásarasveit æskunnar eru 38
hljóðfæraleikarar á aldrinum 12 til
25 ára, en flestir eru þeir frá sextán
ára til tvítugs. Stjómandi sveitarinn-
ar er Roar Kvam. Hann sagði að
sveitin, í þeirri mynd sem nú er,
hefði verið við æflngar frá því í febr-
úar og leikið allmikið að undanfömu,
meðal annars á landsmóti á Höfn í
Homafírði. Nú væri stefnan sett á
Sviss, en þar héldi sveitin flmm tón-
leika í Zúrich auk þess að taka þátt
í heimsmóti ungra tónlistarmanna
þar í borg.
Roar sagði að á þessu móti yrðu
alls 40 hópar frá 20 löndum, en auk
blásarasveita koma þama fram þjóð-
laga- og þjóðdansasveitir. Mótið
sjálft hefst mánudaginn 14. júlí og
stendur alla vikuna. Að sögn Roars
eru viðfangsefni Blásarasveitar æsk-
unnar erfíð. Hún leikur þama bæði
skylduefni sem mótsstjóm sendir
nokkru fyrir mótið og sjálfvalið efni
sem mótsstjóm samþykkir. Sveitun-
um er skipt í þrjá flokka eftir getu
og Blásarasveit æskunnar er í mið-
flokknum, svonefndum fyrsta flokki.
Að sögn Roars hefur undirbúning-
ur ferðarinnar gengið mjög vel og
hann taldi að krakkamir stæðu sig
með prýði. Þessi hópur væri ef eitt-
hvað væri betri en sá sem hann stýrði
til gullverðlauna í Holiandi fyrir
nokkru.
Tónleikar Blásarasveitar æskunn-
ar í kvöld eru á nokkuð óvenjulegum
tíma, en þeir hefjast klukkan 19.30 í
íþróttaskemmunnni.
------».♦-■■■♦-
Snöggklædd-
ir á miðnæt-
urgöngunni
Siglufirði.
Hitabylgja er á Siglufirði þessa
dagana. Um miðnættið í fyrrinótt
var um 20 stiga hiti og menn urðu
að vera snöggklæddir á miðnætur-
göngunni.
Hér er rakin sunnanátt. Í gær-
morgun var 20 stiga hiti á hitamæl-
inum í forsælunni á vesturvegg íbúð-
arhús fréttaritara en 40 stig í sólinni
á austurveggnum. Hitinn hefur góð
áhrif á mannfólkið og gróðurinn og
er gróskan mikil. m.J.
------♦ ♦ ♦----
GUNNAR Guðbjörnsson tenór-
söngvari og Jónas Ingimundarson
píanóleikari munu dagana 11.-15.
júlí fara í tónleikaferð um Norður-
land.
Tónleikar á Hvammstanga verða
11. júlí kl. 16, hinn 12. júlí á Breiðu-
mýri í Reykjadal kl. 21 og 13. júlí í
Safnahúsinu á Húsavík kl. 21, hinn
14. júlí í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30 og þann 15. júlí í
Miðgarði í Skagafírði kl. 21.
Á efnisskránni verða ýmis íslensk
lög, einnig sönglög eftir Sibelius,
Strauss, Schubert og ítalska höf-
unda.
Gunnar og Jónas hafa starfað
mikið saman á síðustu árum en fram-
undan eiga þeir nú tónleika í boði
Wigmore Hall í London. Þar munu
þeir flytja hliðstæða dagskrá og á
tónleikaferðinni um Norðurland.
Einnig er væntanlegur geisladiskur
með þeim næsta vetur í útgáfu Steina
hf. tileinkaður íslenskri tónlist.
Að sögn Franz Árnasonar hita-
veitustjóra hefur nú verið borað
niður á 914 metra dýpi við Lauga-
land. Bormenn komu þangað laug-
ardaginn 7. júní og gerðu hlé á
störfum 3. júlí. Þá voru að baki um
15 bordagar og hlé var gert til að
láta holuna jafna sig svo unnt yrði
að mæla hita í holunni. Hlé verður
að gera vegna þess að dælt er í
holuna köldu vatni til að hreinsa
hana við borun en við það kólnar
bergið sem borað er í og þarf nokk-
urn tíma til að ná réttum hita á ný.
Franz sagði að þetta væri fimmta
holan sem Hitaveita Akureyrar bor-
aði á Laugalandssvæðinu. Fjórar
þær fyrstu hefðu verið grunnar
rannsóknarholur en þessi sem nú
væri í takinu væri rannsóknarhola
líka, en sú fyrsta djúpa. Fyrir daga
Hitaveitu Akureyrar voru boraðar
þarna fjórar holur, þar af tvær djúp-
ar.
Franz taldi að ef vel tækist til
og hitt yrði á góða vatnsæð þarna
mætti fá þar vatn í því magni sem
dygði til virkjunar fyrir Hitaveitu
Akureyrar, það er að segja um 25
sekúndulítra af 90 til 100 gráða
heitu vatni. Með því móti myndu
bætast við forða hitaveitunnar um
20 sekúndulítrar, en þá er frá talið
það sem rynni tií skólans á Lauga-
landi og bæjanna á leiðinni til Akur-
eyrar. Hann sagði jafnframt að
vonir manna væru því bundnar að
þarna fengist vatn sem væri brenni-
steinsríkara en vatnið sem tekið er
frammi í firði. Það væri míkill kost-
ur því brennisteinninn í vatninu
torveldaði súrefnisupptöku í því, en
Beint úr
uppsprettu
í umbúðir
NÆGILEGT kalt vatn kemur
frá lindum Vatnsveitu Akur-
eyrar þótt minna komi úr lind-
um í Glerárdal og Hliðarfjalli
en í meðalári. Unnið er um þess-
ar mundir að endurbæta vatns-
ból á Glerárdal og ennfremur
er verið að leggja sérstaka
vatnsleiðslu að húsi Mjólkur-
samlags KEA á Akureyri. Þessi
lögn er nauðsynleg vegna vatns-
útflutnings.
Hjá Hita- og vatnsveitu Akur-
eyrar fengust þær upplýsingar að
þótt lítið hefði snjóað síaðstliðinn
vetur og óvenjulitlar fannir hefðu
verið í Hlíðarfjalli og á Glerárdal
væri nóg kalt vatn að hafa fyrir
vatnsveituna. Franz Árnason sagði
að vatnsrennslið úr lindum á þess-
um slóðum væri óvenjulítið, um-
talsvert minna en í meðalári. Hins
vegar væri yflrdrifíð vatn í holum
veitunnar á Vöglum og þaðan
væri dælt í 4 til 5 klukkustundir
á dag á hálfu afli. Þar væri unnt
að fá allt það vatn sem bærinn
þarfnaðist. En á heitum dögum
eins og á mánudaginn var, þegar
allir væru úti með slöngur að vökva
og þrífa, þyrfti auðvitað talsvert til.
Nú er verið að leggja sérstaka
lögn beint frá vatnsbóli að Mjólkur-
samlagshúsi KEA á Akureyri.
Franz sagði að þetta væri verk sem
unnið væri að beiðni mjólkursam-
lagsins, sem bæri kostnað af því
samkvæmt samningi, en það
tengdist átöppun neysluvatns í
neytendaumbúðir.
Að sögn Þorkels Pálssonar hjá
KEA er hér um að ræða fram-
kvæmd sem gerð er til að uppfylla
kröfur markaðarins. Vatn væri
vissulega ævinlega best beint úr
lindinni og með þvi að beintengja
átöppun og framleiðslu úr vatns-
lind væru tryggð hámarksgæði
vatnsins fyrir neytandann. Því
væri þetta sjálfsögð aðgerð til að
tryggja fyrsta flokks vöru.
INNLENT
of mikið súrefni í vatninu ylli tær-
ingu á hitakerfum. Þess vegna hefði
reynst nauðsynlegt að gera sérstak-
ar ráðstafanir til að veijast súrefn-
isupptöku í því hreina vatni sem
kæmi úr eldri holum veitunnar.
Hann taldi þó að heita vatnið ætti
ekki að verða lyktarmeira eftir
hugsanlega samtengingu.
„Þarna er töluvert af nógu heitu
vatni. Það er ekki spurningin,“
sagði Franz, „spurningin er einfald-
lega sú hvort við hittum í æðina
án þess að bora alltof margar holur
og þá án þess að þetta verði of
dýrt. Við erum núna í biðstöðu og
bíðum þess að hægt verði að gera
mælingar um eða upp úr komandi
helgi.“