Morgunblaðið - 08.07.1992, Qupperneq 32
fclk í
fréttum
KJUiJi/jVLDfi
HJOLATQSKURNAR
FYLGJA ÞER ALLA LEIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JULI 1992
Orugg festing
byxf£i)'l
Helstu söluaðllar BMF á íslandi:
Höfuðborgarsvæðið:
Húsasmiðjan hf., Reykjavfk.
Húsasmlðjan hf., Hafnarfirði.
Vesturland:
Akur hf., Akranesi.
Kaupf. Borgfirðinga, Borgamesi.
Skipavfk hf., Slykkishólmi.
Vestfirðir:
Pensillinn hf„ Isafírði.
Norðurland vestra:
Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Torgiö hf., Siglufirði.
Austurland:
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki. Kaupf. Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Norðurland eystra: Kaupf. Fram Neskaupstað.
KEA byggingavörudeíld, Lónsbakka, Akureyri. K K Hö,n' Hornafiröi.
Höfn-Príhyrningur, Hellu.
S.G. búöin, Selfossi.
Húsey, Vetmannaeyjum.
Kaupf. Húrtvetninga. Blönduósi.
Kaupf. Þingeyinga, Húsavfk.
Suðuriand:
Kaupf. Rangæinga, Hvolsveili.
Suðurnes:
Járn & skip, Keflavlk.
ÚLFUÓTSVATN
Skátaflokkur tslands 1992
Skátasamband Reykjavíkur hélt
dagana 25.-28. júní skátamót
að Úlfljótsvatni. Mótið var haldið í
tilefni 60 ára afmælis skátahreyf-
ingarinnar á íslandi, 70 ára afmæl-
is fyrsta kvenskátafélagsins, Kven-
skátafélags Reykjavíkur og að 50
ár eru liðin frá því að Skátaskólinn
að Úlfljótsvatni hóf starfsemi sína.
Aðsókn að mótinu var góð enda við
hæfí að skátar fjölmenni á skáta-
mót í tilefni átttugasta afmælisárs
hreyfíngarinnar. Um 650 skátar
gestu við Úlfljótsvatn á meðan
mótið stóð yfír.
Dagskrá mótsins var þannig úr
garði gerð að allir aldurshópar
skáta fundu verkefni við sitt hæfi.
Viðfangsefnin voru að nokkru til-
einkuð skátamótum fyrri tíma, með
mikilli áherslu á tjaldbúðastörf,
gönguferðir rötun og kortalestur.
Hámark dagskrárinnar var íslands-
meistaramót í skátaíþróttum.
Keppni í íslandsmeistaramótinu
hófst nokkru fyrir skátamótið.
Skátaflokkamir reyndu sig í ýmsum
greinum skátafþrótta svo sem rötun
og ferðamennsku. Á skátamótinu
fór svo fram úrslitakeppni, þar
kepptu tíu bestu skátaflokkarnir
um sæmdarheitið skátaflokkur ís-
lands. Hlutskarpastur varð skáta-
flokkurinn Mýslur úr skátafélaginu
Garðbúum í Reykjavík. Annað sæt-
ið skipaði skátaflokkurinn Otrar úr
skátafélaginu Skjöldungum í
Reykjavík og þriðja sætið kom í
hlut Antilópa úr sama félagi.
VERTU VEL ÚTBÚIN - TREYSTU A KARRIMOR
OPNUNARTÍMI:
MÁN.-FÖS. 09:00-18:00
LAU. 10:00 -14:00
SENÐUM i PÓSTKRÖFU
(E>
fRAMMK
SN0RRABRAUT 60 • 105 REYKJAVÍK
SIMAR: 1 20 45 • 6241 45
MENNTUN
Hefur nám í laga-
deild 7 5 ára að aldri
Sjötíu og fimm ára kona í Reykja-
vík, Margrét Thoroddsen, inn-
ritaði sig í lagadeild Háskóla ís-
lands nú fyrir skömmu. Margrét lét
af störfum á síðasta ári og segir
hún að sig langi til að láta á það
reyna, hvort það fólk, sem ekki
þyki lengur gjaldgengt á vinnu-
markaði, geti ekki skilað árangri í
námi.
Margrét lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1937
og prófí í heimspekilegum for-
spjallsvísindum frá Háskóla íslands
ári síðar. Hún var heimavinnandi
húsmóðir um árabil, en 57 ára hóf
hún nám í viðskiptafræði við Há-
skólann. Að því námi loknu hóf hún
störf hjá Tryggingastofnun ríkisins
og starfaði þar þangað til í fyrra-
haust.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Margrét, að hún væri afar ósátt við
það fyrirkomulag, að fólki væri
meinað með lögum að stunda vinnu
eftir að það hefði náð ákveðnum
aldri, óháð heilsu þess og starfs-
þreki. „Það er meðal annars þess
vegna, sem mig langar nú til að
láta á það reyna, hvort fólk, sem
ekki þykir lengur gjaldgengt á
vinnumarkaði, geti ekki skilað
árangri í námi.“
Hún sagði að þegar hún hefði
ákveðið að hefja nám að nýju hefði
lögfræðin orðið fyrir valinu, enda
hefði hún ávallt haft áhuga á þeirri
grein. „Þegar ég hóf viðskiptafræði-
námið á sínum tíma var ég mikið
að hugsa um að fara í lögfræðina,
en valdi viðskiptafræði, þar sem það
Margrét Thoroddsen.
er styttra nám. Hins vegar tók ég
margar valgreinar tengdar lögfræði
í því námi, þannig að ég fékk tæki-
færi til að kynnast henni lítillega,"
segir hún. Þess má geta, að í fjöl-
skyldu Margrétar eru fjölmargir
lögfræðingar, þeirra á meðal bræð-
ur hennar Gunnar og Jónas, Tómas
Jónsson mágur hennar og margir
þeirra afkomendur.
Margrét sagði að lokum, að hún
ætlaði í upphafi að kynna sér nám-
ið, en síðar kæmi á daginn hvort
hún færi í próf. Að því stefndi hún
ef heilsan leyfði.
MorgunDiaoio/öjom tsionoai
Myndin sýnir hópinn við afhendingu prófskírteinanna ásamt þeim Haraldi Stefánssyni slökkviliðsstjóra sem
er lengst til hægri og þjálfunarstjóranum Halldóri Vilhjálmssyni sem er lengst til vinstri. Á myndinni eru
auk þeirra: Rúnar Þórmundsson, Garðar Ólafsson, Öm Svar Júlíusson, Björgvin Garðarsson, Haraldur
Jakobsson, Einar Guðmundsson, Ámi Þór Áraason, Ómar Björasson, Sigurður Ámundason, Árni Erlings-
son, Jónas Pétursson, Eggert Karvelsson, Ingvar Georgsson, Björn R. Ingólfsson, Pétur Júlíusson, Arai
Ómar Árnason, Bjöm Ólafsson. Á myndina vantar Patrik Jósepsson, Jón Þór Gunnarsson og Guðbrand
Lárusson.
KEFLAVIKURFLU GV OLLUR
Slökkviliðið útskrifar slökkviliðsmenn
Nýlega útskrifuðust tuttugu og
einn slökkviliðsmaður hjá
slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli
eftir 44 mánaða bóklega og verklega
þjálfun í skóla slökkviliðsins. Skólinn
byggir á stöðluðu námsefni„Intem-
ational Fire Service Training Assoc-
iation" sem eru samtök slökkviliðs-
manna, slökkviliðsstjóra og annarra
stétta við brunavamir vestanhafs.
Námið í skólanum tekur til flestra
þátta í starfi slökkviliðsmannsins og
önnuðust 14 yfirmenn slökkviliðsins
kennsluna. Meðal námsefnis van fýr-
irbyggjandi aðgerðir, eðli elds,
slökkviefni og eiginleikar þeirra,
slökkvi - og björgunaraðgerðir,
tækjabúnaður til slökkvi og - björg-
unarstarfa og meðferð hans, reykk-
öfun, reyklosun, vatnsfæði og nýting
þess, sjálfvirk boðunar og slökkvi-
kerfi, akstur slökkvibifreiða, fjar-
skipti, skýrslugerð og viðbrögð við
efnaslysum og flugslysum. Slökkvil-
iðið á Keflavíkurflugvelli er rekið af
vamarliðinu og er eingöngu skipað
íslenskum starfsmönnum.
-BB