Morgunblaðið - 08.07.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚU 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl) **
Þér munu farast vel úr hendi
öll verkefni sem þú tekst þér
á hendur á heimilinu í dag. Á
vinnustað eru líkur á misskiln-
ingi sem þú þarft að leiðrétta.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Maki eða mjög náinn vinur
kann að hafa gert áætlanir
sem stangast á við það sem
þú vilt gera. Reynið fyrir alla
muni að komast að samkomu-
lagi um málið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ættir ekki að falast eftir
láni í dag, heldur reyna að
leysa málin sjálfur. Þú þarft
að taka eyðslu þína til ræki-
legrar endurskoðunar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Eitthvert ósamræmi er hjá
hjónafólki í dag. Góð leið til
að losa um hnútinn er að gera
eitthvað saman, fara til dæmis
út að borða eða í kvikmynda-
hús.
(23. júlf - 22. ágúst)
Þú hefur ómeðvitað ráðskast
með annarra manna tilfinn-
ingar og þarft að læra að vera
nærgætinn. Þú hefur ekki allt-
af rétt fyrir þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ef finnst þér einhver hafa
hafnað þér ættir þú að kanna
hvort það eru ekki viðbrögð
við einhvetju sem þú gerðir
eða sagðir. Höfnunin þarf ekki
endilega að beinast að þér sem
manneskju.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú hefur yfirstigið erfiðleika
sem þú vannst að af tölu-
verðri einbeitni. Nú ættir þú
að snúa þér að þínum nán-
ustu.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember) 90$
Þú ert ósammála einhveijum
í dag, en þar sem um er að
ræða smáatriði, ættir þú ekki
að láta þessar ólíku skoðanir
koma þér úr jafnvægi.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þetta er ekki rétti dagurinn
til að taka mikilvægar ákvarð-
anir I Qármálum. Þú ættir að
taka þér umhugsunarfrest.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert fremur kuldalegur í
samskiptum í dag. Líkamlegt
ástand þarfnast þess að þú
gerir eitthvað t málunum
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) dA
Þú hefur efasemdir um getu
þína í ákveðnu máli. Þú ættir
ekki að ganga til verks fyrr
en þú ert sannfærður um að
geta lokið því.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) JSt
Vinur þinn er í slæmu skapi
í dag. Láttu það ekki trufla
þig, því þú stendur sjálfur
frammi fyrir fremur erfiðu
verkefni.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
To/HAU, þú HL OST/tfíTV
ALPnet...
T* ÖSKANOi AP
MyNOie HUGSA-.
BEGGJX HLí£>/f 'yfóu/p EN
i ió^ka
V7— Tv7 L-JV/OIVM 7 / / hafix T“
VSGHA I
FERDINAND
SMÁFÓLK
It was a dark NO 10ONPER YOUR ST0RIE5 It was a dark
and stormy níght. i NEVER 5ELL ...THEY ALL BEélN THE SAME U)AY.. and stormy noon.
D o> « .2 1 V) • 5 a> U. 3
1 S/gjjlmU $
5- n $ ©
Það var dimm óveðursnótt Engin furða þó að sögurnar þínar seljist Það var dimmt óveðurshádegi
aldrei ... þær byija aiiar eins
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Danimir Christiansen og Grau-
lund villtust illa af leið þegar
Sverrir Ármannsson stríðnisdo-
blaði tvíræða opnun suðurs á 2
laufum með minna en ekki neitt.
Þetta var í síðari leik liðanna á
Norðurlandamótinu:
Norður gefur, allir á hættu.
Vestur Norður ♦ 9862 ¥ Á1086 ♦ Á643 ♦ 8 Austur
♦ G107 ♦ D543
¥943 II ¥ D75
♦ 87 ♦ KG95
♦ DG752 Suður ♦ 104
♦ ÁK ¥ KG2 ♦ D102 ♦ ÁK963
Vestur Noröur Austur Suður
Sverrir Christ- iansen Matthías Graulund
— Pass Pass 2 lauf
Dobl (n) 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 3 grönd
Pass 4 tfglar Pass 4 grönd
Pass Pass Pass
Opnun suðurs var annaðhvort
sterk eða veik með tígullit. Dobl
á slíkum opnunum sýnir venjulega
góð spil, a.m.k. 13 hp. En Sverrir
nennti ekki að sitja aðgerðarlaus
og doblaði til að „hræra upp í stöð-
unni“. Sem tókst svo sannarlega.
Christiansen gerir ráð fyrir að
makker sé með veika tvo í tígli
og segir því rólega 2 tígla við do-
blinu. Þegar Graulund sýnir svo
jafnskipta hönd með 20-22
punkta ákveður Christiansen að
dobl Sverris sé byggt á lauflit
miklum og reynir hvað hann getur
til að komast á annan samning en
3 grönd. Fyrst spyr hann um há-
liti og býst svo við tígulsamlegu
þegar Graulund neitar fjórspila
hálit. En Graulund átti ekkert
nema lauf.
Sverrir spilaði út spaðagosa og
Graulund fór strax í hjartað, tók
kónginn og spilaði litlu á tíuna.
Matthías átti slaginn og spilaði
áfram spaða. Graulund tók næst
tvo slagi á hjarta og spilaði síðan
tígli úr borðinu og lét tíuna. Hann
ætlaði ekki að trúa sínum eigin
augum þegar tían átti slaginn og
leit spurnaraugum á Sverri. Hann
lét tíguldrottninguna rúlla hring-
inn, en Matthías átti of mikið í
litnum og Graulund gat aldrei
fengið nema níu slagi.
Hinum megin spiluðu Karl og
Sævar 3 grönd og fengu 10 slagi!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á ólympíumótinu í Manila um
daginn kom þessi staða upp í við-
ureign stórmeistaranna Loginov
(2.540), Úsbekistan og Azma-
iparashvili (2.610), Georgíu, sem
hafði svart og átti leik. Hvíta stað-
an er betri, eftir t.d. 31. - Rxh3+
32. Kg2 - Rd8 33. c4 - Hb4 34.
Dxe5 blasir afhroð við svarti.
Georgíumaðurinn freistaði því
gæfunnar með fórn:
33. Bxf4 - exf4 34. Rf3 - Hh5
35. Rh4 - Hxh4 og hvítur gafst
upp, því eftir 36. gxh4 - f3 er
hann óveijandi mát. Þetta eru
glæsileg lok á skákinni, en í 34.
leik missti hvftur af vöminni 34.
Dc3! Þá getur hann svarað 34. -
Hh5 með 35. Df3. Svartur hefði
f raun getað gefist upp ef hvítur
hefði fundið vörnina.
Þessi heppnissigur bjargaði
hinni öflugu sveit Georgíu frá al-
gjöru afhroði gegn úsbekunum
sigursælu, þv! á öllum hinum borð-
unum þremur urðu þeir hlutskarp-
ari.