Morgunblaðið - 08.07.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JULI 1992
35
STÆRSTA MYND ARSINS ER KOMIN
TVEIR Á TOPPIMUM 3
„LETH AL WEAPON 3“ er vinsælasta mynd ársins i Bandaríkjunum!
Fyndnasta, besta og mest spennandi „Lethal“-myndin til þessa!
Þeir Gibson, Glover og Joe Pesci eru óborganlegir!
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Joe Pesci og Rene Russo.
Framleiðandi: Joel Silver. Leikstjóri: Richard Donner.
Sýnd kl. 5,9og 11.15. Bi.i4ára.
Sýnd í Saga-bíó kl. 7 og 10.05.
P)
f.,(
WSj HONDINSEM
. VÖGGUNNIRIIGGAR
iS T TniU
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
SNORRABRAUT 37, SIMI 11 384
TOPPMYND ÁRSINS
TVEIR Á TOPPIMUM 3
MEL EIBSOIV , OAMMY ELOVER
„LETHAL WEAPON 3“ er fyrsta myndin sem frumsýnd er í þremur
bíóum hérlendis.
„LETHAL WEAPON 3“: 3 sinnum meiri spenna, 3 sinnum meira grin.
Þú er ekki maður með mönnum nema að sjá þessa mynd!
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Joe Pesci og Rene Russo.
Framleiðandi: Joel Silver. Leikstjóri: Richard Donner.
Sýnd kl. 4.30,6.45,9 og 11.20. bí. 14 ára.
GRANDCANYON
Sýnd ki. 5og 11.15
STEFNUMOT VIÐ VENUS - sýnd kl. 7.
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
GRÍN-SPENNUMYND ARSINS
TVEIRÁT0PPNUM3
MEL EIBSOIV , DANNY ELOVER
OJ***-,
„LETHAL WEAPON 3“ tók inn 2.100 milljónir kr. i kassann fyrstu
þrjá sýningardagana og er það önnur stærsta opnun í sögu kvik-
myndanna.
„LETHAL WEAPON 3“ mynd, sem þú sérð aftur og aftur!
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Joe Pesci og Rene Russo.
Framleiðandi: Joel Silver. Leikstjóri: Richard Donner.
Sýnd kl. 7 og 10.05. bí. i4ára.
Sýnd í Bíóhöllinni kl. 5,9 og 11.15.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
LEITIN MIKLA
Sýnd kl. 5.
MmmiTT
UU
„Aumt er að sjá í einni lest... “
kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin:
Einu sinni krimmi - „Once
Upon a Crime “
Leikstjóri Eugene Levy.
Framleiðandi Dino De Laur-
entiis. Aðalleikendur John
Candy, James Belushi, Sean
Young, Cybill Shepherd, Ric-
hard Lewis, Giancarlo Gian-
ini, Joss Ackland, Ornella
Muti, George Hamilton. Itölsk-
Bandarísk. 1991.
Dino De Laurentiis má muna
sinn fífil fegri, einkum gósenárin
á Ítalíu frá þvi um 1950-70. Þá
var hann fjárhagslegur bakhjarl
fjölmargra úrvalsmynda og átti
ríkan þátt í nýraunsæisstefnunni
og uppgangi snilinga á borð við
Fellini. Á áttunda áratugnum var
svo stefnan tekin á Hollywood
og siðan hefur tæpast staðið
steinn yfir steini og eftir öðru
að eina myndin sem skilað hefur
einhveiju í kassann er Kónan
villimaður. Lenti í gjaldþroti með
fyrirtæki sitt DEG fyrir fáum
árum og þær tilraunir sem hann
hefur gert til að klóra í bakkann
síðan hafa mislukkast.
Ein mistökin blasa við hér.
Einu sinni krímmi er greinilega
afurð framleiðanda sem búinn
er að tapa áttum á kvikmynda-
markaðnum. Myndin er uppá-
komufarsi sem á við mjög slæmt
vandamál að stríða - er gjör-
sneydd ærlegu skopi en uppfull
af fimmaurabröndurum. Það
væri að æra óstöðugan að hætta
sér útí að skýra söguþráðinn.
En það er eitt hundstíkarafvæli
af greifmgjaætt sem tengir sam-
an leikhópinn sem telur fáráðinn
Belushi sem kominn er ásamt
sinni ektavíf (Shepherd) til Róm-
ar að freista gæfunnar í spilavít-
um gamla heimsins. I borginni
eilífu bætast í hópinn Sean Yo-
ung, ferðalangur í ástarsút og
auraleysi, atvinnulaus leikari
(Richard Lewis) og forfallinn,
bandarískur fjárhættuspilari
(John Candy) ásamt sinni ættg-
öfugu eiginkonu (Ornellu Muti).
Liggja Ieiðir þeirra saman í lest-
inni til Monte Carlo þar sem
mannskapurinn flækist í morð-
mál, peningaspil og sitthvað
fleira.
Aumt er að sjá þetta saman-
safn þriðjaflokks leikara saman-
komna í einni lest ásamt lítt
skárra kvikmyndagerðarfólki að
undanskildum kvikmyndatöku-
manninum Rotunno, sem reynd-
ar hefur verið í lægð síðasta
áratuginn eða svo og sker sig
lítið úr hér. Handritið er ótrúlega
ruglingslegt og ófyndið og
mannskapurinn sem á að túlka
ósköpin ekki hótinu skárri. Verst
af öllum er Sean Young sem fer
náttúrlega með aðalhlutverkið.
Maður satt að segja furðar sig
á því að hún skuli hafa í sig og
á eftir að hafa séð frammistöðu
hennar hér. Það er helst að
Candy haldi haus og Gianini sigl-
ir einhvernvegin uppréttur í
gegnum þetta alltsaman. En vildi
örugglega vera frekar í fylgd
Wertmiiller og það einhversstað-
ar víðsfjarri þessum álfahóp.