Morgunblaðið - 08.07.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 1992
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Heilla-
dísimar
ábandi
Víkinga
Eyjamenn fengu að kynnast því
á Víkingsvellinum að það get-
ur verið stutt á milli hláturs og
mmgm 8T^t'urs 1 knatt-
' Prosti spymu. Eftir 90
Eiðsson mínútna leik benti
skrifar allt til þess að ÍBV
væri öraggt í 8-liða
úrslit bikarkeppninnar. Þá branuðu
Víkingar í sókn og Atla Einarssyni
var brugðið innan vítateigs og Helgi
Sigurðsson náði að jafna 2:2 með
marki úr vítaspyrnunni. í framleng-
ingunni skoraðu Víkingar þriðja
mark sitt og tryggðu sér áframhald-
andi sæti í bikamum.
Líklega eru allar vítaspymur sem
dæmdar era á síðustu mínútu við
aðstæður sem þessar vafasamar.
Ekki verður felldur dómur um það
hér hvort að Ingi Sigurðsson felldi
Atla Einarsson þegar hann var á
"léið inn á markteig. Dómarinn
Kristján Guðmundsson var viss í
sinni sök og dæmdi vítaspymu.
Leikur liðanna var opinn og flör-
ugur en jafnframt harður og ekki
vel leikinn ef undanskilinn eru leik-
ur Víkinga á fyrsta hálftímanum.
Víkingar létu boltann ganga vel á
milli sín á miðjunni og Guðmundur
Ingi Magnússon sem var mjög at-
kvæðamikill á þessu tímabili skor-
aði fyrsta markið með skalla eftir
níu mínútna leik. IBV komst betur
rnn í leikinn og var betra liðið á
síðasta stundarfjórðungi hálfleiks-
ins en náði ekki að jafna þrátt fyr-
ir þokkaleg færi. Þáttur Leifs Geirs
Hafsteinssonar hófst á fimmtíu
mínútum þegar hann kom inn á sem
varamaður. Leifur skoraði tvö
skallamörk með þriggja mínútna
millibili og ÍBV var hættulegri aðil-
inn það sem eftir lifði. Bæði lið
fengu þó opin færi. 92 mínútum
eftir að flautað hafði verið til hálf-
leiksins fengu Víkingar fyrmefnda
vítaspyrnu og það var svo Guð-
mundur Ingi sem tryggði Víkingum
sigurinn með skallamarki í fram-
lengingunni.
Guðmundur Ingi, Helgi Bjama-
€ son og Janni Zilnik vora bestir Vík-
inga. Hjá Eyjamönnum stóð Friðrik
Friðriksson uppúr, sýndi oft á tíðum
frábær tilþrif.
Morgunblaðið/Bjarni
Sigurbjörn Marinósson, Bibbi, leikmaður Vals á Reyðarfirði, sem er 36 ára, gaf yngri mönnunum ekkert eftir. Hér
er hann t.v. í baráttu við Þórð Guðjónsson, sem gerði þrennu fyrir ÍA.
Barátla Vals dugði ekki
SKAGAMENN unnu stórsigur,
7:0, gegn Valsmönnum á Reyð-
arfirði ígærkvöldi. Heimamenn
börðust hetjulega, en áttu aldr-
ei möguleika gegn létt leikandi
og vel spilandi liði gestanna í
mjög svo prúðmannlegri viður-
eign.
Reyðfirðingar, sem leika í fjórðu
deild, höfðu aldrei trú á að
þeir gætu sigrað efsta lið fyrstu
deildar og höfðu í
Steínþó^ raun sætt sig við tap
Guðbjartsson áður en flautað var
skrifarfrá til leiks. Þeir ætluðu
Reyðarfirði sér samt greinilega
að fara útúr bikarkeppninni með
sæmd, börðust allan tímann og
gáfu allt, sem þeir áttu. Það var
samt ekki nóg, því Skagamenn
héldu sínu striki, sóttu látlaust og
reyndu ávallt að bæta við eftir gott
spil.
„Aðalvandamálið var að „mótí-
vera“ mannskapinn,“ sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari Skagamanna,
við Morgunblaðið. „En við sýndum
mikla ögun með þvi að spila fót-
bolta við erfiðar aðtæður og halda
áfram út leikinn. Við tókum enga
áhættu, fórum rólega af stað og
forðuðumst návígi, en fengum það
sem við vildum — sigur, hreyfingu
og góða æfingu."
Gústaf Ómarsson, þjálfari Vals,
sagði að búast hefði mátt við tapi,
„en ekki svona stóra. En baráttan
var góð og þar stóðum við jafnfæt-
is þeim — hvergi annarsstaðar. Það
hefði verið gaman að gera eitt
mark, þegar færi gafst í byijun
fyrri hálfleiks, en þrátt fyrir tapið
fengu strákarnir heilmikið út úr
þessu. Það var gaman að fá Skaga-
menn í heimsókn og allt umstangið
í kringum leikinn verður eftirminni-
legt.“
Hvergi var veikur hlekkur í
Skagaliðinu, sem vann samstíga að
settu marki. Nánast var um ein-
stefnu að ræða allan tímann og til
marks um yfirburðina þá náðu
heimamenn ekki að skjóta að marki
IA eftir hlé. Miðjumennirnir og
framheijamir vora því mest í bolt-
anum og er ástæða til að geta
frammistöðu Þórðar Guðjónssonar,
sem gerði þijú mörk.
Valsmenn vörðust hetjulega, en
máttu í raun þakka fyrir að mörkin
urðu ekki fleiri. Þar munaði mest
um Jónas Hjartarson, sem bjargaði
oft með góðum úthlaupum og varði
auk þess meistaralega á stundum.
Boltafélagid engin
hindrun fyrir Fram
BOLTAFÉLAG ísafjarðar var
ekki nein hindrun fyrir Framara
í 16 liöa úrslitum Mjólkurbikar-
keppninnar í gærkvöldi. Fram
vann öruggan sigur á 2. deild-
arliði BÍ, 4:1, og er þar með
komið í átta liða úrslit.
að má í raun segja að Fram
hafi gert út um leikinn strax á
fyrstu mínútunum. Valdimar Kristó-
fersson gerði fyrsta
Stefán mark þeirra á fjórðu
Eiriksson mínútu og sló það
skrifarfrá greinilega ísfirðinga
Isafirði alveg út af laginu.
Framarar náðu í kjölfarið öllum tök-
um á leiknum og skoraði áðurnefnd-
ur Valdimar í annað sinn tólf mínút-
um síðar.
Leikurinn róaðist eftir þessa byrj-
un, marktækifæri vora fá það sem
eftir lifði hálfleiksins en Framarar
héldu eftir sem áður tökum sínum á
leiknum.
Síðari hálfieikur byijaði líkt og
hinn fyrri; með marki Fram og í
þetta sinn var það Jón Erling Ragn-
arsson sem skoraði með skalla. Þrátt
fyrir erfiða stöðu sóttu ísfirðingar í
sig veðrið er líða tók á leikinn. Þeir
fengu nokkur færi og þegar leik-
tíminn var nærri úti náði Örn Torfa-
son að minnka muninn með hörku
skoti af stuttu færi.
Framarar, sem nánast voru hættir
þegar hér var komið sögu, rumskuðu
aðeins við þetta, og Jón Erling bætti
við fjórða markinu.
ísfirðingar voru óöruggir lengi
framan af, báru augljóslega virðingu
fyrir 1. deildarliðinu og uppskáru í
samræmi við það. Örn Torfason var
langbestur ísfírðinga og eins áttu
Jóhann Ævarsson og Gunnar Torfa-
son ágætan leik.
Framarar léku skynsamlega,
fengu þægilega stöðu strax í byijun,
og þurftu ekki mikið að hafa fyrir
hlutunum eftir það. Steinar Guð-
geirsson átti frábæran leik í fyrri
hálfleik sem og Ingólfur Ingólfsson,
sem kom á nýjan leik inn í liðið eft-
ir meiðsli. Pétur Óskarsson var í
byrjunarliði Fram í fyrsta skipti í
sumar og stóð sig vel.
„Við höfðum trú á því að við
gætum gert eitthvað á móti þessu
liði en þeir eru einfaldlega sterkir.
Við ætluðum svo sannarlega að
velgja þeim undir uggum en fyrsta
markið kom sem rothögg og það var
erfitt að ná sér upp eftir það,“ sagði
Öm Torfason besti leikmaður BÍ.
Fylkissigur
M " ■■
ISJO
marka leik
Benjamin
Jósepsson
skrifarfrá
Ólafsfirði
FYLKISMENN tryggðu sér sæti
í 8-liða úrslitum bikarsins með
því aðsigra Leiftur ífjörugum
leik á Ólafsfirði 5:2
Leikurinn fór rólega af stað og
liðin þreifuðu fyrir sér. Leift-
ursmenn vora fljótari í gang og
Pétur Björn Jónsson
náði forystunni fyrir
heimamenn. Fylkis-
menn jöfnuðu með
marki Þórhalls Dan
Jóhannssonar og staðan var jöfn í
hálfleik.
Kristinn Tómasson náði forystu
fyrir Fylki í upphafi síðari hálfleiks-
ins og Finnur Kolbeinsson bætti
þriðja markinu við með skoti utan
vítateigs. Kristinn skoraði síðan
annað mark sitt um miðjan hálfleik-
inn og Indriði Einarsson átti síðasta
orðið þegar hann skoraði fímmta
mark Fylkis úr þröngu færi. Leiftur
minnkaði muninn á lokamínútunum
með marki Péturs Björns Jónssonar
eftir að Pétur Marteinsson hafði
verið felldur.
Bestir Leiftursmanna vora Mark
Duffield sem barðist mjög vel allan
leikinn og Sigurbjörn Jakobsson.
Þórhallur Dan Jóhannsson og Krist-
inn Tómasson voru bestu menn
Fylkis.
KA-Þór 2:0
Akureyrarvöllur, Mjólkurbikarkeppni KSÍ,
16-liða úrslit, þriðjudaginn 7. júlí 1992.
Mörk KA: Páll Gíslason (69.), Gunnar Már
Másson (82.)
Gult spjald: Árni Hermannsson, KA (68.)
fyrir brot, Haukur Bragason, KA (73.) fyr-
ir mótmæli, Lárus Orri Sigurðsson, Þór
(18.) fyrir brot og Ámi Þór Árnason, Þór
(92.) fyrir brot.
Ahorfendur: 1.250.
BÍ - Fram 1:4
ísafíarðarvöllur þriðjudaginn 7. júlí 1992.
Mark BÍ: Öm Torfason (87.).
Mörk Fram: Valdimar Kristófersson (4.
og 16.), Jón Erling Ragnarsson (51. og90.).
Gult spjald: Ámundi Sigmundsson, BÍ
(25.), Helgi Helgason, B1 (50.), Baldur
Bjarnason, Fram (25.), Kristinn R. Jónsson,
Fram (45.), allt fyrir brot.
Áhorfendur: 320.
ValurRf.-IA
0:7
Grænafellsvöllur þriðjudaginn 7. júll 1992.
Mörk ÍA:Þórður Guðjónsson (18., 41.,87.),
Haraldur Ingólfsson (43., 55.), Alexander
Högnason (67.), Theodór Hervarsson (82.).
Gult spjald: Enginn.
Áhorfendur: 700_ greiddu aðgangseyri.
Víkingur - ÍBV 3:2
Víkingsvöllur þriðjudaginn 7. júlí 1992.
Mörk Víkings:Guðmundur I. Magnússon
(9., 113.), Helgi Sigurðsson (90. vsp).
Mörk ÍBV: Leifur Geir Hafsteinsson (60.,
63.).
Gult spjald: Helgi Björgvinsson, Víkingi
(27.) fyrir að handleika knöttinn, Bojan
Bevic, IBV (88.) fyrir brot, Martin Eyjólfs-
son, ÍBV (110.) fyrir brot, Ingi Sigurðsson,
ÍBV (117.) fyrir munnsöfnuð.
Áhorfendur: Um 100
UBK-Valur 0:3
Kópavogsvöllur, þriðjudaginn 7. júlí 1992.
Mörk Vals: Anthony Karl Gregory (9.),
Amljótur Davíðsson (10.), Baldur Bragason
(83.).
Gult spjald: Sigurður Víðisson, UBK (60)
fyrir brot, Hilmar Sighvatsson, UBK (74.)
fyrir brot.
Ahorfendur: 480.
Völsungur-KR 1:2
Húsavíkurvöllur þriðjudaginn 7. júlí 1992.
Mark Völsung;s: Hilmar Hákonarson (1.).
Mörk KR: Steinar Ingimundarson (75. og
80.).
Guít spjald: Heimir Guðjónsson, KR (10.)
fyrir brot, Rúnar Kristinsson, KR (55.) fyr-
irmótmæli, Bjöm Olgeirsson, Völsungi (57.)
fyrir mótmæli.
Ahorfendur: 417.
Leiftur - Fylkir 2:5
Ólafsfjarðarvöllur þriðjudaginn 7. júli 1992.
Mörk Leifturs: Pétur Björn Jónsson (27.
og 86. vsp.)
Mörk Fylkis: Þórhallur Jóhannsson (35.),
Kristinn Tómasson (50.), Finnur Kolbeins-
son (61. og 68.), Indriði Einarsson (78.)
Gult spjald: Einar Einarsson, Leiftri fyrir
brot, Guðmundur Baldursson, Fylki fyrir
mótmæli.
ÍBK-FH 1:2
Keflavíkurvöllur, þriðjudaginn 7. júlí 1992.
Mark ÍBK: Georg Birgisson (82.).
Mörk FH: Andri Marteinsson (55.), Hörður
Magnússon (67.)
Gult spjald: Birgir Skúlason FH (15.) fyrir
brot, Jakob Jónharðsson ÍBK (58.) fyrir
brot, Njáll Eiðsson FH (85.) fyrir mótmæli.