Morgunblaðið - 08.07.1992, Page 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
t
SJOV;
ÁLMENNAR
MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK
SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Söluskáli Esso í Hveragerði:
LÖGREGLAN á Selfossi var köllð að söluskála Esso í Hveragerði
siðdegis í gærdag en þar var þá staddur maður vopnaður hníf. Tveir
lögreglumenn komu fyrst á staðinn og hótaði maðurinn þá að skera
sig á háls ef þeir hefðu afskipti af honum. Lögreglumennirnir köll-
uðu til liðsstyrk og tókst að lokum að yfirbuga manninn með sér-
stöku táragasi, Mace, sem sprautað var framan í hann. í ljós kom
að maðurinn hafði sloppið af geðdeild Borgarspítalans.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Selfossi kom maður-
inn frá Reykjavík með leigubíl að
söluskálanum um kaffileytið. Lög-
reglunni var síðan tilkynnt um kl.
-t6.15 að aðstoðar hennar væri
óskað vegna mannsins. Eftir að
lögreglunni tókst að yfirbuga
manninn var hann fluttur aftur á
Borgarspítalann.
Hulda Eggertsdóttir, starfs-
stúlka í söluskálanum, segir, að
eftir að leigubflstjórinn kom inn í
skálann með manninum hafi hún
séð að eitthvað var að hjá honum.
„Leigubflstjórinn lét þess getið við
mig að maðurinn vissi ekkert hvert
^fcnn væri að fara í Hveragerði og
að sér hefði ekki orðið um sel er
maðurinn fór að ræða um byssur
og vopn í bílnum," segir Hulda.
„Við ákváðum að kalla til lögreglu
en maðurinn var í fyrstu rólegur
hér inni og keypti sér súkkulaði-
stykki. Er lögreglan kom hins veg-
ar varð hann mjög æstur og dró
upp þungan hníf. Hann ógnaði hins
vegar ekki öðrum en sjálfum sér
með hnífnum. Lögreglumönnum
tókst ekki að tala hann til og því
biðu þeir eftir liðsauka."
Hulda segir að sjálf hafi hún
orðið hrædd við manninn því henni
fannst hann horfa einkennilega á
sig eftir að hún hringdi á lögregl-
una.
Tívolíreist við Reykjavíkurhöfn
Morgunblaðið/Þorkell
Breskt tívolí rís nú við á Bakkastæði við Reykjavíkurhöfn og stendur til að opna það í dag. Hingað til lands
eru komnir 55 starfsmenn til að sjá um uppsetningu og rekstur tívolísins og munu þeir dvelja hér til 22. júlí.
Lögfræðinganefnd utanríkisráðherra skilar áliti:
EES-samning'urinn brýtur
Lögreglumenn af-
vopnuðu geðsjúkan
mann með táragasi
ekki í bága við stjómarskrá
NEFND fjögurra lögfræðinga, sem Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra skipaði, hefur komizt að þeirri niðurstöðu að samningurinn
um evrópskt efnahagssvæði brjóti ekki í bága við íslenzku stjórnar-
skrána. Nefndin telur að ekki sé á neinn hátt um óleyfilegt framsal
ríkisvalds að ræða til stofnana EES eða Evrópubandalagsins. Eigi það
við um allar þrjár greinar ríkisvaldsins, löggjafar-, framkvæmda- og
dómsvald.
Skipafélag-
ið Víkur lét
eftir sig 283
millj. skuld
SKIPTUM er lokið í þrotabúi
skipafélagsins Víka hf., sem úr-
skurðað var gjaldþrota i lok árs
1989. Engar eignir fundust í búinu
til greiðslu upp í lýstar kröfur sem
samtals námu rúmum 283 miltjón-
um króna.
Af lýstum kröfum voru um 269
milljónir króna í íslenskum krónum
og 10 milljónum króna að núvirði
var lýst í bandaríkjadölum auk
smærri upphæða í dönskum, sænsk-
um, þýskum og enskum gjaldmiðlum.
Nefnd utanríkisráðherra er skipuð
þeim Þór Vilhjálmssyni hæstaréttar-
dómara, Iagaprófessorunum Stefáni
Má Stefánssyni og Gunnari G.
Schram og Olafi Walter Stefáns-
syni, skrifstofustjóra í dómsmála-
ráðuneytinu. í áliti nefndarmanna
kemur fram að þeir hafi skoðað
ýmis ákvæði stjómarskrárinnar með
tilliti til þess hvort EES-samningur-
inn kynni að brjóta í bága við þau.
Eina grein stjórnarskrárinnar, sem
komið hafí til greina, sé 2. greinin.
Þar segir að Alþingi og forseti ís-
lands fari saman með löggjafarvald-
ið, forseti og önnur stjórnarvöld
samkvæmt stjórnarskránni og öðr-
um landslögum með framkvæmda-
valdið og dómendur fari með dóms-
valdið.
Nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu að ekki sé um framsal löggjaf-
arvalds að ræða, þar sem í bókun
35 við EES-samninginn segi á ljósan
og afdráttarlausan hátt að aðildar-
ríkjunum sé ekki gert að framselja
löggjafarvald til þeirra stofnana,
sem samningurinn fjalli um.
Hvað framkvæmdavald og dóms-
vald varðar eru það einkum sam-
keppnisreglur EES-samninganna,
sem koma til skoðunar í áliti Iög-
fræðinganna. Þeir telja að heimilt
sé að fela stofnunum evrópska efna-
hagssvæðisins það vald á sviði sam-
keppnisreglnanna, sem um ræði í
samningnum. „í 2. gr. stjómarskrár-
innar felst meginregla, sem margar
og mikilvægar undantekningar eru
frá að því er varðar valdmörk inn-
lendra aðila. Nokkrar undantekning-
ar frá henni eru einnig í gildandi
íslenzkum lögum að því er varðar
erlenda valdhafa," segir í álitinu.
Niðurstöður nefndarinnar voru
kynntar fyrir ríkisstjóminni í gær.
Jón Sigurðsson, starfandi utanríkis-
ráðherra, segir að álit nefndarinnar
sé fullnægjandi svar við þeirri spurn-
ingu hvort EES-samningurinn sam-
ræmist stjórnarskránni. Hún sé því
afgreitt mál og hægt sé að snúa sér
að lögfestingu samningsins og
ákvæða, sem tengjast honum, af
fullum krafti.
Nefndarmenn mættu einnig á
fund utanríkismálanefndar Alþingis,
þar sem EES og stjórnarskráin voru
til umfjöllunar í gær. Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, formaður utanríkis-
málanefndar, segist þrátt fyrir álits-
gerð Iögfræðinganna ekki sannfærð-
ur um að EES-samningurinn sam-
ræmist stjórnarskrá, en hann kveðst
meta störf þeirra manna, sem skip-
uðu nefndina og muni grandskoða
álitsgerð þeirra. Fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar í utanríkismálanefnd
eru þeirrar skoðunar að vafí leiki á
því áfram hvort samningurinn stand-
ist stjórnarskrána. Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, þingmaður Kvennalistans,
hvetja til þess að stjórnarskránni
verði breytt. Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknarflokksins,
segir að mörg atriði í EES-samn-
ingnúm orki tvímælis og málið þurfí
betri skoðunar við.
Sjá fréttir á miðopnu og álit
lögfræðinganefndarinnar í
heild í blaði B.
Bóluefni
stolið af
bamadeild
BROTIST var inn á heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur við Baróns-
stig aðfaranótt sunnudagsins og
bóluefni og adrenalini stolið af
barnadeild stöðvarinnar. Tals-
verðar skemmdir voru unnar á
hurðum og dyraumbúnaði.
Að sögn Magnúsar Þorsteinsson-
ar, yfírlæknis barnadeildar, fóru
innbrotsþjófarnir inn um glugga á
jarðhæð á norðurgafli hússins, þar
sem áður var húð- og kynsjúkdóma-
deild en nú er þar engin starfsemi.
Þaðan fóru þeir eftir jarðhæð upp
á aðra hæð og inn á bamadeild. A
leið sinni brutu þjófamir upp hurð-
alæsingar, fóm inn á bókasafn
stofnunarinnar og á skrifstofu
starfsmannastjóra og ollu talsverð-
um spjöllum.
Inni á barnadeild var brotinn upp
læstur ísskápur og úr honum tekið
bóluefni við mænusótt, kíghósta,
bamaveiki og stífkrampa og einnig
lítils háttar adrenalín, sem að sögn
Magnúsar Þorsteinssonar er haft
við höndina við bólusetningar ef til
kæmi að bóluefni ylli ofnæmislosti.
ísskápurinn var svo skilinn eftir
opinn og fyrir vikið eru þau lyf sem
í honum voru og þjófarnir höfðu
ekki á brott með sér talin ónýt.
Bílddælingar biartsýnni en áður eftir fund með þingmönnum:
Landsbankinn boðar stjóm
Fiskvinnslunnar til fundar
HEIMAMENN á Bíldudal eru bjartsýnni en áður um framtíðina
eftir fund hreppsnefndar með þingmönnum kjördæmisins í gær og
eftir að Landsbankinn sendi forráðamönnum Fiskvinnslunnar hf.
skeyti þar sem þeir eru boðaðir á fund bankamanna um lokunina.
Á fundinum í gær samþykktu þingmennirnir og hreppsnefndin til-
mæli til viðskiptaráðherra um að hann athugi lokun Landsbankans
á bankaviðskiptum við Fiskvinnsluna hf. og ræði um úrlausn við
sfjórn Landsbankans. Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sagði í
• gærkvöldi að hann muni biðja bankasljórnina að koma til fundar
við sig sem fyrst, vonandi í dag, og kynna honum málið.
Magnús Björnsson, stjómarfor-
maður Fiskvinnslunnar hf., sagðist
í gær óttast afdrif fyrirtækisins og
sagðist vita að því yrði ekki bjarg-
að nema með verulegum og sértæk-
um aðgerðum. Hann sagðist setja
allt sitt traust á bankastjóm Lands-
1 bankans og fundinn sem hún hefur
boðað stjórn og framkvæmdastjóyn
Fiskvinnslunnar til á föstudag. „Eg
vona að þeir gefi okkur svigrúm
til að vinna okkur út úr þessum
vanda;“ sagði Magnús. Hann sagði
að talað hefði verið um að 200
milljónir þurfi til að gera fyrirtæk-
in tvö á Bfldudal vel rekstrarhæf,
annað hvort með afskriftum skulda
eða auknu hlutafé og sagði að
nauðarsamningar hefðu verið
nefndir í því sambandi.
Viðskiptaráðherra sagði, þegar
leitað var eftir viðbrögðum hans
við tilmælum þingmannanna, að
hann myndi verða við óskum þeirra
um að ræða við Landsbankann en
vakti athygli á því að ráðuneytið
hefði ekki boðvald yfír bankanum.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, sagði í
gær að bankinn myndi ræða beint
við stjórnendur Fiskvinnslunnar hf.
en ekki á opinberum vettvangi.
Sjá fréttir og viðtöl á
bls. 18-19