Morgunblaðið - 10.07.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1992
11
Þórir Gröndal skrifar frá Flórída
Genever
Þegar ég kem til íslands reyni
ég a.m.k. einu sinni í ferðinni að
komast í vertshús og panta mér
tvöfaldan genever og vatn. Ég hefi
haldið tryggð við þennan hollenska
drykk með skrýtna bragðinu allt
frá þeim tíma, þegar maður fór
með völdum flokki ungra og ólof-
aðra valmenna. Sumir okkar kom-
ust þá á genever-bragðið. Ýmsar
tegundir voru í uppáhaldi, svo sem
Bols og sér í lagi Hulstkampf. Á
þeim eðla leirbrúsa stendur ritað á
hollenska tungu eitthvað þessu
svipað: „Elken Tag eene Glasche."
Sigurður félagi mislas þessa ábend-
ingu í húmi eins ágústkvölds. Hon-
um sýndist standa „Elken Tag eene
Flasche!" Óminnishegrinn sigraði
hópinn þá nóttina.
Geneverinn, framborið sjenever-
inn og ástúðlega kallaður sjenni, á
sér göfugt upphaf. Hann var fund-
inn upp í fyrstunni sem læknismeð-
al af heiðursmanninum Franciscusi
de la Boe við háskólann í Leiden í
Hollandi um miðja 17. öldina. Við
lögunina voru notuð einiber ásamt
íjölmörgum öðrum jurtum, og
dregur drykkurinn nafn sitt af beij-
unum, sem sem heita genievre á
frönsku. Seinna tóku Englendingar
veigamar og gerðu úr þeim sinn
eigin genever, sem svo varð gin.
Franciscus notaði drykkinn vð
magakvillum, en einnig var hannt
talinn hafa þvagörvandi áhrif.
Þetta vissi ég ekki þegar ég fór í
flugferð þá sem greint verður frá
hér á eftir.
Hérna í henni Ameríku er gene-
verinn næstum óþekktur. Það er
algjör tilviljun ef hann finnst í
áfengisverzlunum. Þá er hann kall-
aður hollenskt gin, því Bandaríkja-
menn geta ekki borið fram gene-
ver. Sá sem hér er seldur, er fram-
leiddur í Kanada og er hann ekki
eins ljúffengur og hollenski sjenn-
inn. Þess vegna kaupi ég hann
sjaldan. En þegar ég kem til Is-
lands eða stoppa í fríhöfnum Evr-
ópu kippi ég oft með ekta leirbrúsa
af Bols eða Hulstkampf. Þegar
heim kemur set ég brúsann í frysti-
kistuna og fær hann þar að dúsa
um hríð. Af og til fæ ég mér staup
í heilsubótarskyni, auðvitað og
rennur hann ljúflega niður, þykkur
og kaldur. Og þá þarf ekki að spyija
um áhrifin!
Því fylgja ýmsir kostir að eiga
leir-sjennabrúsa heima í kistu. Fáir
kunna að meta hann og fær maður
að eiga hann í friði. Svo er hitt,
að leirbrúsinn er þungur og auðvit-
að ógegnsær, svoleiðis að ekki er
hægt að sjá hvað búið er að drekka
mikið af innihaldinu. Skellurinn
kemur bara einu sinni, þegar síð-
asti dropinn rennur út!
Sjenninn er mér ef til vill kærari
en ella, af því að hann tengist flug-
ævintýri sem ég lenti í ungur að
árum. Við tveir félagar þurftum
að fara austur á fírði í lítilli eins-
hreyfils flugvél. Hún var ekki hrað-
geng, því flugið átti að taka tvo
og hálfan tíma. Ferðin var ákveðin
án mikils fyrirvara, en mér gafst
þó tækifæri til að skreppa heim og
ná mér í hæfileg ferðaföt. Þegar
ég var að snara mér út úr dyrunum
kom ég auga á stóru gúmmíboms-
urnar mínar sem ég notaði í garð-
vinnu og snjómokstri. Einhvern
veginn fannst mér þær svo upp-
lagðar í ferðina að ég skellti mér
í þær. Ferðafélaga mínum fannst
þetta vera óþarfi, því staðurinn
austanlands, sem við ætluðum að
heimsækja, væri þrifalegur og því
engin þörf fyrir slíkar veijur. En
ég hélt mínu striki og kom á dag-
inn seinna að hér hafði hönd for-
sjónarinnar stýrt gerðum mínum.
Á ákvörðunarstaðnum var okkur
vel tekið og dró ekki úr ánægjunni
að heimamaður tók undan úlpufaldi
sínum einn sveran og þybbinn
genever-pott, sem við supum á til
þess að ná úr okkur hrollinum eft-
ir flugferðina. Seinna var okkur
boðið inn á myndarheimili til kaffi-
drykkju og voru veitingamar auð-
kenndar af íslenzkri gestrisni á
hástigi: Brauð með áleggi, þeldökk-
ar kleinur, randaterta og síðast en
ekki sízt búlduleitar pönnukökur
sem voru að springa utan af blá-
beijamaukinu og þeytta ijómanum.
Með þessu munngæti þömbuðum
við fyrst mjólk, en síðan drukkum
við svellandi kaffí og reyktum með
svera vindla. Geneverbrúsinn var
geymdur bak við runna í garðinum,
því húsmóðirin var góðtemplar.
Gestgjafinn fylgdi okkur út á
flugvöllinn, þar sem við kvöddumst
með virktum. Geneverbrúsinn góði,
sem gengið hafði á milli okkar, var
nú líklega tæplega hálfur. Gest-
gjafínn sagði að okkur veitti ekki
af að njóta hans á hinni löngu leið
heim. Var síðan gengið aftur fyrir
flugvélina og kastað af sér öllum
þeim vökva sem út vildi fyrir flug-
ferðina.
Við sungum og hlógum og vorum
kátir með aðstoð sjennans. Eðlilega
tók flugmaðurinn ekki þátt í gleð-
skapnum. En bráðlega fór ferðafé-
laginn að kvarta um eymsli í
kviðarholi, og duldist okkur ekki
lengi að hér væri um þenslusjúk-
dóm að ræða sem orsakaðist af of
mikilli þvagsöfnun í blöðrunni. Sem
sagt, hann þurfti að pissa. Fyrstu
hlógum við meira, en honum elnaði
skiljanlega sóttin og var þá ekki
lengur hlátur í huga. Allt í einu
leit hann sjennabrúsann hýru auga.
Var ákveðið í skyndi að klára veig-
arnar, enda var nú ekki mikið eft-
ir. Eftir tæminguna tók félagi minn
brúsann og var síðan gerð vökvatil-
færing milli blöðrunnar og brús-
ans. Hann stundi af létti og vellíð-
an um leið og spennan minnkaði.
Flugmaðurinn opnaði hliðar-
gluggann og varpaði brúsanum
fyrir borð.
Ferðafélaginn tók aftur gleði
sína, en þá tók að draga af mér.
Ég hafði smitast af þenslusjúk-
dómnum margumrædda og það
sem verra var, hinn heittelskaði
geneverbrúsi var heillum horfinn,
hafði líklega rotað sel á Skeiðarárs-
andi, fullur af þvagi. Ekki leið á
löngu þar til ég var orðinn viðþols-
laus og kominn næstum í keng.
Flugmaðurinn sagðist hvergi geta
lent og yrði ég bara að pissa á
gólfíð ef ég gæti ekki haldið í mér.
I angist minni starði ég niður á
gólfið, alveg kominn að því að
springa, hélt ég. Sá ég þá allt í
einu að ég var klæddur í þessar
yndislegu gúmmíbomsur. Forsjónin
hafði haft vit fyrir mér. Ég var
ekki lengi að snara mér úr annarri
bomsunni og tók hún með ánægju
við innihaldi minnar blöðru! Eg
skorðaði hana svo milli fóta mér
og losaði hana þegar við lentum.
Vitanlega tókum við nú báðir gleði
okkar aftur og sungum „Nótt í
Moskvu“ af innlifun.
Hafnardag-
ur í gömlu
höfninni
SÉRSTAKUR Hafnardagur
verður haldinn í gömlu höfninni
hinn 15. ágúst í tilefni af 75 ára
afmæli Reykjavíkurhafnar.
Hátíðahöld verða um alla gömlu
höfnina þennan dag og má t.d.
nefna siglingakeppni, dorgkeppni,
smábátaleigu, skipa- og bátasýn-
ingu og hljómleika og mörg fyrir-
tæki á hafnarsvæðinu munu hafa
opið og kynna starfsemi sína. Mið-
punktur hátíðarhaldanna verður
fiskmarkaðstorg á hafnarbakkan-
um fyrir framan Hafnarhúsið.
Undirbúningur að markaðstorg-
inu er þegar hafinn og reiknað er
með aðstöðu fyrir 30 sölubása.
Markaðstorgið verður staðsett í og
á milli tveggja risatjalda fyrir fram-
an Hafnarhúsið. Kolaportið hf. sér
um umsjón og rekstur þess.
Armstrong
KERFIS-LOFT
Yfir 250 gerðii
af loftaplötum.
CMC -
upphengikerfi
og lím.
Leitið tilboða
EINKAUMBOÐ
TEPPABÚÐIN
B YGGIN G AVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 26.
SÍMI 91-681950
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
4 manna tjald úr bómull,
himinn úr nælon
2 NITESTAR
svefnpokar 0 °
2 dýnur
+ UNGLINGAPAKKI
KULUTJALD
+ 1 SVEFNPOKI
+ HIPPAGRILL
DD-200 kúlutjald
úr vönduðu nælonefni
1 MARCO POLO-450
svefnpoki -20°
Einfalt grillsett
HRINGBORÐ
+ 2 STÓLAR
MALAGA Plastborð
86 O sm
2 BLÁNES plaststólar
með háu baki og
þykkum púðum
hfingdu - við sendum bæhling
Sendum einnígT pösthröfu
+ VEISLUPAKKINN
KÆLIBOX
+ PICNICSETT
+ POTTASETT
Kælibox 32 lítra
4 stólar og borð í tösku
3 pottar, panna
og ketill
Nældu þerí
plúsniboOT
Seglogerðinni..
Tjaldvagnar
Bahpohar
Sólhúsgðgn
Barnaferflarúm
Barnaferflagrind
Gasgrill
Göngushör...
ASTRO
TJALDVAGN
BREMSUBÚNAÐUR
13“ FELGUR
STERK GALVANISERUÐ
STÁLGRIND
MA BREYTA í BÍLAKERRU
EINFÖLD UPPSETNING
SERHANNAÐUR FYRIR
ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
UMBOÐSAÐILI AKUREYRI
ÞORSHAMAR
GHITlDl
ÖltFlHlSEY
Opið um helginð
LAUGARDAG kl. 10 - 16
SUNNUDAG kl. 14-17
...þar sem ferOalagiO bgrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLÓÐ 7 • REYKJAVÍK • SÍMI91-621760-FAX 91-623853