Morgunblaðið - 18.07.1992, Side 4

Morgunblaðið - 18.07.1992, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1992 Morgunblaðið/KGA Útför Óla Kr. Sigurðssonar gerð frá Selijamameskirkju Útför Óla Kr. Sigurðssonar, forstjóra Olís, var gerð frá Seltjarnarneskirkju í gær að viðstöddu fjölmenni. Vinir og samstarfsmenn Óla báru kistu hans úr kirkjunni. Á myndinni sjást frá vinstri Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri, Gunnar Jóhannsson, forstjóri, Óskar Magnússon, lögmaður, Ágúst Einars- son, framkvæmdastjóri, Fritz Johansen, stjómarmaður í Texaco í Danmörku, og Sven Gullev, forstjóri Texaco í Danmörku. Auk þeirra báru kistuna þeir Sveinlaugur Kristjánsson, framkvæmdastjóri og Tryggvi Geirsson, formaður Þróttar. VEÐUR VEBURHORFURI DAG, 18. JULI YFIRLIT: Um 700 km suður af iandinu er nærri kyrrstæð 990 mb lægð en miiii Jan Mayen og Noregs er 1015 mb hæð. Hiti breytist lítið. SPA: Austlæg étt, víðast gola eða kaldi. Súld eða rigning suðaustan- iands og með suður- og austurströndinni. Annars staðar verður skýjað með köflum. Híti verður 10-14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðaustlæg étt, víðast kaldi og fremur svalt. Skýjað og dálítil rigning um norðanvert landið, en þurrt og víða léttskýjað syðra. Svarsími Veðurstofu (stands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt r r r r r r r r Rigning a Léttskýjað * / * * / / * / Stydda & Hálfskýjað * * * * * ♦ * * Snjókoma Skýjað Alskýjað V V V Skúrír Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil flöður er 2 vindstig., 10° Hitastig Súld Þoka ríig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær) Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er nú fjallabílum um mestallt hálendið. Þó er Hlöðuvaliavegur ennþá ófær. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Að gefnu tilefni skal bent á að klæðn- ingaflokkar eru nú að störfum vlða um landið og eru ökumenn beðnir um að virða sérstakar hraðatakmarkanir til þess að forðast tjón af völd- um steinkasts. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hiti 11 12 veður skýjaö mlstur Bergen 17 alskýjað Helsinkl 19 háttskýjaö Kaupmannahöfn vantar Narssaresuaq 12 akýjað Nuuk S þokaá8(ð.klst. Osló 21 skýjað Stokkhólmur vantar Þórshöfn vantar Algarve 26 skýjað Amsterdam 18 rlgning Barcelona 26 þokumöða Berlfn 26 alskýjað Chicago vantar Feneyjar 27 heiðskírt Frankfurt 27 fikúr ó síft. klst. Glasgow 20 skýjað Hamborg 24 mistur London 22 skýjað LosAngeles vantar Lúxemborg vantar Madrid 34 léttskýjað Malaga 27 léttskýjað Mallorca 28 heiðskfrt Montreal vantar NewYork vantar Oriando vantar Par(8 22 skýjað Madelra 22 léttskýjað Róm 26 heíðskfrt Vín 26 léttskýjað Washington vantar Wlnnipeg vantar kl 12 00 IDAG Helmild: Veðurutoia íslands (Byggt ó veðurspá W. 16.15 f gœr) Grindavík: Samstarf sveit- arfélaga á Suð- umesjum í hættu Grindavík. FUNDAR stjórnar Hitaveitu Suðurnesja um málefni Bláa lónsins er beðið með mikilli eftirvæntingu i Grindavík. Afgreiðsla málsins gæti haft áhrif á hið mikla samstarf sem sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa í málefnum sem skipta miklu máli fyrir þau. Hér er átt við þá ákvörðun bæjar- stjórnar Grindavíkur um að sækjast eftir því að gerast rekstraraðili að baðhúsinu við Bláa lónið en ákvörð- unin hefur valdið miklum titringi í bæjarstjórnum í Keflavík og Njarð- vík. Málið hefur farið það langt að bæjarstjóm Keflavíkur hefur farið fram á hlutfallskosningu í stjóm Hitaveitunnar um málið. Þegar til samstarfsins var stofnað var klásúla um það að í einstaka málum gæti hver aðili fyrir sig ósk- að eftir hlutfallskosningu, þá sér- staklega í málefnum þar sem ákvörðun eins aðila snerti málefni annarra. Á þetta hefur ekki reynt áður. í málefni Bláa lónsins em það aðallega bæjarstjórnir Grindavíkur og Keflavíkur sem eigast við en það var Keflavíkurbær sem óskaði eftir því að hlutfallskosning færi fram sem gefur þeim að nokkru leyti möguleika að hafna ósk Grindavík- urbæjar og það er það sem fer fyrir brjóstið á mönnum í Grindavík. Samstarfið milli sveitarfélaganna hefur að mestu leyti verið gott í gegnum árin þó ágreiningsefni hafí komið upp. Sveitafélögin reka sam- eiginlega fyrirtæki eins og hitaveitu, sorphirðu, framhaldsskóla og sjúkra- hús. Þetta eru fyrirtæki sem fer vel á að fleiri en eitt sveitarfélag reki og sveitarstjórnir annars staðar á landinu hafa oft litið til SSS þegar rætt er um sameiningu sveitarfé- laga. Nú gæti þetta samstarf verið í hættu ef samkomulagið milli Grindavíkurbæjar og HS verður fellt. Eðvarð Júlíusson bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar í Grindavík er formaður stjómar HS að þessu sinni. Hann sagði í samtali við Morgun- blaðið að fundur stjórnar HS verði í næstu viku. „Það er hætt við að samstarfið milli sveitarfélaganna verði stirðara ef samkomulag Grindavíkurbæjar og HS verður fellt. Það er að mínu mati miður því það hefur verið gott á liðnum árum. Það hefur verið samkennd með sveitarfé- lögunum á svæðinu að hafa sam- starf um að halda utan um það sem gert er á Suðurnesjum og oft vitnað í það af öðrum sveitarfélögum á landinu. Bláa lónsmálið er einnig þannig vaxið að það er smámál mið- að við öll hin og ég skil pkki í þessu upphlaupi nú,“ sagði Eðvarð Júlíus- son. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að unnið sé að lausn málsins fyrir fundinn til að jafna ágreinings- mál. Það hefur einnig komið mönn- um á óvart hve hörð viðbrögð ákvörðun Grindavíkurbæjar hefur vakið hjá nágrannasveitarfélögum. Það hefur einnig verið bent á að smærri sveitarfélögin líti á óskina um hlutfallskosningu sem árás á sig og í versta falli gæti það orðið til þess að fulltrúar þeirra verði varla nema áheyrnarfulltrúar. Reglan er að hver fulltrúi á eitt atkvæði i SSS og hefur farið vel á því að sögn manna. FÓ Viðræður halda áfram um aukaaðild að VES FULLTRÚAR íslenskra stjórnvalda áttu í viðræðum í Róm um aukaað- ild íslands að Vestur-Evrópusambandinu á fimmtudag. Á fundinum var gengið frá vinnuáætlun sem n ir lok þessa árs og er stefnt að því Dr. Gunnar Pálsson, sendiherra, sem var fulltrúi íslands á fundinum ásamt Benedikt Ásgeirssyni, sendi- fulltrúa, flutti yfírlýsingu á fundin- um fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. í yfirlýsingunni kemur m.a. fram að í kjölfar breytinganna í Evrópu sé það mikilvægt að stuðla að öflugu samstarfi og að ekkert ríki einangr- ist. Bent er á það að ísland er ekki aðili að EB og að íslensk stjómvöld hafi ekki í hyggju að gerast aðili að bandalaginu. Þar að auki hafi ísland ekki eigin her og geti því ekki tekið þátt í heræfíngum VES. í yfírlýsingunni er jafnframt tekið fram að íslensk stjómvöld telji, sem stofnaðili að NATO, að Atlantshafs- bandalagið eigi að vera aðal um- að þvi að viðræðum ljúki fyr- að næsti fundur verði í september. ræðuvettvangur um öryggis- og varnarmál. Að lokum er bent á það að ísland hafi tvíhliða varnarsamn- ing við Bandaríkin og því sé lögð mikil áhersla á samstarf við banda- rísk stjómvöld um öryggismál. Gunnar Gunnarsson, skrifstofu- stjóri í utanríkisráðuneytinu, sagði að framhald yrði á viðræðunum um aukaaðild að VES í september. Rætt yrði við þau ríki sem hefðu fengið boð um aukaaðild Noreg, Tyrkland og ísland, saman. Gunnar sagði að þetta hefði verið ágætis fundur í Róm, lagðar hefðu verið fram spurningar bæði frá þeim sem hefðu hug á fullri aðild og aukaað- ild, og svör myndu fást á framhalds- fundum. Humarstuldurinn í Ámesi óupplýstur: Sennilega búið að éta sönnunargögnin HUMARSTULDURINN úr frystigeymslum Arness hf. á Stokkseyri er enn óupplýstur og litlar líkur taldar á að humarinn finnist. Málið er enn í rannsókn þjá lögreglunni á Selfossi en samkvæmt upplýsingum þaðan eru allar líkur taldar á að búið sé að éta sönnunargögnin enda hefur ágætt grillveður verið síðustu daga. Sem kunnugt er af fréttum var ræða tvennskonar pakkningar, tæplega 800 kg. af humri stolið úr skrautpakkningar með merki frysti- frystigeymslúnum fyrir rúmlega hússins og hvítar pakkningar merkt- viku. Verðmæti humarsins var tæp- ar „hótel“. lega milljón krónur en um var að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.