Morgunblaðið - 18.07.1992, Blaðsíða 5
(
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JULI 1992
5
Sóley hefur num-
ið land í Surtsey
LEIÐANGUR þriggja líffræðinga út í Surtsey 13. og 14. júlí Ieiddi
í ijós að þar vaxa í sumar þrjár tegundir æðri plantna sem ekki
hafa áður fundist í eynni. Fuglalíf er töluvert í Surtsey og vex
gróðurinn jafnt og þétt kringum varpstöðvar fuglanna.
Tegundirnar þrjár sem nú fund-
ust í fyrsta sinn í Surtsey eru
hálíngresi, hnjáliðagras og
brennisóley. Að þeim meðtöldum
hafa fundist 32 tegundir æðri
plantna þar. Sex tegundir sjófugla
verpa í Surtsey og þar koma við
fleiri fuglategundir, þar á meðal
sólskríkja. Sílamávar eiga stærstu
byggðina, en nær eitt hundrað
sílamávapör hafa komið upp ung-
um í eynni í sumar. Hrafnahjón
hafa komið sér upp myndarlegu
hreiðri í Surtsey og meðal annars
safnað mælistikum vísindamanna
í laup sinn. Hrafninn hefur þó enn
ekki verpt í þessa smíð.
Sturla Friðriksson var einn leið-
angursmanna og segir hann að
jarðvegur sé nánast enginn í
Surtsey og vaxi plönturnar ýmist
á beru helluhrauninu eða í sandi.
Morgunblaðið/St.Fr.
Fýlsungi í hreiðri i Surtsey.
Mest eru þetta strandjurtir og
melaplöntur og álíta vísindamenn-
irnir að fræ þeirra hafi borist til
eyjarinnar með fugli.
Ríkissjónvarpið:
Bein útsending daglega
frá Ólympíuleikunum
BEINAR útsendingar verða dag hvern í Sjónvarpinu frá Ólympíuleik-
unum í Barcelona á Spáni. Utsendingar hefjast laugardaginn 25.
júlí kl. 17.55 þegar sjónvarpað verður frá opnunarhátíð leikanna en
hlé verður á útsendingu vegna frétta frá fréttastofu og þegar dreg-
ið er í Happó og Lottó. Leikunum lýkur sunnudaginn 9. ágúst.
Fyrsti íslenski keppandinn á
skjánum verður Helga Sigurðar-
dóttir, sem keppir í sundi kl. 8 að
morgni sunnudagsins 26. júlí og
daginn eftir keppir Ragnheiður
Runólfsdóttir í bringusundi.
Fyrirhugað er að sýna frá úrslit-
um í 95 kg flokki í júdó á þriðjudag
komist Bjarni Friðriksson í úrslit.
Miðvikudaginn 29. keppir Ragn-
heiður á ný í sundi og föstudaginn
31. keppir Pétur Guðmundsson í
kúluvarpi og Helga Sigurðardóttir
í sundi. Mánudaginn 3. ágúst kepp-
ir Vésteinn Hafsteinsson í kringlu-
kasti og hefjast útsendingar kl. 7.25
að morgni. Föstudaginn 7. ágúst
keppa Einar Vilhjálmsson og Sig-
urður Einarsson í spjótkasti
snemma að morgni.
Kúlutjöld
frá 8.890
qfRLAGERÐIN ffiGjj
Hustjöld
frá 32,200
Svefnpokar-5
frá 3.880
Gonguskor
frá 6.300
A-tjold
frá 5.900
Bakpokar
frá 2.000
Regnfot
fr á 2.950
Borð 4 stolar
m. baki
frá 5.400
'Xtfnon
/fiv
tlringdu - við sendum bækling
Sendum einnig í póslhröfu
SeglagerOinni...
FAGFÓLK í FERÐAVÖRUM
Pottasett
frá 1.106
Primusar
Opið um helgina...
LAUGARDAG kl. 10 - 16
SUNNUDAG kl. 14-17
ÞjONUSTA GÆDÍ ÞEKKtNG
Tjaldvagnar ÖijjJSL.
Tjöld - 35 gerðir H
Sólhösgögn
Svefnpohar
Bahpohar
Primusar
Falnaöur
Göngushór
og margl fleira...
...þar sem ferðalagið bgrjar!
SEGLAGERÐIN
EYJASLOÐ 7 • REYKJAVIK • SINII91-621780 • FAX 91-623853