Morgunblaðið - 18.07.1992, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JULI 1992
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,-
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Afstaða stjornar-
andstöðu til VES
Skýrsla John G. Pope til sjávarútvegsráðherra:
Styður tillögiir um 40% nið-
urskurð þorskveiðikvótans
ingflokkar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks hafa sam-
þykkt fyrir sitt leyti, að fulltrúar
Islands taki þátt í viðræðum í
Rómaborg um aukaaðild að
Vestur-Evrópusambandinu, en
þær hófust sl. fimmtudag. Aðilar
að VES eru níu bandalagsþjóðir
íslendinga í NATO, sem aðild eiga
að Evrópubandalaginu, en nú er
ráðgert að aðrar þjóðir EB gangi
í Vestur-Evrópusambandið, auk
þess sem þremur NATO-ríkjum
utan EB verður boðin aukaaðild,
þ.e. íslandi, Noregi og Tyrklandi.
í kjölfar þeirra miklu breytinga,
sem orðið hafa á hernaðarsviðinu
eftir fall kommúnismans í Austur-
Evrópu, hafa Bandaríkin og
Kanada flutt eða munu flytja mik-
inn hluta herafla síns heim frá
Evrópu og háværar raddir og kröf-
ur hafa verið uppi um það, að
bandalagslöndin í álfunni taki rík-
ari þátt í vörnum hennar. Þetta
miðar að eflingu Evrópustoðar
Atlantshafsbandalagsins og er
gert með fullum stuðningi banda-
lagsþjóðanna vestan megin Atl-
antshafsins. Vettvangurinn, sem
valinn hefur verið fyrir þetta
aukna samstarf bandalagsþjóð-
anna í Evrópu, er Vestur-Evrópu-
sambandið. Það var stofnað
skömmu eftir heimsstyrjöldina og
var fyrirrennari Atlantshafs-
bandalagsins. Ennþá er of snemmt
að spá um endanlega mynd þessa
nýja vamarsamstarfs, en ljóst er
að VES verður einnig vettvangur
Evrópubandalagsríkjanna í varn-
armálum og að því er ætlað frið-
argæzluhlutverk í álfunni utan
hefðbundins varnarsvæðis NATO-
ríkjanna.
Það eru augljóslega hagsmunir
íslendinga að taka þátt í þeim
umræðum sem fram munu fara
næstu misseri um skipan öryggis-
mála í okkar heimshluta, eiga þátt
í þeirri þróun sem mótuð verður.
Aðildin að NATO og varnarsamn-
ingurinn við Bandaríkin verða
áfram hornsteinn í stefnu íslands
í öryggismálum en það er eðlilegt,
að við tökum boði bandamanna
okkar í Evrópu um viðræður um
aukaðild að Vestur-Evrópusam-
bandinu. Þannig gefst okkur kost-
ur á því að fylgjast með þróun,
sem skipt getur sköpum um ör-
yggi lands og þjóðar. Þótt þátttaka
okkar í viðræðunum leiði ekki til
annars en þess að við getum fylgst
með umræðum og aflað okkur
upplýsinga er það næg ástæða til
að þekkjast boðið.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
þrír, Framsóknarflokkur, Alþýðu-
bandalag og Kvennalisti, hafa alKr
tekið afstöðu gegn þátttöku Is-
lands í viðræðunum. Þessi afstaða
er með ólíkindum, þegar hagsmun-
ir íslands er hafðir í huga, enda
eru rökin, sem þessir flokkar hafa
borið á borð gegn viðræðum um
aukaaðild að VES, mjög léttvæg,
að ekki sé meira sagt. Formaður
þingflokks Kvennalistans segir
einfaldlega, að flokkurinn sé and-
vígur aðild íslands að öllum hern-
aðarbandalögum. Það er skoðun
út af fyrir sig , en tekur ekkert
tillit til öryggishagsmuna þjóðar-
innar og þeirrar staðreyndar, að
ísland hefur verið aðili að Atlants-
hafsbandalaginu í meira en fjöru-
tíu ár og hefur þannig tryggt ör-
yggi sitt á kjarnorkuöld, auk þess
sem aðildin átti stóran þátt í að
færa okkur sigur í landhelgisstríð-
unum.
Mótrök Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags byggjast fyrst
og fremst á því, að með aukaaðild
að VES sé verið að draga íslend-
inga til æ nánara samstarfs við
Evrópubandalagið, undirbúa jarð-
veginn fyrir aðild að því. Þetta
stenst engan veginn. Við eigum
þegar náið samstarf við aðildar-
þjóðir EB innan NATO, Evrópu-
ráðsins, RÖSE og SÞ. Þessar þjóð-
ir standa okkur næst, utan Norð-
urlanda, í menningarlegum, sögu-
legum og siðferðilegum efnum.
Þetta eru mestu og beztu við-
skiptalönd okkar. Eru þær óhæfar
til samstarfs eingöngu vegna að-
ildar að Evrópubandalaginu? Hví-
líkt og annað eins! Það er marg-
yfirlýst stefna núverandi ríkis-
stjórnar, að ísland mun ekki sækja
um aðild að EB. Samstarf við
bandalagsríki okkar í Evrópu í
öryggismálum breytir þar engu
um.
Afstaða Framsóknarflokksins í
þessu máli kemur nokkuð á óvart,
því hann hefur alla tíð stutt aðild
Islands að NATO og því er illskilj-
anlegt, að flokkurinn sé andvígur
nánari samstarfi við bandalagsrík-
in í Evrópu í ljósi þeirra breyt-
inga, sem við blasa í öryggismál-
um. Afstaða Alþýðubandalagsins
er aftur á móti sú sama og verið
hefur alla tíð og í samræmi við
afstöðu fyrirrennaranna, Sósíal-
istaflokksins og Kommúnista-
flokksins. Samstarf íslands við
vestrænar lýðræðisþjóðir hefur
alltaf verið flokknum þymir í aug-
um. Hann hefur verið boðberi ein-
angrunarstefnu, afturhalds og
þjóðernisrembings. Flokkurinn var
andvígur aðild að NATO og EFTA,
á móti erlendu fjármagni við upp-
byggingu stóriðju og að sjálfsögðu
er flokkurinn andvígur aðild að
Evrópsku efnahagssvæði. Svo
segjast forustumenn hans ekki
eiga við neinn fortíðarvanda að
stríða! Það hefur ekkert breytzt
hjá flokknum þótt járntjaldið sé
fallið.
Það er að sjálfsögðu hlutverk
stjórnarandstöðu að veita ríkis-
stjórn viðnám. En það hlutverk
nær að sjálfsögðu ekki svo langt
að snúast gegn augljósum hags-
munum þjóðarinnar.
HÉR á eftir fara helstu niðurstöð-
ur John G. Pope eftir yfirferð
hans yfir tillögur Alþjóðahafrann-
sóknarráðsins og Hafrannsókna-
stofnunar um þorskkvóta á næsta
ári:
Ráðgjöf ráðgjafanefndar Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins (ACFM) fyrir
íslenska þorskstofninn árið 1992 var
eftirfarandi:
„Sóknin í þennan stofn er talin
vera komin á það stig, að leiða muni
til þess að stofninn stefni niður fyrir
líffræðilega ásættanlegt lágmark.
Þess vegna mælir ráðgjafanefnd Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins með, að
strax verði dregið vemlega úr sókn
árið 1993. Fiskveiðidánarstuðull árið
1993 eigi ekki að vera hærri en 0,46
sem samsvari að afli 1993 fari ekki
fram úr 154 þús. tonnum."
í ljósi þeirra afleiðinga sem slík
Þingið „Barnið í brennidepli“ hefst
þriðjudaginn 4. ágúst og stendur til
fímmtudagsins 8. Þingstörf munu
fara fram í húsnæði Háskóla ís-
lands; í Odda, Árnagarði og Lög-
bergi. Dómsmálaráðherra, Þorsteinn
Pálsson, mun setja þingið en að setn-
ingarathöfninni lokinni verða pall-
borðsumræður um stöðu barna á
Norðurlöndum almennt. Þátttakend-
ur í þeim verða Peer Skjaelaan frá
Noregi, Iba Sahn frá Svíþjóð, Teuvo
Peltoniemi frá Finnlandi, Margit
Harder frá Danmörku og Pétur Lúð-
vígsson frá íslandi. Þá flytur Kari
Killén frá Noregi fyrirlestur um van-
rækslu barna og forvarnastarf í þeim
efnum.
Annan dag þingsins flytur Baldur
Kristjánsson frá íslandi fyrirlestur
um lífshætti nútímans með tilliti til
umönnunar barna, Terry Ogden frá
minnkun sóknar hefur á þjóðarbú-
skap íslendinga bað sjávarútvegs-
ráðuneyti mig að endurskoða úttekt
og aflaspár ACFM.
Ráðgjöf eins og sett er fram af
ACFM má túlka sem svör við þrem-
ur eftirfarandi grundvallarspurning-
um.
1) Hvernig er núverandi ástandi
stofnsins háttað (hversu margir fisk-
ar eru í stofninum og hversu há er
veiðidánartalan)?
2) Hver er æskilegasta stofn-
stærð þegar til lengri tíma er litið
(hversu stór á hrygningarstofn að
vera og hvaða sókn er æskilegust)?
3) Hvernig á að draga úr núver-
andi sókn yfir í æskilega sókn? Á
þetta að vera gert smám saman eða
í einu skrefi?
Með tilliti til ráðgjafar ACFM hef
ég þess vegna skoðað hvert þessara
Noregi heldur fyrirlestur um „barnið
í skipulagslegri ringulreið" og Martti
Mikkola frá Finnlandi fjallar um lög
og lagasetningu í tengslum við mál-
efni barna.
Síðasta þingdaginn mun Jens Raa-
hauge frá Danmörku fjalla um rétt-
indi barna og siðferðilega hlið mála,
sem tengjast málefnum þeirra. Þá
mun Staffan Mjönás frá Svíþjóð
fjalla um fyrirbyggjandi starf, sér-
staklega með tilliti til vanrækslu.
Gert er ráð fyrir að Jóhanna Sigurð-
ardóttir, félagsmálaráðherra, muni
slíta þinginu.
Tugir fyrirlesara frá öllum
N orðurlöndunum
Auk þessara fyrirlestra verður
efnt til umræðna í smærri hópum
um tiltekin efni, sem tengjast megin-
atriða fyrir sig.
Til að aðstoða mig við þetta endur-
mat setti ég á laggirnar vinnuhóp
við Fiskirannsóknastofnunina í
Lowestoft dagana 7.-9. júlí til þess
að fara yfir úttekt á íslenska þorsk-
stofninum í smáatriðum. í vinnu-
hópnum störfuðu 7 vísindamenn frá
Lowestoft. Auk þeirra var tilkvaddur
dr. Gunnar Stefánsson frá Hafrann-
sóknastofnuninni og dr. Kristján
Þórarinsson frá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna sat fundinn
sem áheyrnarfulltrúi.
Til þess að meta núverandi ástand
íslenska þorskstofnsins fór vinnu-
hópurinn nákvæmlega yfir gögn þau
sem notuð voru af Norðvesturvinnu-
nefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins.
Með smávægilegum undantekning-
um var fallist á að styðjast við það
stofnmat. Vinnuhópurinn féllst einn-
ig á aðferðir þær sem Norðvestur-
Vinnunefndin notaði við stofnmatið.
Aðferðir vinnunefndar Alþjóðaha-
frannsóknaráðsins voru bornar sam-
an við aðrar aðferðir til að meta
stofnstærð. Niðurstöðurnar voru
bornar saman við tímaraðagreiningu
sem þróuð var af dr. Guðmundi
Guðmundssyni hjá Seðlabanka ís-
lands, við niðurstöður úr Laurec-
Sheperd aðferðinni og XSA-aðferð-
inni (Extended Survivors Analysis).
Dr. Shepherd sem þróaði báðar síðar-
nefndu aðferðirnar var i Lowestoft-
vinnuhópnum og lagði á ráðin um
notkun þessara aðferða. Trúverðug-
ustu niðurstöðurnar úr öllum þessum
aðferðum voru mjög í líkingu við
niðurstöður Norðvesturvinnunefndar
Alþjóðahafrannsóknaráðsins og
reyndust meðalfiskveiðidánarstuðlar
Lowestoft-vinnuhópsins vera innan
við 10% frá niðurstöðum hennar.
Ég tel að þessar niðurstöður séu
innan líklegra skekkjumarka á stofn-
matinu. Allar aðferðirnar benda til
umræðuefni þingsins. Þar verða
fluttir tugir erinda og eru fyrirlesar-
ar frá öllum Norðurlöndunum, auk
þess sem gestur frá Eistlandi, Katrin
Maldre, mun kynna stöðu barna þar
í landi. Efnin, sem tekin verða fyrir
í umræðuhópunum eru til dæmis
staða barna í fjölskyldum þar sem
áfengismisnotkun eða fíkniefna-
neysla á sér stað, barnavernd út frá
ýmsum sjónarmiðum og fyrirbyggj-
andi aðgerðir í þeim efnum, van-
ræksla, kynferðisleg misnotkun
barna og úrræði til að aðstoða börn,
sem sætt hafa illri meðferð af ein-
hverju tagi.
Nokkrir íslendingar halda fyrir-
lestra í umræðuhópunum. Olafur
Ólafsson, landlæknir, fjallar meðal
annars um málefni ungra vímuefna-
neytenda og áhrif breytts fjölskyldu-
mynsturs á börn, Eiríkur Örn Arnar-
son um starfsemi Rauðakrosshússins
í Reykjavík, Magnús Ólafsson,
Hjálmar Freysteinsson og Karólína
Stefánsdóttir ræða um fyrirbyggj-
andi starf og eftirlit með umönnun
ungbarna á heilsugæslustöð á Akur-
eyri, Gunnar Helgi Gunnarsson og
Anna Björg Aradóttir ræða um
„lyklabörn" á íslandi, Brynjólfur
Brynjólfsson gerir grein fyrir niður-
stöðum rannsóknar sálfræðideildar
Réttarholtsskóla á daglegu lífi 9 ára
barna í Reykjavík, Helga Þórólfs-
dóttir og Sigrún Óskarsdóttir fjalla
um það að vinna með börnum í
þess að meðalfiskveiðidánarstuðlar
séu háir. Þar sem tvær síðastnefndu
aðferðirnar taka ekki tillit til gangna
þorsks frá Grænlandi til íslands né
niðurstaðna úr stofnmælingum botn-
fiska árið 1992 lít ég svo á að niður-
stöður vinnunefndar Alþjóðaha-
frannsóknaráðsins gefi besta mynd
af núverandi ástandi þorskstofnsins
miðað við fyrirliggjandi gögn. Aðaln-
iðurstöður um þróun fiskveiðidauða
undanfarið í íslenska þorskstofninum
voru ennfremur staðfestar með svo-
nefndri fervikagreiningu,
Athugun á sambandi afraksturs
og veiðidánartölu þegar til lengri
tíma er litið bendir til að veiðidánar-
talan í íslenska þorskstofninum sé
allt of há fyrir flest markmið veiði-
stjórnunar og vænta megi meiri afla,
stærri stofns, hærri afla á sóknarein-
ingu og meiri arðsemi af veiðunum
við minni sókn. Nákvæm athugun á
sambandinu milli stofnstærðar og
nýliðunar gaf til kynna að enda þótt
þetta samband; að lítill stofn gefi
af sér fáa hýliða sé ekki marktækt
skv. hefðbundinni tölfræðilegri skil-
greiningu er þetta þó raunhæfur
möguleiki sem taka ber mjög alvar-
lega. Það er almenn samstaða um
það í vinnuhópnum, að mikil áhætta
væri því samfara að hrygningastofn
íslenska þorsksins fari niður fyrir
180 þús. tonn á hrygningartíma, og
staða stofnsins yrði miklu öruggari
ef hann væri yfir 400.000 tonn.
Aflaspár árin 1992-1996 benda
til að með núverandi sókn muni
hrygningarstofninn fara niður fyrir
180.000 þús. tonn og aðeins með
því að draga úr sókninni um 40%
mun nægilega öruggt að hrygning-
arstofninn vaxi viðunandi hratt og
fari ekki niður fyrir 180 þús. tonn.
Þess vegna styð ég ráðgjöf ACFM
að öllu leyti og mæli með henni við
ríkisstjórn íslands.
barnaverndarmálum og loks ræðir
Hrefna Ólafsdóttir um meðferð van-
ræktra barna og fjölskyldna þeirra.
Undirbúningur hófst í
september
Fyrsta norræna þingið af þessu
tagi var haldið 1983 og hafa þau
verið haldin á um tveggja ára fresti
síðan. Að sögn Gerðar Helgadóttur,
ritara þingsins í Reykjavík, standa
hópar áhugamanna um málefni
barna að þinghaldinu með stuðningi
opinberra aðila í löndunum. í undir-
búningsnefnd af Islands hálfu sitja
þau Hulda Guðmundsdóttir, formað-
ur, Gunnar Sandholt, Guðjón Bjarna-
son, Pétur Lúðvígsson, Bragi Guð-
brandsson og Guðjón Magnússon.
Gerður segir að undirbúningur
þessa þings hafi hafist í september
í fyrra og hafi íslensku nefndarmenn-
irnir unnið að málinu síðan þá í sam-
starfi við fulltrúa hinna landanna.
Ráðstefnur og fundir hf. í Kópavogi
hafi aðstoðað við undirbúning og
skipulag, en búast megi við að þing-
fulltrúar nú verði 350 til 400 og
erlendir gestir þar í töluverðum
meirihluta. Þegar hafi 380 manns
skráð sig til þátttöku og enn sé
hægt að bæta fleirum við. Segir
Gerður, að þeir sem áhuga hafi,
geti haft samband við sig á Borgar-
spítalanum alveg fram að þinginu,
en best sé auðvitað að fólk skrái sig
sem fyrst.
Hæðargarður 29:
Borgarráð hefur
samþykkt stækkun
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt, að heimila stækkun á
áður samþykktu húsi Réttar-
holts við Hæðargarð 29. Fram-
húsið verður stækkað um 20
sm til austurs og vesturs og
dýpkað um 130 sm og vestara
bakhúsið lengist um 130 sm
til vesturs.
Þrír borgarráðsfulltrúar
greiddu atkvæði með stækkun-
inni tveir voru á móti, Katrín
Fjeldsted fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og Ólína Þorvarðar-
dóttir fulltrúi Nýs vettvangs.
Lagði Ólína fram bókun þar sem
segir að, „Ég hef frá upphafi
þessa máls verið þeirrar skoðun-
ar að þarna ætti ekki að reisa
neitt hús og sömu skoðunar voru
þeir 1200 íbúar við Hæðargarð
sem mótmæltu byggingu þess.
Það er því fráleitt að ég sam-
þykki stækkun byggingarinnar.“
Norrænt þing um málefni barna:
Vandamál hve ung börn eru
oft ein og bera mikla ábyrgð
- segir Gerður Helgadóttir, ritari þingsins
UM 380 manns hafa skráð sig til þátttöku á norrænu þingi um damál-
efni barna, sem haldið verður í Reykjavík í byrjun ágúst. Á þinginu
verður fjallað um illa meðferð á börnum, einkum almenna vanrækslu
og fyrirbyggjandi aðgerðir í því sambandi. Gerður Helgadóttir, ritari
þingsins, segir að þar verði sérstaklega tekið fyrir það vandamál, hve
ung börn séu oft ein og hversu mikil ábyrgð sé lögð þeim á herðar,
bæði þegar þau séu látin sjá um sig sjálf og eins þegar þau eigi að
gæta annarra barna. Gerður segir mikinn áhuga hafa komið fra, á
þinginu, en enn sé hægt að bæta við þátttakendum. Þingið sé fyrst
og fremst ætlað fagfólki, svo sem starfsmönnum heilbrigðisþjónustunn-
ar og menntakerfisins, þeim sem starfi við félagslega þjónustu, lög-
gæslu og dómstörf, sem og öðrum áhugamönnum um málefni barna.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1992
19
Hjólað í húmi nætur. ______________________________________________________________________Morgunblaðið/Þorkell
Jöklafararnir:
Hjólum því meir
eftir því sem við
komumst hærra
„VIÐ hjólum því meira eftir því sem við komumst hærra,“
sögðu hjólreiðamennirnir fimm, sem nú hjóla yfir Vatnajök-
ul. Leiðangursmennirnir voru mjög bjartsýnir með framhaldið
og töldu líklegt að þeir næðu í Jökulheima þann 21. þessa
mánaðar.
Tveir jöklafaranna sjást sér á ferð þar sem þeir draga búnað sinn
á sérstökum drögum.
í dag eru 6 dagar síðan fj all-
göngumennirnir lögðu á jökulinn.
Þeir hafa reyndar annan hátt á
með svefn og vöku en annað
venjulegt fólk. Þeir byija að hjóla
þegar flestir fara að taka á sig
náðir. Það þýðir að þeir hjóla að
jafnaði frá miðnætti fram til tíu
eða ellefu á morgnana.
„Aðstæður hér eru frekar
slæmar. Við hjólum á tiltölulega
nýföllnum snjó, sennilega er hann
aðeins nokkurra nátta gamall."
Hjólreiðarnar hafa eftir sem áður
gengið prýðilega að þeirra mati.
„Við lentum í þoku í upphafi ferð-
ar en síðan hefur veður batnað.
Það lítur einnig vel út með fram-
haldið.“
Fyrsta daginn fóru þeir 11
kílómetra, þann næsta 13 og á
þriðja degi voru famir tuttugu.
Dagleiðir lengjast því stöðugt
eftir því sem þeir eru í meiri hæð.
Hið eina sem gengið hefur
gegn þeim félögum er að fjar-
skiptasamband er svo gott sem
ekkert. Talstöð þeirra er biluð og
ekki bætir úr skák að þeir þurfa
að spara rafhlöðurnar í farsíma
sem þeir höfðu með sér og voru,
þegar Morgunblaðið heimsótti þá
á fjórða degi ferðar sinnar, nær
því rafhlöðulausir.
Leiðangursmenn með öllum búnaði. Frá vinstri: Ingþór Hrafnkels-
son, Ingimundur Stefánsson, Haraldur Örn Ólafsson, Guðmundur
Eyjólfsson og Sigursteinn Baldursson.
Borgarráð veitir dagheimili lækna
styrk að upphæð 8,5 milljónir króna
Framreiknaður heildarkostnaður rúmar 43 milljónir króna um síðustu áramót
BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að styrkja dagheimili Læknafélags
Reykjavíkur við Skerpugötu 1, um 8,5 milljónir króna. Heildarstofn-
kostnaður vegna heimilisins var 35,2 milljónir króna án vaxta og
verðbreytinga. Framreiknaður kostnaður er rúmar 43,3 milljónir
króna miðað við síðustu áramót.
í umsögn Hjörleifs Kvaran fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og stjórn-
sýsludeildar, segir að félagið liafi
keypt húsið, sem stóð við Tjarnar-
götu 11, árið 1989 undir dagvistar-
heimili. Það var síðan flutt að
Skerpugötu 1. Söluverðið var 8,5
millj. og greiddi félagið 6,5 milíj.
en borgin styrkti kaupin um 2 millj.
til uppbyggingar hússins. Styrkur-
inn afskrifast á tíu árum um
200.000 krónur á ári. Fram kemur,
að þegar félagið keypti húsið hafi
gilt lög um dagvistarheimili, sem
heimiluðu félaginu að sækja um
styrk til ríkisins til greiðslu á 50%
af stofnkostnaði. Lögum um verka-
skiptingu ríkis og sveitarféalga var
breytt rétt um það leyti, sem samið
var við félagið þannig að dagvistar-
heimili falla undir sveitarfélög.
Borgarráð samþykkti síðar regl-
ur um styrk til stofnkostnaðar
einkarekinna dagvistarheimila og
miðast þeir við kostnað við frágang
á lóð. Samkvæmt þeirri reglu fékk
Læknafélagið 2,4 millj. Benda for-
svarsmenn félagsins á að styrkveit-
ing borgarsjóðs vegna stofnkostn-
aðar sé miklu lægri en gert var ráð
fyrir frá ríkissjóði, þegar ákvörðun
var tekin um framkvæmdina.
Eins og fram komi í erindi félags-
ins hafi það innheimt aukaárgjöld
af félagsmönnum í tvö ár til þess
að greiða hluta stofnkostnaðar og
hafa þessi gjöld fært félaginu 6,5
millj. en mikil óánægja mun vera
meðal lækna, sem ekki nýta þjón-
ustu dagvistarheimilisins með þess-
ar álögur og hefur verið fallið frá
frekari innheimtu aukaárgjalda.
Elín G. Ólafsdóttir fulltrúi
Kvennalistans, lagið fram bókun
þar sem segir að borgarfulltrúar
minnihlutans hafi lagt til að borgar-
yfirvöld færi styrkveitingar vegna
stofnkostnaðar leikskóla sem aðrir
en borgin setja á laggir í fyrra
horf, þ.e. verði 50% á ný.
„Erindi Læknafélags Reykjavík-
ur sýnir m.a. að núverandi fyrir-
komulag er allsendis ófullnægjandi.
Ég tel óeðlilegt að samþykkja svo
háa styrkveitingu til félagsins á
sama tíma og tillaga okkar er óaf-
greidd."