Morgunblaðið - 18.07.1992, Síða 26

Morgunblaðið - 18.07.1992, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JULI 1992 fólk í fréttum ísleikhús Samanna, þar sem leikið var í 30 stiga gaddi. Haukur Gunnarsson leikshússtjóri uppi á palli til hægTÍ. LEIKHÚS Með Sama- leikhúsið í Síberíu Haukur Gunnarsson leikstjóri var nýkominn úr leikför með Samaleikflokk sinn frá Jakusk í Síberíu, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann, en hann hefur undanfarið hálft annað ár verið ráðinn fyrsti leikstjóri Samaleik- hússins í Kauloheino. Er þar verið að byggja upp fyrsta atvinnuleikhús Sama, sem hefur það markmið að varðveita og auka notkun sama- málsins og efla samíska menningu, jafnframt því að kynna samíska leiklist erlendis og Sömum alþjóða- leiklist. Haukur er ráðinn til þriggja ára á launum frá norska ríkinu. Kvaðst hann ákaflega ánægður þama og viðfangsefnið spennandi. Samaleikhúsið sé nýtt og áhuginn sé gífurlegur, enda flestir leikaram- ir úr fyrri áhugaleikhópum. Kauloheino er skammt frá Alta í Finnmörku, norður undir 70. breiddargráðu. Þetta er stærsta sveitarfélag Noregs, 9.687 ferkm að flatarmáli, og 85% hinna 30-40 þúsund íbúa talar samísku. Menn- ingarsvæði Sama er þó miklu stærra. 50-70 þúsund Samar dreif- ast um flæmi, sem teygir sig yfír norsku, sænsku, finnsku og rússn- esku landamærin. Til þessa svæðis alls nær þetta eina leikhús Sama, Beaiwás. Leikhús er aiveg nýtt til- legg í samíska menningu, þar sem fyrir er söng- og frásagnarlist með rætur langt aftur. Leiksýningar eru í Menningarhúsi frá 1987. Haukur Gunnarsson, sem hefur búið í Nor- egi um árabil og sett m.a. upp leik- sýningar i Pinnlandi, Danmörku og Noregi, var ráðinn þar fyrsti leik- hússtjórinn. Haukur Gunnarsson leikhús- stjóri í Kaulokeino í samræmi við markmiðið að vera samtímis sendiherrar samískar menningar úti í heimi og að flytja Sömum leikverk með rætur í öðrum jarðvegi, má í leikskrá sl. árs sjá að þar eru jöfr.um höndum færð upp sígild ltíikrit eins og eftir Tsjekov og leikrit sem Haukur og samstarfsmenn hans hafa sett sam- an úr samískum kveðskap og sagnalist eða blandað. Til dæmis fékk Narukaumi hlýjar móttökur heima og víðar, m.a. fyrir gestaleik hjá Dramaten í Stokkhólmi, þar sem áheyrendur stóðu upp og hrópuðu. Það samdi Haukur upp úr japönsk- um leik frá byijun 17. aldar, en hann er sem kunnugt er menntaður í Japan. Hann kvaðst hafa lagt drög að því að koma með þetta leik- rit til íslands eftir áramótin. Það yrði sýnt í Þjóðleikhúsinu og samísk dagskrá í Norræna húsinu. Það yrði þá tengt leikför til Færeyja, þar sem Norræna húsið hefur mik- inn áhuga á að fá leikflokkinn til sín. Leiksýningar sl. árs urðu 94. Leikið er á samamáli, en Haukur sagði það ekki virðast valda erfið- leikum, t.d. í nýafstaðinni leikför í Síberíu. Bæði sé sagan sögð í leik- skrá og auk þess leikstíll þannig, notaðar hreyfíngar og músik að hætti Sama. Til dæmis vakti gesta- leikur í Baskalandi fögnuð, þar sem 2.000 áhorfendur ,joikuðu“ fullum hálsi með leikurunum á sviðinu. Mesta athygli vakti kannski sýn- ingin Sezuan í mars á sl ári, en það er ævintýri í ís og snjó, sem leikið var úti í 30 stiga gaddi. í þessum kyrru froshörkum er hægt að setja upp ísleikhús. í hléinu var áhorfend- um boðið upp á heitt hreindýra- kjötsseyði til að hlýja sér. Haukur Gunnarsson hefur víða hlotið mikið lof fyrir Samaleikhúsið. Kínveijar fengu hann til að koma í vor til ráðgjafar, þar sem þeir hafa hug á að setja upp svona ísleik- hús í Norðaustur-Kína. Og samísk- ur málfræðingur, sem hér var á ferð, sagði að Haukur væri að gera stórkostlega hluti. Hann hefur náð góðu sambandi við fólkið og farinn að tala samísku, enda mikill mála- maður. E.Pa. Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Hluti langrar bílalestar Toyotabifreiða við félagsheimilið í Ólafsvík. FERÐALOG Yfir sjö kílómetra löng lest af Toyotabílum Borgarnesi. Nýverið efndi Toyotaumboðið hérlendis til fjölskylduferðar eiganda Toyotabifreiða. Þátttakan varð mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Alls mættu 325 bílar í ferðina og lestin mældist yfir sjö kílómetrar á lengd. Talið var að um tólfhundruð manns hafí vejið í þess- ari fjölskylduferð. Eigendur Toyotabifreiðanna söfn- uðust saman í Borgarnesi og var lagt af stað frá Seleyrinni, sem er sunnan Borgarfjarðarbrúar. Fremst fór útvarpsbíll með útvarp Toyota, en því stjómuðu útvarpsmennirnir Þorgeir Ástvaldsson og Helgi Pét- ursson, þeim til aðstoðar voru þeir Ari Trausti Guðmundsson og Einar Guðjohnsen sem sáu um jarðfræði- og söguskýringar. Aftasti bíllinn var viðgerðarbíll ef eitthvað færi nú úr- skeiðis. Frá Borgarnesi var haldið vestur á Snæfellsnes, yfir Fróðár- heiði og stoppað í Ólafsvík. Segja má að íbúafjöldinn þar hafi tvöfald- ast við komu bílalestarinnar. Eftir kaffiveitingar í félagsheimilinu í Ól- afsvík var haldið fyrir jökul og síðan áð á Amarstapa. Þar vom grillaðar pylsur ofan í mannskapinn og þeim renndi fólk niður við söng og undir- leik Bjartmars Guðlaugssonar hljómlistarmanns. Að sögn forsvarsmanna Toyota- umboðsins tókst þessi fjölskylduferð í alla staði mjög vel. Reyndar hafí það valdið töfum að mun fleiri mættu til leiks en gert hafði verið ráðlfyrir en allt hafi þó gengið vel og ánægju- lega fyrir sig. Bílalestin langa vakti alls staðar mikla athygli þar sem hún fór um, jafnt hjá mönnum og málleysingjum. Erlendir reiðhjólamenn störðu úr sér augun og hross og kindur tóku á rás meðfram girðingum í forundran. Mikil tillitssemi einkenndi ökumenn í þessari bílalest og aðrir ökumenn sýndu mikla þolinmæði þegar lestin fór framhjá. Að sögn forsvarsmanna Toyotaumboðsins er þetta í fjórða skiptið sem efnt er til fjölskylduferð- ar eigenda Toyotabifreiða og er þetta langfjölmennasta ferðin sem farin hefur verið. Fyllsta öryggis var gætt í öllum málum, meðal annars sveimaði þyrla yfir til ljósmyndatöku og eftirlits með bílalestinni. En fleira var í há- loftunum. Á Mýrunum sást haförn sem hringaði tígulega dágóða stund yfír bílalestinni þar sem hún liðaðist áleiðis vestur á Snæfellsnes. TKÞ. Áð var á Arnarstapa og slegið upp heljarinnar grillveislu. KYNNING Ferðavak- inn kynntur FYRIR SKÖMMU voru sett upp tæki víða um land sem nefnast Ferðavakinn eftir samnefndu fyr- irtæki. í þeim er hægt að kalla fram ýmsar upplýsingar fyrir ferðamenn á nokkrum tungumálum s.s. um veður, ástand vega, gististaði, helstu flugferðir, rútuferðir o.fl. Ferðavak- inn býður einnig upp á það að þær upplýsingar sem gefnar eru séu prentaðar út og líka er hægt að sjá lifandi myndir af helstu náttúruperl- um landsins. — S.G. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Guðrún Gunnarsdóttir forstjóri var að kynna möguleika tækisins í Skaftafelli nýlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.